Morgunblaðið - 20.06.2018, Qupperneq 6
Í KABARDINKA
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu kemur til Volgo-
grad í Rússlandi síðdegis í dag vegna lokaundirbúningsins
fyrir leikinn gegn Nígeríu á HM á föstudaginn. Í Volgo-
grad á bökkum Volgu er heitt í veðri og moskítóflugur á
svæðinu eru með allra mesta móti. Víðir Reynisson, ör-
yggisstjóri KSÍ, sagði við Morgunblaðið í gær að íslenski
hópurinn væri tilbúinn til að takast á við slíkar aðstæður.
„Við fengum þær upplýsingar eftir læknaráðstefnu í
febrúar að við gætum lent í þessum aðstæðum. Þá rædd-
um við þetta mjög ítarlega við strákana í Bandaríkjaferð-
inni í mars og brýndum fyrir þeim að vera viðbúnir þessu.
Þetta virðist vera að ganga eftir og flugurnar núna eru
með því mesta sem þeir hafa séð mjög lengi í Volgograd.
Við gerðum því strax ráðstafanir og erum með allan búnað
til að takast á við flugurnar. Nóg af rafmagnsfælum til að
setja í herbergin, batteríisfælur til að ganga með á sér og
sprey sem á að vernda fólk fyrir biti.
Fyrsta markmið hjá okkur var að gera allt sem við
gætum til að koma í veg fyrir bit. Fælurnar eiga að virka
vel, þær eru sagðar hrekja flugurnar í burtu í dálítinn rad-
íus. Síðan erum við með svokallaða eftirbitspenna til að
bregðast við og bera á bitsárin og einnig ofnæmistöflur og
lyf ef upp kemur ofnæmi hjá einhverjum,“ sagði Víðir.
„Við sáum vel í sjónvarpsútsendingunni frá leik Eng-
lands og Túnis í Volgograd að það safnaðist ótrúlega mikið
af flugum í kringum leikmennina og þegar þeir námu stað-
ar var ský í kringum höfuðin á þeim.“
Hann telur að stuðningsfólk íslenska landsliðsins sem
mætir á leikinn í Volgograd þurfi ekki að setja þetta
flugnafár fyrir sig.
„Nei, það á enginn að hætta við út af þessu. Aðalmálið
er að vera vel undir aðstæðurnar búinn og gæta að því
sama og við höfum brýnt fyrir leikmönnunum. Ekki opna
út á svalir, gæta sín sérstaklega vel í ljósaskiptunum þeg-
ar flugurnar eru ágengastar, vera með ljós inni á baði á
nóttunni til að flugurnar sæki frekar þangað, spreyja rúm-
ið sitt, lakið, sængina og allt í kring. Þetta getur verið
mjög pirrandi en aðalmálið er að láta flugurnar ekki angra
sig of mikið. Þær verða sveimandi í kringum allt og alla,“
sagði Víðir.
Með allt til að takast á við
flugurnar í Volgograd
Moskítófaraldur er með allra mesta móti á svæðinu
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Öryggisstjóri Víðir Reynisson segir liðið undirbúið fyr-
ir flugurnar sem nóg er af í Volgograd þessa dagana.
6
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2018
Framtak-Blossi er umboðsaðili
fyrirVOLVO PENTA á Íslandi
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
Framtak-Blossi
kappkostar að bjóða
góða þjónustu og
sanngjarnt verð á
varahlutum.
Hafið samband við
Hafþór í síma 895-3144
eða hafthor@blossi.is
Fjöldi fyrirtækja
mun setja upp
stóra skjái og þó-
nokkuð er um að
lokað verði fyrr
þegar leikur Ís-
lands gegn Níg-
eríu á HM fer
fram klukkan 15
á föstudag. Ís-
lands- og Lands-
banki hafa báðir
sent frá sér tilkynningu þess efnis
að öllum útibúum og þjónustuveri
verði lokað fyrr á föstudag svo
starfsfólk geti fylgst með leiknum
heima hjá sér. Ekki fengust upplýs-
ingar frá Arion banka hvort lokað
yrði fyrr þar.
Opið verður í verslunarmið-
stöðvum meðan á leiknum stendur
en samkvæmt upplýsingum frá
Kringlunni og Smáralind verður
leiknum varpað upp á skjá. „Við
munum sýna leikinn á öllum setu-
svæðum hér á göngugötunni og
fjölmargar verslanir og veitinga-
staðir eru einnig með skjái hjá sér.
