Morgunblaðið - 16.06.2018, Blaðsíða 35
Þorsteinn Kristjáns
Jóhannsson fram-
haldsskólakennari,
f. 1970, eiginkona
hans er Anna G.
Guðjónsdóttir, f.
1973, grunnskóla-
kennari. Synir
þeirra eru Matthías
Máni, f. 2008, og
Úlfur Hrafn, f.
2012. Stjúpdætur
Þorsteins, dætur
Önnu eru Erla, f. 1990, og Júlía
Rakel, f. 1999. Jóhanni var
margt til lista lagt. Var skáld
gott og eftir hann liggja margar
vísur sem hann samdi við hin
ýmsu tækifæri. Hann teiknaði
mikið, aðallega báta og flug-
vélar. Hann var mjög bók-
hneigður og eiga þau hjón stórt
bókasafn. Þjóðlegur fróðleikur
og færeyskar bókmenntir voru
hans uppáhald. Hann var mjög
vel að sér um hin ýmsu málefni
og hafði gaman af spurninga-
keppnum.
Jóhann keypti ásamt eig-
inkonu sinni sumarbústað í
Skorradalnum 1998. Unnu þeir
feðgar ásamt eiginkonum mikið
starf við að stækka bústaðinn og
fegra umhverfið þessi 20 ár.
Þau hjón ferðuðust einu sinni á
ári í mörg ár til útlanda, að-
allega til sólarlanda og var Gran
Kanarí hans eftirlætisstaður.
Jóhann greindist með krabba-
mein í september 2017.
Útför hans fór fram í kyrrþey
30. maí 2018, að hans ósk.
✝ Jóhann Run-ólfsson fæddist
í Vestmannaeyjum
16. október 1944.
Hann lést 18. maí
2018 á líknardeild
Landspítalans.
Jóhann var
yngstur fimm
barna Runólfs Jó-
hannssonar skipa-
smiðs og Kristínar
Skaftadóttur hús-
móður. Systur Jóhanns eru Re-
bekka, f. 1925, látin, Guðrún
Gréta, f. 1928, látin, Guðlaug
Kristín, f. 1932, og Þóra, f. 1938,
látin. Uppeldissystkini hans eru
Kristján, f. 1948 og Erna, f.
1952, börn Rebekku elstu systur
hans. Jóhann ólst upp í Vest-
mannaeyjum og bjó að Hilm-
isgötu 7 í húsi sem faðir hans
byggði 1930. Jóhann lauk gagn-
fræðaprófi í Vestmannaeyjum
og réð sig í Útvegsbankann í
Eyjum að því loknu. Hugur hans
stóð til frekara náms og lauk
hann farmannaprófi við Stýri-
mannaskólann í Eyjum. Var á
sjó á ýmsum skipum fram að
gosi. Flutti upp á land og settist
að í Reykjavík. Stundaði sjóinn
fyrstu árin eftir gos en hóf þá
vinnu við Landsbankann og
vann þar fram að því að hann
fór á eftirlaun 2008. Eftirlifandi
eiginkona Jóhanns er Bergþóra
S. Þorsteinsdóttir sérkennari, f.
1949. Gengu þau í hjónaband 20.
mars 1982. Uppeldissonur Jó-
hanns og sonur Bergþóru er
Kæri Jói minn! Nú ertu búinn
að kveðja okkur. Laus við allar
þjáningar, og kominn á góðan
stað. Margs er að minnast frá
ferðalögum erlendis og í
Skorradalnum, þar sem við öll
áttum góðar stundir. Óli minn
og þú voruð góðir vinir, töluðuð
saman oft í viku um heima og
geima, og börðust við sama
sjúkdóm sem lagði ykkur að
velli. En svona er lífið oft ósann-
gjarnt. Ég mun sakna þín, eins
og við öll sem kynntumst þér,
ekki síst litlu barnabörnin ykk-
ar, og fjölskyldan þín. Nú eruð
þið Óli eflaust farnir að ræða
heimsmálin eins og áður fyrr.
