Morgunblaðið - 16.06.2018, Page 48

Morgunblaðið - 16.06.2018, Page 48
LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 167. DAGUR ÁRSINS 2018 Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Mun Bill Murray giftast Eddu … 2. Voru beðnir um að eyða … 3. Typpavasabuxurnar það flottasta 4. Fer í taugarnar á okkur …  Florence Lam fremur splunkunýjan gjörning í Kling & Bang í dag kl. 16 sem jafnframt er lokadagur sýning- arinnar Peppermint. Gjörningurinn fer fram í þetta eina sinn. Florence Lam fremur nýjan gjörning í dag  Sýnt verður beint frá öllum leikjum á HM í Rússlandi í Bíó Paradís næstu vikurnar. Á sama tíma og foreldrar horfa á leikinn býðst krökkum að sjá fjölbreyttar barnamyndir í öðrum sölum bíósins. Aðgangur er ókeypis á jafnt fótbolta- sýningar og barnamyndir. Ókeypis krakkabíó samhliða fótboltanum  Í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands verður efnt til rapp- og (h)ljóðlistarhátíðar á Vigdísartorgi sunnan við Veröld – hús Vigdísar í kvöld kl. 19.30. Þar koma m.a. fram Herra Hnetusmjör, Góði Úlfurinn, Úlfhildur Tómasdóttir, Anna Vigsø og Úlfur Úlfur. Áður, eða milli kl. 18 og 19.30, verður boðið upp á samræður um rapp og hipphopp í fyrirlestrarsal Veraldar þar sem þátt taka Harpa Rut Hilmarsdóttir, Peter Trier Aagaard og Króli. Rapp- og (h)ljóðlistar- hátíð á Vigdísartorgi FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og norðaustan 3-10 m/s og víða skúrir. Hlýnar heldur norðan heiða. Á sunnudag (lýðveldisdaginn) Suðaustan og austan 3-8 og skúrir, einkum síðdegis, en rigning sunnantil undir kvöld. Hiti 8 til 15 stig. Á mánudag og þriðjudag Norðlæg átt og rigning eða skúrir, en úrkomulítið S-lands. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast syðst. Kylfingarnir Ólafía Þórunn Krist- insdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir komust báðar í gær í gegnum niður- skurð á mótum þeim sem þær taka þátt í um þessar mundir. Sú fyrr- nefnda er á þremur höggum undir pari á Meijer LPGA Classic for Simply Give-mótinu í Grand Rapids í Michig- an og Valdís á fjórum höggum undir pari á móti í Tékklandi. »1 Ólafía og Valdís eru í fremstu röð Jorge Sampaoli, landsliðs- þjálfari Argentínu í knatt- spyrnu, var ófeiminn við að upplýsa á blaðamannafundi í gærkvöld nákvæmlega hvernig byrjunarlið Argent- ínu yrði gegn Íslandi á HM í knattspyrnu í Rússlandi í dag. Hann sagðist gera það vegna þess að hann væri löngu búinn að ákveða hvað lið hans ætti að gera. »2 Sampaoli virðist hvergi banginn Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Allt er með ró og spekt á heimili íslenska hafrétt- ardómarans og argentínska diplómatsins í Buenos Aires. Óneitanlega er þó mikil eftirvænting í loft- inu fyrir leik Íslands og Argentínu á HM í dag. Þau Tómas H. Heiðar og eiginkona hans, Fern- anda Millicay, hyggjast horfa á leikinn á risaskjá á torgi í hjarta borgarinnar sem kennt er við San Martin, frelsishetju Argentínu. „Afstaða okkar til leiksins mótast auðvitað af því að við erum bæði mjög stolt af okkar þjóðum og hjörtu okkar munu slá með þeim,“ segir Tóm- as. „Á hinn bóginn hef ég tekið ástfóstri við Arg- entínu, bæði höfuðborgina og ekki síður hina fjöl- breyttu hluta landsins. Fernanda elskar allt sem íslenskt er; lopapeysur, flatkökur með hangikjöti, malt og appelsín, þorskalifur, íslenska náttúru og kaffihúsið Mokka, og hefur lært íslensku hér í Buenos Aires. Það mun auðvelda okkur að takast á við úrslit leiksins, hver sem þau verða.