Morgunblaðið - 15.06.2018, Side 34
G
uðbrandur Steinþórsson
fæddist 15. júní 1943 á
Skagnesi í Mýrdals-
hreppi. Hann vann þar
öll algeng störf til sveita
og áfram í námshléum, en forfeður
hans eru Skaftfellingar langt fram í
ættir.
Guðbrandur gekk í barnaskóla við
Deildará frá 9 ára aldri til 13 ára og
tók landspróf miðskóla frá Skóga-
skóla. Hann lauk stúdentsprófi frá
stærðfræðideild Menntaskólans í
Reykjavík, fyrri hluta prófi í verk-
fræði frá Háskóla Íslands og kandi-
datsprófi í byggingaverkfræði, Cand.
Polyt, frá Danmarks tekniske Høj-
skole, Den Polytekniske Lære-
anstalt.
Guðbrandur vann á Verkfræði-
stofunni Hönnun 1972-1980, einkum í
verkefnum á sviði burðarvirkjahönn-
unar, til dæmis við hönnun Sigöldu-
virkjunar. Hann sinnti jafnframt
stundakennslu við byggingadeild
Tækniskóla Íslands í burðarþolsfræði
og hönnun steinsteypuvirkja. Hann
var deildarstjóri við byggingadeild TÍ
1981-1990 og tók það ár við embætti
rektors og gegndi því til 2002. Hann
var lektor og síðar dósent við
Tækniháskóla Íslands 2002-2005, en
þá sameinuðust THÍ og Háskólinn í
Reykjavík. Hann gegndi starfi dós-
ents við HR til vors 2013 og hefur eft-
ir það starfað þar sem stundakennari
eða emeritus. Hann vann samhliða
kennslu að samningu kennsluefnis í
burðarþolsfræði og hönnun stein-
steypuvirkja.
Auk þess sat Guðbrandur í Bygg-
ingastaðlaráði frá 1987 til 1992 og
starfaði jafnframt í fagnefndum á
vegum ráðsins, t.d. fagnefnd TC250
um þolhönnun byggingavirkja á veg-
um CEN, og norrænum samráðshópi
í tengslum við þátttöku í staðlavinn-
unni. Hann kom að samningu sér-
íslenskra ákvæða við evrópsku þol-
hönnunarstaðlana og hefur einnig
sinnt ráðgjafastörfum á sviði burðar-
virkjahönnunar. Guðbrandur hefur
Guðbrandur Steinþórsson, verkfræðingur og fyrrv. rektor – 75 ára
Á Skagnesi „Með gömlum félaga, Massey-Ferguson 35, árgerð 1958 sem er að nálgast sextugt og slær aldrei feil-
púst. Í baksýn er Dyrhólaey og Dyrhólaós. Lengst til hægri sést til Loftsala þar sem afi og amma bjuggu.“
Haldinn ólæknandi
bíladellu frá barnsaldri
Fjölskyldan Frá vinstri: Elías Þór, Jóhanna Lára, Guðbrandur, Ásta
Jóhanna, Ásta Barbara, Jón Emil og Kathleen á áramótum 2013/2014.
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2018
Lilja Jóhanns-dóttir, sauð-fjárbóndi á
Bassastöðum í Stein-
grímsfirði á Strönd-
um, á 70 ára afmæli í
dag. Hún er frá Gísla-
bala í Árneshreppi og
bjó þar til sjö ára ald-
urs en þá fluttu for-
eldrar hennar að
Bassastöðum. Þar hef-
ur Lilja búið síðan fyr-
ir utan tvö ár.
„Þá bjuggum við
maðurinn minn, Guð-
brandur Sverrisson, á
Klúku í Miðdal í
Tungusveit, en Guð-
brandur er þaðan.
Þegar pabbi minn lést
árið 1973 ákváðum við
að flytja hingað á
Bassastaði og hefja
búskap og höfum ver-
ið hér síðan.“
Bassastaðir hafa verið með afurðahæstu sauðfjárbúunum á land-
inu. „Já, okkur hefur tekist það þokkalega, en við erum ekki með
stórt bú, við höfum lengst af verið með 280 til 300 kindur. Sauð-
burður gekk vel og ég var bara nokkuð ánægð með vorið. Veðrið
hjá okkur er búið að vera úrkomulítið í vor og betra en fyrir sunn-
an og hefur oft verið mikið verra.“
Auk bústarfanna er Lilja með verktaka í fæði. „Frá 2006 höfum
við oft verið með verktaka á fóðrum ásamt sauðfénu, ætli þetta
heiti ekki að vera með blandaðan búrekstur, og hentar ágætlega
með sauðfé, það þarf ekki að smala þeim af fjalli á haustin. Þeir
eru að vinna við vegagerð hér í botni Steingrímsfjarðar, á leiðinni
frá Djúpvegi yfir Bassastaðaháls áleiðis í Árneshrepp, og nú er ver-
ið að byggja brú yfir Bjarnarfjarðarána. Ég er líka með helling af
heimaalningum auk þess að eiga prjóna svo það er nóg að gera.“
Lilja verður á faraldsfæti í dag, á afmælisdaginn. „Við ætlum að
keyra til Eskifjarðar í einum rykk en þar verðum við í fermingu á
morgun hjá barnabarni okkar. Svo förum við heim á sunnudeg-
inum.“
Börn Lilju og Guðbrands eru Sverrir, Guðbjörg Ágústa, Ragn-
heiður Sigurey, Jóhanna Kristveig, Aðalbjörg og María Lovísa.
Barnabörnin eru orðin 17 og eitt barnabarnabarn.
Á Bassastöðum Lilja og Guðbrandur síðasta
sumar að athuga botnuflekkótta gimbur.
Ánægð með veðrið
það sem af er sumri
Lilja Jóhannsdóttir er sjötug í dag
Magnea Kristbjörg Andrésdóttir, f. 1944, og Hannes Helgason, f. 1941, fagna 55
ára brúðkaupsafmæli, smaragðsbrúðkaupi. Séra Halldór Kolbeins gaf þau saman
í heimahúsi í Vestmannaeyjum 15. júní 1963.
Magnea og Hannes störfuðu bæði lengst af hjá Íslandspósti, þar áður Pósti og
síma. Þau eru frá Vestmannaeyjum en fluttu upp á land 1962 og hafa verið bú-
sett í Reykjavík allar götur síðan.
Þau áttu þrjú börn, tvö eru nú eftirlifandi. Það eru þau Andrés, f. 1963, Guðný, f.
1964 og Helgi, f. 1974, d. 2011.
Árnað heilla
Smaragðs-
brúðkaup
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is