Morgunblaðið - 15.06.2018, Page 44
FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 166. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Víðir gjaldþrota og allt á hálfvirði
2. „Konan stoppaði mig svolítið af“
3. Bílslys við Sprengisand
4. Gert að greiða 666 milljóna …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sýning Íslenska dansflokksins,
Brot úr myrkri, verður sýnd í Hafn-
arhúsinu í kvöld kl. 20 og er á dag-
skrá Listahátíðar í Reykjavík. List-
rænir stjórnendur eru Erna
Ómarsdóttir og Valdimar Jóhannsson
en öll verkin eru flutt við tónlist Sig-
ur Rósar.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Brot úr myrkri á
Listahátíð í kvöld
Sýning á frum-
myndum úr bók-
verkinu Glingur-
fugl eftir Elínu
Eddu Þorsteins-
dóttur verður
opnuð í Bókabúð
Máls og menning-
ar við Laugaveg í
dag klukkan 17.
Glingurfugl fjallar á ljóðrænan og
hljóðlátan hátt um ferðalag tveggja
fugla, Margrétar og Evu, til að endur-
heimta minningar sínar.
Glingurfugl flögrar
úr hreiðri upp á vegg
Tuttugu ára starfsafmæli menning-
armiðstöðvarinnar Skaftfells á Seyð-
isfirði verður fagnað á morgun, laug-
ardag, við opnun sýningarinnar
Kapall klukkan 16. Til sýnis
verða ný og eldri verk eft-
ir Sigurð Guðjónsson,
Tuma Magnússon, Unnar
Örn Auðarson, Þórdísi Að-
alsteinsdóttur og Þórdísi
Jóhannesdóttur. Sýning-
arstjórar eru Aldís Arn-
ardóttir og Aðalheiður
Valgeirsdóttir.
Kapall og 20 ára
afmæli Skaftfells
Á laugardag Austan og norðaustan 3-10 m/s, hvassast norðvest-
anlands. Skýjað með köflum og þurrt víða suðvestan- og vestantil.
Rigning við suðurströndina, skúrir annars staðar, hiti 5 til 12 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-13 m/s og skúrir í dag en rof-
ar til sunnan jökla. Hiti 3 til 12 stig, mildast sunnan heiða.
VEÐUR
KR-ingar unnu sinn stærsta
sigur á liði Keflavíkur í Kefla-
vík í 58 ár í gærkvöldi þegar
þeir skoruðu fjögur mörk í
heimsókn sinni þangað og
færðust upp í sjötta sæti
með sigrinum. Grindavík
gerir það gott áfram og vann
Fjölni í Grafarvogi, 1:0. FH-
ingar sýndu Víkingum klærn-
ar í 3:0 sigri í Kaplakrika og
Hilmar Árni Halldórsson
skoraði sigurmark Stjörn-
unnar gegn KA. »2
Stærsti sigur KR í
Keflavík í 58 ár
„Við vitum að Argentína er lið sem
heldur boltanum gífurlega vel og er
yfirleitt með yfirhöndina í leikjum
sínum hvað það varðar. Við erum til-
búnir fyrir það, og þá pressu sem þeir
koma til með að
setja á okkur. Við
höfum fundað á
fullu um við
hverju megi
búast og
gerum
okkur
klára í
þetta
verk-
efni,“ segir
Jón Daði
Böðvarsson,
landsliðs-
maður í knatt-
spyrnu, um leik-
inn gegn
Argentínu í
Moskvu á
morgun. »1
Tilbúnir í þá pressu sem
Argentína setur á okkur
Fyrsti leikur heimsmeistaramóts-
ins í knattspyrnu karla sem fram
fór í Moskvu í gær fer í sögubæk-
urnar. Aldrei hefur nokkurt lið unn-
ið stærri sigur í upphafsleik HM en
það rússneska gerði í gær þegar
það skellti slökum leikmönnum
landsliðs Sádi-Arabíu, 5:0, og
bætti með því 68 ára gamalt met
Brasilíumanna frá árinu 1950. »4
Aldrei stærri sigur í
upphafsleik HM
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Elsa María Jakobsdóttir leikstjóri var nýverið í París í
Frakklandi sem fulltrúi Íslands á stuttmyndahátíð á vegum
frönsku kvikmyndaakademíunnar. Akademían sem kennd er
við César blés til stuttmyndahátíðar í 20 löndum þar sem
stuttmyndir sem unnu verðlaun í heimalandi sínu voru sýnd-
ar samtímis. Leikstjórum verðlaunamyndanna var boðið að
sækja hátíðina heim og tóku þeir einnig þátt í 10 daga menn-
ingar- og kynningarferð um Evrópu með öðrum verðlauna-
höfum. Elsa María var þangað komin fyrir Íslands hönd þar
sem hún vann Edduna fyrr á árinu í flokki bestu stuttmyndar
ársins 2017, fyrir mynd sína Atelier. Franska akademían
veitti Elsu Maríu m.a. medalíu fyrir stuttmynd sína og sótti
hún gala-kvöldverð með sérvalinni „bransaguðmóður“, en sú
er þekkt leikkona úr franska kvikmyndabransanum.
