Morgunblaðið - 15.06.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 15.06.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2018 LágMúLA 8 · sÍMI 530 2800 PIX-EM26-B Verð áður: 25.900,- 19.900,-Verð nú: BlueTooth-hátalari Verð áður: 29.900,- 23.900,- Verð nú: PIX-W-BTSP70-S 25% afsláttur af PIONEER heyrnartólum Fjölnota leikjatölvan 49.900,-Verð: Gerðu góð kaup! græjaðu þig inn í sumarið :) Þjóðhátíðardagskráin á Hrafnseyri verður flutt fram um einn dag, verð- ur að þessu sinni haldin laugardag- inn 16. júní. For- seti Íslands, Guðni Th. Jó- hannesson, verð- ur heiðursgestur og flytur hátíðar- ræðuna. Gert verður hlé á dag- skránni á meðan landslið Íslands leikur við Argent- ínumenn á HM í Moskvu og munu forsetinn og aðrir gestir fylgjast með á stórum skjá. Haldið hefur verið upp á þjóð- hátíðardaginn, 17. júní, á Hrafns- eyri, fæðingarstað Jóns Sigurðs- sonar, í mjög mörg ár. „Núna stendur sérstaklega á, mikið er um að vera vegna 100 ára afmælis full- veldisins. Forsvarsmenn Hrafns- eyrar vildu ekki láta sitt eftir liggja. Til þess að gera það með glæsilegum hætti var ákveðið að færa hátíð- ardagskrána til um einn dag, eink- anlega til að gera forseta Íslands kleift að koma vestur,“ segir Einar K. Guðfinnsson, formaður afmæl- isnefndar aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands, en hann verður kynnir á hátíðinni. Fullveldisnefndin veitti styrk til hátíðarhaldanna. For- setinn og fylgdarlið hans fara vestur með varðskipinu Þór. Útskrift og frumflutningur Dagskráin hefst klukkan 11 með hátíðarguðsþjónustu. Meðal annarra dagskrárliða má nefna að kvartett- inn Sigga mun frumflytja Blakta, tónverk Halldórs Smárasonar tón- skálds frá Ísafirði, séra Geir Waage í Reykholti rifjar upp æskuminningar frá Hrafnseyri og hátíðleg athöfn verður í tilefni útskriftar vestfirskra háskólanemenda. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Hrafnseyri Tjaldað verður yfir knattspyrnuáhugamenn. Forsetinn gestur á Hrafnseyrarhátíð  Hlé meðan á landsleiknum stendur Einar K. Guðfinnsson Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlög- regluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að vegna þeirra stóru viðburða sem verði í Reykjavík á næstu dögum, útiviðburða vegna HM, t.d. í Hljómskólagarð- inum, Ingólfs- torgi, Boxinu í Skeifunni og við Vesturbæjar- laug, 17. júní há- tíðahalda og Sec- ret Solstice tónlistarhátíðar- innar, muni LRH auka við lög- gæslu þar sem viðburðirnir verða og sérsveitarmenn verði til taks allan tímann. „Við berum auðvitað ábyrgð á viðburðum í höfuðborginni. Matið á þörfinni fyrir löggæslu og aukna löggæslu hefur ekki breyst mikið frá því í fyrra og það er ljóst að vegna þeirra viðburða sem eru fram undan munum við hjá LRH fjölga lög- reglumönnum á vakt og sérsveitarmenn bara standa við hlið okkar á vaktinni,“ sagði Ásgeir Þór í samtali við Morgun- blaðið í gær. Aukinn fjöldi verður á vakt „Við munum verða með eins sýnilega löggæslu við alla þessa viðburði eins og kostur er og verð- um með aukinn viðbúnað og aukinn fjölda lögreglumanna á vakt. Lög- reglan og sér í lagi sérsveitin hafa greiðan aðgang að vopnum undir ákveðnum kringumstæðum, ef þess gerist þörf. Það er bara í sam- ræmi við almennt viðbúnaðar- skipulag,“ sagði Ásgeir Þór. Hann segir að