Morgunblaðið - 16.06.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2018
Morgunblaðið/Kristín Heiða
Fagnaðarfundir Ærnar hlupu til Ernu og vildi allar fá klapp, en hér er það uppáhaldið Hrafna sem fær klappið.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég man ekki eftir mér öðru-vísi en að kindur væruhluti af lífinu á bernsku-árum mínum hér á
Eyrarbakka. Pabbi var alltaf með lít-
inn kindahóp, fyrst var hann með
kindakofa í þorpinu en flutti hann svo
hingað upp eftir árið 1982. Ég tók við
kindunum hans þegar hann féll frá
árið 1995. Það kviknaði í kindakof-
anum okkar fyrir fjórum árum og þá
byggðum við nýtt stæðilegt fjárhús á
sama grunni og köllum það alltaf kof-
ann,“ segir Erna Gísladóttir þar sem
hún stendur umkringd kindunum
sínum í grængresinu við Háeyrarveg
rétt utan við Eyrarbakka. Erna á um
20 fullorðnar kindur sem hún heldur
sér til gamans og sautján báru lömb-
um í vor.
„Ég á ekki allar þessar kindur
sem eru hér í stykkjunum, vinafólk
okkar, Gummi og María, eiga hluta
af þessu fé. Það er gott að vera í
þessu með öðru fólki, við skiptumst á
að gá að þeim og erum þá nógu mörg
til að smala þeim,“ segir Erna sem er
eigandi beitilandsins sem eru þrjú
samliggjandi stykki, Akureyri, Akra-
nes og Akurey.
„Við sleppum þeim svo yfir sum-
arið vestur í mýri hér upp með ánni,
þar sem fuglafriðlandið er, þar ganga
allar kindur Eyrbekkinga saman yfir
sumarið. Stór hluti þeirra sem búa í
þorpinu er með kindur, það eru mörg
hundruð kindur á vetrarfóðrum hér.
Á haustin er svo öllu fé Eyrbekkinga
réttað í Skúmstaðarétt, þá er líf og
fjör.“
Ég get klappað þeim öllum
Fjárstofn Ernu samanstendur
af 17 fullorðnum kindum, en auk þess
á hún tvær veturgamlar gimbrar, tvo
sauði og einn undaneldishrút. Og
auðvitað öll lömbin sem komu í heim-
inn í vor. „Frjósemin var bara fín, en
ég fékk ekki eins mörg mislit lömb og
ég hefði viljað, aðeins þrjár gráar
gimbrar og einn svartan hrút. Öll hin
lömbin eru hvít,“ segir Erna og bætir
við að hún hafi farið fyrir nokkrum
árum vestur að Drangsnesi og keypt
hrút til undaneldis. „Til að fá nýtt
blóð í stofninn hjá mér, þetta má ekki
verða of skylt. Nýja féð mitt að vest-
an hefur góða byggingu, er með fyllt
læri og langan hrygg, þetta er gott
kjötfé. Við leggjum auðvitað upp úr
því þó þetta sé fyrst og fremst frí-
stunda- og dekurbúskapur hjá okk-
ur.“
Það má glögglega sjá að allar
kindurnar hennar Ernu eru ein-
staklega gæfar, þær koma hlaupandi
til hennar þegar hún kallar á þær þar
sem hún kemur að hólfinu með mél-
köggla í fötum til að gefa í rennur
sem þar eru.
„Ég get klappað þeim öllum. Ég
fékk tvær nýjar kindur í haust frá
manni hér í þorpinu sem voru ljón-
styggar, þær ruku upp um alla veggi
í hvert sinn sem ég kom inn í kofa.
En mér hefur tekist að spekja þær
nokkuð, þær eru að róast, þurftu
bara tíma til að samlagast.“
Hrafninn kroppaði svöðusár
í nárann á kindinni Hröfnu
Hún leynir sér ekki væntum-
þykjan í rödd Ernu þegar hún spjall-
ar við kindurnar sínar í blíðum tón.
Þetta eru vinir hennar og hún kallar
ærnar „stelpur“.
„Þetta er hún Hrafna mín, hún
er mikil uppáhaldskind hjá mér, hún
er svo sérstök og góð,“ segir Erna og
klappar kollóttri kind um kjammann
sem kemur upp að hlið hennar.
