Morgunblaðið - 15.06.2018, Síða 28

Morgunblaðið - 15.06.2018, Síða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2018 ✝ Kristín R.Thorlacius, kennari og þýð- andi, var fædd 30. mars 1933. Hún lést 4. júní 2018. Hún var dóttir Áslaugar Krist- jánsdóttur, f. 1911, d. 2014, og Sig- urðar Thorlacius, f. 1900, d. 1945. Systkini hennar eru Örnólfur Thorlacius, f. 1931, d. 2017, Hrafnkell Thorla- cius, f. 1937, d. 2007, Hallveig Thorlacius, f. 1939, og Kristján Thorlacius, f. 1941. Kristín varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1953, lauk kennaraprófi frá Kennaraháskólanum 1980 og bætti síðar við sig námi í bóka- safnsfræði og útskrifaðist sem bókasafnskennari frá Háksóla Íslands. Hún kenndi lengst af við grunnskólann á Lýsuhóli í Staðarsveit 1973-1994 og var síðan bókasafnskennari í Borg- arnesi frá 1994 til 2005. Kristín sat í sveitarstjórn Staðarsveitar og var oddviti sveitarinnar í átta ár, 1978- 1986. 3) Ragnhildur, f. 1962, maki Markús Gunnarsson, f. 1964. Synir hennar eru Rögnvaldur Gauti Þórarinsson, f. 1982, og Gunnar Óli Markússon, f. 1990, maki Auður Helgadóttir, f. 1994. 4) Sigurður Thorlacius, f. 1964, d. 1999, var giftur Nönnu Lind Svavarsdóttur f. 1965. Þeirra börn eru Svanhvít Sif Th. Sigurðardóttir, f. 1988, maki Kristjón Rúnar Hall- dórsson, f. 1984, og Ari Th. Sig- urðsson, f. 1995. 5) Finnbogi, f. 1965, maki Sæ- björg Kristmannsdóttir, f. 1964. Þeirra börn eru Ída Finnboga- dóttir, f. 1990, og Rögnvaldur Finnbogason, f. 1995. 6) Örnólfur Einar, f. 1969, maki Magnea Þóra Ein- arsdóttir, f. 1971. Þeirra börn eru Rögnvaldur Ingvi Örnólfs- son, f. 1995, Þorlákur Matthías Örnólfsson, f. 1997, og Krist- veig María Örnólfsdóttir, f. 2002. 7) Ólafur, f. 1975, maki María Edwardsdóttir, f. 1974. Þeirra börn eru: Katrín Ólafsdóttir, f. 2011, Sigurður Ólafsson, f. 2012, og Margrét Ólafsdóttir, f. 2012. Sonur Ólafs og Evu Krist- jánsdóttur er Árni Ólafsson, f. 2003. Dóttir Maríu er Kolbrún Vignisdóttir, f. 1995. Útför Kristínar fer fram frá Borgarneskirkju í dag, 15. júní 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. Hún þýddi fjölda bóka og hlaut tvisv- ar þýðingarverð- laun skólamálaráðs Reykjavíkur. Auk þess gaf Kristín út barnabækur og átti ljóð í ljóðasöfnum. Kristín giftist séra Rögnvaldi Finnbogasyni, f. 1927, d. 1995, 8. október 1960. Þau bjuggu víða um land fyrstu bú- skaparár sín en lengst af á Staðastað á Snæfellsnesi. Börn þeirra eru: 1) Áslaug Thorlacius, f. 1955, maki Sven Aschberg, f. 1955. Börn Áslaug- ar eru Kristín R. Vilhjálms- dóttir, f. 1973, Jóhann Birg- isson, f. 1976, synir hans Thune Björn Zabell Jóhannsson, f. 2012, og Jón Aschberg, f. 1989. 2) Ingibjörg, f. 1961, maki Árni Þór Vésteinsson, f. 1960. Þeirra börn eru: Sesselía Mar- grét Árnadóttir, f. 1983, dætur hennar: Rannveig Arna Þor- björnsdóttir, f. 2006, og Gyða Björk Þorbjörnsdóttir, f. 2009. Kári Árnason, f. 1988, maki Kara Elvarsdóttir, f. 1991. Þeirra dóttir er Kría, f. 2018. Elskuleg tengdamóðir mín nýlega orðin 85 ára lést skyndi- lega mánudaginn 4. júní. Ekk- ert benti til brotthvarfs hennar úr þessum heimi þegar við hjónin héldum á vit ævintýra