Þegar raunir þjaka mig,
þróttur andans dvínar,
þegar ég á aðeins þig
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik, gef mér trú,
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn, lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni,
láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
(Ómar Ragnarsson
/Gísli á Uppsölum)
Hvíldu í friði, kæri vinur.
Hafðu þökk fyrir allar góðu
samverustundirnar í gegnum
árin. Ég votta Bergþóru, vin-
konu minni, og fjölskyldu inni-
lega samúð mína. Guð blessi
þig.
Vertu ljósinu falinn.
Soffía.
Jóhann
Runólfsson
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2018
Mig langar að
setja nokkrar línur
á blað um bróður
minn Sigurð Ágúst,
kallaður Diddi, sem
dó 16. júní 2017.
Það er sagt að tíminn lækni öll
sár. Ég spyr: Hvaða tími? Ég
spyr líka: Hvenær finnst lækning
við þessum harða húsbónda sem
þú hittir.
Hversvegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði)
Elsku Diddi, nú er liðið 1 ár
síðan þú fórst frá okkur og enn
jafn erfitt. Ég er að elda hádeg-
ismat og hugsa um þig svo það
kemur í ljós hvernig maturinn
verður. Ég vil byrja á að þakka
þér fyrir tímann sem við áttum
saman. Þetta var stórkostlegur
tími. Stundum vorum við að rifja
upp hvað við gerðum hér áður
fyrr og við töluðum um það að við
hefðum ekki viljað vera foreldrar
okkar, það hlýtur að hafa verið
erfitt stundum þegar við vorum
yngri. En þegar við vorum að tala
um foreldra okkar töluðum við
um hvíta lagtertu og hvað okkur
fannst um hana. Þegar ég hugsa
um þig og bíla kemur upp í hug-
ann Volvo Amason og þegar þú
sóttir afa og ömmu út að Sval-
barði. Ég var að skoða gamlar
myndir og þá rifjaðist upp þegar
við bjuggum á Grettisgötunni.
Þið fyrst hjá okkur og svo í íbúð-
Sigurður Ágúst
Guðbjörnsson
✝ SigurðurÁgúst Guð-
björnsson fæddist
20. júní 1957. Hann
lést 16. júní 2017.
Útför Sigurðar
fór fram í kyrrþey.
inni á móti. Það var
góður tími og ýmis-
legt gert sem var
kannski ekki alltaf
við barna hæfi þó
það hafi verið eitt
barn þarna. Ekki
má nú gleyma að
minnast á kerl-
inguna á efstu hæð-
inni og allt ruslið.
Eitt sinn fórum við
Matti til hennar
með brauð, það voru læti. Alltaf
varst þú mjög rólegur maður og
ofur sterkur. Eitt sinn lyftir þú
einni kú sem var veik. Þú bjarg-
aðir kúnni. Þegar við fórum að
Tjörn fyrir jólin töluðum við mik-
ið saman, oftast um gamla tím-
ann. Síðustu jólin þín fórum við
að Tjörn eins og venjulega og þú
vildir keyra sem var ekki alltaf. Í
dag er ég glöð með það því það
var í síðasta sinn. Eitt sinn vildi
ég ekki keyra því það var mjög
mikil hálka alla leiðina og gilið
var alveg hræðilegt en þú sagðir:
Ég keyri ekki. Ég var skíthrædd
hjá sjálfri mér en þú sagðist ekki
vera hræddur, það væri ekkert
að óttast. Svo dó pabbi fyrir þessi
jól sem var mjög erfitt fyrir okk-
ur en þá vorum við sammála í
öllu. Nú situr maður og hugsar
um þig og það er svo margt sem
mig langar að spyrja þig um en
verð að gera það síðar. En aum-
ingja Sigga, nú förum við Matti
reglulega að stjórnast í henni. Ég
er líka farin að taka hana með í
ferð með föndurhóp eldriborg-
ara. Ég vil þakka Siggu og börn-
unum ykkar fyrir hvað ég fékk að
vera mikill hluti af þeim. Þau öll
eru dásamlegt fólk. Samúðar-
kveðjur til ykkar allra, einnig til
mömmu sem er algjör hetja.
