Morgunblaðið - 15.06.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 15.06.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2018 SLÖKKTU Á SLENINU INUÁ SPORT Mitsubishi ASX er fjórhjóladrifinn rúmgóður sportjeppi sem skilar þér miklu afli á mjúkan og sparneytinn hátt. Þú situr hærra, hefur meira rými og nýtur aksturseiginleikanna. Nú fylgir 350.000 kr. sumarauki með öllum nýjum Mitsubishi bílum keyptum hjá HEKLU. Slökktu á sleninu og kveiktu á sportinu í sumar með nýjum Mitsubishi ASX 4x4. Hlökkum til að sjá þig! Mitsubishi ASX Intense 4x4, sjálfskiptur, dísil: 3.990.000 kr. 5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að finna á www.hekla.is/abyrgd HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum FYRIR HUGSANDI FÓLK Sumarauki að verðmæti350.000 kr. fylgir! FRÉTTASKÝRING Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Framsókn situr í meirihluta í sjö bæj- arstjórnum í 12 stærstu sveitar- félögum landsins. Ýmist undir merkj- um Framsóknar eða Framsóknar, óháðra og frjálsra. „Það er ekkert nýtt sem stendur upp úr í nýliðnum sveitarstjórnar- kosningum en ef hægt er að tala um einhverja sigurvegara þá virðist Framsókn halda merkilega vel velli og vera sterk í meirihlutum í stærstu sveitarfélögunum að Reykjavík und- anskilininni. Þetta gerist þrátt fyrir að Framsókn sé að glíma við Mið- flokkinn sem má vel við una eftir kosningar. Auk þess náði Viðreisn að koma sér á blað í sveitarstjórnar- pólitíkinni,“ segir Grétar Eyþórsson stjórnmálaprófessor. Hann segir að það hljóti að hafa verið vonbrigði fyrir Sjálfstæðisflokkinn að bæta við sig fylgi í Reykjavík en ná ekki að komast í meirihluta þar auk áframhaldandi fylgistaps í Reykjanesbæ og klofn- ings í Vestmannaeyjum. Framsókn í sjö meirihlutum Framsókn situr í tveggja flokka meirihluta í Kópavogi og Hafnarfirði og á sameiginlegum lista með frjáls- um eða óháðum á Akranesi og í Fjarðabyggð. Framsókn situr í þriggja flokka meirihluta í Reykja- nesbæ, á Akureyri og í fjögurra flokka meirihluta í Árborg. Samfylkingin situr í fimm meiri- hlutum þar af fjórum með Framsókn- arflokki og situr með honum í tveggja flokka meirihluta á Akranesi. Samfylkingin situr í þriggja flokka meirihluta á Akureyri og í Reykja- nesbæ sem Samfylking og óháðir og fjögurra flokka meirihluta í Reykjavík og Árborg. Vinstri græn mynda tveggja flokka meirihluta í Mosfellsbæ og fjögurra flokka meirihluta í Reykjavík. Píratar, Viðreisn og Miðflokkurinn sitja öll í meirihluta í einni sveitar- stjórn, Píratar og Viðreisn í fjögurra flokka meirihluta í Reykjavík og Mið- flokkurinn í fjögurra flokka meiri- hlutasamstarfi í Árborg. Hreinir meirihlutar hjá D-lista Sjálfstæðismenn sitja í fimm meiri- hlutum. Í Garðabæ og á Seltjarnar- nesi eru þeir í hreinum meirihluta. Þeir mynda einnig meirihluta tveggja flokka í Hafnarfirði, Kópavogi og Mosfellsbæ. Á meðan Sjálfstæðisflokkurinn myndar meirihluta sem skipaðir eru tveimur flokkum eða færri er það hlutskipti Samfylkingarinnar að sitja í meirihlutasamstarfi tveggja flokka eða fleiri. Blandaðir listar mynda meirihluta í sex sveitarfélögum sem öll eru á landsbyggðinni. Í Vestmannaeyjum er meirihlutinn eingöngu skipaður fulltrúum frá blönduðum listum E- lista og H-lista. Grétar Eyþórsson segir að bland- aðir listar séu algengari á landsbyggð- inni. Hann segir að í sveitarstjórnum geti flokkar hæglega unnið saman sem eiga erfitt með að vinna saman þegar kemur að landsmálunum. „Sveitarstjórnarmálin snúast um nærþjónustu og skipulagsmál. Mál sem sveitarstjórnarmenn hvar í flokki sem þeir standa geta sameinast um á meðan landsmálapólitíkin snýst um önnur mál eins og til dæmis af- stöðu til Evrópusambandsins,“ segir Grétar. Framsókn í flestum meirihlutum  Samfylking og Framsókn vinna saman í fjórum meirihlutum af tólf Samsetning meirihluta í 12 stærstu sveitarfélögunum Bæjarstjórar Skipting meirihluta milli flokka Akureyri, Árborg og Fjarðabyggð auglýstu eftir bæjarstjóra og eiga enn eftir að ráða. Reykjavík Meirihluti: Píratar, Samfylking, Viðreisn og Vinstri græn Borgarstjóri: Dagur B. Eggertsson Akranes Meirihluti: Framsókn og frjálsir og Samfylking Bæjarstjóri: Sævar Freyr Þráinsson Reykjanesbær Meirihluti: Bein leið, Framsókn og Samfylking Bæjarstjóri: Kjartan Már Kjartansson Garðabær Meirihluti: Sjálfstæðisflokkur í hreinum meirihluta Bæjarstjóri: Gunnar Einarsson Fjarðabyggð Meirihluti: Fjarðalistinn og Framsókn og óháðir Bæjarstjóri: Staða auglýst Kópavogur Meirihluti: Framsókn og Sjálfstæð- isflokkurinn Bæjarstjóri: Ármann Kr. Ólafsson Akureyri Meirihluti: L-listinn, Framsókn og Samfylking Bæjarstjóri: Staða auglýst Árborg Meirihluti: Áfram Árborg, Framsókn og óháðir, Miðflokk- ur og Samfylking Bæjarstjóri: Staða auglýst Vestmannaeyjar Meirihluti: Fyrir Heimaey og Eyjalistinn Bæjarstjóri: Íris Róbertsdóttir Seltjarnarnes Meirihluti: Hreinn meirihluti Sjálfstæðisflokks Bæjarstjóri: Ásgerður Halldórsdóttir Hafnarfjörður Meirihluti: Framsókn og óháðir og Sjálfstæðisflokkur Bæjarstjóri: Rósa Guðbjartsdóttir Mosfellsbær Meirihluti: Sjálfstæðismenn og Vinstri græn Bæjarstjóri: Haraldur Sverrisson 6 Karlar 3 Konur 3 Óljóst 7 Framsókn 2 Vinstri grænir 1 Viðreisn 5 Samfylkingin 1 Píratar 1 Miðflokkurinn 6 Blönduð framboð (Bein leið, Fjarðalistinn, L-listinn, Heimaey, Áfram Árborg og Eyjalistinn) 5 Sjálfstæðisflokkurinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.