Morgunblaðið - 16.06.2018, Qupperneq 30
30 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2018
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til 25. júní.
Landsmót hestamanna
Veglegt sérblað tileinkað Landsmóti hestamanna
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 29. júní
Blaðið mun gera mótinu, og hestamennsku
góð skil með efni fyrir unnendur íslenska hestsins.
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Sigríður Hvönn Karlsdóttir
Sími: 569 1134
siggahvonn@mbl.is
SÉRBLAÐ
AKUREYRARKIRKJA | Þjóðleg messa kl.
11. Ættjarðarlög og sálmar. Hafdís Davíðs-
dóttir, kirkjuvörður og guðfræðinemi, prédikar.
Prestur er Hildur Eir Bolladóttir. Félagar úr Kór
Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Eyþór Ingi
Jónsson.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta 17. júní
kl. 11. Séra Þór Hauksson þjónar. Félagar úr
kór Árbæjarkirkju leiða söng og undirleikari er
Benjamín G. Kaffisopi eftir guðsþjónustu.
ÁSKIRKJA | Sameiginleg útiguðsþjónusta Ás-
og Laugarnessafnaða 17. júní kl. 11 við íhug-
unarbrautina í Rósagarðinum í Laugardal.
Hjalti Jón Sverrisson mag. theol. prédikar.
Séra Sigurður Jónsson þjónar. Félagar úr Kór
Áskirkju syngja undir stjórn Bjarts Loga Guðna-
sonar, organista Áskirkju. Aðkoma að staðn-
um er annars vegar frá Sunnuvegi um heim-
reiðina að gróðrarstöðinni í Laugardal, og hins
vegar frá bílastæði Vinagarðs við Holtaveg eft-
ir göngustíg sem liggur til vesturs frá stæðinu.
ÁSTJARNARKIRKJA | Helgistund kl. 11
sunnudag. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir
stjórn Keiths Reed tónlistarstjóra. Arnór Bjarki
Blomsterberg guðfræðingur leiðir stundina og
prédikar. Hressing og samfélag á eftir.
BESSASTAÐASÓKN | Hátíðarstund í safn-
aðarheimilinu í Brekkuskógum 1 kl. 10. Sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir stundina. Álft-
aneskórinn syngur undir stjórn Ástvaldar
Traustasonar.
BORGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Organisti er Steinunn Árnadóttir. Prestur er
Þorbjörn Hlynur Árnason.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Göngumessa þjóð-
kirkjusafnaðanna í Breiðholti. Gengið frá Fella-
og Hólakirkju að Breiðholtskirkju kl. 10. Þar
hefst messa kl. 11. Prestur er Magnús Björn
Björnsson, organisti er Örn Magnússon. Marta
Guðrún Halldórsdóttir leiðir söng. Kaffisopi
eftir messu og akstur að Fella- og Hólakirkju.
BÚSTAÐAKIRKJA | Hinn 17. júní verður ekki
messa í Bústaðakirkju, þar sem kór, organisti
og prestur messa fyrir Íslendinga í St. Pauls
kirkjunni í Kaupmannahöfn 17. júní kl. 14.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
er Guðmundur Karl Brynjarsson. Óskar Ein-
arsson sér um tónlist.
DÓMKIRKJA Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30
á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og mán., mið. og fös. kl. 8,
lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er vigilmessa.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta
fyrir alla fjölskylduna kl. 10.30. Sr. Þorgeir Ara-
son. Organisti er Torvald Gjerde. Kór Egils-
staðakirkju. Skrúðganga fer frá kirkjunni að
messu lokinni (um kl. 11).
FELLA- og Hólakirkja | Göngumessur Breið-
holtssafnaðanna í júní. Sunnudaginn 17. júní
verður gengið frá Fella- og Hólakirkju í Breið-
holtskirkju. Lagt af stað kl. 10 og messan byrj-
ar kl. 11. Boðið verður upp á kirkjukaffi í lok
hverrar messu og einnig ökuferð til baka að
upphafstað göngunnar.
GRAFARVOGSKIRKJA | Þjóðhátíðarmessa
kl. 11. Séra Guðrún Karls Helgudóttir þjónar.
Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og organisti er
Hákon Leifsson.
GRENSÁSKIRKJA | Helgistund kl. 11
þjóðhátíðardag. Daníel Ágúst Gautason,
æskulýðsfulltrúi og guðfræðinemi, leiðir
stundina.
GRINDAVÍKURKIRKJA | Messa kl. 10.
Ræðumaður er Vilhjálmur Árnason alþing-
ismaður. Kór Grindavíkurkirkju leiðir sönginn
undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur. Sr. Elínborg
Gísladóttir þjónar fyrir altari. Kaffi og meðlæti
eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Hátíðarhelgi-
stund kl. 11. Tryggvi Gíslason, fyrrverandi
skólameistari, flytur hátíðarræðu. Gissur Páll
Gissurarson syngur einsöng. Sr. Jón Helgi Þór-
arinsson leiðir stundina. Douglas A. Brotchie
leikur á orgelið. Kaffi eftir stundina.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt sr. Hirti Pálssyni. Messuþjónar
aðstoða. Hjörtur les eigið ljóð milli lexíu og
pistils. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju
syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Al-
þjóðlegt orgelsumar hefst laugardag kl. 12
með tónleikum Eyþórsson Franzsonar Wec-
hner organista, sem einnig leikur á
sunnudagstónleikum kl. 17.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Axel
Á. Njarðvík prédikar og þjónar fyrir altari. Org-
anisti er Steinar Logi Helgason.
