Morgunblaðið - 15.06.2018, Side 21

Morgunblaðið - 15.06.2018, Side 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2018 Reykjavík Mynd af kappanum Ronaldo vakti athygli vegfaranda í Austurstræti. Ronaldo og félagar hans í portúgalska landsliðinu keppa einmitt við Spánverja í kvöld á HM í knattspyrnu. Ómar Óskarsson Harka Donalds Trumps Bandaríkja- forseta í garð Justins Trudeaus, forsætisráð- herra Kanada, laug- ardaginn 9. júní, loka- dag leiðtogafundar G7-ríkjanna í Kanada, var undarleg. Hún var þó ekkert einsdæmi. Trump vandar banda- mönnum sínum ekki alltaf kveðjurnar. Forsetinn hélt beint til Singapúr frá Kanada og á leiðinni þangað horfði hann á blaðamannafund þar sem Trudeau lýsti niðurstöðum G7- fundarins. Vék hann þar að ágrein- ingi um tollamál við Bandaríkja- stjórn vegna ákvarðana Trumps og lét orð falla um að Kanadamenn mundu ekki láta þessu ósvarað. Við þetta móðgaðist Trump. Hann dró tafarlaust stuðning sinn við loka- ályktun G7-fundarins til baka. Larry Kudlow, helsti efnahags- ráðgjafi Trumps, sagði í sjónvarps- viðtali sunnudaginn 10. júní að for- setinn hefði neitað að hafa nafn sitt undir sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoga G7-ríkjanna vegna „svika“ Justins Trudeaus. Forsætisráð- herra Kanada hefði vegið að forset- anum og reynt að veikja stöðu hans fyrir fund hans með Kim Jong-un, einræðisherra í Norður-Kóreu, í Singapúr þriðjudaginn 12. júní. Trudeau „stakk okkur í bakið“ sagði Kudlow. Peter Navarro, einn helsti ráðgjafi Trumps um við- skiptamál, bætti um betur þegar hann sagði í sjónvarpsþætti að Justin Trudeau ætti að fá „sér- stakan stað í víti“. Þetta orðbragð endurspeglar spennuna hjá þeim sem stóðu Trump næst áður en hann hélt til Singapúr (Ludow fékk vægt hjartaáfall eftir helgina). Orðavalið stangast á við allt sem menn eiga að venjast í samskiptum vinaþjóða og nágranna og er allt- of harkalegt miðað við tilefnið. Forsætisráð- herra Kanada áréttaði aðeins afstöðu ríkis- stjórnar sinnar gagn- vart einhliða ákvörðunum Trumps um verndartolla. Féll vel við Kim Á blaðamannafundi fyrir brottför- ina frá Kanada sagði Trump að hann væri svo næmur að hann þyrfti ekki nema fimm sekúndur til að átta sig á hvort hann hefði gagn af sam- ræðum við viðmælanda sinn. Á blaðamannafundi eftir Kim-fundinn í Singapúr sagði Trump að hann hefði ekki þurft nema eina sekúndu til að greina Kim sem góðan við- mælanda. Samband þeirra yrði gott. Allt sem Trump sagði á 65 mín- útna löngum blaðamannafundinum eftir Kim-fundinn benti eindregið til þess að hann treysti einræðisherr- anum til að standa við það sem þeim fór í milli. Heima fyrir er litið á Kim sem hálfguð, herinn og kjarnorkuvopn hans hafa algjöran forgang. Þjóðinni er haldið í fátækt og fáfræði nýtt valdhöfunum til dýrðar – kjarn- orkuvopnin urðu til þess að Trump settist til viðræðna við Kim. Óttinn við að þeim megi beita gegn Banda- ríkjunum. Nokkrum sinnum áður hafa Bandaríkjamenn og aðrir ár- angurslaust reynt að koma böndum á þau. Engin skilyrði Í aðdraganda fundarins í Singa- púr var í fyrstu látið eins og Kim hefði þá þegar ákveðið að fjarlægja öll kjarnorkuvopn sín á skömmum tíma. Til að árétta að honum væri al- vara var efnt til sýningar fyrir fjöl- miðlamenn þegar úrelt kjarnorku- tilraunasvæði í N-Kóreu var sprengt í loft upp og endanlega eyðilagt. Í loðinni yfirlýsingu sem Kim og Trump rituðu undir í Singa- púr lofaði Trump Norður-Kóreu „öryggistryggingu“ en Kim „árétt- aði staðfastan og óhagganlegan ásetning sinn um að hreinsa al- gjörlega öll kjarnorkuvopn af Kór- euskaga“. Sérfræðingar minna á að í sept- ember 2005 hafi Norður-Kóreu- menn formlega samþykkt að segja skilið við „öll kjarnorkuvopn og nú- verandi