Morgunblaðið - 15.06.2018, Page 16

Morgunblaðið - 15.06.2018, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2018 Fyrir þig í Lyfju Voltaren Gel er bæði verkjastillandi og bólgueyðandi Vöðva eða liðverkir? Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplý g y y j up lýsingar á umbúðum og fylgiseðl si ar um l fið á www.serl f askra.is. 15% afslátturaf 100g og 150gVoltaren Gel Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ríkiskaup hafa auglýst til sölu hús á hinum fornfræga sögustað Stað- arfelli á Fellsströnd í Dalasýslu. Þar var frá 1980 starfrækt meðferðar- stöð á vegum SÁÁ, en fyrr á þessu ári var starfsemin öll flutt suður á Kjalarnes. Þá tók ríkið aftur við húsunum á staðnum og vill nú selja þau. Auglýst er eftir tilboðum í allar eignirnar, það er fimm byggingar en samanlagður grunnflötur þeirra um 1.300 fermetrar. Sala tekur tíma Að Staðarfelli er áberandi skóla- bygging sem var reist árið 1912, fjögurra hæða og 751 fermetri að flatarmáli. Þarna var lengi starf- ræktur húsmæðraskóli en eftir að starfsemi hans lagðist af árið 1976 fékk SÁÁ bygginguna til afnota. Í stóra húsinu eru 24 herbergi, eld- hús, matsalur, fundarsalur, þvotta- hús og fleira. Einnig eru á staðnum tvö íbúðarhús byggð um 1970; annað tveggja og hitt þriggja íbúða, svo og verkfæraskemma og svo tæplega 70 fermetra þurrkhjallur ásamt geymslu. Byggingunum hefur verið vel við haldið og í auglýsingu segir að staðurinn bjóði upp á ýmsa möguleika, til dæmis í ferðaþjón- ustu. Mikil fegurð er á þessum slóð- um og að margra mati sé Fells- ströndin svæði á heimsvísu. Nokkur áhugi hefur verið á eign- unum á Staðarfelli og margir hafa sett sig í samband við Ríkiskaup til að afla upplýsinga. „Við fengum nokkuð af fyr- irspurnum fyrst eftir að auglýsing fór í loftið, en höfum enn ekki fengið nein tilboð enn og eignirnar eru í al- mennu söluferli án tímamarka. Þetta er um margt sérstök eign á fallegum en nokkuð afskekktum stað svo það er skiljanlegt að sala geti tekið tíma. Fyrir kaupendur er líka að mörgu að hyggja, svo sem að starfsemi falli að umhverfinu, fjár- mögnun og eins leyfismál ef til dæmis ætti að setja þarna upp ferðaþjónustu,“ segir Gísli Þór Gíslason, verkefnisstjóri hjá Rík- iskaupum. Selja gamla skóla Eignirnar að Staðarfelli eru í sölu samkvæmt almennu heimildar- ákvæði í fjárlögum, en samkvæmt því má selja hlut ríkisins í fast- eignum framhalds- og sérskóla sem ekki eru lengur notaðar sem slíkar. Má í því sambandi benda á að nú er húsnæði Núpsskóla í Dýrafirði til sölu. Einnig má selja íbúðarhús sem tilheyra heilbrigðisstofnunum úti á landi, en sú var tíðin að víða voru sérstakir læknisbústaðir. Má þá nefna fleiri stéttir, s.s. sýslumenn, presta, dýralækna og kennara, sem var útvegað ódýrt leiguhúsnæði starfa sinna vegna. Sá háttur er nú aflagður að mestu. Þess má geta að Dalabyggð er með eignir á Laugum í Sælingsdal til sölu; heimavistarskóla, sundlaug, íþróttahús og fleiri mannvirki. Málið hefur verið lengi í deiglu og þreif- ingar eru um kaup, mál sem ný sveitarstjórn mun leiða til lykta. Hús á Staðarfelli eru til sölu  Aldargamall húsmæðraskóli sem lengi var meðferðarstöð SÁÁ  Áhugi en engin tilboð enn  Möguleikar í ferðaþjónustu  Fellsströndin á heimsvísu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Staðarfell Fallegt heim að sjá. Áberandi er gamla skólahúsið sem er 751 fermetri að flatarmáli og var byggt 1912. