Morgunblaðið - 16.06.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 16.06.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2018 Eitt dæmið um andúð gagnvartþeim sem þurfa að komast ferða sinna í höfuðborginni er að finna í því sem ekki stendur í nýjum sáttmála meirihlutans.    Bæjarstjórn Akra-ness kom auga á þetta og ályktaði gegn sáttmála „nýs“ meiri- hluta borgarinnar. Bæjarstjórn Akraness benti á að meirihlutinn í Reykjavík nefndi ekki Sundabraut í sátt- mála sínum, sem þó má ætla að sé meðal mik- ilvægustu úrbóta í samgöngumálum höf- uðborgarsvæðisins.    Akranes bendir á að kominn sétími á aðgerðir „með hags- muni borgarbúa og Íslendinga allra að leiðarljósi“. Svo segir í álykt- uninni: „Bæjarstjórn Akraness vill minna borgarfulltrúa á að í Reykjavíkurborg er miðstöð op- inberrar stjórnsýslu, helstu stofn- ana á sviði menntunar og heilbrigð- isþjónustu á Íslandi og þar er einnig helsta inn- og útflutnings- gátt landsins. Reykjavík er höf- uðborg Íslands og því ber borg- arfulltrúum að hugsa um og taka tillit til hagsmuna og lífsgæða allra landsmanna.“    Reynslan sýnir að þessi hugsuner fjarri núverandi meirihluta borgarinnar, sem setið hefur í rúm átta ár með óverulegum breyt- ingum.    Meirihlutinn telur að veröldinsé aðeins til fyrir vestan Læk og að þar eigi aðeins að ferðast um fótgangandi eða á reiðhjóli.    Sundabrautin er því fjarri þess-um meirihluta og verður ekki að veruleika við óbreytta stefnu. Sundabraut er fyrir austan Læk STAKSTEINAR BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 frá Innovation Living Denmark S V E F N S Ó F A R FRODE kr. 179.800 Veður víða um heim 15.6., kl. 18.00 Reykjavík 12 skýjað Bolungarvík 4 skýjað Akureyri 6 skýjað Nuuk 10 léttskýjað Þórshöfn 10 skýjað Ósló 16 heiðskírt Kaupmannahöfn 19 heiðskírt Stokkhólmur 21 heiðskírt Helsinki 20 skýjað Lúxemborg 19 léttskýjað Brussel 21 léttskýjað Dublin 15 skýjað Glasgow 13 rigning London 20 heiðskírt París 23 heiðskírt Amsterdam 21 léttskýjað Hamborg 21 heiðskírt Berlín 21 léttskýjað Vín 23 heiðskírt Moskva 19 heiðskírt Algarve 24 heiðskírt Madríd 28 heiðskírt Barcelona 24 heiðskírt Mallorca 25 léttskýjað Róm 25 þoka Aþena 26 léttskýjað Winnipeg 20 alskýjað Montreal 18 léttskýjað New York 19 léttskýjað Chicago 23 rigning Orlando 30 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 16. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:56 24:02 ÍSAFJÖRÐUR 1:34 25:34 SIGLUFJÖRÐUR 1:17 25:17 DJÚPIVOGUR 2:11 23:46 Bílaumferðin færist enn í vöxt á höfuðborgar- svæðinu. Hún hefur aukist um 3,1% frá áramót- um og í seinasta mánuði var umferðin 2,6% meiri en í sama mánuði í fyrra. Búist er við að út árið muni umferðin aukast um 3%, sem er þó hægari vöxtur en á seinustu árum. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Vega- gerðarinnar. Aukningin í maí er sögð hófleg en aldrei hefur þó mælst meiri umferð í maí- mánuði, frá upphafi samantektar. „Mest jókst umferðin í mælisniði norðan við Smáralind (við Dalveg í Kópavogi) eða um 5,0% en minnst jókst umferðin í mælisniði ofan Ártúnsbrekku eða um 0,8%,“ segir í frétt Vegagerðarinnar. Nú stefnir í að mælisnið sem mælir umferðina við Smára- lind verði langstærst og gæti farið í 38% af heildinni. Aka minna á sunnudögum Mest var ekið á föstudögum í maí en minnst á sunnudögum. Umferðin jókst mest á miðviku- og fimmtudögum en samdráttur varð um helgar, einkum á sunnudögum eða 6,3%. omfr@mbl.is Bílaumferðin færist enn í vöxt  Mest aukning á um- ferðinni við Smáralind Morgunblaðið/Golli Í Ártúnsbrekku Umferðin jókst um 3,1% á árinu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við óprúttnum aðilum sem stolið hafa greiðslukortum og komist yfir PIN-númer. Þrjú slík tilvik hafa verið tilkynnt lögreglu, í öllum tilvikum voru brotaþol- arnir konur á eftirlaunaaldri. Þetta kemur fram í facebook- færslu sem lögreglan sendi frá sér í gær. Tvö tilvikanna áttu sér stað þegar brotaþolar tóku út peninga í hraðbanka en eitt tilvikið var í verslun. Í öllum tilvikum náðu þjófarnir að taka út fé af kortum kvennanna áður en upp komst um þjófnaðinn. Líklegt þykir að sömu aðilar hafi verið að verki í öllum til- vikum; karl og kona sem töluðu erlent tungumál. Lögreglan minn- ir fólk á að gæta að sér þegar PIN-númer eru slegin inn. PIN-núm- erum stolið Morgunblaðið/Árni Sæberg Stuldur Lögregla mælir með að fólk gæti að PIN-númerum sínum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.