Morgunblaðið - 16.06.2018, Blaðsíða 41
DÆGRADVÖL 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2018
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú getur bætt umhverfi þitt og sam-
band við aðra úr fjölskyldunni. Það freistar
þín mjög að reyna eitthvað nýtt svo þú skalt
fyrir alla muni láta það eftir þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú átt von á yndislegum og spennandi
degi. Þú ert fullur af krafti og vilt gera allt í
einu en vinnufélagi kemst upp með lélega
frammistöðu því þú bætir skaðann.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hæfileiki þinn til að vera sveigj-
anlegur og gera skyndilegar breytingar vekur
hrifningu hjá samstarfsfélögum og sjálfum
þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Óundirbúinn rausnarskapur er besta
tilfinningin sem hægt er að fá fyrir nokkra
hundraðkalla. Notaðu daginn til þess að gera
sjálfum þér eitthvað til góða.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Hristu af þér slenið, brettu upp erm-
arnar og taktu til hendinni! Láttu ekkert
hnika þér af leið heldur haltu þínu striki hvað
sem á dynur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér finnast samstarfsmenn þínir
halda aftur af þér og þig langar til þess að
slíta þig lausan. Vertu miskunnarlaus í mati
þín á því hvað henti þér best.
23. sept. - 22. okt.
Vog Miklar kröfur eru gerðar til þín í
vinnunni. Undirbúðu þig vel svo ekkert fari
úrskeiðis, þegar á hólminn er komið. Bættu
skipulagið svo þú náir betri árangri.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ættir að nota daginn til að
huga að því hvernig þú getir bætt útlit þitt.
Skapandi lausnir eru það sem þarf í
vinnunni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vendu þig af því að hneykslast
stöðugt á annarra gjörðum og vandaðu frek-
ar sjálfan þig til orðs og æðis. Haltu fast við
þitt en láttu aðra um að leysa sínar deilur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þurfirðu að gera eitthvað sem er
þér á móti skapi skaltu lofa þér því að það
verður í síðasta sinn. Eitthvað á eftir að
koma þér á óvart en láttu það ekki trufla þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Reyndu að hafa alla þræði í hendi
þér áður en þú ræðst í þær framkvæmdir
sem þig dreymir um. Skilgreindu hverjum
ber hvað í þessu sambandi.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ef þú ert ekki ánægður með verk
annarra skaltu bara taka þau að þér sjálfur.
Komdu hugmyndum þínum og tillögum á
framfæri.
Víkverji veit ekki hvort verðurmeiri hátíðisdagur, 16. eða
þjóðhátíðardagurinn 17. júní. Eins
og vonandi allir vita keppir Ísland
sinn fyrsta leik á HM í Rússlandi í
dag þegar liðið mætir Argentínu í
Moskvu. 16. júní verður því líka ein-
hvers konar þjóðhátíðardagur og
mun fólk halda uppá daginn, hver
með sínum hætti. Í Morgunblaðinu í
gær var greint frá því að búast
mætti við „stökki í neyslu“ meðan á
mótinu stendur enda geri lands-
menn vel við sig í mat og drykk.
x x x
Veitingastaðir keppast líka við aðsýna frá leikjum Íslands á HM
því annars er hætt við að það verði
lítið að gera hjá þeim á meðan því
allir eru bara heima að grilla.
x x x
Það verður hægt að horfa á leikinná stórum skjá á nokkrum stöð-
um, til dæmis í Hljómskálagarð-
inum, við Vesturbæjarlaug og á
götumatarmarkaðnum í Skeifunni.
Það getur verið mikil stemning að
horfa á leik með hópi, ekki síst þegar
vel gengur og allir fagna í kór. Von-
andi bara að það viðri vel til áhorfs,
það þarf ekki endilega að vera sól en
félagarnir rok og rigning mega
halda sig heima hjá sér.
x x x
Það að horfa á fótboltaleik á risa-skjá minnir á bíóupplifun en það
er oft skemmtilegra að sjá myndir í
hópi heldur en heima. Víkverji brá
sér einmitt í bíó í vikunni með móður
sinni á skemmtilega mynd, Book
Club. Þetta er rómantísk gaman-
mynd en hún er öðruvísi að því leyti
til að aðalsöguhetjurnar eru ekki
sautján heldur komnar yfir sjötugt.
