Morgunblaðið - 16.06.2018, Side 31

Morgunblaðið - 16.06.2018, Side 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2018 ✝ Þorgeir Ólafs-son fæddist að Kvíum í Þver- árhlíð, 18. júlí 1928. Hann lést á Sjúkrahúsi Akra- ness 30. maí síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Sigríður Jónsdóttir, f. 20. maí 1892, d. 24. desember 1988, og Ólafur Eggertsson, f. 28. nóv- ember 1888, d. 3. mars 1981. Bræður Þorgeirs eru: Eggert Elís fæddur 1926, kona hans er Auður Ósk Þorsteinsdóttir f. 1939 og Ragnar fæddur 1927, dáinn 2018, kona hans Theo- dóra Guðmundsdóttir f. 1929. Þorgeir kvæntist Helgu Björg Ólafsdóttur þann 25. maí 1957. Helga var fædd 18. maí 1936, hún lést 23. mars 2009. For- eldrar Helgu voru Þóra D. Helgadóttir, f. 19. nóvember 1908, d. 21. desember 1983 og Ólafur Þ. Ólafsson, f. 6. febrúar 1900, d. 16. mars 1946. Vorið 1957 hófu Þorgeir og Helga bú- skap að Kvíum og bjuggu þar til ársins 2000 þegar þau 15. maí 1982, kona hans er Björk Júlíana Jóelsdóttir, f. 25. febrúar 1982, börn þeirra eru Ármann Hugi, f. 7. maí 2001, Þóra Kolbrún, f. 28. júní 2009, og Halldís Eik, f. 8. febrúar 2014. Sjöfn, f. 20. október 1987, sambýlismaður hennar er Ívar Erlendsson, f. 15. september 1986, sonur þeirra er Björgvin Þór, f. 1. apríl 2008, Máni, f. 29. október 1997, sambýliskona hans er Halldóra Björk Magn- úsdóttir, f. 13. maí 1995. Húni, f. 6. febrúar 1999, í sambúð með Marie Hollstein, f. 8. ágúst 1998. 4) Grétar, f. 13. apríl 1963, kvæntur Sigrúnu Örnu Hafsteinsdóttur, f. 21. maí 1966. Synir þeirra eru Haf- steinn Helgi, f. 25. mars 1991, sambýliskona hans er Nína Björk Þráinsdóttir, f. 9. apríl 1994, dóttir þeirra er Snædís María, f. 18. október 2016, Guðbjartur Geiri, f. 25. mars 1991, sambýliskona hans er Vilma Ýr Árnadóttir, f. 23. febrúar 1987, sonur þeirra er Aron Logi, f. 15. apríl 2017, og Róbert, f. 11. mars 1996, sam- býliskona hans er Telma Dís Sigurðardóttir, f. 17. desember 1992. Útför Þorgeirs fer fram frá Borgarneskirkju í dag, laug- ardaginn 16. júní 2018, kl. 14. brugðu búi og fluttu í Borgarnes. Þorgeir vann ýmsa vinnu með bú- skapnum, t.d. í Sláturhúsunum að Hurðarbaki og í Borgarnesi. Börn Þorgeirs og Helgu eru: 1) Ólafur, f. 1. september 1955, kvæntur Auði Ástu Þorsteinsdóttur, f. 26. júlí 1973, synir þeirra eru Þorgeir, f. 4. október 1997, og Ísólfur, f. 1. apríl 2000. Dóttir Ólafs og Ingibjargar Sigurð- ardóttur er Helga Sjöfn, f. 31. ágúst 1985. 2) Sigrún Björg, f. 4. febrúar 1957, maki Birna Gunnarsdóttir, f. 3. febrúar 1955, sonur hennar er Gunnar Breki Guðjónsson, f. 8. nóv- ember 1989. 3) Þóra, f. 24. des- ember 1960, gift Hilmari Sig- urðssyni, f. 20. júlí 1959. Börn þeirra eru Helgi, f. 13. desem- ber 1976, dóttir hans er Tara Björk, f. 16. febrúar 2006, Þor- geir Elvar, f. 5. júní 1981, börn hans eru Bjartey Líf, f. 8. apríl 2003, og Hilmar Þór, f. 16. mars 2011. Ólafur Björgvin, f. Ég var ekki nema 14 ára þeg- ar ég kynntist tengdaföður mín- um, manni sem við kveðjum í dag. Þorgeir Ólafsson hét hann og var alltaf kallaður Geiri, Geiri í Kvíum. Það var svo skemmti- legt að setjast niður með Geira og hlusta á frásagnir hans af lið- inni tíð, engar smá breytingar sem hans kynslóð hefur upplifað. Helgu sína missti Geiri fyrir níu árum og var söknuðurinn