“ Kynntust á hafréttarfundum Fernanda er diplómat í argentínska utanríkis- ráðuneytinu en Tómas er dómari við Alþjóðlega hafréttardóminn í Hamborg og ferðast reglulega til Hamborgar og Íslands. „Við Fernanda kynntumst á hafréttarfundum í Sameinuðu þjóðunum í New York og þurftum oft að takast á í samningaviðræðum á þeim vettvangi. Hún var lögfræðingur fastanefndar Argentínu hjá SÞ í New York í sjö ár en er nú yfirmaður skrif- stofu utanríkisráðuneytisins í Buenos Aires sem fer með málefni suðurskautsins, en Argentína er meðal þeirra sjö ríkja sem gera tilkall til hluta Suðurskautslandsins. Ég kom nokkuð að norður- skautsmálum þegar ég var þjóðréttarfræðingur utanríkisráðuneytisins og segja má að pólarnir hafi sameinast,“ segir Tómas. Fótbolti er lífið sjálft Hann segir að í Argentínu sé fótbolti vinsælli en nokkuð annað og allt sem viðkomi heimsmeistara- mótinu veki athygli. Ísland hafi fengið mikla um- fjöllun og jákvæða landkynningu: „Í Argentínu er mikil ástríða fyrir fótbolta – fótbolti er lífið sjálft. Ég fer oft á völlinn með Fernöndu og systur hennar til að fylgjast með lið- inu okkar, River Plate, og ég hef hvergi upplifað aðra eins stemningu og hér. Riðladrátturinn fyrir HM í Rússlandi var stórviðburður í Argentínu og þegar niðurstaðan lá fyrir beindist kastljós fjöl- miðlanna strax að fyrsta andstæðingnum, Íslandi. Virtasta sjónvarpsstöðin, TN, var með ítarlega umfjöllun um landið á besta áhorfstíma samdæg- urs. Sýndar voru myndir af náttúru landsins og rifjað upp að Jorge Luis Borges, stórskáld Arg- entínu á 20. öld, hafði dálæti á Íslandi, Íslendinga- sögunum og Snorra Sturlusyni. Hann orti ljóð til Íslands, „A Islandia“, þar sem hann nefndi ís- lenska tungu „latínu norðursins“. Ótrúlegur áhugi á Íslandi Áhugi argentínskra fjölmiðla á Íslandi undan- farna mánuði hefur verið ótrúlegur og landið og landsliðið eru ítrekað á forsíðum stærstu dag- blaða hér. Landkynningin er einstök. Hvar sem ég kem og segi til þjóðernis er það fyrsta sem fólk segir: Copa Mundial! Það vita allir af heimsmeist- arakeppninni og leiknum fram undan. Argentínumenn eru mjög jákvæðir gagnvart Íslandi og áhugasamir um það en þrátt fyrir ákveðnar efasemdir um eigið lið eru þeir sigur- vissir. Þeir eru búnir að reikna það út að þeir muni mæta nágrönnum sínum og erkifjendum, Brasilíu, í úrslitaleik keppninnar.“ Upplifa stemninguna Tómas segir að þegar fyrir hafi legið að Ísland og Argentína myndu mætast í fyrsta leik beggja liða hafi þau Fernanda strax áttað sig á að um meiriháttar viðburð í lífi þeirra yrði að ræða. Þau hafi hugleitt að fara til Moskvu en komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri síður spennandi að upp- lifa stemninguna í kringum leikinn í Buenos Aires þar sem allt verður væntanlega á suðupunkti í dag. Að íslenskum tíma hefst leikurinn klukkan 13, en þá er hún 10 að morgni í Buenos Aires. Þá verða Fernanda og Tómas fyrir nokkru mætt með mannfjöldanum á San Martin-torgið. Þar sem pólarnir mættust  Horfa á leikinn á risa- skjá í hjarta Buenos Aires Krefjandi aðstæður Fernanda í treyju íslenska landsliðsins og Tómas í þeirri argentínsku. Gagn- kvæm virðing er borin fyrir andstæðingnum og treyjuskiptin eru leið til að takast á við stöðuna. „Aron er – ég ætla kannski ekki að segja ómetanlegur en hann er gríðarlega mikilvægur fyrir hópinn. Við höfum þurft að spila án hans í svolítinn tíma og mér finnst það hafa sést á liðinu. Á vellinum er hann mikill stjórn- andi, en ekki síður fyrir hóp- inn allan,“ sagði Heimir Hallgrímsson, landsliðs- þjálfari í knatt- spyrnu karla, í gær um fyrirliða íslenska lands- liðsins, Aron Einar Gunnarsson. Hann er tilbúinn í slag- inn við Argent- ínumenn í fyrsta leik Íslands á HM í Rússlandi í dag. »1 Það sést vel þegar Aron Einar er ekki með

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.