Morgunblaðið - 15.06.2018, Side 25

Morgunblaðið - 15.06.2018, Side 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2018 á undan meitlað hana og mótað. Með réttu viðhorfi til lífsins hélt hún áfram hnarreist og harð- ákveðin að lífið héldi áfram og hún ætlaði að taka þátt í því, oft með ótrúlegan vind í fangið. Nokkrum árum seinna hitti hún Óla sinn og fluttist austur á Tjörn til hans með ljósa sófann sem hún var nýbúin að festa kaup á þegar hún bjó á Boðagrandan- um. Við vinkonurnar urðum furðu lostnar yfir því hver þessi maður væri, sem tókst að bræða hjarta hennar og fá hana til að flytjast á bóndabæ austur á Hornafirði. Sófinn var svo hjá henni í mörg ár til notalegrar minningar um árin okkar vinkvennanna saman og öll stefnumótin sem við áttum heima hjá henni áður en farið var á „Ömmulú“. Síðan eignaðist hún strákana sína, Halldór og Agnar, sem voru sólargeislarnir í lífi hennar. Mikið mæddi á henni þegar hún þurfti í nokkur ár að halda tvö heimili, í Reykjavík og á Tjörn, vegna táknmálskennslunn- ar fyrir Halldór en ekki minnist ég þess að hún hafi nokkru sinni kvartað, þetta var bara enn eitt verkefnið sem þurfti að leysa. Það var svo heima í eldhúsinu á Tjörn fyrir 16 árum, líka æsku- heimili Sigurgeirs, sem hún kynnti mig og Sigurgeir. Þegar við svo eignuðumst Guðrúnu Steinunni fékk hún að sjálfsögðu að eiga hana með okkur og hún kallaði hana alltaf „gullið sitt og stelpuna sína“, það voru miklir kærleikar með Láru og Guðrúnu og Guðrún Steinunn saknar vin- konu sinnar sárt. Það væri hægt að skrifa miklu meira um þessa dugnaðarkonu, sem mátti aldrei neitt aumt sjá og var alltaf tilbúin að rétta öllum hjálparhönd sem þess þurftu. Hún var gestrisin með afbrigðum, eldsnögg að reiða fram kræsingar og það dugði oft ekki til að koma henni að óvörum heima, það var komið dekkað borð eftir augna- blik. Elsku vinkona, ég kveð þig með þakklæti fyrir öll árin sem við áttum saman, minning þín lifir og yljar um ókomin ár. Ég sendi Óla, Halldóri, Agnari, Sóleyju, Önnu og fjölskyldu mínar innileg- ustu samúðarkveðjur, ykkar missir er mikill. Þín Guðrún P. (Lilla). „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ K. Gi- bran. Ég kynntist Láru Maríu fyrir tæpum þrjátíu árum í gegnum sameiginlega vinkonu. Þá bjó Lára á Boðagrandanum, þar sem við áttum skemmtilegar stundir og ófáar ferðir á skemmtistaðinn Ömmu Lú og í einni slíkri kynnt- ist hún Óla sínum. Hún fluttist austur til hans á Tjörn og mikil var gleðin þegar sólargeislarnir, Halldór og Agnar fæddust. Hún missti foreldra sína ung, var einkabarn, en mér fannst hún tak- ast á við hlutina af æðruleysi og vildi gjarnan gera allt fyrir alla og gleðja. Við vinkonur fórum stundum austur í helgarferðir með við- komu í Bónus, fylltum heilu kerr- urnar af innkaupalista Láru. Ýmsar athugasemdir fengum við á kassanum hvort við værum að fara í söluferð eða vinnur þú á leikskóla? Síðan var brunað aust- ur og öllu þurfti að koma fyrir í búrinu á Tjörn. Stórbakstur dag- inn eftir og endað í góðri steina- steik eða grilli og ekki má gleyma rjómasveppasósunni góðu. Við Gísli maðurinn minn keypt- um íbúð fyrir tuttugu árum og vorum að vinna í henni um sum- arið