mikill, enda voru þau með ein- dæmum samrýnd hjón. Þau ferðuðust mikið, ekki síst á hús- bílnum sínum. Eitt það besta sem Geiri gat hugsað sér var að fara á rúntinn, keyra um, sýna sig og sjá aðra. Geiri var ræðinn og fróðleiks- fús, hann vildi alltaf finna tengsl við fólk og staði, hvar sem hann kom. Hann vildi vita hvað fólkið hans var að sýsla, spurði um alla og hafði unun af því að hafa fólk- ið sitt nálægt sér. Hann hefði orðið níræður eftir tæpa tvo mánuði og það var greinilegt að hann ætlaði ekki að gleyma hvað barnabörnin okkar Grétars heita, hann skrifaði nöfnin þeirra beggja niður og geymdi vel. Þegar gesti bar að garði var iðulega tekið í spil, kínversk skák spiluð. Þá var oft handa- gangur í öskjunni. Ekki fannst honum verra ef hann vann spilið. Ég á eftir að sakna þess að heyra Geira ekki kalla: „Kaupi!“ þegar kínversk skák er spiluð. Mér finnst dýrmætt að hafa fengið að vera samvistum við Geira, allt sem hann gaf okkur, allt sem hann kenndi okkur. Ég er ánægð að synir okkar Grétars fengu að kynnast Geira afa, fengu að dvelja hjá þeim Helgu ömmu í sveitinni. Elsku Geiri, ég veit að Helga hefur tekið vel á móti þér, þið eruð sjálfsagt búin að rúnta um allar sveitir. Hjartans þakkir fyrir allt. Guð geymi þig. Þín tengdadóttir, Sigrún Arna. Elsku afi, það eru margar minningarnar sem koma upp í hugann þessa síðustu daga. Áð- ur en ég fékk bílprófið og þurfti að komast upp í hesthús gat ég alltaf hringt í þig og þú varst alltaf tilbúinn að skutla mér, seinna komstu svo að fylgjast með, stundum oft á dag og fengu Jón Péturs og Haukur stundum að koma með. Alltaf mættir þú fyrstur á öll hestamót til að ná góðu stæði og geta fylgst með strákunum þínum sem þú varst svo stoltur af. Það verður tóm- legt á næstu mótum að líta upp í brekkuna og sjá ekki afabíl þar. Þú og Haukur voruð svo dugleg- ir að koma til mín upp að Kroppi til að fylgjast með öllu þar og þá var allt tekið út, fóðrun, snyrti- mennska og reiðmennskan og eftir góðan kaffisopa voruð þið mjög ánægðir með allt. Elsku afi, ég veit að þú fylgist með okkur áfram þó við sjáum þig ekki, góða ferð í seinasta bíl- túrinn þinn hérna megin. Þinn afastrákur, Máni. Elsku afi minn. Ég er mjög leiður yfir því að þú sért farinn frá okkur. Það var gaman þegar við vorum að keyra í húsbílnum, þegar þú komst á bílnum í Vatnaskóg og horfa á hestamót í bílnum. Ég man þegar þú talaðir um að þig langaði að smakka egg úr ein- hverjum fugli. Mamma, pabbi og ég fórum og náðum í fimm svona egg. Það var gaman að smakka þau og líka þegar við prófuðum að borða kengúrukjöt. Það var gaman þegar þú varst að segja mér frá hvernig lífið var þegar það voru ekki til bílar, sjónvarp, símar og tölvur. Mér finnst það samt svo skrýtið hvernig allt var öðruvísi. Þú varst alltaf svo hress og kátur. Ef þú vissir að ég væri að koma í heimsókn var alltaf til lagterta með sultu á milli því þú vissir að það væri uppáhaldskakan mín. Ég sakna þín og hugsa oft til þín. Þinn afastrákur og vinur, Björgvin Þór Ívarsson. Elsku afi, það er sárt að kveðja þig. Við erum svo þakklát fyrir all- ar stundirnar sem að við áttum saman. Allar ferðirnar sem þú komst í Grundarfjörð að heim- sækja Helgu, birtist bara allt í einu í vinnunni eða heima hjá mér. Öll hestamótin sem þú mættir á til að horfa á