Morgunblaðið - 20.06.2018, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 0. J Ú N Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 143. tölublað 106. árgangur
FATAHÖNNUÐUR
HELDUR EINKA-
SÝNINGU EDDA Í BORGARLEIKHÚSINU
KENNIR BÖRNUM
OG FULLORÐNUM
BÚKTAL
LISTAPISTILL 33 CARLA RHODES 12ANÍTA HIRLEKAR 30
Leikskólakrakkar sóttu athöfn sem haldin var í Hólavalla-
kirkjugarði í tilefni kvenréttindadagsins, enda á málefnið er-
indi við unga sem aldna. Í gær voru liðin 103 ár frá því að ís-
lenskar konur fengu kosningarétt og var því fagnað með
athöfn þar sem Dóra Björt Guðjónsdóttir, sem tók síðar um
daginn við embætti forseta borgarstjórnar, lagði blómsveig á
leiði kvenréttindakonunnar Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og flutti
ávarp. „Við megum ekki taka auknu valfrelsi sem sjálfsögðum
hlut því það var ekki fengið ókeypis,“ sagði Dóra Björt. »4
Leikskólabörn lögðu við hlustir í Hólavallakirkjugarði
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Aukning í
holuábúð lunda
mælist í Vest-
mannaeyjum og
víðar í kringum
Suðurland. Þetta
kemur fram í
niðurstöðum ný-
afstaðins lunda-
ralls en því lauk í
Eyjum sl. mánu-
dag. Fækkun mælist á Vesturlandi
en ekki er ljóst hvað veldur. Þetta
segir Erpur Snær Hansen líffræð-
ingur en hann mældi holuábúð á ell-
efu stöðum við strendur landsins.
Erpur hefur stýrt lundarallinu sl.
níu ár en ýmislegt nýtt kom fram í
ár. Hann heldur af stað í aðra
hringferð í lok júlí og athugar
hversu margir ungar hafa komist á
legg. »4
Eyjamenn geta
fagnað rallinu í ár
Á næstu mánuðum verður starf-
semi verkfræðistofunnar Eflu flutt
af Höfðabakka í Reykjavík, en í
byggingunni þar hafa greinst raka-
skemmdir og mygla, sem kallar á
umfangsmiklar viðgerðir. Rýma
þarf húsið af þeim sökum og því
ákvað Eflufólk að færa starfsemina
í hús við Lyngháls. Efla fær því að
kenna á skaðvaldinum sem stofan
hefur barist gegn með viðskipta-
vinum sínum. »4
Efla flýr myglu á
Höfðabakkanum
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Varanleg áhrif af opnun verslunar
Costco hér á landi á sölu á íslensku
grænmeti eru takmörkuð. Þetta seg-
ir Gunnlaugur Karlsson, fram-
kvæmdastjóri Sölufélags garðyrkju-
manna. Telur hann að markaður
fyrir grænmeti hafi stækkað hér á
landi, ekki síst vegna fjölgunar
ferðamanna og breytts neyslu-
mynsturs hjá Íslendingum sem
borða nú meira grænmeti en áður.
Horfur eru almennt góðar í garð-
yrkju í sumar, en veðurfar hefur sett
strik í reikninginn í íslenskri græn-
metisrækt einkum í úti- og korn-
rækt. Vísbendingar eru um að veð-
urfar hafi einnig áhrif á íslenska
neytendur, því þegar vel viðrar virð-
ast Íslendingar ólmir í grænmeti,
miðað við sölutölur Sölufélags garð-
yrkjumanna.
Sala til Danmerkur gengið vel
Útflutningur á tómötum og gúrk-
um til Danmerkur hófst í vetur og að
sögn Gunnlaugs er góð reynsla af
viðskiptunum. Næsta haust verður
útflutningi því fram haldið.
Grænmetið er selt inn á sælkera-
markað sem gæðavara, en heilnæmi
og hreinleiki íslenska grænmetisins
kyndir undir eftirspurninni, að sögn
Gunnlaugs.
Þjóðverjar hafa nú einnig sýnt
áhuga á íslensku grænmeti og út-
flutningur til Þýskalands gæti orðið
að veruleika. „Þetta er 80 milljón
manna markaður og þarna er gríð-
arleg kaupgeta, en við höfum ekki
verið sterk á þessum markaði með
íslenskar vörur. Ég tel að þarna séu
miklir möguleikar í kjöti, fiski og
grænmeti líka,“ segir Gunnlaugur.
Þjóðverjar vilja
íslenskt grænmeti
Takmörkuð áhrif af opnun Costco á sölu á íslensku grænmeti
Grænmeti Vísbendingar eru um að veðurfar hafi áhrif á grænmetisneyslu.
MÁhrifin minni en búist var við »10
Áhugi á Íslandi og íslenska landslið-
inu í knattspyrnu hefur margfaldast
eftir að heimsmeistaramótið í knatt-
spyrnu fór af stað. Mikil umræða
hefur átt sér stað á samfélags-
miðlum auk þess sem greinum á er-
lendum miðlum hefur stórfjölgað.
„Það eru mjög margir að deila og
skrifa efni í kringum landsliðið og
þetta mót. Við höfum t.d. séð að um
3.000% fleiri eru að tala um landið á
Facebook en síðustu helgi,“ segir
Daði Guðjónsson, forstöðumaður
ferðaþjónustu og skapandi greina
hjá Íslandsstofu, og bætir við að ef
vel gangi á mótinu muni áhuginn
aukast enn frekar. »6, 18 og Íþróttir
Morgunblaðið/Skapti
Áhugi Fjölmiðlar ræða við Gylfa.
HM eyk-
ur áhuga
3.000% fleiri ræða
Ísland á Facebook