og vantaði samastað á meðan og að sjálfsögðu máttum við vera í Kjarrhólmanum þar sem Lára bjó yfir veturinn með Halldór í skóla. Hún átti miklar þakkir skildar fyrir. Nokkrar ferðir fórum við vin- konur saman til útlanda, mikið hlegið, borðaður góður matur og drjúgt verslað og ekki síst Lára. Eitt sinn kom hún með töskuvagn- inn ásamt starfsmanni af hótelinu yfirfullan af pokum, svo varla sást í hann og svo var hlegið að öllu sam- an og öllu komum við heim til landsins, gjöfum fyrir strákana hennar og vini. Elsku Óli, Halldór, Agnar, Sól- ey, Anna og fjölskylda, ég votta ykkur mína dýpstu samúð, mikill er söknuðurinn, megi minningin um Láru Maríu vera ljós í lífi ykk- ar. Hvíl í friði. Takk fyrir allt og allt. Kristín Guðjónsdóttir. Ég kveð þig heitu hjarta. – Minn hugur klökkur er. Ég veit, að leið þín liggur svo langt í burtu frá mér. Mér ljómar ljós í hjarta, – sem lýsir harmaský, þá lífsins kyndla kveikti þín kynning björt og hlý. Og þegar vorið vermir og vekur blómin sín, í hjartans helgilundum þá hlær mér minning þín. (Jón Þórðarson.) Það er þyngra en tárum taki að setjast niður við að skrifa minning- argrein um elsku vinkonu mína, Láru Maríu sem lést 5. júní síðast- liðinn, langt fyrir aldur fram. Okk- ar leiðir lágu fyrst saman fyrir rúmum 40 árum þegar við sett- umst báðar í gagnfræðabekk í Kvennaskólanum í Reykjavík. Hún hafði þá þegar mætt miklu mótlæti í lífinu, því við fermingaraldurinn lést móðir hennar eftir stutt veik- indi. Erfið veikindi föður mörkuðu svo unglingsárin. Stórfjölskylda Láru Maríu stóð þá þétt við bakið á henni sem og eftir andlát hans. Við vinkonurnar fylgdumst að í gegn- um skólaárin og brölluðum margt saman. Samverustundir á Njáls- götu, Laugarnesvegi, Furugrund og á Boðagranda eru í dag dýr- mætar minningar. Lára María var alltaf tilbúin í að halda stórveislur og að taka á móti fólki, því það fannst henni skemmtilegast. Flott þriggja rétta kvöldréttarboð voru þá ekki óalgeng, vel dúkað borðið, sparistellið lagt á borð, sérvalinn forréttur, úrvals nauta- eða lamba- kjöt með bernaise-sósunni góðu og auðvitað irish coffee, svona Láru spes, í eftirrétt. Ekki má gleyma rækjusalatinu góða. Allt þetta var gert eftir kúnstarinnar reglum. Saumaskapur var henni í blóð bor- inn, sem dæmi fyrir nokkrum ár- um þá saumaði hún sér íslenskan þjóðbúning, peysuföt. Lára María hafði sérstaklega góða nærveru og jákvæða orku sem gerði það að verkum að fólki leið vel í kringum hana enda var vinahópur hennar með eindæmum stór. Lára María flutti að Tjörn á Mýrum í Austur- Skaftafellssýslu eftir að hún kynntist eftirlifandi eiginmanni sínum Ólafi Halldórssyni. Frum- burðurinn Halldór fæddist og nokkrum árum síðar kom Agnar í heiminn. Synirnir voru augastein- ar móður sinnar og gerði hún allt sem var í hennar valdi til að styðja þá á lífsins göngu.Við stofnuðum saumaklúbb, Mímósurnar og heimsóknir okkar í gegnum tíðina að Tjörn, eru alveg ógleymanlegar. Það var alltaf gott veður, nokkur lambalæri sett á grillið og eitt fjall af humri í boði fyrir hópinn enda var ávallt vel tekið til matar síns. Þá var Lára María ánægð, ef allir fengu nóg að borða. Stundum var kveiktur varðeldur og sungið