Morgunblaðið - 16.06.2018, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 16.06.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2018 Morgunblaðið/Kristín Heiða Fagnaðarfundir Ærnar hlupu til Ernu og vildi allar fá klapp, en hér er það uppáhaldið Hrafna sem fær klappið. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég man ekki eftir mér öðru-vísi en að kindur væruhluti af lífinu á bernsku-árum mínum hér á Eyrarbakka. Pabbi var alltaf með lít- inn kindahóp, fyrst var hann með kindakofa í þorpinu en flutti hann svo hingað upp eftir árið 1982. Ég tók við kindunum hans þegar hann féll frá árið 1995. Það kviknaði í kindakof- anum okkar fyrir fjórum árum og þá byggðum við nýtt stæðilegt fjárhús á sama grunni og köllum það alltaf kof- ann,“ segir Erna Gísladóttir þar sem hún stendur umkringd kindunum sínum í grængresinu við Háeyrarveg rétt utan við Eyrarbakka. Erna á um 20 fullorðnar kindur sem hún heldur sér til gamans og sautján báru lömb- um í vor. „Ég á ekki allar þessar kindur sem eru hér í stykkjunum, vinafólk okkar, Gummi og María, eiga hluta af þessu fé. Það er gott að vera í þessu með öðru fólki, við skiptumst á að gá að þeim og erum þá nógu mörg til að smala þeim,“ segir Erna sem er eigandi beitilandsins sem eru þrjú samliggjandi stykki, Akureyri, Akra- nes og Akurey. „Við sleppum þeim svo yfir sum- arið vestur í mýri hér upp með ánni, þar sem fuglafriðlandið er, þar ganga allar kindur Eyrbekkinga saman yfir sumarið. Stór hluti þeirra sem búa í þorpinu er með kindur, það eru mörg hundruð kindur á vetrarfóðrum hér. Á haustin er svo öllu fé Eyrbekkinga réttað í Skúmstaðarétt, þá er líf og fjör.“ Ég get klappað þeim öllum Fjárstofn Ernu samanstendur af 17 fullorðnum kindum, en auk þess á hún tvær veturgamlar gimbrar, tvo sauði og einn undaneldishrút. Og auðvitað öll lömbin sem komu í heim- inn í vor. „Frjósemin var bara fín, en ég fékk ekki eins mörg mislit lömb og ég hefði viljað, aðeins þrjár gráar gimbrar og einn svartan hrút. Öll hin lömbin eru hvít,“ segir Erna og bætir við að hún hafi farið fyrir nokkrum árum vestur að Drangsnesi og keypt hrút til undaneldis. „Til að fá nýtt blóð í stofninn hjá mér, þetta má ekki verða of skylt. Nýja féð mitt að vest- an hefur góða byggingu, er með fyllt læri og langan hrygg, þetta er gott kjötfé. Við leggjum auðvitað upp úr því þó þetta sé fyrst og fremst frí- stunda- og dekurbúskapur hjá okk- ur.“ Það má glögglega sjá að allar kindurnar hennar Ernu eru ein- staklega gæfar, þær koma hlaupandi til hennar þegar hún kallar á þær þar sem hún kemur að hólfinu með mél- köggla í fötum til að gefa í rennur sem þar eru. „Ég get klappað þeim öllum. Ég fékk tvær nýjar kindur í haust frá manni hér í þorpinu sem voru ljón- styggar, þær ruku upp um alla veggi í hvert sinn sem ég kom inn í kofa. En mér hefur tekist að spekja þær nokkuð, þær eru að róast, þurftu bara tíma til að samlagast.“ Hrafninn kroppaði svöðusár í nárann á kindinni Hröfnu Hún leynir sér ekki væntum- þykjan í rödd Ernu þegar hún spjall- ar við kindurnar sínar í blíðum tón. Þetta eru vinir hennar og hún kallar ærnar „stelpur“. „Þetta er hún Hrafna mín, hún er mikil uppáhaldskind hjá mér, hún er svo sérstök og góð,“ segir Erna og klappar kollóttri kind um kjammann sem kemur upp að hlið hennar. „Hún fékk nafnið í framhaldi af því að hún rétt slapp undan hrafn- inum. Þegar hún var lamb að hausti fór hrafninn í hana þar sem hún var afvelta og hann kroppaði stórt svöðu- sár í nárann á henni, alveg inn að kjöti. Litlu mátti muna að honum tækist að drepa hana, en okkur tókst að græða þetta á löngum tíma og bjarga henni.