í Grikklandi nokkrum dögum fyrr, en enginn veit hvenær kallið kemur. Kristín hlakkaði til að sjá hjá okkur myndir úr ferðinni þegar heim kæmi. Það var að vonum áfall að fá símtal frá Íslandi með fregnum um að hún hefði verið flutt með hraði á spítala og annað skömmu síðar um að hún væri látin. Hún tengdamóðir mín átti rætur í borginni. Fædd í Reykjavík, ólst þar upp og menntaðist. Sveitin og lands- byggðin átti líka stóran sess í huga hennar og hjarta. Hún var barn í sveit hjá móðurafa og ömmu í Fremstafelli í Suð- ur-Þingeyjarsýslu. Síðar á ævinni bjó hún með manni sínum og börnum í bæ og sveit fyrir norðan og austan. Lengst varð sveitadvölin í Stað- arsveit á sunnanverðu Snæ- fellsnesi. Ríflega tuttugu ár. Þegar Ingibjörg og ég rugl- uðum saman reitum undir lok árs 1981 kynntist ég veröld tengdó. Hún var prestsfrú, kennari í Lýsuhólsskóla og oddviti Staðarsveitar. Þar að auki var heimilið stórt og í mörgu að snúast á þeim vett- vangi. Gangverkið á Staðastað var allt drifið áfram af vinnu- semi og dugnaði. Allir á heimilinu lögðu sitt af mörkum í heimilishaldi og bú- störfum. Kristín unni móðurmálinu. Hún sýndi þá ást í verki. Eftir hana liggja fjölmargar þýðing- ar bókmenntaverka og fræði- rita. Hún hlaut þýðingarverð- laun skólamálaráðs Reykja- víkur í tvígang. Hún skrifaði einnig barnabækur. Börnunum okkar Ingibjargar, Sesselíu og Kára, fannst það ekki ónýtt fá lesna fyrir sig sögu sem amma hafði skrifað. Og ekki var að- dáun barnabarna okkar minni. Hún tengdamóðir mín var ekki mikið fyrir að halda afrek- um sínum á lofti eða trana sér fram. Ég vona að hún fyrirgefi mér að ég nefni þessa hluti hér. Mér finnst innistæðan vera næg. Það var alltaf gott að koma vestur á Staðastað. Í skólafrí- um, á hátíðum, á sumrin. Við Ingibjörg fórum vestur eins oft og færi gafst. Ferðalagið sjálft gat verið ævintýri út af fyrir sig. Veg- irnir eins og þeir voru og veðr- in stundum ill en minningar um bjarta sumardaga á Staðastað eru dýrmætastar. Þegar börnin komu til var ánægja þeirra að heimsækja ömmu og afa í sveit- inni ávallt mikil. Margt skemmtilegt brallað. Vetur, sumar, vor og haust. Stundum voru krakkarnir í pössun í sveitinni að sumarlagi í viku eða tvær. Ég veit að þá var oft gaman. Þegar tengdafaðir minn veiktist fluttu þau í Borgarnes. Hann lést 1995. Annað áfall dundi yfir 1999 þegar elsti son- urinn, Sigurður, lést af slysför- um. Það var tengdamóður minni og fjölskyldunni allri hræðilegt áfall. Kristín starfaði í Borgarnesi til sjötugs og bjó þar þangað til hún flutti til Reykjavíkur fyrir tveimur árum. Hún leigði sér hentuga íbúð að Brúnavegi 9 og kom sér þar þægilega fyrir með góðri hjálp barna og barnabarna. Árin þar hefðu alveg mátt verða fleiri en enginn má sköpum renna. Takk fyrir allt og allt. Hvíl í friði. Árni Þór Vésteinsson. Hún systir mín, sú eina sem ég hef átt og hefur gengið við hlið mér alla mína ævi, verður borin til moldar í dag. Á snöggu augabragði var hún tekin burt frá okkur án þess að við fengjum ráðrúm til að kveðja. Hvernig á maður að ná utan um svona endanlegan dóm? Eitt af því sem ég hef lært af lífinu er hversu rétt og hollt það er að taka