löggæsla vegna Secret Solstice, sem stendur frá 21. til 24. júní, verði aukin, miðað við það sem var í fyrra, einkum vegna ákalls íbúa á svæðinu eftir aukinni löggæslu. „Ég get ekki sagt til um það hversu mikið gæslan verður aukin vegna Secret Solstice, en við mun- um nota það svigrúm sem við höf- um til þess að fjölga lögreglu- mönnum á svæðinu,“ sagði Ásgeir Þór enn fremur. Löggæsla verður aukin  Sýnileiki vopnaðra sérsveitarmanna verður minni en í fyrra  Einnig verður löggæsla aukin vegna Secret Solstice Morgunblaðið/Árni Sæberg Ingólfstorg 2016 Leikir á HM í Rússlandi verða sýndir utanhúss víða í Reykjavík, á Garðatorgi og Rútstúni. Ásgeir Þór Ásgeirsson Haraldur Johannessen ríkislög- reglustjóri segir að skipulag lög- gæslu vegna þeirra viðburða sem fram undan eru í Reykjavík sé að sjálfsögðu í höndum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en hún sjái um öryggismálin á höfuðborgarsvæðinu. Það eigi við um útiviðburði í borginni vegna HM, hátíðahöld á 17. júní og Secret Solstice. „Það er rétt að sýnileiki vopnaðra sérsveitar- manna á fjölda- samkomum í fyrra var talsverður, en hann verður ekki með sama hætti í ár,“ sagði ríkislögreglustjóri spurður hvort sýnileiki vopnaðra sérsveit- armanna yrði hinn sami í ár. Í skugga hryðjuverka í London Haraldur sagði að fjöldasamkom- urnar í fyrra hefðu verið haldnar í skugga þess að skömmu áður hefðu hryðjuverkaárásir verið gerðar í London og því hefði þörfin á sýnileikanum verið metin meiri þá en nú. „Aðkoma sérsveitarinnar í ár verð- ur ekki með sama hætti og í fyrra, en sérsveitin verður að sjálfsögðu alltaf til taks, án þess að vera jafn- áberandi og í fyrra,“ sagði Har- aldur Johannessen ríkislög- reglustjóri enn fremur. Sérsveitin verður alltaf til taks RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI Haraldur Johannessen Þjóðhátíðardagurinn verður haldinn hátíðlegur í miðborg Reykjavíkur 17. júní. Reykjavíkurborg mun m.a. bjóða upp á fjölskylduskemmtanir, tónleika, veitingatjöld og götuleikhús. Dagskráin hefst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan 10 að morgni. Að henni lokinni hefst há- tíðarathöfn á vegum Alþingis og for- sætisráðuneytisins á Austurvelli klukkan 11.10. Athöfnin verður sýnd í beinni útsendingu í sjónvarpi og út- varpi á RÚV. Skátar og hestamenn frá Fáki munu leiða skrúðgöngu frá Hlemmi í Hljómskálagarð og Lúðrasveit Reykjavíkur leikur undir. Björg Jónsdóttir, verkefnisstjóri viðburða, hvetur fólk til að fjölmenna í göng- una. ,,Við munum bæta svolítið í skrúðgönguna, við verðum með fleiri atriði í henni en áður,“ segir hún. Búast má við að skrúðgangan verði fjölmenn, en meðal þeirra sem taka þátt í henni eru Götuleikhúsið og Stuðmenn, sem munu reka lestina á pallbíl. Þegar í Hljómskálagarðinn er komið hefjast stórtónleikar sem standa til 18.00. Meðal þeirra sem fram koma eru Heimilistónar, Daði Freyr, Ateria, Ronja ræningjadóttir, Floni og Aron Can. Samhliða tónleik- unum verður fjölbreytt afþreying í boði, gestum að kostnaðarlausu. Dag- skrá á þjóðhátíðardaginn má nálgast á vefsíðunni www.17juni.is. Fjölbreytt dagskrá á þjóðhátíðinni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skrúðgangan Verður frá Hlemmi að Hljómskálagarði eins og í fyrra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.