Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Síða 40
SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2018
www.husgagnahollin.is
558 1100
ÚTSALAN
SUMAR
Í FULLU FJÖRI
afsláttur
60%
Allt að
www.husgagnahollin.is
V E
F V E R S L U N
A
LLTAF OP
IN
Ísland trónir á toppi nýútgefins lista ferðasíðunnar Trip-
Advisor yfir lönd sem bjóða upp á bestu þjónustuna, en
listinn er byggður á fjölda stofnana sem fengið hafa
gæðaskírteini TripAdvisor á síðastliðnu ári. Írland og
Bretland sitja í öðru og þriðja sæti listans, en fjölmiðlar í
Bretlandi gátu ekki leynt undrun sinni á niðurstöðunni.
„Bretland er ekki þekkt fyrir að bjóða upp frábæra þjón-
ustu, svo þriðja sætið mun koma mörgum á óvart,“ skrif-
aði blaðamaður Daily Mail þegar niðurstöðurnar lágu
fyrir.
Reykjavík situr í öðru sæti sambærilegs lista yfir borg-
ir, en Key West í Flórída hreppti toppsætið á þeim lista.
Gæðaskýrteini TripAdvisor eru veitt á tólf mánaða fresti
til veitingastaða, hótela og annarra ferðamannastofnana
sem fengið hafa að meðaltali fjórar eða fimm stjörnur í
einkunn frá notendum síðunnar, en aðeins rúmlega sjö
prósent stofnana hljóta slíkt skírteini.
Reykjavík situr í öðru sæti á lista TripAdvisor yfir þær borgir sem bjóða upp á besta þjónustu.
AFP
Besta þjónusta í heimi
Samkvæmt ferðasíðunni TripAdvisor
býður Ísland upp á bestu þjónustu í heimi.
Fyrir þrjátíu árum, 12. júní 1988,
greindi Morgunblaðið frá því að
talsvert af skemmdum íslenskum
eldislaxi hefði fyrir mistök verið
selt á fiskmarkaði í New York.
Laxinn, sem ekki var ætlaður
til beinnar sölu vegna hreistur-
skemmdar, var fyrir mistök
merktur sem norskur manneldis-
lax og var seldur til viðskiptavina
Fultons-fiskmarkaðarins á
sunnanverðri Manhattan.
Fulltrúi norskra útflytjenda í
New York sagði í samtali við
Morgunblaðið að mikið tjón
hefði verið unnið á markaðs-
setningu norsks lax í Bandaríkj-
unum og að ef þetta hefði verið
vísvitandi gert væri það ekkert
annað en skemmdarverk.
Framkvæmdastjóri íslenska út-
flytjandans sagði þó að um ágætis
lax hefði verið að ræða, aðeins
hefði hann verið dálítið hreistur-
skemmdur þannig að hann hent-
aði frekar til vinnslu eins og reyk-
ingar heldur en til sölu á
mörkuðum. Hann taldi það þó
hafa verið mistök að nota um-
búðir frá norsku fyrirtæki, en því
yrði hætt frá og með næsta
hausti.
GAMLA FRÉTTIN
Mistök eða
skemmdar-
verk?
Norskir útflytjendur sögðu að markaðssetning á norskum laxi hefði beðið
mikinn skaða þegar skemmdur íslenskur lax var ranglega merktur.
AFP
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Ólafur Ingi Skúlason í Fifa 18
Landsliðsmaður í fótbolta
Adam Driver
Leikari
Keanu Reeves
Leikari