„Hún fékk nafnið í framhaldi af
því að hún rétt slapp undan hrafn-
inum. Þegar hún var lamb að hausti
fór hrafninn í hana þar sem hún var
afvelta og hann kroppaði stórt svöðu-
sár í nárann á henni, alveg inn að
kjöti. Litlu mátti muna að honum
tækist að drepa hana, en okkur tókst
að græða þetta á löngum tíma og
bjarga henni.“
Forystusauðurinn Pjakkur er
líka í miklu uppáhaldi og ber með sér
að hann er dekurdýr. Á honum er þó
nokkur þóttasvipur, hann er yfir hin-
ar kindurnar hafinn og minnir með
líkamsstöðu sinni og byggingu meira
á hind en kind. Hann er spakur og
biður um klapp hjá Ernu, en sérvitur
skepna er hann sem kýs brauð fram
yfir mélköggla. Og hann er ekki
allra.
„Pjakkur er ekkert fyrir
ókunnuga, hann gerir mikinn manna-
mun. Hann er æðislegur,“ segir Erna
með mikilli aðdáun og festu. „Hann
var ósköp lítill þegar Skúli Steins gaf
mér hann fyrir þremur árum sem
lamb, en Skúli heldur forystufé hér á
Bakkanum. Pjakkur kann að leiða
fjárhópinn, eins og forystukinda er
háttur, það er gaman að fylgjast með
honum,“ segir Erna og bætir við að
hún hafi ekki látið marka hann.
„Hann vildi ekki heldur láta setja
merki í eyrað á sér, hann bað mig um
að það yrði ekki gert. Og ég lét það
eftir honum. En hann er brenni-
merktur á hornunum með mínu
nafni,“ segir Erna og játar því að hún
og Pjakkur séu í góðu andlegu sam-
bandi, þau skilji hvort annað.
Gardínur og málverk
í fjárhúsi bóndans Ernu
Ernu dugar ekki að eiga aðeins
kindur, hún er mikið fyrir dýr og er
með þrjá ketti á heimilinu og átti áð-
ur tíkina Jasmin til ellefu ára. Erna
er líka með rúmlega tuttugu hænur, í
rými sem er hluti af kindakofanum,
sem stendur í hesthúsahverfi Eyr-
bekkinga. Hið myndarlega fjárhús
sem kallast kofi ber handbragði
Ernu vitni, þar eru gardínur í glugg-
um og málverk á veggjum.
Við kíkjum inn til hænsnanna
sem leyfa Ernu að halda á sér en svo
beygir hún sig niður og nær í agn-
arsmáan kanínuunga.
„Þeir eru nokkrir, mamma
þeirra flutti óumbeðið hingað inn til
hænsnanna með þá, en þessar kan-
ínur eru villtar og mikið hér í hest-
húsahverfinu. Hænurnar eru frjálsar
haughænur úti við yfir daginn, en ég
byrgi þær inni yfir nóttina,“ segir
Erna sem er greinilega bóndinn í
fjölskyldunni, en eiginmaðurinn Gulli
segist vera aðstoðarmaður. „Ég er
sóttur þegar þarf að gera eitthvað.“
Pjakkur gerir mikinn mannamun
Erna Gísladóttir og for-
ystusauðurinn Pjakkur
skilja hvort annað, til
þess þarf ekki manna-
mál. Erna heldur um 20
kindur sér til ánægju á
Eyrarbakka þar sem hún
er fædd og uppalin.
Vinir Erna og forystusauðurinn Pjakkur hinn þóttafulli. Fallegar Hænur Ernu eru mislitar og vinalegar.
TANGARHÖFÐA 13
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
kistufell.com
Það er um 80% ódýrara að
skipta um tímareim miðað við
þann kostnað og óþægindi
sem verða ef hún slitnar
Hver er staðan á tíma-
reiminni í bílnum þínum?
Hringdu og pantaðu
tíma í síma
577 1313
fyrir öll tölvurými og skrifstofur
Rafstjórn tekur út
og þjónustar kæli- og
loftræstikerfi
Kæling
Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is
Verð frá kr.
181.890 m/vsk
Í tilefni Dags villtra blóma á Norður-
löndunum er boðið upp á gönguferð
um strandlengju Ægisíðunnar í Vest-
urbæ Reykjavíkur á morgun 17. júní kl.
10. Hjörtur Þorbjörnsson forstöðu-
maður Grasagarðsins og Snorri
Sigurðsson líffræðingur greina
plöntur og fjalla um gróður svæðisins.
Gangan hefst við bílastæði leikskól-
ans Sæborgar við Starhaga.
Boðið í gönguferð
Dagur hinna
villtu blóma
Morgunblaðið/Golli