Morgunblaðið - 20.06.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.06.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2018 Þorgrímur Kári Snævarr Alexander Gunnar Kristjánsson „Það þarf þor og kjark til að velja sjálfa sig. Það er oft á tíðum óþægi- legt. Jafnvel vont. En það er hið rétta.“ Þetta sagði Dóra Björt Guðjóns- dóttir, sem tók við embætti sem for- seti borgarstjórnar síðar sama dag, er hún lagði blómsveig á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í tilefni 103 ára afmælis kosningaréttar kvenna á Ís- landi í gær. „Við megum ekki taka aukið valfrelsi sem sjálfsögðum hlut því það var ekki fengið ókeypis. Það var fengið með blóði, svita og tárum formæðra okkar, Bríetar og margra baráttukvenna og -manna fyrr og síðar. Sú er staðreyndin. Sýnum þakklæti með því að nýta okkur þetta valfrelsi.“ Tónlistarkonan Ólöf Arnalds söng fáein lög eftir ávarpið. Ljósmæður „hrein kvennastétt“ Það voru ekki aðeins orðin tóm sem fóru fram á kvenréttindadegi ís- lenskra kvenna í gær. Facebook- hópurinn „Mæður og feður standa með ljósmæðrum“ stóð fyrir samstöðufundi, til stuðnings kjara- baráttu íslenskra ljósmæðra, sem fór fram í Mæðragarði Reykjavíkur um fimmleytið í gær. Andrea Eyland Björgvinsdóttir, einn stofnenda hópsins, segir fund- inn hafa tekist vel og að aðsókn hafi verið góð. Hún segir það enga til- viljun að kvenréttindadagurinn var valinn fyrir samstöðufundinn. Ljós- mæðrastéttin sé „hrein kvennastétt“ og barátta hennar fyrir ásætt- anlegum kjörum sé nátengd jafn- réttisbaráttunni. Ljósmæður höfn- uðu nýjum kjarasamningi þann 8. júní síðastliðinn með yfirgnæfandi meirihluta um það bil 70% greiddra atkvæða. Í samningnum fólst 4,21% launahækkun en þessa hækkun seg- ir Andrea svívirðilega lága. Samstöðufundurinn var haldinn í aðdraganda nýrra viðræðna sem fara fram í dag milli samninga- nefnda ljósmæðra og ríkisins. Að sögn Áslaugar Valsdóttur, formanns Ljósmæðrafélagsins, verða við- ræður að hefjast frá grunni eftir að fyrri kjarasamningi var hafnað. Að- eins tvær vikur eru þar til uppsagnir nítján ljósmæðra taka gildi. Fleiri uppsagnir munu síðan fylgja í kjöl- farið í ágúst og september að öllu óbreyttu. Þetta myndi höggva mikið skarð í ljósmæðrastétt landsins þar sem aðeins eru um hundrað ljós- mæður starfandi í landinu öllu. Andrea segir að mikilvægt sé að samningar náist sem fyrst og vonar að „ekkert hræðilegt [þurfi] að ger- ast til að ríkisstjórnin taki við sér“. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Blóm Dóra Björg Guðjónsdóttir, forseti borgarstjórnar, lagði blóm á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í gær. Kvenréttindadegi fagnað með orðum og gerðum  Samstöðufundur haldinn til stuðnings kjörum ljósmæðra Morgunblaðið/Valli Samstaða Samstöðufundur stuðningsmanna bættra kjara ljósmæðra fór fram í Mæðragarðinum í gær. Aðsókn var góð á fundinn. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Starfsemi verkfræðistofunnar Eflu verður í sumarlok flutt að Lynghálsi 4 í Reykjavík frá Höfðabakka 9, en í húsinu þar hafa greinst raka- skemmdir og mygla sem kallar á um- talsverðar viðgerðir. Ljóst var að rýma þyrfti húsið meðan á endurbót- um stendur en stjórnendur Eflu töldu betra að flytja í ný húsakynni til langs tíma í stað þess að færa sig um stundarsakir. Skynsamlegt að flytja „Það er talsverð fyrirhöfn að flytja 300 manna vinnustað. Að koma sér fyrir til lengri tíma í nýju húsi var að okkar mati það skynsamlegasta í stöðunni,“ sagði Guðmundur Þor- björnsson, framkvæmdastjóri Eflu, í samtali við Morgunblaðið. „Við för- um í gott fimm hæða hús og fáum 7.500 fermetra og munum væntan- lega stækka við okkur þarna í fyll- ingu tímans.