fram á rauða nótt. Þetta eru allt ynd- islegar minningar sem við varð- veitum í hjartastað. Fyrir átta ár- um fórum við tvær saman til Nice, að hitta gamla skólasystur úr Kvennó sem þar býr. Sú ferð var ógleymanleg enda mikið hlegið og við staðráðnar í að endurtaka leik- inn aftur fljótlega. En núna hefur Lára María lagt í sína hinstu ferð í sólarlandið góða. Elsku Óli, Hall- dór, Agnar, Sóley og fjölskylda. Megi algóður Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Með þakk- læti og virðingu kveð ég mína kæru vinkonu sem ég var svo lán- söm að kynnast, segi eins og við kvöddumst venjulega „lov jú“. Blessuð sé minning Láru Mar- íu. Ebba. Frænka mín Lára María Theó- dórsdóttir er látin, á besta aldri, 55 ára. Þegar ég hugsa um æviveg hennar finnst mér hann að mörgu leyti vera sorgarsaga, svo mörg- um erfiðleikum mætti hún. Jafn- framt var ævi hennar hetjusaga, svo dugleg og kjarkmikil var hún alla tíð. Seinni hluta ævi sinnar bjó hún á Tjörn í Hornafirði með fjöl- skyldu sinni, en ræturnar voru frá Breiðafirði, Ólafsvík og Breiða- fjarðareyjum. Faðir hennar og systkini hans misstu foreldra sína strax í bernsku. Sex ára hafði Theódór misst báða foreldra sína. Eftir það voru þau systkinin á heimili föð- ursystur sinnar í Hvallátrum. Það var heimili móður minnar Sigur- borgar, þess vegna voru mamma og hann alltaf eins og systkini. Hann hafði hana fyrir stóru syst- ur, því hann var fimm árum yngri. Síðar dvaldi hann ungur maður hjá mömmu og pabba í Skáleyjum og hafði á orði að sig langaði mikið til að eignast dóttur sem héti María eins og móðir hans. Mörg- um árum síðar varð honum að ósk sinni, er hann hitti sína góðu konu Hallveigu, þar sem hann var kennari í Ólafsvík og eignuðust þau síðan Láru Maríu, sem hér er kvödd. Það var eins og sagan endur- tæki sig að nokkru leyti. Lára María missti mömmu sína þegar hún var nýlega fermd og pabba sinn nokkrum árum seinna. Þá stóð hún ein uppi þar til hún eign- aðist fjölskyldu fyrir austan, sem var henni svo mikilvægt. Enn átti eftir að reyna mikið á þessa ungu konu, sem alltaf sýndi kjark og þor. Það var ekki lítið sem hún þurfti að berjast fyrir velferð drengsins síns, sem fædd- ist nær heyrnarlaus, en með dugnaði, eljusemi og léttri lund tókst henni það. En svo kom reiðarslagið um síðustu jól, þegar allt virtist bjart fram undan eins og hún skrifaði í jólabréfið. Hún veiktist svo alvar- lega að enginn mannlegur máttur gat komið til hjálpar og fjölskyld- an þarf nú að horfast í augu við þessi erfiðu umskipti. Við hjónin höfum í nokkur skipti komið við hjá þeim á Tjörn og alltaf var tekið á móti okkur með hlýju og frændsemi af bestu gerð. Nú treystum við okkur ekki austur, en sendum fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur frá okkur og öllu okkar fólki. Þegar æviröðull rennur rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi hel er fortjald hinum megin birtan er. Höndin, sem þig hingað leiddi, himins til þig aftur ber. Drottinn elskar – Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (S. Kr. Pétursson) María S. Gísladóttir frá Skáleyjum. Í dag kveðjum við Láru Maríu Theodórsdóttur, frænku og vin. Hún kvaddi þetta líf, langt um