Þarna fara á kostum Diane Keaton,
Jane Fonda, Candice Bergen og
Mary Steenburgen. Það var gaman
að sjá konur á þessum aldri njóta sín
á hvíta tjaldinu og þetta eru allt frá-
bærar leikkonur. Það var mikið
hlegið í salnum en þetta var ekta
mynd til að horfa á í svona hópi.
x x x
Síðan bara eitt að lokum. ÁframÍsland! Í dag og alla daga.
vikverji@mbl.is
Víkverji
En Guð auðsýnir kærleika sinn til
okkar í því að Kristur dó fyrir okkur
þegar við vorum enn syndarar.
(Rómverjabréfið 5.8)
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Brattur tindur birtist hér.
Bátskríli, sem hrörlegt er.
Lag það heyrist leikið á.
Löngum má þar vísur sjá.
Helgi R. Einarssosn leysir gátuna
þannig:
Háum tindum, hljóðfærum og bát
og hugsuðum í gömlum vísnafræðum
í rólegheitum gefum við nú gát.
Gæti verið að um horn við ræðum?
Helgi Seljan á þessa lausn:
Hornið yfir bjargið bratta rís,
bátshornið má nýta enn um sinn.
Á hornið leikur Palli um prúða dís,
svo pára ég í Vísnahornið inn.
Guðrún Bjarnadóttir svarar:
Við Hornbjargið ég hæðir skil,
úr horni á sjó það virti.
Við hornablástur vísu vil
að Vísnahornið birti.
Þessi er skýring Guðmundar:
Horn er tindur hár að sjá.
Horn er kæna ofursmá.
Hornblástur við hlýðum á.
Í horni líta vísur má.
Þá er limra:
Höldurinn Björn á bala
til fjárgæslu fram til dala
sér kaupamann réð
klaufar með
og ennfremur horn og hala.
Og að lokum ný gáta eftir Guð-
mund:
Lítill fugl á kvisti kveður
kvæði sín af list og dug,
grundin ilmar, gott er veður,
gáta kemur mér í hug:
Fuglinn þessi fagurt syngur.
Fremsti hluti vettling á.
Nefnist þetta nýgræðingur.
Nettir hnoðrar til og frá.
Ráðningar verða að berast eigi
síðar en á miðvikudagskvöld.
Helgi Seljan lét þau orð fylgja
sinni lausn að sér þætti mikið gott
að sjá frúrnar fara á kreik hjá okk-
ur Guðmundi:
Núna frúrnar fara á kreik,
fögnuð veita: Eiður sær.
Við þær eigum vísnaleik,
varlega skal botna þær.
Gömul vísa í lokin:
Mig þótt græti meinsemd ný,
minnst þó bæti trega,
eg vil mæta öllu því
ofur gætilega.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Í mörg horn að líta
Í klípu
„ÞAÐ ER LÍKA DÓNALEGT AÐ BENDA
ÖÐRUM Á AÐ ÞEIR SÉU DÓNALEGIR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HANN ER Á ÚTSÖLU Í ÞESSARI VIKU
FYRIR TVÆR MILLJÓNIR.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... það eina sem ég þarf
frá þér.
SJÁUM NÚ HVAÐ
NÁTTÚRAN ER AÐ GERA BILUÐ
ÉG VAR AÐ
YFIRGEFA KONUNA
MÍNA
HÚN SAGÐI
AÐ ÉG VÆRI
GRIMMUR VIÐ
HANA
ÞAÐ VIRÐIST MIKIÐ Á
HANA LAGT!
SVO SANNARLEGA... TVEIR AF
KÆRUSTUM HENNAR SÖGÐU
HENNI UPP FYRR Í VIKUNNI!