“ Gert verður við Höfðabakkahúsið Um Höfðabakkann, þar sem Efla hefur verið sl. átta ár, segir Guð- mundur að þegar raki og mygla greinast í byggingum sé slíkt alltaf varhugavert með tilliti til heilsu fólks, sem getur fundið fyrir óþæg- indum. Má í því sambandi nefna hús sem hefur þurft að rýma vegna skemmda, t.d. Íslandsbankahúsið við Kirkjusand, ráðuneyti í Hafnar- húsinu og nýbyggingu við barna- og unglingageðdeild Landspítala við Dalbraut. Guðmundur segir að gert verði við bygginguna á Höfðabakka sem áfram mun nýtast til eðlilegrar starfsemi í framtíðinni, þó Efla fari á Lynghálsinn í húsnæði sem er leigt af verktakafyrirtækinu Eykt. Efla flytur út úr mygluhúsi Morgunblaðið/Valli Efla Starfsemin verður í sumarlok flutt að Lynghálsi 4 í Reykjavík frá Höfðabakka 9, en í húsinu þar hafa greinst rakaskemmdir og mygla.  Rakaskemmdir og mygla á Höfðabakka  Varahugavert fyrir heilsu fólks  300 manna vinnustaður verður fluttur á Lyngháls í 7.500 fermetra hús Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Þetta gekk nú frekar brösulega. Það var skítkalt og rok og rigning fyrir norðan,“ segir Erpur Snær Hansen, starfandi forstöðumaður Náttúru- stofu Suðurlands, en hann hefur síð- an árið 2010 séð um árlegt lundarall fyrir allt landið. „Það er talsvert mikil hækkun ábúðar í Eyjum,“ segir Erpur en holuábúð hækkaði úr 55% í fyrra í 68% í ár. Hæst hefur hlutfallið í Vest- mannaeyjum verið 74% og eru þetta því gleðitíðindi fyrir Eyjafólk, segir Erpur og bætir við: „Þetta er mjög mikil hækkun úr 55% þannig það er líklega eitthvað að gerast.“ Erpur fór að vanda fyrir flokki leið- angursfólks en rallið hófst í Akurey 4. júní síðastliðinn og lauk í Vestmanna- eyjum í fyrradag. Fram fóru mæling- ar á níu öðrum stöðum en hætta þurfti við mælingar í Drangey vegna veðurs. Erpur segir ýmsar ályktanir mega draga af nýafstöðnum mælingum, sem sýna ýmislegt sem ekki hefur komið fram áður. „Ábúð stendur í stað alveg frá Papey fyrir austan og yfir í Grímsey fyrir norðan en síðan er lækkun á Norðvestur- og Vestur- landi,“ segir Erpur en sem dæmi má nefna að um 13 prósentustiga lækkun mældist í Grímsey á Steingrímsfirði. „Núna skilja vesturlandið og suð- urlandið sig í sundur. Núna er til dæmis aukning hér fyrir sunnan á meðan það er niðursveifla fyrir vest- an. Það höfum við ekki séð áður,“ seg- ir Erpur. Hann segir þó gaman að sjá svo skýran aðskilnað á milli lands- hluta og bætir við: „Núna ættum við þá að geta leitað uppi hvað er öðruvísi milli þessara landshluta núna í ár en hefur verið.“ Erpur og félagar fara í aðra hring- ferð í lok júlí og athuga þá hversu margir lundaungar hafa komist á væng. Fjölgun lunda í Eyjum og víðar  Skilur á milli Vesturlands og Suðurlands Óákveðinn Lækkun mælist á Vest- urlandi en hækkun fyrir sunnan. Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir hefur verið end- urskipuð í emb- ætti fram- kvæmdastjóra Lánasjóðs Ís- lenskra náms- manna (LÍN). Þetta kemur fram í tilkynn- ingu á vef Stjórn- arráðs Íslands. Lilja Alfreðsdóttir mennta- málaráðherra skipaði í mars verk- efnastjórn um endurskoðun á lög- um um LÍN. Búast má við upplýsingum um fyrstu áform verk- efnastjórnarinnar nú í sumar. Með- al álitaefna sem verkefnastjórnin mun taka til skoðunar er hvers kon- ar nám skuli vera lánshæft, hvernig vöxtum og endurgreiðslu skuli háttað hjá sjóðnum, og fjármögnun hans. Áfram fram- kvæmda- stjóri LÍN Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.