Morgunblaðið - 15.06.2018, Síða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2018
»Kvikmyndaleikarinn Bill Murray kom
ásamt sellóleikaranum Jan Vogler, píanó-
leikaranum Vanessu Perez og fiðluleikaran-
um Miru Wang fram í Eldborg Hörpu í gær-
kvöldi þar sem hópurinn flutti blöndu af
sígildri tónlist, úrvals bandarískum bók-
menntatextum og sönglögum. Listafólkið
hefur fengið góðar viðtökur beggja vegna
Atlantshafsins. Viðburðurinn verður end-
urtekinn í kvöld.
Kvöldstund með Bill Murray og þremur klassískum hljóðfæraleikurum í Hörpu
New Worlds Bill Murray ásamt hljóðfæraleikurunum á sviðinu í Hörpu. Sýningin hefur notið mikilla vinsælda beggja vegna Atlantsála.
Ánægðar Kristín og Sveiney Sverrisdætur sáu sýninguna.
Kvikmyndaleikarinn Bill Murray fór á kostum í
sýningunni sem hlotið hefur einróma lof.
Listahátíð 2018 Guðmundur Halldórsson og Anna Rut Bjarna-
dóttir voru á meðal þeirra sem mættu í Hörpu í gærkvöld.
Fjölmennt í Hörpu Guðmundur Steingrímsson og Alexía
Björg Jóhannesdóttir létu sig ekki vanta á sýninguna.
Glaðir sýningargestir Wilfried E. Bullerjahn, Birgitte Engelman
og Guðrún Matthíasdóttir voru í hátíðarskapi eins og aðrir.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Í Listasafni Árnesinga, sem vann
nýlega til íslensku safnaverð-
launanna, var nýlega opnuð sýn-
ingin Hver / Gerði með verkum
eftir myndlistakonuna Sigrúnu
Harðardóttur. Sigrún hefur lengi
verið hugfangin af jarðhitasvæð-
um og hefur fjallað um hveri og
gróður í list sinni í mörg ár.
Gagnvirk verk erfið
í framkvæmd
„Ég hef unnið með hveri frá
árinu 1995,“ segir Sigrún um við-
fangsefni sitt. „Ég fékk aðstöðu í
vinnustofu listamanna í Hvera-
gerði árið 1996 og þar má segja að
ég hafi byrjað að vinna með hveri
á málverkum. Upp frá því hef ég
einbeitt mér að hverum og gert
mörg verk þar sem ég sýni fram á
hljómgæði og fjölbreytileika
þeirra; hvernig mismunandi yfir-
borðsvirkni jarðhitasvæðis birtist
á mismunandi vegu. Ýmist birtist
hún í vatnshver, gufuhver eða leir-
hver og hljóðin sem fylgja þessum
mismunandi birtingarmyndum
geta verið mjög fjölbreytileg.“
Meðal fyrri verka sinna um mis-
munandi birtingarform hvera á Ís-
landi nefnir Sigrún verkið “Hrynj-
anda hvera“ frá árinu 2004. Í því
verki voru 36 myndbönd af hver-
um sem fólk gat virkjað og sett
saman sex í einu á mismunandi
hátt. „Gagnvirku verkin eru frek-
ar þung,“ segir Sigrún. „Í fram-
kvæmd eru þau mjög kostnaðar-
söm og nær óhugsandi að ná þeim
kostnaði til baka. Það er einungis
áhugi fyrir því að gera eitthvað
skemmtilegt og leika sér sem fær
listamenn til að setja þau upp. Í
gagnvirkum verkum nær maður
líka betur til yngri kynslóðanna.
Þau eru hins vegar tæknilega flók-
in og erfitt að setja þau upp svo
maður getur ekki sýnt þau hvar
sem er. Þetta er alltaf mikill
kostnaður fyrir sýnandann og í
þessu tilfelli er það Listasafn Ár-
nesinga sem lagði út í þennan
kostnað. Það kostaði mig líka mik-
ið að gera verkin en ég hef voða
gaman af því.“
Hverinn gerði bæinn
Sigrún segist einungis sækja
innblástur í hveri á Íslandi en hún
fjalli þó um hveri á öllu landinu og
jafnvel hveri sem séu horfnir. „Ég
hef fjallað um hveri sem komu
upp eftir jarðskjálftana 2000 við
Kleifarvatn. Tveir þeirra eru
horfnir aftur undir vatn. Það er
breytileiki á hverasvæðum og þeir
hafa breyst sérstaklega eftir jarð-
skjálfta sem urðu árin 2000, 2004
og 2008. Margir þættir geta haft
áhrif á birtingarmyndir hversins.“
Fyrsta verk Sigrúnar um hver-
inn Strokk var hluti af verki sem
hét „Öndvegissúlur“og fjallaði um
landnám Ingólfs Arnarsonar í
Reykjavík. „Mér fannst það
skondið, var að velta fyrir mér
fyrsta landnámsmanninum og
fyrsta opinbera landnáminu og
þessari sögu sem við öll þekkjum
um Ingólf Arnarson og öndvegis-
súlurnar, að þær skyldi akkúrat
reka á land hér í Reykjavík þar
sem við erum með eldfjall við hlið-
ina á okkur og njótum góðs af
hvernum. Það var fyrsta hugsunin
sem leiðir mig síðan inn í að vinna
svona mikið með hveri eins og ég
hef gert allar götur síðan.“
Titill sýningarinnar, Hver /
Gerði, er margræður og vísar
bæði í nafn Hveragerðis en einnig
í helstu viðfangsefni Sigrúnar;
hveri og garða. „Sýningin fjallar
líka um garðana í Hveragerði en
þeir og gróðurhúsaræktin þar eru
afleiðing af jarðhitasvæðinu.“
Segja má að hverinn hafi gert bæ-
inn og að túlka megi nafn sýning-
arinnar sem staðhæfingu þess
efnis.
Gjörningur var fluttur á opnun
sýningunnar þann 19. maí þar sem
Sigrún málaði verk á hljómborð
með sérstökum trommukjuðum í
samspili við kontrabassaleik Leifs
Gunnarssonar. „Hann leikur sín
stef og ég tromma á stigann. Það
er samtal í gangi á milli okkar. Ég
geri verkið í rauntíma um leið og
ég flyt hljóðmynd með eins konar
trommuslætti. Svo vinn ég líka að-
eins með spaða og þá eru hljóðin
öðruvísi.“
Sigrún mun flytja gjörninginn
aftur þann 23. júlí á móti kontra-
bassaleik Alexöndru Kjeld. Sýn-
ingin mun standa til 6. ágúst alla
daga frá 12-18.
Verk um fjölbreytileika hvera
Sýningin Hver / Gerði stendur yfir í
Listasafni Árnesinga Sigrún Harð-
ardóttir tekur fyrir hveri og gróður
Listakonan Sigrún Harðardóttir hefur unnið með hveri frá árinu 1995.