Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Síða 24
„Ég mun halda uppi stemningunni
hérna og mun setja á svið hér alls
kyns viðburði þegar traffíkin minnk-
ar aðeins,“ segir Franz Gunnarsson,
viðburða- og markaðsstjóri Granda
Mathallar, en til
stendur að hafa
þarna bæði tónleika
og uppistand.
„Við opnuðum um
síðustu helgi og við-
tökurnar voru gífur-
legar. Það komu um
13-15 þúsund manns
um helgina; það var mikið flæði. Það
er greinilega mikill áhugi,“ segir
hann.
„Hérna erum við að vinna með
„street food“ konsept, eða götubita.
Skammtarnir eru öðruvísi og það er
hægt að kaupa sér smakk á mörgum
stöðum. Hér eru átta staðir og einn
pop-up vagn og þar verða veitinga-
aðilar mánuð í senn og reynum við
að fá frumkvöðla í mat og drykk þar
inn,“ segir hann.
„Hér er verið að bjóða upp á ýms-
ar nýjungar í matargerð og svo er
frábært útsýni yfir höfnina,“ segir
hann. „Svo er hægt að fylgjast með
skipatraffíkinni af skjá hérna, kom-
um og brottförum.“
Götubitarnir á Granda
Grandi Mathöll er spennandi staður þar sem allt iðar af lífi og fjöri. Þar er hægt
að smakka götubita frá öllum heimshornum og fylgjast með skipaferðum í leiðinni.
Texti og ljósmyndir: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Franz Gunnarsson
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.6. 2018
MATUR Blandið saman í blandara hreinu Ísey skyri, frosnum mangóbitum,banana, Royal Gala epli (mínus kjarna), vatni, klaka og smá skvettu
af límónusafa. Hollur og góður drykkur á augabragði!
Mangóbúst
Kjúklingaborgarinn
sívinsæli
Svartur trukkur hefur fundið sér stæði í Mathöll Granda og ber
nafnið The Gastro Truck. Þar ræður ríkjum Gylfi Bergmann
Heimisson.
„Við bjóðum upp á „spicy crispy“
kjúklingaborgara sem við höfum einnig
boðið upp á í matarbílnum okkar,“ segir
Gylfi. „Svo erum við einnig með grænmetis-
útgáfu af honum. Fleiri réttir eru væntanlegir en þetta er allt í
anda „street food“,“ segir hann. „Fyrrverandi kona mín, Linda
Björg Björnsdóttir hannaði alla réttina en hún er ástríðu-
kokkur frá blautu barnsbeini. Uppskriftin er leyndarmál,“
segir Gylfi og hlær.
Lovísa Magnúsdóttir afgreiðir holla og
góða skyrdrykki í pop-up vagni Mathall-
arinnar en leyfir eigandanum að sitja fyr-
ir svörum.
„Við erum að vinna með hreint skyr
og miklu meira grænmeti en við höfum
verið að nota áður í skyrdrykkina,“ segir
Kristinn Sigurjónsson, eigandi Ísey Skyr
bars.
„Okkur bauðst að vera hér í pop-up
vagninum og fáum smá tíma til að kynna
okkar vöru og það hefur fallið í mjög
góðan jarðveg. Það er mikil ánægja að
við séum að nota hreint skyr, án við-
bætts sykurs.“
Meira græn-
meti í skyrið
Hangikjöt af
forystusauði
Hinn alíslenski staður Fjárhúsið
heldur uppi heiðri landsins innan
um hina framandi staði Mathallar-
innar. Eigandinn Herborg Svana
Hjelm segir að þau sérhæfi sig í ís-
lensku lambakjöti.
„Okkar sérréttur sem heitir
Hrúsi er tvíreykt hangikjöt frá
Þistilfirði af forystusauði, en það er
mikið fituminna. Þetta er nýútgáfa
af flatköku með hangikjöti, mjög
einfalt, ferskt og ótrúlega gott.“
„Vinsælastar á víetnamska
veitingastaðnum Go Cuon eru
ferskar kínarúllur, djúpsteiktar ör-
stutt, og vorrúlla með fersku
grænmeti og annaðhvort með
kjúklingi eða rækjum. Utan um
það er glær pönnukaka en svo dýf-
ir maður þessu í sósu,“ segir eig-
andinn Karen Lien Thi Nguyen,
sem nýtur þess að sýna gestum og
gangandi götustemninguna frá
heimalandi sínu, en í Víetnam er
götumatur mjög vinsæll.
Götumatur
frá Víetnam