HVERAGERÐISKIRKJA | Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 11. Séra Kristján Björnsson,
nýkjörinn vígslubiskup í Skálholti, prédikar.
Jón Ragnarsson sóknarprestur þjónar fyrir alt-
ari. Nýkjörnir bæjarfulltrúar lesa ritningar-
lestra. Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrand-
arsókna leiðir söng undir stjórn Jóns
Bjarnasonar.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta
kl. 12.30. Sr. Fritz Már Jörgensson þjónar
ásamt messuþjónum. Kór Keflavíkurkirkju
syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar
organista.
KVENNAKIRKJAN | Kvennamessa verður við
Kjarvalsstaði þriðjudaginn 19. júní kl. 20 í til-
efni af kvenréttindadeginum. Að messunni
standa Kvennakirkjan, Kvenréttindafélag Ís-
lands og Kvenfélagasamband Íslands. Séra
Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar, Anna Sigríð-
ur Helgadóttir syngur einsöng og Aðalheiður
Þorsteinsdóttir leikur á píanó og stjórnar
söng.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11 í safn-
aðarheimili. Sr. Jóhanna Gísladóttir þjónar.
Organisti er Magnús Ragnarsson og Sunna
Karen Einarsdóttir tónlistarkona leikur á harm-
óníku. Kaffi og meðlæti eftir stundina. Tón-
leikar dömukórsins Graduale Nobili undir
stjórn Þorvalds Arnar Davíðssonar við Almen-
nagjá á Þingvöllum kl. 15. Aðgangur ókeypis.
LÁGAFELLSKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta
kl. 11. Dagbjört Brynjarsdóttir skáti flytur hug-
vekju. Jóhannes Freyr Baldursson syngur ein-
söng og Kirkjukór Lágafellssóknar leiðir safn-
aðarsöng undir stjórn Þórðar Sigurðarsonar
organista. Sr. Arndís G. Bernhardsdóttir Linn
þjónar fyrir altari.
NESKIRKJA | Þjóðbúningamessa kl. 11. Í til-
efni af þjóðhátíðardeginum eru kirkjugestir
hvattir til að mæta í þjóðlegum klæðnaði. Há-
skólakórinn syngur. Organisti er Gunnsteinn
Ólafsson. Prestur er Ása Laufey Sæmunds-
dóttir. Kaffisopi og samfélag eftir messu.
SELJAKIRKJA | Gönguguðsþjónustur safn-
aðanna í Breiðholti. Gengið frá Fella- og Hóla-
kirkju kl. 10 til Breiðholtskirkju þar sem guðs-
þjónusta hefst kl. 11.
SELTJARNARNESKIRKJA | Messa kl. 11.
Rótarýmenn taka þátt. Garðar Briem, forseti
Rótarýklúbbs Seltjarnarness, flytur ræðu. Sr.
Kristin Pálsdóttir þjónar fyrir altari. Friðrik Vign-
ir Stefánsson er organisti. Félagar úr Kamm-
erkór Seltjarnarneskirkju syngja. Í lok guðs-
þjónustunnar mun Rótarýklúbburinn heiðra
ungan tónlistarnema á Seltjarnarnesi með
Kaldalónsskálinni, sem er farandbikar. Kaffi-
veitingar og samfélag eftir athöfn í safn-
aðarheimilinu.
STRANDARKIRKJA | Messa kl. 14. Guð-
mundur Brynjólfsson messar, Kór Þorláks-
kirkju. Ester Ólafsdóttir á orgelinu.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Hátíðarfjölskyldumessa
kl. 13. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Keiths
Reed. Sr. Elínborg Gísladóttir þjónar fyrir alt-
ari.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Helgi-
stund kl. 20.
ÞINGVALLAKIRKJA | Hátíðarmessa klukkan
14. Kór undir stjórn Margrétar Bóasdóttur leið-
ir söng, organisti er Sólveig Anna Jónsdóttir,
prestur er Kristján Valur Ingólfsson sem pre-
dikar og þjónar fyrir altari.
ORÐ DAGSINS: Hinn
týndi sauður
(Lúk. 15)
Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonStóra-Laugardalskirkja í Tálknafirði.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir
að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst
og viðeigandi liður, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felliglugganum.
Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu
á útfarardegi verður greinin að hafa bor-
ist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birt-
ing dregist.
Formáli | Minningargreinum fylgir for-
máli sem nánustu aðstandendur senda
inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar
og hvenær sá sem fjallað er um fæddist,
hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan
og klukkan hvað útförin fer fram. Þar
mega einnig koma fram upplýsingar um
foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast
er til að þetta komi aðeins fram í formál-
anum, sem er feitletraður, en ekki í
minningargreinunum.
Minningargreinar