aldur fram, 5. júní sl. Við hverfum aftur í tímann til sjöunda áratug- ar síðustu aldar. Þá átti Lára María heima hjá foreldrum sínum í Heiðargerðinu í Reykjavík, en við bjuggum skammt þar frá og leiðin á milli heimila okkar var stutt. Þá komu þær mæðgur stundum í heimsókn á morgnana, Lára þá ung að árum, fjörleg og skemmtileg stelpa. En síðan, er við fluttumst til Hafnarfjarðar, hættu þessar heimsóknir eins og gefur að skilja og minna samband var milli okk- ar, en rofnaði þó aldrei. Árin liðu og Lára María fluttist að Tjörn við Hornafjörð. Þá var það eitt sinn er við hjónin vorum á heim- leið frá Austfjörðum, að við stungum við stafni á Tjörn. Degi var tekið að halla og við ætluðum ekki að stoppa lengi. En það fór á annan veg. Hjá þeim hjónum var ekki annað í boði en að við gistum þar um nóttina. Og innan tíðar sátum við að veisluborði, þrátt fyrir að við hefðum ekki boðað komu okkar. Þá var gestrisni þeirra slík að þau gengu úr rúmi fyrir okkur, þrátt fyrir mótbárur okkar. Fleiri slíkar heimsóknir áttum við að Tjörn. Lára María, við minnumst þín með hlýju og söknuði og vildum að stundirnar með þér yrðu miklu fleiri. Við þökkum þér samfylgdina og vott- um Ólafi, Halldóri, Agnari og öðr- um aðstandendum okkar dýpstu samúð. Þórður og Lilja. Þitt bros og blíðlyndi lifir og bjarma á sporin slær, það vermir kvöldgöngu veginn, þú varst okkur stjarna skær. Þitt hús var sem helgur staður, hvar hamingjan vonir ól. Þín ástúð til okkar streymdi sem ylur frá bjartri sól. Við þökkum þá ástúð alla, sem okkur þú njóta lést, í sorgum og sólarleysi það sást jafnan allra best. Þín milda og fagra minning sem morgunbjart sólskin er. Þá kallið til okkar kemur, við komum á eftir þér. (F.A.) Takk, elsku Lára María, fyrir að leiða okkur stelpurnar saman í einn frábæran saumaklúbb. Við höfum í gegnum tíðina bróderað saman mislita þræði í klukku- streng lífsins og minnumst með þakklæti allra samverustundanna síðastliðin þrjátíu ár. Kærleikskveðja frá Mímósun- um þínum, Sigrún Sævars, Inga, Lára Kr., Berglind, Ebba og Sigríður. Það var árið 1999. Ég flutti mig til Reykjavíkur til að heyrnar- skertir synir mínir fengu þjón- ustu við hæfi. Sá eldri gekk í Vest- urhlíðarskóla eins og Halldór en sá yngri á dagheimilið Sólborg eins og Agnar. Fyrsta daginn minn á staðnum þar sem ég var að átta mig á stað- háttum var mér bent á konu sem héti Lára og væri vel inni í öllum hlutum. Ég spurði eftir henni fyrsta daginn og var þá sagt fyrir aftan mig: „Ertu að leita að mér?“ Leit ég við og sá þá eitt fallegasta bros sem ég hef séð. Bros sem kom frá hjartanu. Svona voru okkar fyrstu kynni. Um veturinn þurfti ég oft að fara til læknis og það var þá aldrei vandamál. Hún tók bara alla drengina fjóra og fór með þá heim og þegar ég mætti á staðinn kom aldrei annað til greina en að ég borðaði með þeim öllum. Lára var alltaf innan seilingar ef eitthvað var að; þannig var hún bara þó að hún sjálf hefði meira en nóg að gera. Eftir að ég flutti aftur norður héldum við sambandi og ef ég átti erindi í borginna ræddum við langt fram á kvöld. Alltaf reyndi hún að greiða götu þeirra sem á þurftu að halda. Ég var svo lánsöm að geta heimsótt hana tvisvar