Morgunblaðið - 15.06.2018, Síða 41

Morgunblaðið - 15.06.2018, Síða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2018 Íupphafi myndar sjáum viðaðalpersónuna Tami Oldham,sem leikin er af ShaileneWoodley, neðanþilja í segl- skútu. Það er allt á floti alls staðar og það blæðir úr sári á höfði hennar. Full örvæntingar tekur hún að leita að Richard, samferðamanni sínum og unnusta. Hún kallar á hann eins og hún eigi lífið að leysa en fær ekkert svar. Þetta upphafsatriði er svo gott sem í einni töku og það er reglulega öflugt. Þá er klippt frá þessum ægilegu aðstæðum fimm mánuði aftur í tím- ann þar sem Tami er að koma til Tahítí. Hún skráir sig inn í landið og þar kemur í ljós að hún hefur enga fasta atvinnu, hún veit ekki hversu lengi hún mun dvelja í Tahítí og ekki hver næsti áfangastaður hennar er. Tami er hreinræktaður ferðalangur, hún gerir ekki áætlanir fyrir framtíð- ina heldur lætur strauminn bera sig á milli áfangastaða. Innan skamms kemst hún í kynni við siglingamanninn Richard og undir eins kvikna neistar á milli þeirra. Þegar vinafólk Richards býður þeim greiðslu fyrir að sigla seglskútunni sinni frá Tahítí til Kaliforníu ákveða þau að slá til og leggja af stað í 6.500 km ferðalag yfir opið hafið. Adrift byggist á sannri sögu þann- ig að með örlitlu gúgli getur hver sem er komist mjög auðveldlega að því hvernig fór fyrir Tami og Richard. Þegar það er ljóst fyrirfram hvað mun gerast og hvernig myndin endar þá skiptir mestu máli hvernig sagan er sögð, frekar en hvað gerist í henni. Í Adrift er kosið að láta söguna ger- ast á tveimur tímaplönum, frekar en að segja hana í línulegri tímaröð. Klippt er á milli rómantískra atriða, þar sem ástin blómstar milli Tami og Richards, yfir á þrúgandi og æsi- spennandi senur úti á hafi þar sem parið glímir við hitabeltisstorm og reynir í kjölfarið að gera sitt besta til að lifa af úti á ballarhafi eftir að stormurinn hefur eyðilagt allan sam- skiptabúnað og þeytt þeim mörg þús- und kílómetra af leið. Það er snjallt að segja söguna með þessum hætti, áhorfendur fá kærkomið hlé frá spennunni í rómantísku senunum úr fortíðinni þegar allt lék í lyndi. Þetta eykur líka á tregann sem fylgir hlut- skipti Tami og Richards, við erum stöðugt minnt á hvað allt var gott einu sinni og samanburðurinn gerir sjávarháskann enn skelfilegri. Baltasar Kormákur hefur reynslu af þessu tagi mynda. Everest (2015) er líkt og þessi byggð á sannri sögu og segir frá fólki sem reynir að lifa af við hörmulegar aðstæður. Djúpið (2012) er sömuleiðis sannsöguleg mynd, hún segir frá ótrúlegu afreki Guðlaug Friðþórssonar sem synti í land í Vestmannaeyjum eftir að skipi hans hvolfdi austur af Heimaey. Balt- asar hefur tekið fram í viðtölum að reynslan af því að gera Djúpið hafi komið að miklu gagni við gerð þess- arar myndar. Flestar af bátasen- unum eru teknar á hafi úti við erfiðar aðstæður og það reyndi heilmikið á leikarana. Þó að þetta sé vísast tals- vert erfiðara en að taka upp í stúdíói hefur það algjörlega borgað sig og þessi aðferð skilar sér í mjög kraft- miklum og sannfærandi atriðum. Kvikmyndatakan er virkilega góð, bæði í senum sem gerast á landi og á legi. Í rómantísku atriðunum fær lit- rík sviðsmyndin í Tahítí að njóta sín gegnum skemmtilegar innrammanir. Á bátnum er oft stuðst við hand- heldar tökur og