Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Qupperneq 31
segir í Parísarsamkomulaginu um loftslagsmál.
Grein í Wall Street Journal vekur athygli á hversu
langt riddarar réttlætisins ganga í málflutningi
sínum. Um leið er bent á að loftslagsumræðan er
sprungin blaðra.
Í 20 ár var loftslagsumræðan mál málanna. Við-
kvæðið var að jörðin yrði óbyggileg ef við hættum
ekki að nota bensín og dísil. Nú er allt loft úr um-
ræðunni. Vandamálin sem umræðan bjó til standa þó
eftir.
Götur í Reykjavík eru þrengdar til að þvinga fólk að
nota aðrar samgöngur en fjölskyldubílinn. Fólk lætur
ekki segjast. Göturnar hægja á umferð og bílar í
lausagangi auka mengun.
Vinstririddurum réttlætisins stendur hjartanlega á
sama. Enda hugsa þeir aldrei um afleiðingarnar af
stefnumálum sínum. Mannkynsfrelsarar eru dóm-
greindarlausir í réttu hlutfalli við ragnarökin sem þeir
boða.“
Litlu dæmin heima segja stóra sögu
Bréfritari verður að viðurkenna að þessi þáttur Par-
ísarsamkomulagsins hafði farið fram hjá honum. Hins
vegar sér hann sífellt fleiri dæmi um það hvernig and-
stæðingar borgarbúa í borgarstjórn, sem þó eru á
launum hjá þeim, halda áfram að þrengja að þeim.
Tugum milljóna króna var eytt í fuglahúsabrandara á
Hofsvallagötu og tekið var til þess hversu illa móðguð
og reið borgaryfirvöld lufsuðust til að hætta ruglinu á
þeirri götu. En til þess misbjóða þeim, sem andmæltu
þessum mannkynsfrelsurum á sveitarfélagsvísu, þá
skildu þeir „lagfæringarnar“ eftir hálfkaraðar. Á
nyrsta kafla Hofsvallagötu við Hringbraut standa enn
stangir boltaðar í götuna og virðast marka braut fyrir
hjólandi fólk. Það getur þó ekki verið, því að slíku fólki
væri ýtt út í opinn dauða á Hringbrautinni, enda ekk-
ert pláss fyrir hjólandi þar. En þessi hefndaraðgerð
gegn mótmælum leiðir til þess að þeir sem vilja
beygja til hægri austur Hringbraut, sem eru lang-
flestir, neyðast til að fara á akrein þeirra sem ætla að
beygja í vestur. En „vesturfarar“ verða að víkja fyrir
umferð sem kemur suður yfir Hringbraut og má því
þakka fyrir nái einn eða tveir bílar að taka vinstri
beygju og stoppa því flesta þá sem þurfa að beygja til
hægri austur Hringbraut. Viðurkenna má að borgar-
yfirvöldum tekst að auka mengun í borginni töluvert
með þessari hegðun sinni.
Það eru engin skynsamleg rök á bak við þessa
hefndaraðgerð borgarinnar sem nú hefur staðið yfir í
mörg ár. Þessar stangir eru slysagildra og furðulegt
að lögregluyfirvöld hafi ekki krafist úrbóta. En núver-
andi borgaryfirvöld mega eiga það, að þau hafa hvergi
leynt því að þau séu almennt frábitin skynsamlegum
rökum um allt sem að borgarrekstri snýr.
Ekki batnar það
Horfið á Birkimel. Þar hefur einhver fengið óáreittur
að taka út andstyggð sína á þeim sem eiga leið um þá
götu. Þar er verið að setja upp tvær þrengingar. Önn-
ur er fáeina tugi metra frá Hringbrautinni. Þeir sem
beygja til vinstri af Hringbraut inn á Birkimel lenda í
stórhættu vegna umferðar á Hringbraut, þegar um-
ferðin stíflast á Birkimelnum. En óvinunum virðist
vera meira en sama um það. Páll nefndi mannkyns-
frelsara í pistli sínum sem hafa að auki óstjórnlega
þörf til þess að auglýsa gæði sín sífellt. Þeir óttast að
það viti ekki allir hversu miklu betri þeir séu en annað
fólk.
