Morgunblaðið - 16.06.2018, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2018
86
ÁRA
Starfsmannafatnaður
fyrir hótel og veitingahús
Hótelrúmföt og handklæði
fyrir ferðaþjónustuna
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Vikapiltinn
• Hótelstjórnandann
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 | eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is
Allt lín fyrir:
Hótelið • Gistiheimilið
Bændagistinguna • Airbnb
Veitingasalinn • Heilsulindina
Þvottahúsið • Sérverslunina
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Nýjar stangveiðilendur opnuðust í
fyrrasumar þegar tekið var að veiða
á tvær stangir í Þjórsá fyrir landi
Urriðafoss. Efasemdaraddir um að
veiði í jökulánni væri illmöguleg
reyndust ekki á rökum reistar því
veiðin var frábær og 755 laxar færð-
ir til bókar, á flugu og maðk.
Hjónin Stefán Sigurðsson og
Harpa Hlín Þórðardóttir sem reka
veiðisölufyrirtækið Iceland Out-
fitters sömdu um veiðiréttinn við
Einar H. Haraldsson bónda á Urr-
iðafossi. Og í sumar hefur veiðisvæð-
ið verið stækkað enn frekar og
stöngum fjölgað í fjórar. Veiðin hófst
strax 27. maí í bólginni Þjórsá og þá
var tíu vænum löxum landað. Þegar
blaðamaður leit við í fyrradag hafði
áfram veiðst vel og 211 verið færðir
til bókar. Kvóti er á veiðinni, taka
má fimm laxa á stöng á dag, en
sleppa verður þeim löxum sem veið-
ast á flugu umfram það.
Laxi hefur fjölgað í Þjórsá
Urriðafoss er vinsæll viðkomu-
staður ferðamanna og liggur afgirt-
ur malarstígur niður með fossinum.
Þegar ég rölti með Einari bónda nið-
ur stíginn segist hann telja að allt að
70 þúsund gestir kæmu þarna við ár-
lega og nú hefur útsýnið breyst,
veiðimenn eru komnir inn á ljós-
myndirnar með fossinum. „Þegar
einum stórlaxinum var landað hér
um daginn stóðu tugir kínverskra
ferðamanna hér og klöppuðu fyrir
veiðimanninum,“ segir Einar.
Hann segir að undanfarna áratugi
hafi margoft verið reynt að veiða á
stöng í Þjórsá fyrir landi Urriðafoss
en án árangurs lengst af. Hins vegar
hafi alltaf veriðst vel þar í net og hef-
ur það verið mikilvægur þáttur í af-
komu búsins. „Við höfum oft leyft
mönnum að prófa en fyrir um þrem-
ur árum fór allt í einu að veiðast hér
á stöng,“ segir hann.
Hvað breyttist?
„Ég vildi að ég vissi það,“ svarar
Einar. Bætir við að sennilega spili
breytt veðurfar inní og þá hafi áin
hlýnað eitthvað með uppistöðulónum
ofar í henni, en meiru skipti að laxi
hafi fjölgað mikið í ánni. Þegar fisk-
vegur hafi á sínum tíma verið settur
við fossinn Búða ofar í Þjórsá hafi
ganga laxa á góð hrygningarsvæði
batnað og viðkoma hans þar með.
Stofninn í ánni sé talinn vera um
12.000 laxar.
Eitt net fullnægir veiðiþörf
„Svo er merkilegt að laxinn er far-
inn að ganga mun fyrr en áður,“ seg-
ir Einar. Hann eigi bækur með
skráningu netaveiðinnar í ánni hátt í
öld aftur í tímann og þar megi sjá að
varla þekktist að lax veiddist fyrr en
fyrstu vikuna í júní. Einar telur að
veiði megi hefja fyrr í laxveiðiám
landsins en nú er gert því hann heyri
þetta víðar að, að lax gangi fyrr.