Ísólf og Þorgeir. Rúntaðir öll haust með strákana í flestar réttir sem voru í kringum ykkur, hvort sem það voru kindur eða hestar. Minningarnar eru óteljandi, rúntur, berjamó, spila kínverska og fleira. Það var alltaf svo nota- legt að koma til þín og að sjálf- sögðu voru alltaf til kökur. Við vitum að núna eruð þið amma saman á ný, þó að sökn- uðurinn sé mikill þá er ljúft að vita af ykkur saman. Við systkinin höfum ökulagið þitt, í gamla daga áttirðu gulu þrumuna og hún sást víst stund- um skjótast ansi hratt á milli staða. Þú varst nú ekki eins hrif- inn núna af þeim sem að keyrðu of hratt. Elsku afi okkar, við kveðjum þig með sorg í hjarta en hlý og góð minning um þig mun alltaf verða með okkur. Þú áttir söngva og sól í hjarta er signdi og fágaði viljans stál. Þeir þurftu ekki um kulda að kvarta, er kynni höfðu af þinni sál. (Grétar Fells.) Hvíl þú í friði, elsku afi. Helga Sjöfn, Þorgeir og Ísólfur Ólafsbörn. Afi minn hefur alltaf verið ein af mínum helstu fyrirmyndum. Þegar ég sest niður til að skrifa kveðjuorð koma fram óendan- lega margar minningar, allar eru þær skemmtilegar og ylja mér inn að hjartarótum. Á Kvíum sköpuðust margar góðar minningar í æsku minni. Eitt sinn þegar ég var hjá ykkur ömmu upp á Kvíum strauk ég. Þá hef ég verið um sjö ára göm- ul. Þú leyfðir mér að labba þang- að til þú sást mig ekki lengur með kíkinum og komst svo á bílnum. Fyrsta sem þú sagðir var „jæja Sjöfn, er þetta ekki orðinn ágætur göngutúr? Eigum við að koma heim og fá okkur ís?“ Um þessa strokuferð var ekki meira rætt og ég var guðs- lifandi fegin. Um tíma var ég miður mín yf- ir að vera með freknur. Ég kom til afa eins og oft áður og bað um ráð. Hvernig væri hægt að losna við þessar freknur? „Nú ef þú tekur sandpappír og nuddar þær, þá hverfa þær.“ Þetta varð ég að prófa og fór út í skúr og fann sandpappír. Ég kom há- skælandi inn til ömmu með skrapaðar kinnar. Ég hef sjald- an séð afa hlæja eins og þá. Þessi saga var margoft rifjuð upp og hlegið mikið. Eftir að amma og afi fluttu í Borgarnes kom ég reglulega við hjá þeim eftir skóla. Yfirleitt var það stuttu eftir mat og afi var að leggja sig með útvarpið í gangi. Ég þóttist alltaf vera voða þreytt og lagðist fyrir ofan hann í sófann, samt var annar sófi laus. Ég veit ekki hversu vel hann náði að sofa með ungling klesstan upp við sig en hann sagði þó aldrei neitt. Eftir því sem ég varð eldri urðu tengsl okkar afa sterkari. Eftir að ég átti drenginn minn var það hluti af hverjum morgni að labba með barnavagninn til ömmu og afa og vera þar í mat. Eftir að amma dó og við vorum flutt í næsta hús komum við til afa oft á dag. Ég eldaði eða bak- aði og hljóp með yfir til að leyfa honum að smakka. Við mæðg- inin enduðum oft á að gista, þar sem við afi duttum í spil og Björgvin sofnaði. Þetta var dýr- mætur tími. Þegar ég ákvað að fara í áframhaldandi nám og skráði mig í háskóla var enginn sem hafði jafn mikla trú á mér og afi. Eitt af mínum fyrstu verkefnum var ritgerð, þar sem ég skrifaði um einhvern sem hafði haft já- kvæð áhrif á líf mitt. Ég mætti til afa strax eftir skóla og bar upp þá hugmynd að fá að skrifa um hann. Næstu daga og vikur var mikið hlegið og margt kom í ljós sem ég hafði ekki hugmynd um. Þegar ég flutti fyrir ofan Jón var afi alltaf mættur