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við erum búin að skrá sögu Vest- mannaeyja í næstum 45 ár og það vill enginn sjá þetta blað fara. Það er hluti af menn- ingu Vest- mannaeyja. Ég er bjartsýn á að við finnum leið til að það lifi áfram,“ segir Sara Sjöfn Grettisdóttir, rit- stjóri Eyjafrétta. Blaðamað- urinn Einar Kristinn Helga- son greindi frá því í pistli á baksíðu síðasta tölublaðs Eyjafrétta að sér hefði verið sagt upp störfum og blikur væru á lofti um framtíð mið- ilsins. Sara Sjöfn staðfestir í sam- tali við Morgunblaðið að rekstur útgáfunnar hafi verið þungur og starfsfólki hafi verið fækkað jafnt og þétt síðustu þrjú ár. „Við erum að gera allt sem við getum til að útgáfa Eyjafrétta leggist ekki af. Ég held að við séum að ná einhverri lendingu en það er enn verið að funda. Þetta kemur í ljós fyrir mánaðamót en það verða breytingar á fyrirkomulagi útgáf- unnar.“ Hún segir að ekki liggi fyrir hvernig útgáfunni verði breytt. Líklegt sé að útgáfudögum verði fækkað og aukin áhersla lögð á netið. „Það hefði þurft að gera fyrir nokkru. Við erum að sjá bæjar- miðla hætta eða minnka við sig. Þetta er erfiður bisness. Við ætlum samt að reyna að halda lífi í prent- útgáfu blaðsins. Í ljósi áskriftar- hópsins getum við ekki alveg hætt henni.“ Hún viðurkennir að umræddur pistill hafi fengið nokkur viðbrögð og framtíð Eyjafrétta hafi verið til umræðu í bænum. „Fólk er ekki tilbúið að sjá okkur fara. Við lifum þetta af.“ Vinna að því að bjarga Eyjafréttum  Útgáfudögum að líkindum fækkað Morgunblaðið/Ófeigur Vestmannaeyjar Eyjafréttir, áður Fréttir, hafa komið út í tæp 45 ár. Sara Sjöfn Grettisdóttir Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Skráð atvinnuleysi í maí var 2,2%, eða 4.090 manns að jafnaði og minnkaði um 0,1% frá aprílmánuði. Að meðaltali fjölgaði um 494 á at- vinnuleysisskrá m.v. maí í fyrra, en þá mældist skráð atvinnuleysi 1,9%. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu Vinnumálastofnunar (VMST) sem birt var á vef hennar í fyrradag. „Atvinnuleysi minnkaði frá apríl til maí og við eigum von á að það gæti jafnvel minnkað niður í 2% í júní. Við búumst við að atvinnuleysi haldi áfram að minnka, en þó hægar en búist var við,“ segir Vignir Hafþórs- son, sérfræðingur VMST, í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að árstíðabundnar sveiflur hefðu sín áhrif, en jafnan væri atvinnuleysi minna á sumrin en t.d. í janúar og febrúar. Fleiri karlar en konur voru skráð- ir atvinnulausir í maí, 2.130 karlar að jafnaði og 1.960 konur. Mest atvinnuleysi var hjá erlend- um ríkisborgurum, eða 4,6%, en 1.396 þeirra voru skráðir án atvinnu í lok maí og eru þeir því um 31% allra á atvinnuleysisskrá. VMST gaf út 8% fleiri atvinnuleyfi til erlendra ríkisborgara en á sama tíma í fyrra. Það sem af er árinu af- greiddi VMST 158 umsóknir um ný atvinnuleyfi vegna skorts á starfs- fólki, þar af voru 98 samþykkt og 54 hafnað, en áfram er fjölgun á um- sóknum um slík leyfi. Minnkaði mest á Vestfjörðum Á landinu var mest atvinnuleysi á Suðurnesjum, eða 2,8%, en minnst á Norðurlandi eystra, eða aðeins 2,1%. Að jafnaði minnkaði atvinnuleysi mest á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Minnkun á atvinnuleysi varð í fisk- veiðum, upplýsinga- og fjarskipta- starfsemi svo og í fjármála- og fjar- skiptastarfsemi frá sama tíma í fyrra en aukning í öðrum atvinnugreinum, mest í mannvirkjagerð og gistingu. Vinnumiðlun VMST auglýsti 187 ný störf í maí, nokkuð fjölbreytt en mest verkamannastörf t.a.m. í iðnaði og landbúnaði. Afskráðir voru 635 atvinnulausir í maímánuði, þar af fóru 429 í vinnu eða um 68%, en 111 manns, eða 17%, voru afskráðir þar sem þeir stað- festu ekki atvinnuleit í lok maí, mættu ekki í boðað úrræði. Atvinnuleysi minnkar áfram  Atvinnuleysi 2,2% í maí  Útgáfa atvinnuleyfa til útlendinga eykst ennþá  Mest atvinnuleysi á landinu á Suðurnesjum og á meðal erlendra ríkisborgara Morgunblaðið/Ómar Vinnumálastofnun Fleiri atvinnu- leyfi gefin út nú miðað við í fyrra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.