Morgunblaðið - 15.06.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.06.2018, Blaðsíða 4
Bjór verður til sölu í Hljómskála- garðinum þegar leikir íslenska karlalandsliðsins verða sýndir þar. Búið er að veita leyfi fyrir sölunni en bjórinn verður seldur í sérstöku tjaldi á hinu svokallaða HM-torgi sem verður í Hljómskálagarðinum. Prikið mun sjá um sölu bjórsins en Gísli Freyr Björgvinsson, fram- kvæmdastjóri rekstraraðila Priks- ins, segir ekki komið á hreint hvern- ig staðið verði að sölunni enda hafi leyfið fyrst verið veitt klukkan fjög- ur í gær. Allir leikir Íslands verða sýndir á risaskjá í Hljómskálagarðinum. Þar verða einnig fótboltavellir, hoppu- kastalar og leiktæki ásamt veit- ingasölu og skemmtiatriðum. Bjór í Hljómskálagarði 4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2018 Sterkir í stálinu Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar Svört- og ryðfrí rör og fittings Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur POM öxlar • PE plötur Lokar af ýmsum gerðum Opið virka daga kl. 8-17 Skútuvogi 4, Rvk Rauðhellu 2, Hafnarfirði Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is „Það er alveg greinilegt að fólk hér í Argentínu er mjög hrætt við ís- lenska liðið,“ segir Kristján Krist- jánsson, doktor við Háskólann í Birmingham, sem dvalið hefur við ráðstefnuhöld í höfuðborg Arg- entínu, Buenos Aires. Hann seg- ir að borgin beri þess merki að heimsmeistara- mót sé á næsta leiti enda komist fátt annað að hjá heimamönnum. Þá sé gríðarleg spenna fyrir fyrsta leik gegn Íslandi, en til marks um það reyndist Kristjáni ómögulegt að panta leigubíl upp á flugvöll meðan á leik liðanna stendur. „Ég á flug heim á laugardaginn stuttu eftir að leikurinn fer fram. Mér var hins vegar tjáð að ekki væri hægt að panta leigubíl á þess- um tíma sökum þess að allir yrðu uppteknir við að horfa á leikinn. Þá skilst mér að verslunum og skrif- stofum verði lokað meðan á leik stendur og skjáir yrðu settir upp víðs vegar um borgina,“ segir Kristján og bætir við að í Argent- ínu snúist allt um knattspyrnu. Hvert sem litið sé megi sjá knatt- spyrnu, hvort heldur sem er í sjón- varpi eða á götum úti. „Þeir eru al- veg knattspyrnuóðir og það er sama hvar maður kemur, alltaf eru þeir tilbúnir að ræða fótbolta. Þá eru þeir mjög spenntir fyrir leikn- um gegn Íslandi og spyrja mann spjörunum úr um íslensku leik- mennina,“ segir Kristján, en heimamenn eru vel að sér þegar kemur að leikmannahópi íslenska liðsins. Hitti gamla landsliðshetju Meðal spurninga sem heima- menn báru upp voru um föður og afa Alberts Guðmundssonar, eins íslensku leikmannanna. „Þeir þekktu hópinn okkar mjög vel og hluti þeirra var farinn að spyrja um ættingja leikmanna,“ segir Kristján. Ýmislegt hefur drifið á daga Kristjáns frá komu hans til Argent- ínu, en meðal manna sem hann hef- ur hitt er argentínska kempan Claudio Caniggia, sem spilaði á sín- um tíma 50 landsleiki og var meðal leikmanna í argentínska landsliðinu þegar Diego Maradona var upp á sitt besta. „Við hittum á hann en hann vildi lítið tala um HM í ár. Hann hafði hins vegar mikinn áhuga á að spjalla um eigin feril og kvartaði sáran undan því að hafa ekki spilað fleiri landsleiki,“ segir Kristján. aronthordur@mbl.is Allt lokað í Argentínu meðan á leiknum stendur  Ómögulegt reyndist að panta leigubíl á flugvöllinn AFP Stuðningsmenn Mikil spenna er fyrir leiknum meðal íbúa Argentínu. Kristján Kristjánsson Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Búast má við því að einkaneysla landsmanna aukist umtalsvert næstu vikurnar í tengslum við HM í Rússlandi. Sú varð raunin fyrir tveimur árum þegar Ísland var meðal þátttökuþjóða á EM í Frakk- landi og ekkert bendir til annars en að hið sama verði upp á teningnum nú. Gengi Ís- lands og veðrið ræður því svo væntanlega hversu mikil aukningin verð- ur. Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri Ís- landsbanka, segir að viðburðir á borð við Euro- vision og stórmót í fótbolta hvetji gjarnan til aukinnar neyslu. HM komi á góðum tíma fyrir marga. „Þetta mót kemur ofan í þann tíma sem einkaneysla hefur aukist tölu- vert. Hún er helsti drifkraftur hag- vaxtar á Íslandi. Við höfum meira á milli handanna nú en áður og lík- legt er að margir nýti þetta svig- rúm í kringum HM,“ segir hann. Aukin sala á mat og drykk Fram kom í ViðskiptaMogganum í gær að sekúnduverð í auglýsinga- tímum RÚV í kringum leik Íslands og Argentínu á morgun væri það hæsta frá upphafi hér á landi. Sek- únduverðið er 18 þúsund krónur, sem þýðir að ein birting á umtal- aðri auglýsingu Coca-Cola kostar 1,8 milljónir króna. „Þetta er áhugavert. Áhorfið á leiki Íslands á EM fyrir tveimur ár- um var í kringum 70 prósent og nánast allir sem voru á annað borð að horfa á sjónvarpið horfðu á þá. Auglýsingatíminn er dýr en það hefur auðvitað mikið að segja að hafa allt landið fyrir framan sig. Þeir sem horfa svo á annað borð á leikina eru líklegir til að borða og drekka meðfram því. Það var tölu- verður munur á sölu hjá fyr- irtækjum í mat og drykk milli sum- arsins 2016 og 2017, neyslan var svo mikil 2016. Þetta hafði eitthvað með metfjölda ferðamanna að gera en líka að við vorum að drekka ofsalega mikið áfengi og gos og kaupa mikið gotterí í kringum HM. Það sást í tölum fyrirtækja. Neysl- an jókst mikið í kringum mótið og mér finnst mjög líklegt að það sama gerist núna.“ Eyða vel á annan milljarð Björn kveðst hafa skoðað tölur um neyslu í kringum Ofurskálina, Super Bowl, í Bandaríkjunum og heimfært þær upp á Ísland til gam- ans. „Þar hefur neysla fólks aukist mikið fyrir leikinn, sérstaklega hjá yngra fólki. Yngri hóparnir halda sérstök partí fyrir leiki. Samkvæmt könnunum þar eyðir fólk á aldr- inum 25-34 ára um það bil tólf þús- und krónum á mann. Þeir eru kannski að eyða óhóflega miklu en þetta er samt akkúrat það sem landsliðstreyjan kostar,“ segir Björn Berg, sem kveðst ekki telja galið að bera saman þessa eyðslu fyrir einn leik við þrjá leiki Íslands í riðlakeppni HM. Þó ekki nema til gamans sé gert. „Ef við heimfærum þessar tölur á Ísland værum við að eyða ríflega einum og hálfum milljarði króna, bara í partí í kringum leikina.“ Fyrir höndum er því stórt sölu- tímabil á grillkjöti, sjónvörpum, áfengi, snakki og gosi svo eitthvað sé nefnt. Og því betur sem okkur gengur, þeim mun meira mun að líkindum seljast. „Já, ef okkur gengur vel er öllum sama hvort það er leiðinlegt veður. Andlegu áhrifin eru mikilvæg. Við munum sennilega sjá stökk í neyslu en svo eru þeir sem eru á ferðalög- um líka að eyða heilmiklu. Þetta er dýr tími.“ Búast má við „stökki í neyslu“  HM í knattspyrnu hófst í gær  Landsmenn gera vel við sig í mat og drykk meðan á mótinu stend- ur  Áætla má að eyðslan nemi á annan milljarð króna  „Þetta er dýr tími,“ segir sérfræðingur Morgunblaðið/Eggert Veislan hafin Fjöldi Íslendinga er nú kominn til Moskvu þar sem Ísland leikur fyrsta leik sinn á HM á morgun. Háar fjárhæðir » Miklir peningar eru í spil- unum á HM í Rússlandi. Áætl- að hefur verið að Alþjóðaknatt- spyrnusambandið FIFA þéni um 539 milljarða króna vegna mótsins. Þar vegur sala sjón- varpsréttar þyngst, ríflega helmingur. » Tekjur FIFA eru 6% hærri en á HM í Brasilíu fyrir fjórum árum. » Knattspyrnusamband Ís- lands fær um 1,3 milljarða króna frá FIFA fyrir að komast á HM og spila leikina þrjá í riðlakeppninni. Komist ís- lenska liðið lengra hækka greiðslurnar. » KSÍ fékk um 1,9 milljarða króna frá UEFA fyrir þátttöku og árangur sinn á EM í Frakk- landi. Fleiri lönd keppa á HM og skýrir það lægri upphæð að einhverju leyti. » Íslensku landsliðsmennirnir fengu minnst 18 milljónir króna hver fyrir þátttöku sína á EM fyrir tveimur árum og leik- ina í undankeppninni. Sumir fengu hærri upphæð. Sam- komulag liggur fyrir um bónus- greiðslur leik- manna á HM nú en ekki verður upplýst um þær fyrr en í árs- uppgjöri KSÍ. Björn Berg Gunnarsson Jóhann Berg Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.