Þín systir,
Stella.
Afmælisminning
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
BJÖRK BJÖRGVINSDÓTTIR,
Víðilundi 20, Akureyri,
lést föstudaginn 8. júní. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Albert Ólafsson
Guðný Bergvinsdóttir Stefán Arnaldsson
Borghildur María Bergvinsd.
Þorgerður Bergvinsdóttir Valdimar Björn Davíðsson
og ömmubörnin
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegs sonar
okkar og bróður,
SINDRA EINARSSONAR.
Kristín Árnadóttir Einar Sindrason
Árni Páll Einarsson Yuki Sugihara
Ingigerður Einarsdóttir Sigtryggur Símonarson
Konan mín og mamma okkar,
ÞÓRUNN GUÐNADÓTTIR,
er látin. Útför hennar hefur farið fram.
Starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Mörk verður
aldrei fullþakkað fyrir einstaka umönnun
hennar.
Axel Kristjánsson
Guðni Axelsson
Kristín Axelsdóttir
Karl Axelsson
Sigríður Axelsdóttir
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu
okkar,
BIRNU HJALTESTED GEIRSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
líknardeildar Landspítalans í Kópavogi og starfsfólki
krabbameinsdeildar Landspítalans við Hringbraut.
Garðar Halldórsson
Margrét Birna Garðarsdóttir
Garðar Árni Garðarsson
Helga María Garðarsdóttir Ingvar Vilhjálmsson
Þóra Birna Ingvarsdóttir
Anna Fríða Ingvarsdóttir
Vilhjálmur Ingvarsson
✝ Kristín HrundKjartansdóttir
fæddist í Mið-
hvammi í Aðaldal
2. desember 1927.
Hún lést 23. maí
2018 á öldrunar-
heimilinu Lög-
mannshlíð Akur-
eyri.
Hún var dóttir
hjónanna Rósu
Emelíu Berg-
vinsdóttur, f. 22.7. 1891, d.
16.3. 1972, og Kjartans Sigur-
jónssonar, bónda frá Nípá í
Ljósavatnshreppi, f. 20.12.
1895, d. 11.6. 1955.
Eiginmaður hennar er Guð-
mundur Þ. Bjarnason frá
Bíldudal, búsettur á Akureyri,
f. 17.2. 1930. Hann er sonur
hjónanna Guðrúnar Guð-
mundsdóttur, f. 14.10. 1907, d.
24.11. 1984, og Bjarna Þor-
bergssonar, f. 24.3. 1898, d.
17.5. 1964. Þau Kristín og
Guðmundur giftu sig 17. júní
1953 og eignuðust fjögur börn.
1) Bjarney, f. 4.10. 1953, maki
Óli Reynir Ingimarsson, þau
eiga þrjár dætur, Kristínu
Hrund, Aðalheiði og Ingi-
björgu, og níu barnabörn. 2)
Kjartan Guðmundur, f. 7.1.
1956, maki Guðfinna Ásgríms-
dóttir, þau eiga tvö börn, Guð-
mund Árna og Kristínu Hrund,
og eitt barnabarn. 3) Gunnar
Hólmsteinn, f. 4.2.
1960, maki Krist-
björg Gunnars-
dóttir, þau eiga
tvær dætur, Þór-
eyju Ösp og
Söndru Björg, og
fjögur barnabörn.
4) Haukur, f. 8.4.
1967, hann á þrjú
börn, Heiðbjörtu
Ýri, Sólrúnu Önnu
og Heimir Bjarna,
og eitt barnabarn
Kristín fékk litla skóla-
göngu, en á þessum tíma var
henni ásamt fleiri börnum í
sveitinni kennt heima. 17 ára
fór hún í Héraðsskólann á
Laugum í eitt ár. Veturinn
1947-1948 var hún í hús-
mæðraskóla á Laugalandi í
Eyjafirði . Um haustið 1952 fór
hún til vinnu í eldhúsinu á
Sjúkrahúsinu á Akureyri og
kynntist þá eftirlifandi eigin-
manni sínum. Hún vann einnig
eitt sumar í Niðursuðuverk-
smiðjunni.