kjarnorkuáætlanir“. Þeir fengu í þess stað stuðning annarra ríkja, þar á meðal Bandaríkjanna, til að afla sér orku. Norður-Kóreumenn slitu þessu samstarfi árið 2009 vegna ágrein- ings um tæknileg atriði í tengslum við eftirlit með framkvæmd loforðs- ins. Í Singapúr-orðalaginu um kjarn- orkuvopn felst í raun ekki meira en Norður-Kóreumenn hafa áður sagt. Þar er ekki minnst á neina útfærslu, ekkert er sagt um tímasetningar eða eftirlitskerfi til að sannreyna að Kim standi við loforð sitt. Þetta sæt- ir mikilli gagnrýni þeirra sem telja fundinn litlu eða engu skipta. Á blaðamannafundinum sagði Trump að kjarnorkuafvopnunarferl- ið hæfist „mjög fljótlega – mjög, mjög fljótlega“. Skuldbinding Norður-Kóreu- manna er í orði en ekki á borði og miklu veikari en vænta mátti þegar lagt var af stað til leiðtogafundarins. Orðalagið sýnir að frekari viðræður eru nauðsynlegar. Þær koma í hlut Mikes Pompeos, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hann heldur utan um framhaldið. Strax eftir Singa- púr-fundinn hélt hann til Seoul í Suður-Kóreu og hitti utanrík- isráðherra landsins og Japans, bandamenn Bandaríkjanna, til að gefa þeim skýrslu. Sameiginlegar heræfingar Af því sem Trump sagði af við- ræðum sínum við Kim kom mest á óvart að hann ætlaði að hætta sam- eiginlegum heræfingum með Suður- Kóreu. Í samtali við ABC- sjónvarpsstöðina sagði forsetinn: „Við eyðum stórfé annan hvern mánuð í stríðsleiki með Suður- Kóreu og ég sagði: Hvað kostar þetta? Við fljúgum vélum frá Guam, við æfum sprengjukast á tóm fjöll. Ég sagði: Ég vil stoppa – og ég ætla að stoppa þetta og ég tel þetta mjög ögrandi.“ Yfirlýsing Trumps í þessa veru og um hugsanlegan brottflutning um 30.000 manna bandarísks herliðs frá S-Kóreu vakti undrun margra. Þar á meðal stjórnvalda í S-Kóreu og bandaríska varnarmálaráðuneyt- isins. Að forseti Bandaríkjanna telji æfingar eigin hers með bandamönn- um sínum „mjög ögrandi“ er aðeins vatn á myllu andstæðinga Banda- ríkjanna. Yfirmaður japanska hersins sagði að dvöl bandarískra hermanna í Suður-Kóreu og sameiginlegar her- æfingar væru „lífsnauðsynlegar“ til að tryggja öryggi í Austur-Asíu. Its- unori Onodera, varnarmálaráðherra Japans, sagði að Japanir myndu áfram stunda heræfingar með Bandaríkjamönnum og halda fast í áform um varnir gegn eldflaugaárás frá Norður-Kóreu. Það hefur lengi verið skoðun Kín- verja að verði heræfingum til varnar Suður-Kóreu hætt láti Norður- Kóreustjórn af kjarnorkuvígbúnaði sínum. Þessi kínverska stefna end- urspeglar áhuga Kínastjórnar á að fylla hernaðarlegt tómarúm hverfi Bandaríkjaher á brott. Mike Pom- peo fór til Peking frá Seoul. Mikið reynir á Pompeo við að skýra stefnu Bandaríkjastjórnar í anda stöðugleika. Stóra spurningin er þó: Hefur Trump þolinmæði eða úthald til að leyfa diplómötum að leita sameiginlegrar niðurstöðu? Óljós árangur Vel viljuð niðurstaða við mat á Singapúr-fundinum er að árangur hans sé óljós vegna meginefnis hans: kjarnorkuvopnanna. Kim Jong-un sagði eftir fundinn að hann boðaði mikla breytingu. Vísa þessi orð til þróunar í landi hans? Mannréttindamál bar ekki hátt í viðræðum Trumps við Kim. Þau eru fótum troðin í Norður-Kóreu. Ótti stjórnarherranna við að lina tökin er augljós. Ætlar Kim nú að minnka heljartök sín? Versta niðurstaða fundarins er að hann auki spennu milli Bandaríkja- stjórnar og bandamanna hennar í Seoul og Tokýó og minnki öryggi þeirra. Eftir Björn Bjarnason » Vel viljuð niðurstaða við mat á Singapúr- fundinum er að árangur hans sé óljós vegna meginefnis hans: kjarn- orkuvopnanna. Björn Bjarnason Höfundur er fyrrv. ráðherra. Fleiri spurningar en svör eftir Singapúr-fundinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.