til hans kl. 9.20, þá nýkominn frá mömmu. Ég hljóp yfir þegar ég sá bílinn renna í hlað. Þetta var skemmti- legur tími og margir kaffibollar sem við drukkum þá. Fórum yfir eignir til sölu, litum yfir Íslend- ingabók og lásum stjörnuspá. Þetta voru góðir tímar. Síðasta ár var ég á nætur- vöktum meðfram námi, eftir hverja vakt var tilvalið að koma við hjá afa eftir vinnu í örstutt spjall. Í hvert sinn tókum við mynd af okkur og sendum á mömmu, brosandi og ánægð. Þessar myndir þykir mér svo vænt um. Ég sakna þess að spjalla við besta vin minn um líf- ið og tilveruna. Vertu sæll, elsku afi minn. Ég hugsa til þín oft á dag með þakklæti og gleði í huga. Takk fyrir samveruna, skiln- inginn, gleðina og umhyggjuna. Þín afastelpa, Sjöfn. Af hverju er allt svona hljótt þegar við keyrum í hlaðið á Kví- um? Hvar eru hundarnir, af hverju heyrist ekkert í þeim? Sex ára ég var steinhissa, komin beint úr hundlausri Reykjavík þeirra daga, hafði dauðhrædd búist við geltinu og spennunni sem fylgdu Snata og Spora en var í leiðinni svolítið spennt að hitta þá félaga. Það var hins vegar hann Geiri föðurbróðir sem vissi hvernig best væri að koma málum fyrir, í nærgætni sinni vissi hann að best væri að litla frænkuskræfan úr Reykja- vík fengi að nálgast hundana á sínum forsendum. Hans ráð var að loka þá inni alveg þar til sú stutta var tilbúin að nálgast þá í rólegheitunum án æsingsins sem fylgdi gestamóttökunni. Þetta virkaði svo vel að alla tíð síðan hafa hundar verið mínir fylgi- fiskar, tryggir og góðir, rétt eins og Snati og Spori forðum daga í Kvíum. Þarna kom líka svo vel í ljós hversu barngóður hann Geiri var. Hann Geiri föðurbróðir minn, bóndi í Kvíum í Þverárhlíð, hjálpaði mér að líka að mynda tengsl við íslenska hestinn. Ég man enn svo vel eftir fyrsta reið- túrnum mínum á honum Skjóna hans afa, Geiri og Helga konan hans fylgdust grannt með mér bögglast með beislið vitandi ekk- ert hvernig ég ætti að bera mig að en Geiri hvatti mig til að slaka bara á, Skjóni myndi vísa veginn. Það virkaði, Skjóni vís- aði veginn niður að Þverárrétt og ég fór að njóta, hestsins og fallegrar Þverárhlíðarinnar. Svo voru það ferðirnar yfir Litlu-Þverá á dráttarvél, sil- ungsveiði í Sandselstjörn, mjalt- ir í fjósinu og endalaust fleiri skemmtilegar minningar sem tengjast Geira, alltaf voru gleðin og gáskinn með í för. Eitt kvöld- ið forðum daga, klæddum við Þóra dóttir hans okkur upp í búninga og settum á svið leikrit þegar kvenfélag Þverárhlíðar kom í heimsókn að Kvíum. Úr varð fíflagangur mikill og flipp þar sem Geiri hvatti okkur tvær óspart til dáða. Þannig var Geiri frændi, hans viðhorf til lífsins var alltaf glaðlegt, í dag væri það líklega kallað núvitund, hann greip daginn – Carpe diem – , naut þess sem dagurinn hafði að bjóða og kunni að gleðja sam- ferðafólk sitt með jákvæðu við- móti. Nú er Geiri frændi fallinn frá, tveimur mánuðum á eftir eldri bróður sínum, föður mínum Ragnari Ólafssyni. Þeir bræður voru af þeirri kynslóð Íslendinga sem fæddist í einu fátækasta landi Evrópu, gerðu mikið úr litlu með nægjusemi og dugnaði. Ísland breyttist mikið á þeirra æviskeiði, við sem eftir sitjum þurfum að muna að þakka þess- ari kynslóð fyrir gott bú sem hún eftirlét okkur. Kæru Óli, Sigrún, Þóra, Grét- ar, makar og allir