Kristín og Guðmundur
bjuggu fyrstu 10 hjúskapar-
árin í Helgamagrastræti 42,
síðar byggðu þau Stafholt 5 og
fluttu þangað haustið 1963.
Kristín var húsmóðir og helg-
aði sig heimilinu og börnunum.
Útför hennar fór fram í
kyrrþey frá Akureyrarkirkju
1. júní 2018.
Elsku amma Stína. Núna er
sögunni þinni lokið, þú varst búin
að þrá það í svolítinn tíma að fá að
komast í hvíldina og nú fékkstu
loksins friðinn. Undanfarnar vik-
ur höfum við fengið að heyra
ýmsa „kafla“ úr þínu lífi, sögur af
uppátækjum þínum og systkina
þinna úr sveitinni og fengið að
kynnast foreldrum þínum betur í
gegnum sögur. Þessar minningar
og sögur eru okkur ómetanlegar
og munum við geyma þær í huga
okkar um ókomna tíð.
Undanfarnir dagar hafa verið
frekar tómlegir þar sem við höf-
um ekki farið og heimsótt þig í
Lögmannshlíð þar sem þú dvaldir
undanfarin tæp tvö ár hjá ynd-
islegu starfsfólki en þeim erum
við afar þakklát. Undanfarna
daga höfum við systkinin rifjað
upp minningar sem við eigum um
þig. Við gleymum því seint þegar
þið afi fenguð fyrsta reykskynj-
arann í Stafholtið og þú sýndir
okkur hvernig hann virkaði. Þú
stóðst uppi á stól og kveiktir á eld-
spýtu fyrir neðan hann, við
gleymum aldrei brosinu þínu og
hlátrinum þegar reykskynjarinn
fór að væla.
Þær voru margar ferðirnar
sem við fórum með þér í gróður-
húsið og garðinn þar sem heims-
ins bestu gulrætur og jarðarber
var að finna og tómatarnir sem
uxu þar. Þú varst svo sannarlega
með græna fingur og voru mörg
falleg blóm sem þú ræktaðir og
við fengum að hjálpa þér að vökva
þau með grænu vatnskönnunni.
Þau voru ófá skiptin sem við
fengum að gista hjá ykkur afa,
Steini, Olli og Villi spæta voru vin-
sælasta sjónvarpsefnið og auðvit-
að fylgdi skál af ís með. Við feng-
um að fíflast í holinu með dýnur
og kodda og alveg sama hversu
mikill hávaði var í okkur þá var
sjaldan sussað á okkur, það kom
þó fyrir. Ekki er heldur hægt að
telja spilin sem við spiluðum; ól-
sen-ólsen og veiðimaður voru þar
vinsælust ásamt því að leggja
kapal.
Við eigum eftir að sakna
ömmulumma á sunnudögum, þær
voru bestar með miklum sykri.
Það var aldrei langt í húmorinn
hjá þér; sögur af þeim Bakka-
bræðrum og sagan af konu kaup-
mannsins (þurfum ekkert að hafa
fleiri orð um hana) láta okkur
brosa og hugsa til þín. Rúmum
sólarhring áður en þú kvaddir
okkur kom stríðnispúkinn síðast
upp í þér þegar þú togaðir í
skeggið á Gumma og snerir svo
upp á nefið á honum. Það er bara
ekki annað hægt en að brosa þeg-
ar maður hugsar til þín elsku
amma.
Við þökkum þér allar þær ynd-
islegu stundir sem við höfum átt
með þér og allt sem þú hefur
kennt okkur. Þú varst alltaf svo
góð amma og langamma. Hvíldu í
friði elsku amma.
Guðmundur Árni Kjart-
ansson og Kristín Hrund
Kjartansdóttir.
Kristín Hrund
Kjartansdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Minningargreinar