Þrjár netalagnir hafa verið við
Urriðafoss og þegar Stefán og
Harpa Hlín föluðust í fyrravor eftir
að selja í tilraunaveiði á stöng við
fossinn, ræddu þau Einar fyrst um
að selja aðeins þá daga hálfa vikuna
þegar netin eru ekki niðri. „En það
gekk strax svo glimrandi vel að til að
liðka betur fyrir stangveiðinni tók ég
alveg upp eitt netið og þau seldu
tvær stangir alla vikuna,“ segir Ein-
ar. Hann hélt áfram með tvær neta-
lagnir neðar og nú fyrir sumarið
ákváðu þau svo að taka annað net
upp og fjölda stöngum á svæðinu um
tvær. „Ég hef eitt net neðar í ánni til
að halda mér við efnið,“ segir Einar
brosandi. „Það fullnægir minni
veiðiþörf.“
Undanfarna áratugi hefur neta-
veiðin krafist mikils tíma og orku
bóndans á Urriðafossi. Samhliða því
að sinna kúabúi hefur hann hlaupið
að vitja um netin allt að fimm sinn-
um á dag, þurft að rogast með afla
frá ánni og aka með hann daglega á
markað í Reykjavík. Einar segir að
nú styttist í sextugsaldurinn og sér
hafi þótt rétt að reyna þessa breyttu
veiðiaðferð, sem gefi þar að auki
ekki minna af sér.
Lenti strax í frábærri veiði
Stefán og Harpa Hlín eru komin
að Urriðafossi þar sem skoskir veiði-
menn eru þar að veiða á þeirra veg-
um. „Ég bjóst við því að veiðin yrði
góð strax í fyrra en ekki að hún yrði
þetta rosalega góð,“ segir Stefán.
„Einar hafði leyft mér að prófa að
veiða hér sumarið áður og ég lenti í
frábærri veiði – því vissi ég að þetta
gæti gengið upp. Þetta hefur verið
sannkallað öskubuskuævintýri.“ Og
nú eru þau hjón líka komin með
samning um stangveiði fyrir landi
Þjórsártúns á austurbakkanum, þar
verði „tilraunastangveiði“ í sumar.
„Sem leigutaki er gaman að fá að
taka þátt í svona þróunarverkefni,
hér er ekki komin hefð á neitt og
þetta er allt eitt ævintýri,“ segir
hann og hleypur til að aðstoða veiði-
mann sem hefur fyrir framan okkur
sett í stóran lax í grængráu fljótinu.
„Sannkallað öskubuskuævintýri“
Nýtt stangveiðisvæði við Urriðafoss í Þjórsá sannaði sig í fyrrasumar Stöngum hefur verið fjölg-
að og strax veiðst á þriðja hundrað laxa Ferðamenn við fossinn klappa þegar löxum er landað
Morgunblaðið/Einar Falur
Iðuköst Vænn lax hefur tekið flugu skosks veiðimanns á einum pallinum við Urriðafoss og Stefán gefur góð ráð.
Morgunblaðið/Einar Falur
Samstarf Einar H. Haraldsson bóndi á Urriðafossi á árbakkanum á milli
leigutakanna Stefáns Sigurðssonar og Hörpu Hlínar Þórðardóttur.
Veiði hefst nú í hverri laxveiðiánni
á fætur annarri. Fyrir utan Urr-
iðafoss var Norðurá fyrst af stað,
þar höfðu tæplega eitt hundrað
veiðst fyrstu níu dagana og rúm-
lega fimmtíu í Blöndu eftir átta
daga – þar fékk Bjarki Már Jó-
hannsson fyrsta tuttugu-pundarann
sem fréttist af í sumar. Þá hefur
verið ágæt veiði í Þverá og Kjarrá
en heldur betri í Þverá.
Veiðin hófst í Miðfjarðará í gær-
morgun. Rafn Valur Alfreðsson
staðarhaldari sagði menn hafa haf-
ið veiðar á sex stangir um níuleytið,
í norðangarra, rétt um fjögurra
stiga hita og gaf morgunvaktin alls
13 laxa. Sjálfur byrjaði hann á því
að fá fallegan smálax í Kistunum en
hinir voru allt vel haldnir laxar sem
hafa verið tvö ár í hafi, 78-88 cm.
„Áin er bæði bólgin og köld,“
sagði hann og fyrir vikið er erfitt
að sjá hvort mikið sé gengið af laxi.
„En við vorum að fá fiska alveg
uppi í Sandgili í Vesturá, líka í Orr-
ustugili og Túnhyl.“ Laxinn er því
kominn upp úr öllu. „Austurá og
Miðfjarðará eru erfiðari í svona
miklu vatni en þó komu þrír og
tveir úr þeim. Það er mjög kalt
hérna en byrjunin fín.“
Morgunblaðið/Einar Falur
Laxi sleppt Veiðimenn segja laxinn koma vel haldinn úr hafi.
Þrettán á fyrstu vakt
í Miðfirði í gær
Þokkaleg byrjun í laxveiðiánum