í sveitina og í bæði skiptin var það gaman. Eins og gengur varð minna um samskipti, en jólakortin áttu alltaf sinn sess og ég og sonur minn höfðum ákveðið að heimsækja hana í lok júní en af því verður ekki. Lára var kona sem ég tók mér til fyrirmyndar en komst aldrei með tærnar þar sem hún hafði hælana, þvílík kjarnakona sem hún var. Í næstsíðasta jólakorti lýsti hún yfir ánægju sinni með að Agnar væri kominn með kærustu og hversu duglegir þeir bræður væru. Örlögin voru henni ekki hlið- holl; auk þess að missa foreldra sína ung að árum fékk hún ekki að dvelja hjá okkur lengur, en hún mun lifa í huga okkar. Ég votta Óla, Agnari og Hall- dóri mína dýpstu samúð. Athvarf hlýtt við áttum hjá þér. Ástrík skildir bros og tár. Í samleik björt sem sólskinsdagur, samfylgd þín um horfin ár. Fyrir allt sem okkur varstu ástarþakkir færum þér. Gæði og tryggð er gafstu, í verki góðri konu vitni ber. Aðalsmerkið: elska og fórna. Yfir þínum sporum skín hlý og björt í hugum okkar hjartkær lifir minning þín. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Sigurlína Hólmfríður Styrmisdóttir. Elsku Lára mín. Það er svo sárt að hugsa til þess að þú sért farin frá okkur en ég veit að þú ert komin á miklu betri stað núna, þar sem þér líður vel. Þú og ég vorum alltaf svo góð- ar vinkonur, enda áttirðu mikið í mér. Ég á svo margar góðar minn- ingar sem ég mun aldrei gleyma t.d. þegar þú og Halldór komuð í ferminguna mína í fyrra, þar voru teknar margar myndir af okkur, sem ég mun skoða reglulega. Þegar við komum í heimsókn á Tjörn varstu alltaf tilbúin með eitthvað gott í matinn eða með kaffinu, það voru svo notalegar heimsóknir og það besta, öll knús- in og kossarnir sem ég fékk alltaf frá þér. Þú gafst þér líka alltaf svo góð- an tíma til þess að spjalla við mig, enda höfðum við um svo margt að tala og þú vildir alltaf vita hvað ég var að gera spennandi. Ég sakna þín óendanlega mikið en það er samt svo gott að eiga all- ar góðu minningarnar frá liðnum árum, þú gafst mér svo mikið og fyrir það er ég þér svo þakklát. Hvíldu í friði. Þín stelpa, Guðrún Steinunn. ✝ Anna Margretfæddist 2. ágúst 1931. Hún lést á Landspít- alanum, Fossvogi, 9. apríl 2018. Hún var dóttir hjónanna Thore Pouline Kristine Rasmussen og Há- kons Óskars Jón- assonar. Börn þeirra hjóna voru fimm talsins. Ester sem lést samdæg- urs, Hákon Jónas, Katrín Signý, Anna Margret og Gunnar Björg- vin sem lifði einungis í örfá daga. Anna fæddist í Reykjavík og bjó þar í gömlu Reykjavík fyrstu ár ævi sinnar. Hún sagði börnum sínum margar skemmtilegar sögur úr borginni sem stækkaði hratt, hún fluttist síðan sem barn út að borgarmörkum að Rauða- hvammi við Rauðavatn þar sem foreldrar hennar ráku eggjabú eftir að faðir hennar hætti sjó- mennsku. Það var mikið áfall fyrir Önnu verkstjóra í Hraðfrystistöð Keflavíkur. Þar unnu allir í fjöl- skyldunni í fiski á einhverjum tímapunkti. Anna og Jónatan eignuðust þrjú börn: 1) Aðalsteinn Hákon, fæddur 5. apríl 1957. Sambýlis- kona Aðalsteins er Kristín Rich- ardsdóttir. Synir Aðalsteins með fyrri konu sinni, Brynhildi Jóns- dóttur, eru: a) Heiðar Hildiberg, sambýliskona Bryndís Halls- dóttir, og b) Davíð Hildiberg, sambýliskona hans er Soffía Klemenzdóttir. 