Morgunblaðið - 16.06.2018, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 16.06.2018, Qupperneq 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2018 Listvinafélag Stykkishólmskirkju bryddar nú í þriðja sinn upp á mynd- listarsýningu í Listasal kirkjunnar yf- ir sumartímann. Á sunnudaginn, 17. júní kl. 17, hefst sýning Einars Fals Ingólfssonar Fótspor. Á sýningunni getur að líta úrval ljósmyndaverka eftir Einar Fal úr tveimur viðamikl- um myndröðum sem hann vann að á undanförnum áratug, Sögustaðir – Í fótspor W.G. Collingwood (2007- 2010) og Landsýn – Í fótspor Johann- esar Larsen (2014-2016). Á sýningunni eru ljósmyndir sem Einar Falur tók á Snæfellsnesi, ann- ars vegar út frá vatnslitamyndum sem breski myndlistarmaðurinn, rit- höfundurinn og fagurfræðingurinn Collingwood málaði sumarið 1897 – nokkrar þeirra má sjá á sýningunni – og hins vegar teikningum sem danski myndlistarmaðurinn Johannes Lar- sen gerði á nesinu sumrin 1927 og 1930. Báðir unnu þeir Collingwood og Larsen að myndskreytingum við Ís- lendingasögurnar með myndum sem þeir gerðu á söguslóðum hér á landi. Vatnslita- og túskmyndir Colling- woods komu upphaflega út í bók hans A Pilgrimage to the Saga-Steads of Iceland (1899). Þjóðminjasafn Íslands varðveitir rúmlega tvöhundruð af frummyndum listamannsins og hefur úrval þeirra verið sett upp á ýmsum sýningum og birt í ýmsum bókum. Larsen kom hins vegar hingað til lands sérstaklega til að gera penna- teikningar fyrir þá væntanlega út- gáfu Gyldendal-forlagsins á Íslend- ingasögunum í þremur bindum. Í verkefnum sínum notaði Einar Falur verk þeirra Collingwoods og Larsens sem sinn fararstjóra og hefur af- raksturinn verið settur upp á mörg- um sýningum hér á landi og erlendis, ljósmyndir hans og vatnslitamyndir og teikningar hinna látnu erlendu listamanna. Á sýningunni Fótspor í Stykk- ishólmskirkju má auk ljósmynda Ein- ars Fals og vatnslitamynda eftir Coll- ingwood á veggjum, sjá í skjásýningu samspil verka allra þriggja lista- mannanna um sögustaði á Snæfells- nesi. Á opnuninni á sunnudag mun Ein- ar Falur verða með sýningarleiðsögn og segja frá verkefnunum. Allir eru velkomnir og enginn að- gangseyrir á sýninguna sem opin verður daglega frá kl. 17-19 fram í september. Ljósmynd/Einar Falur Ingólfsson Kolgrafafjörður Ljósmynd eftir Einar Fal frá sumrinu 2009. Birt með leyfi Þjóðminjasafns Íslands Kolgrafafjörður Vatnslitamynd W.G. Collingwoods frá 1897. Í fótspor Colling- woods og Larsens  Snæfellsnesmyndir í Stykkishólmi Grunnskólabörn landsins lásu samtals 2.500 bækur í lestrarátaki á vegum IÐNÚ útgáfu í samstarfi við skólasöfnin í grunnskólum landsins sem lauk fyrir skemmstu. „Með það að markmiði að allir nemendur gætu verið með í lestrarátakinu, óháð því hvar þau væru stödd í lestri, var ákveðið að hafa þema átaksins þrískipt. Þátttakendur gátu valið um að lesa, lita og skapa þar sem leysa þurfti mismunandi verkefni fyrir hvern hluta,“ segir í tilkynningu, en veitt voru verð- laun í þeim rúmlega 40 skólum sem tóku þátt. „Alls lásu þátttakendur um 2500 bækur, annan eins fjölda lituðu þeir af myndum og um helmingur skólanna sendi inn framlög. IÐNÚ hefur aldrei staðið fyrir svo viðamiklu lestrarátaki áður en mikil ánægja ríkir með viðtökur. Meginmarkmið átaksins var að hvetja krakka til lesturs og vekja hjá þeim áhuga á ævintýrabókum.