afkomendurn- ir, ykkur votta ég mína dýpstu samúð vegna fráfalls góðs manns, hans Geira frænda. Sigríður Ragnarsdóttir. Við Geiri vorum vinir þótt kynslóð væri á milli okkar, hann grallarinn og ungur í anda, ég sennilega frekar gömul sál. Pabbi var sem ungur maður í sveit á Kvíum og ég hef senni- lega farið að koma þangað fyrir mitt minni, að minnsta kosti eru Kvíar tengdar lífi mínu frá allra fyrstu tíð. Þá var mikið ferðalag að fara í Þverárhlíðina, annað hvort með bátnum upp í Borg- arnes eða með rútunni á sama stað og svo ferð með Bergi á mjólkurbílnum á leiðarenda fram í Þverárhlíð. Vegir voru ekkert til að hrópa húrra fyrir, úthlíðarvegurinn yfirleitt ófær fram á sumar og Kleifarnar snjóþungar að vetrarlagi. Stund- um þurftu bændur að koma mjólkinni þangað ef þær voru ófærar. Þetta var fyrir tíma rafmagnslínanna og rafmagn framleitt með ljósamótor fyrir fjósið en oft var nú bara lesið við lukt eða kertaljós á kvöldin. Sem sagt, sönn sveitarómantík, meira að segja eldsmiðja með arnarkló og alles. Kvíafeðgar voru bang- hagir og komu samsveitungar oft að Kvíum með hluti sem þurftu lagfæringar við. Þegar kviknaði í einni hlöðunni minnir mig að hún hafi verið kominn undir þak fyrir kvöldið með hjálp sveitunga. Þegar á reynir standa menn saman. Þegar ég var í sveit hjá Geira var oft skroppið á bæi og jafnan var krakkinn með í ferðum, senni- lega hefur Geira þótt gaman að röfla við hann og stríða honum en í þeirri listgrein var Geiri sérfræðingur. Ef við þurftum að skreppa suður var samningurinn tvær pylsur í Ferstiklu. Nýjasta nýtt í heyskap voru heyýtur og heyblásarar. Fyrsta ökutækið Farmall Cub. Aldrei rofnuðu tengslin við Geira og Helgu, hans góðu konu. Þegar ég fór að koma með dætur mínar í sveitina var okkur tekið opnum örmum og ávallt voru kýr í fjósinu hjá Geira nefndar í höfuðið á þeim. Fyrsta spurningin sem ég fékk var: „Eddi, má ég kitla þessa stelpu?“ Ekki var að sjá að þeim væri það til ama enda viðmótið alltaf kærleiksríkt. Margs er að minnast, ótímabær dauðsföll í búsmala sem gátu setið í borg- arbarninu en líka útreiðatúrarn- ir á sólbjörtum sumarkvöldum. Ég er Geira og sveitinni minni þakklátur fyrir að hafa átt þátt í að koma mér til nokkurs þroska. Far vel, frændi sæll. Sigurður E. Rósarsson. Þorgeir Ólafsson Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undirbúnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbús- skiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Ellert Ingason, umsjón sálmaskrár Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HELGA AÐALSTEINSDÓTTIR, Austurbyggð 17, (Hlíð) Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar sunnudaginn 3. júní. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 18. júní klukkan 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtökin í Hlíð. Sigurður Reynir Gunnarsson Erla Sveinsdóttir Kristín Gunnarsdóttir Birgir Skjóldal Guðlaug Guðjónsdóttir Anna Bára Gunnarsdóttir Svanur Kristófersson Gunnar Páll Gunnarsson Guðríður Sveinarsdóttir Viðar Gunnarsson Arna Geirsdóttir Garðar Gunnarsson Harpa Hrönn Gunnarsdóttir Sigurður Ágústsson Helga Skjóldal Guðmundur Ísidórsson Gunnar Skjóldal Ómarsson Yvette Trolle Ómarsson Aníta Gunnarsdóttir Skjóldal Benedikt Karlsson ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.