Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Side 37
10.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
SKÝR
hugsun
Clear Brain töflurnar eru ríkar af næringarefnum fyrir
heilann og hafa góð áhrif á andlega getu og vitræna
starfsemi eins og minni, eftirtekt og einbeitingu.
Inniheldur:
L-theanín • Valhnetuþykkni • Granatepli • Furubörkur • Pipar • B-vítamín
SJÓNVARP Spéfuglinn Tracey Ullman hefur fengið
bágt fyrir atriði í nýjum grínþætti sínum í breska ríkis-
sjónvarpinu, BBC, en þar gerir hún grín að Jeremy Cor-
byn, formanni Verkamannaflokksins. Grínið snýr að
meintu tómlæti Corbyns í garð gyðinga en Ullman fer
sjálf með hlutverk formannsins í atriðinu. Stuðnings-
menn Corbyns og Verkamannaflokksins hafa gagnrýnt
Ullman fyrir áróður og að gefa í skyn að Corbyn hati
ekki aðeins gyðinga heldur hafi hann einnig samúð með
málstað hryðjuverkamanna. Ullman hefur líka fengið
faglega skömm í hattinn; ekki dugi að verja mörgum
klukkustundum í förðunarherberginu og líta út eins og
Corbyn þegar hvorki röddin né fasið sé fyrir hendi. Það
er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera spéfugl.
Ullman með áróður?
Tracey Ullman
er umdeild.
Reuters
KVIKMYNDIR Miðillinn Deadline fullyrðir
að til standi að hlaða í þriðju Legally Blond-
myndina innan tíðar en tvær fyrri myndirnar
slógu rækilega í gegn fyrir hálfum öðrum
áratug, 2001 og 2003. Eins og áður kemur
Reese Witherspoon til með að leika aðal-
hlutverkið, lögfræðinginn knáa Elle Woods.
Ekki liggur fyrir hver söguþráður nýju
myndarinnar verður en Deadline gerir því
skóna að „kvennakrafturinn“ sem fylgt hefur
metoo-byltingunni hljóti að verða þar í for-
grunni. Þess má geta að söngleikur, byggður
á myndunum, hefur notið vinsælda undanfar-
inn áratug og dregið að nýja kynslóð.
Witherspoon ljóskar sig upp á ný
Reese Witherspoon nýtur jafnan lýðhylli.
AFP
Tímarnir breytast og sjón-varpið með. Árið 1988 vorutvær sjónvarpsstöðvar á Ís-
landi og ekki er úr vegi að skoða
hvað þær höfðu á boðstólum fyrir
réttum þrjátíu árum, aðra helgina
í júní.
Ríkissjónvarpið hóf helgina síð-
degis á föstudegi með fótbolta.
Og það af dýrari gerðinni. Sýnt
var beint frá opnunarhátíð Evr-
ópumeistaramótsins í Vestur-
Þýskalandi og á eftir fylgdi fyrsti
leikur mótsins, viðureign heima-
manna og Ítala. Umsjón hafði Ing-
ólfur „rembingskoss“ Hannesson
en vafalaust hefur Bjarni Felixson
lýst leiknum af sinni alkunnu
snilld.
Um kvöldið voru tveir fram-
haldsþættir á dagskrá; Basl er
bókaútgáfa, sem á frummálinu
kallaðist Executive Stress. Man
einhver eftir honum? Og svo var
það góðkunningi skjáfíkla, sjálfur
Derrick. Fer ekki að koma tími á
að endursýna hann?
Stöð 2 var með kynningu á
hljómsveitinni The Christians sem
væntanleg var á Listahátíð í
Reykjavík og þá var á dagskrá
lokaþáttur Ekkjanna (Widows II).
Þar hefur vafalaust gengið á ýmsu.
Þá var stöðin í sumarskapi með
listamönnum en ekki fer frekari
sögum af þeim þætti í dagskrár-
kynningu Morgunblaðsins.
Sungið fyrir Mandela
RÚV var með meiri fótbolta á
laugardeginum en burðarliðurinn
þann dag var eigi að síður bein út-
sending frá 70 ára afmælistón-
leikum Nelsons Mandela, sem á
þeim tíma sat ennþá í fangelsi.
Fram komu Whitney Houston,
George Michael, Dire Straits og
fleiri eitís-hetjur. Þá var á dagskrá
þáttur með manni sem fáir vilja
kannast við í dag, Fyrirmyndar-
faðir eða The Cosby Show.