“ 2.500 bækur lesnar í lestrarátaki IÐNÚ Ævintýri Lykilpersónur úr Óvættaför. Þýska hljómsveitin Welten mun leika hlýja og mel- ankólíska tónlist sína á Mengi ásamt saxófónleik- aranum Óskari Guðjónssyni laugardaginn 16. júní. Hljómsveitina Welten skipa Valentin Mühlberger á hljómborði og hljóðgervli, Lukas Backs á alt-flautu, Jonas Petry á slagverki og trommu og Laurenz Welten á alt-saxófón og bassaklarínetti.Viðburð- urinn hefst klukkan hálfellefu og er miðaverð 2000 krónur. Welten er ung hljómsveit frá Leipzig og sver sig í ætt við mínímalískar, sjálfstæðar djass- hljómsveitir. Náinn vinskapur meðlimanna þykir skila sér í nánd þeirra á sviði við áhorfendurna. Welten og Óskar Guðjónsson á Mengi Mengi Óskar Guðjóns- son með saxófóninn. Sýning á absktraktverkum listmál- aranna Kristjáns Eldjárns og Ragn- ars Hólms verður opnuð í Deiglunni á Akureyri föstudaginn 15. júní kl. 17. Sýningin verður opnuð við frjáls- an undirleik þeirra Pálma Gunn- arssonar og Kristjáns Edelsteins. Auk óhlutbundinna abstraktverka sem Kristján og Ragnar fást að mestu við mun Ragnar sýna nokkrar nýjar vatnslitamyndir. Hann segir verk sín sækja innblástur í amerískan abstrakt-expressjónisma og lista- menn á borð við Perle Fine, Richerd Diebencorn, Carolyn Weir og Willem de Kooning. Sýningin verður opin kl. 14-17 í dag og á morgun. Abstraktsýning í Deiglunni Abstrakt Kristján Eldjárn og Ragnar Hólm. Undir trénu 12 IMDb 7,1/10 Bíó Paradís 20.00 Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm Bíó Paradís 18.00 Svanurinn 12 Morgunblaðið bbbmn IMDb 6,6/10 Bíó Paradís 22.00 Síðasta áminningin Mynd þar sem sjálfsmynd og hugarfar Íslendinga er skoðað út frá sögu íslenska karlalandsliðsins í fótbolta og rætt er við þrjá leikmenn liðsins og aðra þjóðþekkta einstaklinga. Bíó Paradís 18.00 Call Me By Your Name 12 Metacritic 93/100 IMDb 8,0/10 Bíó Paradís 17.30 The Big Sick Bíó Paradís 22.15 Jumanji: Welcome to the Jungle 12 Bíó Paradís 20.00 Krummi Klóki Bíó Paradís 16.00 Doktor Proktor og prumpuduftið Bíó Paradís 13.00 Doktor Proktor og tímabaðkarið Bíó Paradís 16.00 Jurassic World: Fallen Kingdom 12 Þegar eldfjallið á eyjunni vaknar til lífsins þurfa Owen og Claire að bjarga risaeðl- unum frá útrýmingu. Morgunblaðið bbmnn Metacritic 52/100 IMDb 6,8/10 Sambíóin Álfabakka 14.00, 14.15, 16.45, 19.30, 21.30, 22.15 Sambíóin Egilshöll 14.00, 17.00, 20.00, 22.40 Sambíóin Keflavík 17.00, 19.40 Smárabíó 13.20, 16.10, 16.50, 19.40, 22.30 Háskólabíó 17.50, 20.50 Borgarbíó Akureyri 15.00, 19.30, 22.00 Ocean’s 8 Debbie Ocean safnar saman liði til að fremja rán á Met Gala-samkomunni í New