Styrkja tengsl leikstjóra og kvikmyndaþjóða
Elsa María segir verkefnið hafa snúist um að styrkja
tengsl og sambönd milli landanna. „Við vorum þarna að
kynna myndirnar okkar en einnig var okkur gefið tækifæri
til að kynnast kvikmyndaumhverfinu í þessum löndum sem
við heimsóttum, í Frakklandi, Ítalíu og Grikklandi, og eins að
koma á samböndum milli leikstjóranna.“ Segir Elsa að hún
fengið að kynnast leikstjórum hvaðanæva úr heiminum en
einnig voru þar saman komnir m.a. Óskarsverðlaunahafi og
BAFTA-verðlaunahafi fyrir bestu stuttmynd síðasta árs. Að
sögn Elsu er þetta í fimmta skipti sem hátíðin er haldin og
þar sem þetta er menningar- og fræðsluátak þá tekur
UNESCO þátt í verkefninu. „Okkur var svo boðið til gala-
kvöldverðar í höfuðstöðvum UNESCO þar sem franska kvik-
myndaakademían veitti þeim leikstjórum sem tóku þátt í
verkefninu medalíu frönsku akademíunnar.“
Sérvalið „guðforeldri“ fyrir þátttakendur
Til að tengja leikstjórana enn betur saman við franska
kvikmyndaheiminn voru þeir paraðir saman við franskan
tengilið með reynslu af kvikmyndum eða annarri dagskrár-
gerð. Öllum þátttakendum í gala-kvöldverðinum var úthlutað
guðmóður eða guðföður úr franska kvikmyndabransanum og
var Elsa María pöruð við franska leikkonu að nafni Clemence
Poesy, sem auk þess að leika í þáttum og bíómyndum hefur
einnig leikstýrt stuttmyndum. Þeir sem standa að viðburð-
inum reyna að para fólk saman sem á eitthvað sameiginlegt:
„Við erum jafngamlar og höfum báðar gert stuttmyndir svo
þetta var ótrúlega skemmtilegt.“
Á döfinni hjá Elsu Maríu er m.a. að vinna að kvikmynd í
fullri lengd sem að hennar sögn hefur eitt og annað að gera
með stuttmyndina umræddu. Kynning á stuttmyndinni Ate-
lier hefur nú staðið yfir í tæpt ár og segir hún að nú sé komið
að öðrum verkefnum. „Ég fer til Kaliforníu í næstu viku með
myndina en svo fer þetta að verða gott,“ segir Elsa María og
hlær.
AFP
Medalía Elsa María Jakobsdóttir (t.v.) og franska leikkonan Clemence Poesy, en þær eyddu
saman kvöldstund í París í vikunni á vegum frönsku kvikmyndaakademíunnar.
Öðlaðist franska guðmóður
Elsa María var fulltrúi Íslands á
stuttmyndahátíð í Frakklandi