2) Davíð Smári, fæddur 19. janúar 1961, eiginkona hans er Vigdís Pétursdóttir. Stjúpbörn Davíðs Smára eru: a) Nína Björk, maki Halldór Viðar Jónsson. b) Ragnar. c) Sara Bergmann, maki Valgeir Ólason, og eru barna- börnin sjö og þar á meðal lítill Davíð Smári. 3) Eygló Guðrún, fædd 21. apríl 1965. Dóttir henn- ar er Esther Anna Guidice, faðir hennar er Albert Guidice. Útför Önnu Margretar fór fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju 17. apríl 2018. að missa Dengsa bróður sinn sem fórst rétt austan við Selvog þegar bát- urinn Vörður fórst ásamt allri áhöfn- inni. Þá var hann 26 ára. Katrín Signý, systir hennar lést í mars síðastliðnum. Anna Margret var því síðust systk- inanna að kveðja. Móðir Önnu, Pauline var dönsk , kom hún til landsins á milli stríðsára á veg- um Hjálpræðishersins, hún gift- ist rammíslenskum sjómanni úr Dölunum. Heimilishaldið það var meira á danska mátann þar sem Hákon var mikið á sjó. Anna kynntist verðandi eig- inmanni sínum, Jónatan Árna Aðalsteinsyni, í fiskvinnslu í Sandgerði 1955. Þau giftust á af- mælisdegi Jónatans 7. júní 1958 og hefðu átt 60 ára brúðkaups- afmæli í sumar. Þau hjónakornin fluttu til Keflavíkur haustið 1967 þar sem Jónatan hafði tekið við starfi Elsku Önnu þekkti ég allt mitt líf og á hún þátt í mínum fyrstu minningum. Ég er vinkona Eygló- ar dóttur hennar og var við tveggja ára aldurinn byrjuð að tölta niður Suðurgötuna í heimsókn. Ég á margar minningar um Önnu syngjandi og dansandi. Við Eygló máttum alltaf hlusta á tónlist í stofunni í litla húsinu þeirra, henni líkaði við að hafa líf í kringum sig. Þar voru líka leikæfingar með fleiri krökkum, ekki má gleyma þegar sungið og dansað var við Abba-lög og átti hún til að taka þátt í því. Anna bauð mér ósjaldan í mat og það vantaði ekki að ég sótti í að borða hjá þeim enda mjög oft fiskur í matinn. Í allnokkur skipti hrósaði ég matnum sem gladdi Önnu mikið en Eygló vinkona trampaði annað hvort á tærnar á mér undir borðinu eða gaf mér slæmt olnbogaskot til að stöðva mig, hún vildi ekki meiri fisk. Anna átti í mínum huga allt gott skilið því ég með mína sjónskekkju og þar að leiðandi brussugang með dash af tilraunastarfsemi braut örugglega ekki færri hluti hjá þeim en heima og aldrei kom styggð- aryrði frá Önnu. Anna var mér allt- af einstaklega góð og óþrjótandi í þolinmæði við að kenna mér nýja hluti og alltaf tókst henni að bæta við dönsku orði hér og þar í kennsl- una. Hún var verulega stolt af danska uppruna sínum og varla stoltari stuðningsmann átti ég þeg- ar ég fór í framhaldsnám til Dan- merkur. Hún var þó jafn stolt af þeim íslenska og talaði einstaklega fallegt mál. Hún var kát, mild og lærdómsþurfi, alltaf lesandi. Í Önnu var hláturinn tímalaus, ímyndunaraflið aldurslaust og draumarnir eilífir því í henni sló rómantískt hjarta sem þráði ævin- týri og framandi lönd. Ég kveð með þessum fátæklegu orðum og sendi samúðarkveðjur til Jónatans sem hún deildi lífinu með og börnum, tengdafólki og barnabörnum. Hún var kona sem elskaði skilyrðislaust. Guðný Atladóttir Hraunfjörð. Anna Margret Hákonardóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.