Morgunblaðið - 15.06.2018, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2018
Íslenskt einangrunargler
í nýbygginguna, sumarbústaðinn
eða stofugluggann.
Fagleg ráðgjöf og öruggur afhendingartími.
Smiðjuvegi 2, Kópavogi – sími 4889000– samverk.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er óþarfi að láta sér leiðast þau
störf sem skyldan býður. Reyndu að sýna þol-
inmæði, því þessir hlutir eiga að vera þér í
hag, þegar fram í sækir.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú getur gefið samferðamönnum þín-
um svo mikið, ef þú bara veist hvar þín tak-
mörk liggja. Reyndu að sýna öðrum þol-
inmæði í dag.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Búðu þig undir harða samkeppni
sem þú átt þó að geta sigrast á. Frá og með
deginum í dag muntu krefjast meiri gleði og
skemmtunar í lífi þínu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér finnst óþolandi þegar aðrir grípa
inn í starf þitt og reyna að beina þér á aðrar
brautir en þú vilt. Búðu þig undir að til þín
verði leitað varðandi önnur störf.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Leggðu þig fram um að sýna sjón-
armiðum annarra þá virðingu sem þú vilt þér
til handa. Bjartsýnt viðhorf laðar aðra að
manni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það getur reynst erfitt þegar einhver
hengir sig svo á mann að það fæst hvergi
friður. Það er líklegt að þú munir þurfa að
eyða meiri peningum á næstunni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er auðvelt að fyllast bjartsýni í
vinnunni í dag. Brjóttu niður múrana sem
halda þér frá sjálfstæði. Vertu opinn fyrir nýj-
um tækifærum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er ekkert rangt við það að
þig skuli langa til þess að létta á hjarta þínu.
Annars rekur málin á reiðanum, allt fer úr
böndunum og þú missir öll tök.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er erfitt að velja, þegar vegir
liggja til allra átta. Farðu þér hægar og gefðu
öðrum góðan tíma til þess að skilja hvað það
er í raun sem þú vilt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Án nokkurs vafa verður þú að forð-
ast samræður um viðkvæm málefni í dag.
Haltu aftur af þér og treystu á þær skuld-
bindingar sem þú hefur gert.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú geislar af hamingju og hefur já-
kvæð áhrif á alla sem þú umgengst. Taktu
eitt verkefni fyrir í einu og gefðu þér tíma til
að anda á milli.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Leggðu áherslu á jákvæða styrkingu á
vinnustað, þannig fer sem minnstur tími til
spillist. Samkennd er betri en samúð í við-
skiptum við ókunnuga.
Ég hitti karlinn á Laugaveginumþar sem hann var að stjákla í
kringum Ráðhúsið og spurði hann
hvernig honum litist á. Hann skaut
höfðinu örlítið aftur á bak og sagði:
„Þorgerður Katrín sagði að Við-
reisn myndi selja sig dýrt í borg-
inni.“ Síðan velti hann höfðinu yfir
á hina hliðina og tautaði:
Í Dagsljósi varð ég þess vís
að Viðreisn á nýrenndum ís
vildi selja sig dýrt –
en við sjáum það skýrt
að allt var á útsöluprís.
Jón Ingvar Jónsson yrkir á Boðn-
armiði:
Í bílnum nú bilað er flest,
hann bognar ef í hann ég sest
og dugar ei lengur,
er drasl eins og gengur.
Ég held að ég fái mér hest.
Dagbjartur Dagbjartsson var
fljótur til svars:
Þessa limru létt þú ortir
laus við bílinn, fullur kvíða.
Undarlegt þig ennþá skortir
eitthvað sem er hægt að ríða.
Gunnar J. Straumland segir:
„Svei mér þá ef það er ekki bara
kominn tími á stúfhenda greiningu
á ástandinu:
Á sumardegi sólin virðist sitja kyrr,
sem hún aldrei sýndi fyrr.
Er nú tími annarskonar árstíðar. (?)
Er það spurning eða svar?
Undur lífsins yfirskyggð af einni frétt;
engin klukka er nú rétt.
Brátt ég spyr en bláklukkunnar
blíðu svör
beygja tímans beinu för.“
Magnús Halldórsson sagði: „Þeg-
ar ég sá stúfhendur Staumlands í
morgun varð til ein framhend:“
Sól á hólum sé ég valla sýna lit
Sínu týnir sjávarglit.
