Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Side 34
LESBÓK Teitur Magnússon & Æðisgengið bjóða upp á laufléttan bræðingsumarslagara; frumsamin lög og þjóðleg, síkadelísk og seiðandi, sem
og þjóðleg notalegheit á Gljúfrasteini kl. 16 á sunnudaginn.
Æðisgengið á Gljúfrasteini
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.6. 2018
L
istahátíð í Reykjavík breiðir ekki
aðeins úr sér í fínustu listasöfnum
og -sölum í hjarta borgarinnar.
Þvert á móti er hún bókstaflega
úti um allar trissur, teygir sig upp
í efri byggðir og hefur gert sér sérstaklega
dælt við Efra-Breiðholtið í ár. Íbúar þess eru
til að mynda í hávegum hafðir á ljósmyndasýn-
ingu Spessa, 111, í galleríinu Rýmd, sem opn-
uð var um liðna helgi í hverfinu. Og enn dregur
til tíðinda: Íbúar í Asparfelli 2-12 ætla að bjóða
bláókunnugu fólki í partí heima hjá sér! Það er
hreinlega eins og húsið kalli: „Komdu, komdu,
komdu í partí til mín – svo vitnað sé í gamlan
slagara sem Magnús Eiríksson samdi.
Asparfell – Blokkarpartý og þér er boðið!
Þannig er viðburðurinn kynntur í bæklingi há-
tíðarinnar og tekið fram að skráning sé nauð-
synleg á www.skraning@artfest.is. Takmörk-
uð sæti segir enn fremur, en þar virðist
einhver misskilningur vera á ferðinni. Hver
þarf enda sæti í almennilegu partíi? Ekki að
minnsta kosti í fyrrnefndu danspartíi, sem
húsráðendur ætla að slá upp á heimilum sínum
kl. 16 laugardaginn 9. maí. Gert er ráð fyrir að
fjörinu sloti um sexleytið.
Ásrún Magnúsdóttir, dansari og danshöf-
undur, og Alexander Roberts, lektor í sviðs-
listum við Listaháskóla Íslands, eru listrænir
aðstandendur partísins, forsprakkar þess og
hugmyndasmiðir. Þótt bæði séu þrautreyndir
stjórnendur og jafnframt þátttakendur í alls
konar viðburðum, aðallega danssýningum og
hátíðum, viðurkenna þau að blokkarpartíið sé
vissulega áskorun. „Við héldum einu sinni
svona danspartí heima hjá mér og nágrönnum
mínum á Njálsgötunni í tengslum við Reykja-
vík Dance Festival. Síðan höfum við bæði farið
í nokkur svona partí í útlöndum og það hefur
alltaf allt gengið eins og í sögu,“ segir Ásrún
og lýsir fyrirkomulaginu í Asparfellinu:
Mesta „út fyrir þægindaramma“
verkefnið
„Gestgjafarnir hafa partíin algjörlega eftir
sínu höfði. Þegar þeir hafa opnað íbúðir sínar
geta gestir dansað og rápað á milli og tekið
þátt í smáum og stórum partíum, sem fyrst og
fremst eru þó danspartí. Trúlega verður tón-
listin sums staðar í botni en annars staðar á
lágstemmdu nótunum. Húsráðendur þurfa að
minnsta kosti ekki að hafa áhyggjur af að
grannarnir kvarti. Við erum bæði með leyfi frá
þeim og húsfélaginu fyrir tveggja stunda
partíhaldi,“ segja þau Ásrún og Alexander.
Þau eru með allt á hreinu og mjög spennt.
Samt örlaði á kvíða hjá Ásrúnu í Facebook-
færslu hennar í vikunni: „Þetta er eitt mesta
„út fyrir þægindarammann“ verkefni sem ég
hef gert [. . . ] hjarta mitt slær í Asparfelli 2 -
12“, skrifaði hún.
„Undirbúningurinn hefur verið býsna krefj-
andi. Fyrst bárum við út bréf í hvern einasta
póstkassa, síðan gengum við og bönkuðum upp
á meira en 200 íbúðir í sex stigagöngum og
báðum fólk, sem við þekktum ekki neitt, að
halda svona partí heima hjá sér.
Viðtökurnar voru mismunandi, en flestir
tóku okkur þó vel, og okkur var oft boðið í kaffi
og kleinur. Sumum þótti hugmyndin alveg gal-
in. Á endanum urðu heimtur sex íbúðir í jafn-
mörgum stigagöngum – sem er alveg fínt. Við
hefðum haldið okkar striki þótt aðeins ein fjöl-
skylda hefði viljað vera með.“
Þau hefðu vel getað óskað sér að fá fleiri
„já“ en vildu ekki ganga á fólk. „Kannski
ákveða einhverjir að bætast í hópinn á síðustu
stundu,“ segja þau vongóð og búast við dúndr-
andi fjöri.
Ásrún giskar á að í Asparfelli 2-12 búi rúm-
lega eitt þúsund manns, sem sé ósköp svipað
og í Stykkishólmi. „Íbúarnir eru á öllum aldri,
af mismunandi uppruna og kynjum, fjöl-
skyldur, einstaklingar, vinir, pör og dýr. Mest
kom okkur á óvart hversu margir tóku vel á
móti okkur og voru með opinn huga, þótt þeim
hafi ábyggilega þótt erindi okkar frekar skrýt-
ið, eða galið, eins og sumir sögðu reyndar.
Skemmtilegast í undirbúningsferlinu var að
kynnast öllu þessu fólki, sem við ella hefðum
kannski aldrei hitt, og spjalla við það um alla
heima og geima.“
Og svo byrjar ballið
Þeim Ásrúnu og Alexander finnst blokkar-
partíið að vonum vera upplagður vettvangur til
að nágrannar sameini krafta sína og fagni
samfélaginu og hvert öðru. Með partíinu gefst
svo gestum Listahátíðar í Reykjavík tækifæri
til að dansa með húsráðendum í Asparfelli,
heyra sögur þeirra og skyggnast inn í þeirra
daglega líf.
Eins og sæmir listrænum aðstandendum
alls konar gjörninga og skemmtilegheita, stíga
þau Ásrún og Alexander í pontu fyrir framan
blokk númer 8 áður en sex dyr í jafnmörgum
stigagöngum ljúkast upp. „Við ætlum bara að
segja stuttlega frá verkefninu svo allir viti um
hvað það snýst og hvernig svona blokkarpartí
fer fram.“ Að því búnu dansa þau sig inn í
partíin sex, eitt af öðru og blanda geði við
heimilisfólk og gesti. Á slaginu sex er ballið
búið.
Asparfell er þó ekki út úr myndinni á hátíð-
inni því plötusnúðar sem þar búa þeyta skífum
kl. 20 fimmtudaginn 14. júní í Klúbbi Listahá-
tíðar í Reykjavík í Hafnarhúsinu.
Ásrún Magnúsdóttir
og Alexander Roberts
hlakka til blokkar-
partísins í Asparfelli.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Komdu í partí til mín“
Sumir íbúanna í Asparfelli 2-12 opna heimili sín og halda alvöru blokkarpartí kl. 16 í dag, laugardag. Listrænir
aðstandendur partíhaldanna eru Ásrún Magnúsdóttir og Alexander Roberts, sem dansa og rápa með gestum milli íbúða.
Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is
’„Fyrst bárum við út bréf íhvern einasta póstkassa, síð-an gengum við og bönkuðum uppá meira en 200 íbúðir í sex stiga-
göngum og báðum fólk, sem við
þekktum ekki neitt, að halda
svona partí heima hjá sér.“