snjallar myndavéla- hreyfingar sem endurspegla hreyf- inguna á bátnum og veita mótvægi við hinar senurnar. Shailene Woodley sýnir virkilega góða frammistöðu í aðalhlutverkinu. Sam Claflin er ágætur í hlutverki Richards en það er eins og það vanti einhvern neista í hans persónu. Kemestrían á milli þeirra nær líka ekki alveg þeim hæðum sem þarf til að ástarsagan hrífi mann fullkomlega með sér. Það er hressandi og óvenjulegt að sjá mynd af þessu tagi með konu í að- alhlutverki en nóg hefur verið gert af álíka myndum þar sem karlar berjast við náttúruöflin. Það er líka gert í því að bjóða staðalímyndum birginn, Tami er blátt áfram, hvatvís og af- slöppuð en Richard er aftur á móti ljóðrænn og tilfinninganæmur. Þar með er eiginlega upptalið hvað er hressandi og óvenjulegt við Adrift. Sagan er afar dæmigerð, hér eru fet- aðar troðnar slóðir „suvivor“- greinarinnar og það er afar fátt sem kemur á óvart. Adrift er virklega vel gerð mynd sem fléttar sögu af sjávarháska skemmtilega saman við ástarsögu. Fléttan er heldur dæmigerð en heillandi og áhugaverð aðalpersóna nær að halda myndinni á floti. Ekkert nema ólgandi haf Náttúruöfl „Það er hressandi og óvenjulegt að sjá mynd af þessu tagi með konu í aðalhlutverki en nóg hefur verið gert af álíka myndum þar sem karlar berjast við náttúruöflin. Það er líka gert í því að bjóða staðalímyndum birginn,“ segir í rýni um Adrift í leikstjórn Baltasars Kormáks. Laugarásbíó, Smárabíó, Háskólabíó, Sambíóið Keflavík og Borgarbíó Akureyri. Adrift bbbmn Leikstjórn: Baltasar Kormákur. Handrit: David Branson Smith, Aaron Kandell og Jordan Kandell. Kvikmyndataka: Robert Richardson. Klipping: John Gilbert. Aðalhlutverk: Shailene Woodley, Sam Claflin, Jeffery Thomas, Elizabeth Hawthorne. 96 mín. Bandaríkin, 2018. BRYNJA HJÁLMSDÓTTIR KVIKMYNDIR Glæsilegur veitingastaður á Hótel Örk. Vandaður matseðill og hlýlegt umhverfi. Pantaðu borð í síma 483 4700 eða á hverrestaurant.is. Lilja Sigurðardóttir hlaut í gær Blóðdropann 2017, sem Hið íslenska glæpafélag afhendir, fyrir glæpa- söguna Búrið. Sagan er þriðji og síð- asti hluti þríleiks sem hófst með Gildrunni árið 2015, en Netið fylgdi ári seinna. „Hér er vandað vel til verka og ljóst að höfundur leggur mikinn metnað í bæði heimildaöflun og sjálf skrifin. Sagan er sannfær- andi og áhugaverð því hún tekst á við samtímaleg málefni og glæpi sem lesendur kannast við úr fjöl- miðlaumræðu nútímans. Það er vandmeðfarið að skrifa sögu sem er svo nærri raunveruleik- anum en höfundi ferst það vel úr hendi, fellir ekki áfellisdóma en kaf- ar djúpt og veltir upp ástæðum ólíkra glæpa. Þá eru sögupersón- urnar vel skapaðar, yfirleitt marg- hliða og langt frá því einfaldar, og að sama skapi fléttan sem er flókin og spennandi. Búrið er góður endir á metnaðarfullum þríleik þar sem hvítflibbaglæpir tvinnast saman við sakamál tengd eiturlyfjum og hat- ursorðræðu, og gefur færi á að fylgja sögupersónum vel eftir – frá hátindi glæpalífs yfir í djúpar lægðir í fangelsi,“ segir í rökstuðningi dóm- nefndar, sem í sátu Guðrún Ög- mundsdóttir, Vera Knútsdóttir og Páll Kristinn Pálsson. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gleði Lilja Sigurðardóttir var að vonum ánægð með viðurkenninguna. Lilja hlýtur Blóðdrop- ann í ár fyrir Búrið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.