breytingum af æðruleysi. Breytingar eru nátt- úrulögmál sem við getum geng- ið út frá sem vísu. Allt breytist. Allt. En núna vil ég samt að allt sé eins og það var í gær. Fyrsta stökkbreytingin í lífi mínu og okkar systkinanna var þegar við misstum snögglega föður okkar og móðir okkar, sem þá var rúmlega þrítug, stóð uppi sem ekkja með fimm börn. Glókollana sína fimm eins og einhver orðaði það í minn- ingargrein um föður okkar. Systa var þá tólf ára, sex ár- um eldri en ég, og frá því ég man eftir mér var hún klett- urinn sem ég setti traust mitt á næst á eftir móður minni. Hún var óspör á gagnrýnina þegar henni ofbauð kæruleysið og út- gangurinn á litlu systur en um leið hefur hún alltaf verið minn helsti bandamaður, trúað á mig gegnum þykkt og þunnt og hrósað mér þegar henni fannst ástæða til. Þegar ég sit hér og hugsa um hana, hvernig hún var, þá sé ég fyrir mér eitthvert sam- ræmi, góða blöndu af andstæð- um eiginleikum sem fóru vel saman. Hún var öðrum þræði feimin og hlédræg en svo var hún líka ákveðin. Í merki hrútsins. Leiðtogi af guðs náð. Sjö barna móðir sem annaðist börnin sín af blíðu og fórnfýsi. Samviskusamur og hæfur dugnaðarforkur við öll sín störf utan heimilis. Fyrst hjá Toll- endurskoðun, svo hjá Kristjáni Eldjárn á Þjóðminjasafninu, seinna við kennslu, þýðingar og skriftir. Hún var kosin oddviti sinnar eftirlætissveitar, Staðar- hrepps, og sinnti því starfi með sóma. Samband systra er öðru vísi en önnur sambönd. Systur þekkja hvor aðra frá upphafi, eins og þær voru þá, áður en heimurinn bjó til nýja óreiðu í lífi þeirra. Samband sem varð til á undan tímanum. Þær eiga saman bút af bernsku sem aldr- ei glatast. Þær geta deilt bæði dýrmætum bernskuminningum og draumum um framtíðina. Einhver orðaði þetta svona: „Englarnir eru stundum uppteknir við eitthvað annað svo Guð skapaði handa þér systur.“ Kristín R. Thorlacius ✝ Magnús DavíðElliðason fædd- ist í Reykjavík 21. júlí 1963. Hann lést 3. júní 2018. Foreldrar hans voru Elliði Magn- ússon, f. 29.10. 1935, d. 31.7. 2015, og Sjöfn Júl- íusdóttir, f. 27.9. 1938, d. 10. júní 2008. Systkini Magnúsar eru Guð- laug Eygló, Júlíus, Þröstur og Guðrún Hrefna. Magnús var ógiftur en átti tvo syni, Ólaf Davíð f. 1984 og Guðmund f. 1987. Magnús bjó að mestu í Reykjavík, en þó einnig í Hafn- arfirði í nokkur ár. Hann vann við ýmis verkamannastörf, t.d. hjá Eimskip og Grænmetisverslun Landbúnaðarins en lengst af aðstoðaði hann föður sinn við pípulagningarstörf. Útför Magnúsar fer fram frá Áskirkju í dag, 15. júní 2018, kl. 13. Bróðir minn Magnús lést 3. júní sl. á gjörgæsludeild Land- spítalans eftir erfiða og langa samvist við Bakkus hin seinni ár. Hann var ljúfur og góður dreng- ur, hlédrægur og feiminn nema hjá nánustu vinum og vanda- mönnum. Við ólumst upp saman og lékum okkur alla daga á æsku- árum okkar í Engjabæ í Laug- ardalnum, sem var eins og að vera í sveit í þá daga og er þar núna Fjölskyldugarðurinn. Einn- ig bjuggum við í Hafnarfirði um tíma og ófá skiptin drullugir upp fyrir haus eftir að hafa verið að busla eða veiða í bæjarlæknum þar. Ég var heppinn að geta síðar unnið við áhugamálið mitt en Magnús