Philip Vogler segir sumarið
koma á mismunandi tímum eftir ár-
ferði og hvar maður býr. Að lokum
fái þó allir að halda upp á það:
Fagnar vori í sinni sveit,
sér að flóran grænkar,
fólk af reynslu fyrri veit
að flestra hagur vænkar.
Magnús Halldórsson fór um
sunnanvert Snæfellsnes og sagði
eftir þá ferð að sér virtist ferða-
þjónustan aðalbúgrein:
Bændur minna bera á,
best ég tel það sanna,
hve víða má um velli sjá,
vistspor túristanna.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Borgarpólitísk útsala
og bilaður bíll
Í klípu
RÚNAR ÞJÁÐIST AF SEKTARKENND
OG KOMST UPP MEÐ ÞAÐ, ÞÖKK SÉ
LÖGMANNI SÍNUM.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„KOMDU HINGAÐ STRAX! ÞÚ EYÐILAGÐIR
PLÖNTUNA MÍNA!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar sögunni lýkur
en minningin lifir.
SJÁ ÞIG… GRETTIR, ÆTLARÐU ALLTAF
AÐ VERA SVONA LATUR?
ÉG GÆTI HÆTT ÞVÍ EN ÉG
GEFST EKKI SVO AUÐVELDLEGA
UPP
STANS!
HVER FER
ÞAR…
VINUR EÐA
ÓVINUR? ÆTTINGI!
ÞÁ FER MÁLIÐ AÐ
VANDAST!
ÉG HEF RÁÐLAGT SKJÓLSTÆÐINGI
MÍNUM AÐ SVARA EKKI FLEIRI
SPURNINGUM…
SAGA OKKAR
Í gær hófst ævintýrið mikla í Rúss-landi, sjálft HM og þorri þjóð-
arinnar er nú með öndina í hálsinum,
hnút í maganum, kvíðaröskun á háu
stigi, en samt sem áður virðist til-
hlökkunin, blandin spennu, vera
ríkjandi. Á morgun kl. 13.00 að okkar
tíma verður flautaður á leikur Argent-
ínu og Íslands í Moskvu, vonandi að
viðstöddum þúsundum Íslendinga
sem undir öruggri stjórn Tólfunnar,
munu hvetja Strákana okkar til dáða.
x x x
Frá og með morgundeginum tekurvið tilfinningaleg rússíbanareið
þjóðarinnar, alla vega til 26. júní, von-
andi lengur, mun lengur. Víkverji til-
heyrir þeim hluta þjóðarinnar sem
vonar hið besta, en reynir svona í und-
irvitundinni að búa sig undir það
versta, þ.e. að Ísland komist ekki upp
úr sínum riðli og í 16. liða úrslitin. Að
því sögðu vill Víkverji halda því til
haga, að hann telur að það sé stórkost-
legt afrek hjá íslenska landsliðinu,
Heimi Hallgrímssyni og öðrum þjálf-
urum landsliðsins að vera komnir á
HM. Hvernig sem fer megum við ekki
gleyma því.
x x x
Vikverji telur að fjölmiðlar þessalands hafi staðið sig mjög vel í
kynningu á HM í aðdraganda mótsins,
hvað varðar kynningu á liðum, and-
rúmsloftinu hér á landi, andrúmsloft-
inu hjá öðrum þátttökuþjóðum, upp-
rifjun á fyrri Heimsmeistaramótum,
skemmti- og fróðleiksmolum frá HM
o.fl. o.fl. Þar vill Víkverji sérstaklega
nefna íþróttakálf Morgunblaðsins til
sögunnar, sem hefur dag hvern und-
anfarnar vikur verið með frábæra HM
umfjöllun og svo daglegar fréttasíður
Morgunblaðsins sem hefur dag hvern
verið með afar áhugaverða umfjöllun,
sem hefur varpað ljósi á það hvernig
andrúmsloftið er hjá hinum almenna
stuðningsmanni landsliðsins hér á
landi. Nægir í þeim efnum að rifja upp
stórskemmtilega forsíðumyndina á
Morgunblaðinu sl. miðvikudag, af
langömmu Alberts Guðmundssonar,
landsliðsmanns, Áslaugu Guðlaugs-
dóttur, sem er nýorðin hundrað ára!
Hún styður liðið 100% og ekki síður
langömmudrenginn sinn. Þá er ekki
eftir að segja nokkuð annað en: Áfram
Ísland! vikverji@mbl.is
Víkverji
Því að hvar sem tveir eða þrír eru
saman komnir í mínu nafni þar er ég
mitt á meðal þeirra.
(Matteusarguðspjall 18.20)