York. Metacritic 60/100 IMDb 6,3/10 Sambíóin Álfabakka 16.50, 17.40, 19.10, 20.00, 22.20 Sambíóin Egilshöll 14.00, 17.30, 20.00, 22.20 Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.40, 21.10, 22.20 Sambíóin Akureyri 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Keflavík 17.40, 20.00, 22.20 Terminal 16 Myndin fjallar um tvo leigu- morðingja, forvitna þjón- ustustúlku, kennara og hús- vörð sem býr yfir hættulegu leyndarmáli. Metacritic 26/100 IMDb 5,2/10 Sambíóin Kringlunni 19.00 Vargur 16 Bræðurnir Erik og Atli eiga við fjárhagsvanda að stríða. Þeir grípa til þess ráðs að smygla dópi. Erik skipulegg- ur verkefnið og allt virðist ætla að ganga upp, en óvænt atvik setur strik í reikninginn. Morgunblaðið bbbmn Smárabíó 22.30 Bíó Paradís 22.00 Deadpool 2 16 Morgunblaðið bbbnn Metacritic 66/100 IMDb 8,1/10 Laugarásbíó 22.10 Smárabíó 19.50, 22.10 Háskólabíó 20.40 Avengers: Infinity War 12 Morgunblaðið bbbbm Metacritic 68/100 IMDb 8,8/10 Sambíóin Álfabakka 16.50, 22.30 Sambíóin Egilshöll 14.00 I Feel Pretty 12 Höfuðmeiðsl valda því að kona fær ótrúlega mikið sjálfstraust og telur að hún sé ótrúlega glæsileg. Metacritic 47/100 IMDb 4,7/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Sambíóin Egilshöll 20.00 Bókmennta- og kartöflubökufélagið Metacritic 64/100 IMDb 7,1/10 Háskólabíó 18.10 Hin Ótrúlegu 2 Bob Parr, Hr. Ótrúlegur, þarf að annast Jack-Jack á með- an Helen, Teygjustelpa, fer og bjargar heiminum. Metacritic 80/100 IMDb 8,9/10 Laugarásbíó 14.00, 17.00 Sambíóin Álfabakka 15.10, 20.00 Sambíóin Egilshöll 16.30 Sambíóin Kringlunni 14.30, 22.00 Sambíóin Akureyri 15.00 Draumur Myndin skoðar ósagða sögu Mjallhvítar, Öskubusku og Þyrnirósar, sem komast að því að þær eru allar trúlof- aðar sama draumaprins- inum. Laugarásbíó 13.50 Smárabíó 12.50, 15.40, 17.50 Háskólabíó 15.30 Borgarbíó 15.00 Pétur Kanína Smárabíó 13.00, 14.20 Lói – þú flýgur aldrei einn Morgunblaðið bbbbn Smárabíó 15.20 Víti í Vestmannaeyjum Morgunblaðið bbbbn Sambíóin Álfabakka 17.40 Midnight Sun Metacritic 38/100 IMDb 6,4/10 Sambíóin Álfabakka 22.20 Sambíóin Kringlunni 16.40 Morgunblaðið bbbmn Metacritic 62/100 IMDb 7,2/10 Sambíóin Álfabakka 16.50, 19.40, 22.30 Sambíóin Egilshöll 14.00, 17.10, 20.00, 22.20 Sambíóin Kringlunni 16.40, 19.30 Sambíóin Akureyri 17.40, 20.30 Solo: A Star Wars Story 12 Kona fer í stríð Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdar- verkamaður og er tilbúin að fórna öllu fyrir móður jörð og há- lendi Íslands þar til mun- aðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar. Morgunblaðið bbbbb Smárabíó 17.30, 19.50 Háskólabíó 15.50, 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 17.30 Bíó Paradís 20.00 Adrift 12 Metacritic 56/100 IMDb 6,7/10 Laugarásbíó 15.50, 17.40, 20.00, 22.10 Sambíóin Keflavík 22.20 Smárabíó 15.00, 17.20, 19.10, 20.00, 21.30, 22.20 Háskólabíó 15.40, 18.10, 21.00 Borgarbíó Akureyri 17.30, 19.30, 21.30 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.