“ Forystusauðurinn Pjakkur er líka í miklu uppáhaldi og ber með sér að hann er dekurdýr. Á honum er þó nokkur þóttasvipur, hann er yfir hin- ar kindurnar hafinn og minnir með líkamsstöðu sinni og byggingu meira á hind en kind. Hann er spakur og biður um klapp hjá Ernu, en sérvitur skepna er hann sem kýs brauð fram yfir mélköggla. Og hann er ekki allra. „Pjakkur er ekkert fyrir ókunnuga, hann gerir mikinn manna- mun. Hann er æðislegur,“ segir Erna með mikilli aðdáun og festu. „Hann var ósköp lítill þegar Skúli Steins gaf mér hann fyrir þremur árum sem lamb, en Skúli heldur forystufé hér á Bakkanum. Pjakkur kann að leiða fjárhópinn, eins og forystukinda er háttur, það er gaman að fylgjast með honum,“ segir Erna og bætir við að hún hafi ekki látið marka hann. „Hann vildi ekki heldur láta setja merki í eyrað á sér, hann bað mig um að það yrði ekki gert. Og ég lét það eftir honum. En hann er brenni- merktur á hornunum með mínu nafni,“ segir Erna og játar því að hún og Pjakkur séu í góðu andlegu sam- bandi, þau skilji hvort annað. Gardínur og málverk í fjárhúsi bóndans Ernu Ernu dugar ekki að eiga aðeins kindur, hún er mikið fyrir dýr og er með þrjá ketti á heimilinu og átti áð- ur tíkina Jasmin til ellefu ára. Erna er líka með rúmlega tuttugu hænur, í rými sem er hluti af kindakofanum, sem stendur í hesthúsahverfi Eyr- bekkinga. Hið myndarlega fjárhús sem kallast kofi ber handbragði Ernu vitni, þar eru gardínur í glugg- um og málverk á veggjum. Við kíkjum inn til hænsnanna sem leyfa Ernu að halda á sér en svo beygir hún sig niður og nær í agn- arsmáan kanínuunga. „Þeir eru nokkrir, mamma þeirra flutti óumbeðið hingað inn til hænsnanna með þá, en þessar kan- ínur eru villtar og mikið hér í hest- húsahverfinu. Hænurnar eru frjálsar haughænur úti við yfir daginn, en ég byrgi þær inni yfir nóttina,“ segir Erna sem er greinilega bóndinn í fjölskyldunni, en eiginmaðurinn Gulli segist vera aðstoðarmaður. „Ég er sóttur þegar þarf að gera eitthvað.“ Pjakkur gerir mikinn mannamun Erna Gísladóttir og for- ystusauðurinn Pjakkur skilja hvort annað, til þess þarf ekki manna- mál. Erna heldur um 20 kindur sér til ánægju á Eyrarbakka þar sem hún er fædd og uppalin. Vinir Erna og forystusauðurinn Pjakkur hinn þóttafulli. Fallegar Hænur Ernu eru mislitar og vinalegar. TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ kistufell.com Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tíma- reiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313 fyrir öll tölvurými og skrifstofur Rafstjórn tekur út og þjónustar kæli- og loftræstikerfi Kæling Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is Verð frá kr. 181.890 m/vsk Í tilefni Dags villtra blóma á Norður- löndunum er boðið upp á gönguferð um strandlengju Ægisíðunnar í Vest- urbæ Reykjavíkur á morgun 17. júní kl. 10. Hjörtur Þorbjörnsson forstöðu- maður Grasagarðsins og Snorri Sigurðsson líffræðingur greina plöntur og fjalla um gróður svæðisins. Gangan hefst við bílastæði leikskól- ans Sæborgar við Starhaga. Boðið í gönguferð Dagur hinna villtu blóma Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.