Heimir Karlsson stjórnaði ít-
arlegum íþróttaþætti á Stöð 2 og
um kvöldið var röðin komin að
hinum eitursvala Hunter og hinni
seiðandi samstarfskonu hans Dee
Dee MacCall. Einhverjar hand-
bremsubeygjur hafa verið teknar í
þeim þætti. Að vanda. Þá var
þarna gamanþátturinn Dómarinn
(Night Court) sem einhverjir
muna vafalaust eftir.
EM í fótbolta var áfram í for-
grunni hjá RÚV á sunnudeginum
en um kvöldið var kynning á
Listahátíð í Reykjavík, auk þess
sem boðið var upp á danskan þátt,
Allir elska Debbie. Fjallaði hann
um sextán ára stúlku sem átti erf-
itt með að ná fótfestu í lífinu, ekki
síst vegna erfiðleika heima fyrir.
Stöð 2 var menningarleg á
sunnudeginum en þá var á dag-
skrá „ópera mánaðarins“. Don
Giovanni með landsliði sænskra
söngvara. Björgúlfur Lúðvíksson
var með golfþátt síðdegis. Um
kvöldið birtist John Ritter á skján-
um í hlutverki lögregluþjónsins
Hoopermans. Spjallþáttur Mich-
aels Aspels, sem naut vinsælda á
þessum tíma, var á síðkvöldi og
enginn annar en James Bond lok-
aði helginni í eðalmyndinni Octo-
pussy.
Og fóru sáttir í háttinn.
Whitney Houston tróð
upp á afmælistónleikum
Nelsons Mandela.
Reuters
HVAÐ VAR Í SJÓNVARPINU FYRIR 30 ÁRUM?
EM, fjölskylduvinir
og afmælistónleikar
Hver getur gleymt Derrick?
Kennedy-fjölskyldan í Bandaríkjunum hefur löngum
verið vinsælt viðfangsefni hjá kvikmyndagerð-
armönnum. Nýjasta myndin sem tengist þessu
„kóngafólki“ vestra nefnist Chappaquiddick og er eft-
ir John Curran. Þar er, eins og nafnið gefur til kynna,
hermt af banaslysinu sem yngsti Kennedy-bróðirinn,
Edward öldungadeildarþingmaður, varð valdur að
sumarið 1969. Hann keyrði þá fram af lítilli brú á síð-
kvöldi með þeim afleiðingum að ung kona sem var
með honum í bílnum, Mary Jo Kopechne, drukknaði.
Sjálfur flúði Kennedy af vettvangi og til-
kynnti ekki um slysið fyrr en morg-
uninn eftir en þá höfðu vegfarendur
þegar komið auga á bílinn í ánni
og lík Kopechne fundist. Mikið
fjölmiðlafár varð í framhald-
inu og þóttu skýringar þing-
mannsins mistrúverðugar.
Hann hlaut á endanum skil-
orðsbundinn dóm fyrir að flýja af
vettvangi og tilkynna ekki strax
um slysið.
Í myndinni er aðdraganda slyssins
lýst en þó einkum eftirmálanum en
vösk sveit sérfræðinga var ræst út til
að slá skjaldborg um ímynd þingmanns-
ins sem stefndi leynt og ljóst að því að verða
forseti Bandaríkjanna, eins og bróðir hans sál-
ugi, John F. Kennedy. Flestir eru sammála um
að þeir draumar hafi drukknað þetta ör-
lagaríka kvöld.
Einnig er viðkvæmt samband Kennedys
við föður sinn málað sterkum litum en hann
var orðinn sjúklingur á þessum tíma og lést
skömmu síðar. „Þú verður aldrei mikill
maður,“ segir Joe Kennedy við son sinn í
myndinni.
Chappaquiddick hefur
fengið býsna góða
dóma, ekki síst að-
alleikarinn, Ástr-
alinn Jason Clarke.
Aðalleikararnir í Chappaquiddick: Jason Clarke, Kate
Mara og Ed Helms á frumsýningu myndarinnar í vor.
AFP
MYND UM CHAPPAQUIDDICK-SLYSIÐ
Þú verður aldrei
mikill maður!
Edward Kennedy lifði
lengi í skugga Chappa-
quiddick-slyssins.