Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Blaðsíða 17
10.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 Tómas tekur undir þetta. „Það er svo mikils virði að upplifa þessa ósnortnu náttúru og víðáttu,“ segir hann en félagarnir viðurkenna að þeir verji svo að segja öllum sínum frítíma á fjöllum eða annars staðar úti í náttúrunni. Eftir að hafa snúið heim úr sér- námi um miðjan síðasta áratug kynntust Tómas og Ólafur á vett- vangi selskapar sem kallast FÍFL, það er Félag íslenskra fjallalækna. „Við fundum strax strenginn á milli okkar enda báðir háðir víðáttunni og kyrrðinni,“ segir Tómas. „Þess utan uppgötvaði ég strax að mættur var á svæðið ofjarl minn þegar kom að ljósmyndun en ég hef alltaf haft gaman af því að taka myndir í ferð- um mínum á fjöll. Myndin getur nefnilega verið ennþá sterkara vopn en orðið.“ Stundum kallaður Balti Ólafi líkaði strax vel að ferðast með Tómasi. „Hann þekkir landið miklu betur en ég sem fylgi bara með og tek myndir. Tommi er mjög góður leiðsögumaður.“ „Og leikstjóri,“ skýtur Tómas kankvís inn í. „Óli kallar mig stund- um Balta.“ Þeir hlæja. „Svo er yfirferðin á honum nátt- úrulega mjög mikil; maður má hafa sig allan við til að halda í við hann. Ég hef aldrei verið í betra formi heldur en eftir að ég fór að elta Tomma,“ segir Ólafur sposkur. Annars taka þeir iðulega tillit hvor til annars. „Það er nauðsynlegt ætli menn að ferðast saman á fjöll- um,“ segir Ólafur. „Við erum orðnir eins og tvíburar; hugsum oft eins og einn maður. Það er kúnst að ganga saman og þegja.“ Eiginkonur þeirra, Dagný Heið- dal og Þóra Þórisdóttir, eru líka oft með í för ásamt syni Ólafs, Tómasi Andra, sem er á fimmtánda ári. „Hann smitaðist ungur af þessari fjallabakteríu og hefur komið í Kverkfjöll, á Hvannadalshnúk og fleiri góða staði sem er örugglega sjaldgæft með krakka á hans aldri,“ segir faðirinn. Kverkfjöll eru í sérstöku uppá- haldi hjá Tómasi, sem segir það eins sjálfsagðan hlut í sínu lífi að fara þangað og að borða morgunmat. Alls hefur hann komið þangað fjöru- tíu sinnum. „Til að byrja með skildi ég ekki hvers vegna Tommi vildi alltaf fara aftur og aftur á sömu staðina en átt- aði mig fljótt á því. Íslensk náttúra er svo margslungin að það er aldrei nákvæmlega eins að koma aftur á sama staðinn,“ segir Ólafur sem sjálfur hefur komið tíu sinnum í Kverkfjöll. Því fleiri, þeim mun betra Þeir vita fátt skemmtilegra en að ferðast með hópi fólks um hálendið og náttúruna. Því fleiri, þeim mun betra. „Besta náttúruverndin er að fara með fólk út í náttúruna. Það er til dæmis mjög sterkt að koma með fólk að fossunum í Árneshreppi; þá má heyra saumnál detta,“ segir Tómas og Ólafur bætir við að alltaf sé jafnskemmtilegt að fylgjast með viðbrögðum fólks þegar það upplifir víðernið og náttúruperlurnar í fyrsta sinn. „Drifkrafturinn er að skynja hvað fólk er snortið og ánægt.“ Þeir taka skýrt fram að þeir séu engir „ofurmenn“ og flestir geti ferðast með þeim, svo lengi sem þeir eru í þokkalegu formi. „Við setjum okkur sem markmið að koma öllum heilum upp og höfum bara einu sinni þurft að hætta við í miðjum klíðum. Það var þegar mað- ur í hópnum fékk hjartsláttar- óreglu,“ segir Tómas en þá kom sér að vonum vel að vera með hjarta- lækni á staðnum. Innlendum ferðamönnum á há- lendinu fjölgar jafnt og þétt og Tómas og Ólafur fagna þessum vax- andi áhuga á náttúru landsins. „Ekki er langt síðan fólk keyrði inn í botn Hvalfjarðar og tjaldaði þar í sumarfríinu. Núna fer það mun víð- ar og nýtur þeirra lystisemda sem landið hefur upp á að bjóða,“ segir Tómas. Verða í samfloti Ólafur og Tómas ferðast mikið um svæði utan alfaraleiðar, með tveggja kílógramma þungt tjald. „Það er ekkert mál að ferðast án þess að vera með tengivagn,“ bendir Tómas á. „Markmiðið er að vera í sem best- um tengslum við náttúruna og í sumar ætlum við að prófa nýja upp- finningu, flothettur,“ bætir hann við, en með þeim hætti geta þeir notið dýrðarinnar liggjandi á bakinu í ám og vötnum. „Við verðum í sam- floti í orðsins fyllstu merkingu en hermt er að maður finni þetabylgjur þegar maður kemst í þetta ástand,“ segir Tómas. Eins og gefur að skilja stjórnar veðrið oftar en ekki för. „Við gerum plön en náum ekki alltaf að fylgja þeim eftir. Stundum þarf maður bara að elta veðrið,“ segir Tómas sem vanur er að fara á Öræfajökul í maí. Að þessu sinni komst hann ekki þangað vegna veðurs; í fyrsta skipti í fjórtán ár. „Það er til marks um það hversu leiðinlegt veðrið var í maí. Vonandi verður sumarið betra!“ Þeir ljúka máli sínu með því að benda á að það séu mikil forréttindi að geta ferðast um landið sitt og notið perlanna sem það hefur upp á að bjóða. „Maður og náttúra eru eitt,“ segir Ólafur, „og við höfum rétt á því að rækta það samband.“ Dæmigerð mynd fyrir félagana; Tómas vísar veginn en Ólafur fylgir á eftir með myndavélina. Við Hvalá í Árneshreppi. „Maður og náttúra eru eitt,“ segir Ólafur Már Björnsson.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.