átti erfitt með að fóta sig í lífinu þó hann hefði ýmsa hæfi- leika, svo sem bílaviðgerðir en aldrei fór hann menntaveginn eftir grunnskóla. Vann hann á ýmsum stöðum, meðal annars hjá föður okkar, en hann hafði einnig gaman af því að aðstoða mig ásamt öðrum vinum og fjöl- skyldumeðlimum við fiskrækt í hinum ýmsum veiðiám sem ég hef komið að. Voru það ógleymanleg- ar ferðir sem hann hafði mikla ánægju af. Hann bjó hjá móður okkar að mestu leyti þar til hún féll frá árið 2008. Var það honum mikið áfall og síðan hefur hallað undan fæti í baráttunni við Bakkus hjá honum og að lokum gat líkaminn ekki meir. Ég mun sakna hans sárt og minningin um góðan dreng lifir, dreng sem var kannski of góður fyrir þennan heim. Guð blessi þig, Maggi. Nú ertu hjá mömmu og pabba sem þú saknaðir svo mikið. Þröstur Elliðason Elsku Maggi, nú ert þú farinn. Margs er að minnast hvað þú varst ljúfur og gamansamur, hláturinn þinn var smitandi. Þú varst mjög handlaginn, sér- staklega við bílaviðgerðir og hjálpsamur við okkur með ýmis- legt. Við minnumst allra skíðaferð- anna og þér var mjög umhugað um stórfjölskylduna. Það var þér mjög mikið áfall þegar móðir okkar féll frá. Bakk- us tók þá meira við hjá þér og hann eirir engu og líf þitt fór á hvolf. Ég reika oft á rangri leið, Sú rétta virðist aldrei greið. Ég geri margt sem miður fer Og man svo sjaldan eftir þér. (Pétur Þorsteinsson) Alltof fljótt er komið að kveðjustund. Elsku Maggi, guð geymi þig. Eygló og Ari Reynir. Nú kveð ég mág minn hann Magga sem fór allt of fljótt. Ég hitti hann fyrir 38 árum þegar ég kom með Júlla bróður Magnús Davíð Elliðason ✝ Ingimar Þ.Vigfússon fæddist í Dísukoti, Þykkvabæ, 13. nóv- ember 1927. Hann lést á Landakots- spítala 2. júní 2018. Foreldrar Ingi- mars voru Vigfús Markússon f. 18. október 1903, d. 18. desember 1946 og Guðsteina Sig- urðardóttir f. 19. ágúst 1906, d. 4. október 1992. Ingimar eign- aðist tvær systur, Kristínu f. 5. nóvember 1932, d. 1. janúar 2016 og Steinunni f. 16. október 1940. Ingimar kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni Sigríði Hend- riksdóttur f. 10. október 1930 þann 8. júlí 1951. Börn þeirra eru 1) Samúel f. 15. desember 1952, kvæntur Ástríði Júlíus- dóttur. Börn þeirra eru Júlíus, Lilja, Davíð og Ingimar. 2) Ágústa f. 8. október 1954, gift Craig Onus. Dætur þeirra eru Sigríð- ur, Erika, Brynja og Shannon. 3) Guðsteinn f. 7. september 1956, d. 15. nóvember 2016. Eftirlifandi eigin- kona hans er Björg Halldórsdóttir. Börn þeirra eru Esther, Saron, El- ísa, Halldór og Jos- hua. 4) Jóhannes f. 23. maí 1958, kvæntur Ingu Hrönn Þor- valdsdóttur. Synir þeirra eru Andri, Þorvaldur og Símon. 5) Guðný f. 2. mars 1964, gift Hans Ragnari Sveinjónssyni. Dóttir Guðnýjar er Viktoría og dætur Hans eru Stefanía og Ester. Barnabarnabörnin eru 24 og barnabarnabarnabörnin 2. Útförin fer fram frá Hvíta- sunnukirkjunni Fíladelfíu, Reykjavík í dag, 15. júní 2018 kl. 13. Elsku yndislegi pabbi minn kvaddi þetta jarðneska líf í byrj- un þessa mánaðar. Ég var að vonast eftir því, þar sem ég bý erlendis, að fá að sjá hann að minnsta kosti einu sinni enn áður en hann færi heim til síns himneska