Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Page 20
hamla því að hún fengi góð hlutverk í framtíð-
inni. „En nú hugsa ég að ég eigi eftir að fá fleiri
tækifæri, einmitt af því ég lít svona út. Þetta á
ekki bara við um mig, heldur alla, af því við höf-
um öll einhverjar efasemdir um okkur sjálf.
Það er algjörlega í okkar höndum hvort við not-
um það sem styrkleika eða veikleika,“ segir
María Thelma sem á við að fólk er alls konar og
bæði í kvikmyndum og á sviði er þörf á alls
kyns útliti fólks. Enda endurspeglar leiklistin
lífið sjálft.
Heppin með leikhópa
María Thelma er alin upp í Kópavogi og fór svo
í Fjölbraut í Garðabæ á leiklistarbraut. „Þar
fékk ég bakteríuna en það var þannig að þegar
ég var í tíunda bekk og þurfti að velja mennta-
skóla, vissi ég ekkert hvað mig langaði að gera.
Ég var feimin og í tilvistarkreppu en þá sá ég
þessa leiklistarbraut og ákvað að prófa. Og hef
ekki litið um öxl síðan. Þetta er mjög góður
undirbúningur undir Listaháskólann,“ segir
María Thelma og segist fljótt hafa fundið að
hún væri þarna á réttri hillu. Eftir stúdentspróf
lá því leiðin beint upp í Listaháskóla og segir
hún námið þar hafa verið krefjandi og tíma-
frekt.
„Maður þarf að vera bæði metnaðarfullur og
seigur til þess að komast í gegnum þetta,“ segir
María Thelma sem þurfti að sjálfsögðu að
þreyta erfitt inntökupróf til þess að komast á
leiklistarbraut. Hún segist hafa sótt um til
prufu áður en hún kláraði stúdentinn til þess að
sjá hvernig ferlið væri, en komst ekki inn enda
stúdentsprófs krafist.
„Svo sótti ég aftur um árið eftir og komst inn.
Það eru tíu teknir inn en hundruð sem sækja
um,“ segir hún.
Eftir útskrift árið 2016 fékk María Thelma
strax hlutverk í sjónvarpsseríunni Föngum,
sem Nína Dögg Filippusdóttir og Unnur Ösp
Stefánsdóttir framleiddu og léku í undir leik-
stjórn Ragnars Bragasonar.
„Það var æðislegt. Mér finnst ég hafa verið
mjög heppin með leikhópa. Það er mjög vel tek-
ið á móti mér og allir mæta mér á jafningja-
grundvelli. Nína og Unnur eru alveg yndis-
legar. Ég lék fangann Írisi og fyrst og fremst
var þetta mjög lærdómsríkt. Það eru svo stór-
kostlegar leikkonur í þessum þáttum og það að
sitja til borðs með þeim var bara: vá! Ég er
mjög þakklát. Ég hefði ekki getað verið heppn-
ari og þetta var ótrúlega skemmtilegt,“ segir
María Thelma.
Að því loknu var hún ráðin í verkefni hjá
Þjóðleikhúsinu þar sem hún hóf störf í janúar
2017 en þar lék hún í barnaleikritinu Ég get og
í Risaeðlunum með tveimur af þekktustu leik-
urum okkar, Eddu Björgvins og Pálma Gests.
„Þar segi ég það sama, hvað ég var ótrúlega
heppin með leikhóp. Þetta var mjög gefandi og
það var aldrei dauð stund, Edda er svo fyndin,“
segir hún.
Hugsanir ungrar konu
Ljóðabókin Skúmaskot er eftir Maríu Thelmu
sem lætur sér ekki nægja að vera á sviði. „Ég
fæ mikla þörf fyrir að skrifa og skrifa mjög
mikið, en gef það ekki endilega út. Eins og með
þessa ljóðabók, þetta er samansafn af einhverri
útrás sem ég endaði svo á að gefa út. Það er
rosalega frelsandi! Ég get ekki ímyndað mér
hversu margar ljóðabækur eru bara í skúff-
unum hjá fólki. Ég komst yfir þann ótta að sýna
þetta öðrum og þá fer manni að vera sama um
hvað fólki finnst. Ég skrifaði ekki bókina með
það markmið í huga að gefa hana út þannig að
þetta er svolítið hrátt og óritskoðað. Það var
svo gott að sleppa bara takinu,“ segir hún og
segir ljóðin fjalla um ástina, lífið og tilveruna.
„Hugsanir ungrar konu,“ segir hún og hlær.
Einnig skrifaði hún sem fyrr segir einleikinn
um foreldra sína sem sýndur verður í Kass-
anum á næsta ári. Þar mun hún standa ein á
sviði.
Er það ekki upphefð að fá að setja upp eigið
leikrit og það í Þjóðleikhúsinu, þú sem ert enn
svo ung?
„Jú, ég held samt að ég fatti það ekki sjálf.
Það var þannig að Ari Matthíasson þjóðleik-
hússtjóri kom og sá verkið þegar ég setti það
upp í Listaháskólanum,“ segir hún en það opn-
aði síðar dyrnar að stærra verki. Hún segir
ekki fleiri leikrit á döfinni á næstunni en þó sé
ekkert útilokað. „Ég gæti alveg fengið símtal á
morgun með boð í að leika í einhverju, maður
veit aldrei.“
Mads er með leikarahjarta
Nýlega var sýnd á Cannes-kvikmyndahátíðinni
myndin Arctic með Mads Mikkelsen í aðal-
hlutverki og Maríu Thelmu. Aðeins þau tvö
leika í myndinni, sem er amerísk-íslensk og
tekin upp hér á landi. Myndin fékk mikið lof í
Cannes og var valin ein af tólf bestu myndum
hátíðarinnar.
Hvernig vildi það til að þú fékkst hlutverkið?
„Það var verið að leita að leikkonu af asískum
uppruna og þau leituðu víða; í Englandi,
Bandaríkjunum og hér heima. Það var haft
samband við mig og ég fékk handritið sent og
svo hitti ég leikstjórann. Svo fékk ég hlut-
verkið. Þetta var ekki prufa heldur átti ég sam-
tal við leikstjóranna. Svo voru tökurnar í apríl
og maí 2017. Þetta var ótrúlega krefjandi verk-
efni,“ segir hún.
„Fyrst og fremst út af veðrinu, við tókum
mest upp á Nesjavöllum og það var allt á kafi í
snjó. Maður var alltaf í stöðugu kapphlaupi við
veðrið og náttúruna,“ segir hún en myndin er
um lífsbaráttu á norðurskautssvæðinu.
Hvernig er myndin?
„Ég var að sjá hana í fyrsta skipti um daginn
í Cannes og fannst hún mjög góð. Maður nær
„Þrautseigjan er mikilvæg.
Það getur enginn vegið og
metið vinnuna þína nema þú
sjálfur. Maður á ekki að taka
minna pláss en maður þarf;
taktu bara meira pláss.
Stattu með þér,“ segir leik-
konan María Thelma.
Morgunblaðið/Ásdís
VIÐTAL
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.6. 2018