Boðskaparkort
Núna í síðustu viku var opnuð málverkasýning á Kjar-
valsstöðum. Það var gott framtak. En gæðafólkið
góða, sem rjúpan kynntist forðum, þótt hún fengi ekki
að njóta þess lengi, gat ekki heldur stillt sig þá. Þeir
sem fengu boðskort voru áminntir um að nota „al-
menningssamgöngur“ til að komast á sýninguna. Það
eru um 95 prósent borgarbúa sem nota bílinn sinn að
jafnaði, þótt margskattaðir séu fyrir vikið af yfirvöld-
um og fyrirlitnir af þeim sem stjórna borginni.
Ef eitthvað mætti kalla almenningssamgöngur þá
er það fyrirbærið sem 95% almennings nota en ekki
5%.
En það var fróðlegt að sjá í aðdraganda opnunar-
innar að nær öll borgarelítan sem þarna mætti kom „á
bílnum“. Varla hefur nokkur úr þeim hópi þorað að
koma á hjóli, því að þótt góð séu verða þau seint kölluð
almenningssamgöngur. Ef treyst hefði verið á strætó
hefðu margir þurft að ætla sér 2 klukkutíma í að koma
sér að og frá Kjarvalsstöðum. Hefðu gestir ákveðið að
bíða eftir „borgarlínunni“ þá hefðu þeir þurft að bíða í
þrjátíu ár og þá gæti verið búið að loka þessari sýn-
ingu.
Fær Borgar-Lína Langsokkur
prósentur?
Enn hefur enginn getað útskýrt um hvað þessi
borgarlína snýst, fremur en það að setja nú Miklu-
brautina í stokk í stað steina sem enn er verið að setja
um hana fyrir tugi milljóna króna!
Reyndar sýndu borgarbúar lítið álit sitt á Degi Egg-
ertssyni í kosningunum á dögunum, en hvers vegna í
ósköpum ætti þetta lið frekar að taka mark á þeim
mótmælum en öðrum? Eða eins og Hjálmar Sveins-
son, sem geymdur var í stokk undir Miklubrautar-
stokknum alla kosningabaráttuna, sagði svo réttilega:
„Það þýðir ekki að leggja neinar nýjar akreinar því að
þær fyllast jafnharðan af bílum.“
Það þýðir ekki heldur að segja neitt við núverandi
meirihluta og því síður viðreistan meirihluta því að all-
ar hlustir hans eru yfirfullar af heimagerðri réttlætis-
kennd, sem tekur öllu fram sem aðrir hugsa. Og ekki
þýðir að fá háls, nef- og eyrnalækni til að spúla skítinn
út því að réttlætiskenndin er svo yfirþyrmandi að allt
fyllist jafnharðan á ný.
Vonandi heldur „RÚV“
áfram að þýða CNN
En vonandi mun „RÚV“, sem ráfar um kennd af sama
réttlæti og pólitískir sálufélagar hennar í borgar-
stjórninni, fylgja eftir málinu um brottför Trumps frá
Kanada.
Fréttahaukarnir hljóta að spyrja næst hvort ekki
væri nær fyrir forsetann að taka þátt í umræðum um
að valdefla konur í baráttu um ósonlagið og koltvísýr-
inginn fremur en að svífa á Flughersfari númer eitt
suður til Singapúr til fundar með Kim Jong-un í þeim
tilgangi að bægja frá þeirri kjarnorkuvá sem heitast
brennur á mannkyni núna.
Meira að segja Harvey Weinstein segist styðja það
mál, eins og allir hinir demókratarnir í Hollywood
hafa alltaf gert. Harvey gæti hugsanlega talið rétt að
eyða drýgri tíma með Kim, sem hitti Trump í skrif-
stofu hans um daginn, en með þessum Jong-un í
Singapúr. En eins og Harvey segir gjarnan, þetta er
allt spurning um smekk.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
10.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31