föður. En kallið kom fyrr en maður bjóst við. Pabbi var einstakur faðir með sannarlega hjarta úr gulli. Alltaf var hann tilbúinn að gefa af sér til afkomenda sinna í formi kærleika eða gjafa, og alltaf fylgdu falleg kærleiksrík skrif með hverri gjöf sem hann og mamma gáfu, með hans fallegu rithönd. Svo ég tali ekki um öll jólakortin sem hann lagði sig svo vel fram við að skrifa, svo persónuleg til allra ná- kominna og fjarskyldra ættingja og vina. Það sem lá honum efst á hjarta var trúin á Jesúm Krist sem var honum allt, og var hann ófeiminn að tala um trú sína við alla. Hann hafði gaman af lífinu, og eitt af því sem hann hafði unun af var að rækta kartöflur, og gerði mikið af því enda ættaður úr Þykkvabæ. Og það lýsti hon- um svo vel að hann gaf nánast alla uppskeruna til ættmenna og vina. Pabbi hafði líka gaman af því að elda ekta íslenskan mat eins og sviðakjamma, saltað hrossakjöt, kjötsúpu, hafragraut og soðna ýsu svo fátt sé nefnt. Dóttir mín segir yfirleitt ef ég reyni að elda eitthvað sem hún hafði fengið hjá afa sínum: „Þetta er ekki eins og afi gerir, og afi gerir besta hafragraut sem ég hef smakkað og bestu soðnu ýs- una sem ég hef fengið, fullkom- lega saltaða.“ Margs er að minn- ast um einstaklega kærleiksríkan föður og afa sem sýndi það svo sannarlega í verki. Það er alltaf svo sárt að kveðja þann sem mað- ur elskar en ég veit að pabbi er kominn á betri stað þar sem er hvergi þjáning né sorg bara eilíf gleði og hamingja. Ég sakna þín, elsku pabbi minn, og hlakka til að fá að hitta þig að nýju á himn- inum. Þín elskandi dóttir, Guðný. Mig langar að kveðja elskuleg- an tengdaföður minn með þess- um fallegu orðum: En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið, og þín er liðin æviönn, á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. Þín vinartryggð var traust og föst og tengd því sanna og góða, og djúpa hjartahlýju og ást þú hafðir fram að bjóða. Og hjá þér oft var heillastund, við hryggð varst aldrei kenndur. Þú komst með gleðigull í mund og gafst á báðar hendur. Svo vinur kæri vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín geta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höfundur ókunnur) Ég vil þakka yndislega vegferð og allar góðar stundir. Þín tengdadóttir, Inga Hrönn Þorvaldsdóttir. Elsku afi minn, þá ertu loksins kominn heim í dýrðina, eins og þú sagðir svo oft sjálfur. Minningarnar eru svo margar eins og þegar við sátum saman við eldhúsborðið í Hraunbænum og þú fékkst matargikkinn til að borða svið. Vasahnífurinn tekinn upp og kjamminn hreinsaður af mikilli nákvæmni. Svo við tölum nú ekki um kartöflubeðin ykkar ömmu, þar sem við fengum stundum að hjálpa til við að taka upp kartöfl- urnar og að launum stoppuðum við í sjoppunni á leiðinni heim og ég fékk að velja mér bláan ópal. En það sem situr mest eftir er hvaða einstaka mann þú hafðir að geyma. Þú hafðir einstaka nærveru og sýndir fólki kærleika, gjafmildi og þolinmæði. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt svona mörg ár með þér, elsku afi minn. Elska þig. Þín, Lilja. Ingimar Þ. Vigfússon Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.