Gestir Smáralindar og starfsmenn
geta því horft á leikinn á fjölmörg-
um stöðum í húsinu og skemmtileg
stemning er víða hér meðan á leik
stendur,“ segir Tinna Jóhanns-
dóttir, markaðsstjóri Smáralindar,
en að sögn Tinnu lagði talsverður
fjöldi fólks leið sína í Smáralind
þegar leikur Íslands gegn Argent-
ínu fór fram.
Samkvæmt upplýsingum frá for-
sætisráðuneytinu verður ráðuneyt-
inu ekki lokað fyrr en starfsmenn
munu þó fylgjast saman með leikn-
um í vinnunni. „Við lokum klukku-
tíma eftir að leikur hefst og ég held
að það verði hörkustemning hjá
okkur. Fólk ræður síðan hvort það
klárar leikinn hér eða tekur seinni
hálfleikinn heima,“ segir Lára
Björg Björnsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi forsætisráðuneytisins.
aronthordur@mbl.is
Varpað á
skjá eða
lokað fyrr
Ráðstafanir gerð-
ar vegna landsleiks
Lára Björg
Björnsdóttir
Í KABARDINKA
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Strandbærinn við Svartahaf, þar
sem íslenska landsliðið í fótbolta
dvelur meðan á HM stendur, utan
dagana sem það skreppur burt til að
keppa, er ekki frábrugðinn öðrum
slíkum að neinu leyti nema tungu-
málinu. Hér er fjöldi ferðamanna,
en eingöngu Rússar.
Íbúar Kabardinka eru sagðir um
8.000 en stutt er yfir til borgarinnar
Gelendzhik þar sem búa tæplega
60.000 manns.
Þeir sem hafa dvalið í strandbæj-
um á Spáni, Frakklandi, Ítalíu og
víðar þekkja litlu búðirnar sem selja
sólarvörn, vindsængur, inniskó og
þar fram eftir götunum. Veitinga-
staði við göngugötuna. Þetta er allt
hér, eins og nærri má geta. Og ekki
er sólin síðri en annars staðar;
sterkari ef eitthvað er og mætti
jafnvel aðeins lækka á henni risið en
svalur vindur bjargar stundum því
sem bjargað verður. Sú gula skein
skært til hádegis í fyrradag þegar
við tók mikil rigning, þrumur og
eldingar. Landsliðið var í fríi og
menn höfðu hugsað sér til hreyfings
en fæstir létu verða af því. Nokkrir
fóru þó í hjólatúr og fjórir gerðu
sér ferð í hádeginu á hótelið í
Glendzhik þar sem sænska lands-
liðið býr. Þar er frábær veitinga-
staður. Svíarnir voru ekki heima
heldur að vinna Suður-Kóreumenn í
Nishnij Novgorod.
Í gær var allt komið í hefðbund-
inn farveg. Sól var hátt á lofti og
ský ekki að þvælast fyrir. Straum-
urinn lá á ströndina en ekki í hina
áttina eins og um hádegisbil í fyrra-
dag.
Morgunblaðið/Eggert
Ferðamannafjöldi Kabardinka er vinsæll sumarleyfisstaður meðal Rússa, eins og fleiri bæir í veðursældinni við Svartahafsströnd þessa víðfeðma lands.
Paradís rússneskra sóldýrkenda
Ísland Ekki fer fram hjá neinum, sem leggur leið sína niður á strönd í Kab-
ardinka, og þeir eru margir, að eitt HM-liðanna hefur aðsetur í bænum.
Vinsæll Margir láta mynda sig við
úlfinn Zabivaka, lukkudýr HM.
Erling Ólafsson, skordýrafræðingur, vill meina að for-
svarsmenn landsliðsins hafi farið með rangt mál und-
anfarna daga. Mikið hefur verið rætt og ritað um
hættuna á bitum moskítóflugna í leik Íslands gegn Níg-
eríu. Að mati Erlings er þó einungis um saklaust
rykmý að ræða en ekki moskítóflugur.
„Hvaða óhemjugangur er þetta út af nokkrum flug-
um suðaustur í Volgógrað? Það sem ég greini af mynd
er svermur rykmýs. Almeinlaus kvikindi ...“ skrifaði Er-
ling á Twitter. Ef svo vill til að um moskítóflugur sé að
ræða geta stuðnings- og landsliðsmenn Íslands í Rúss-
landi sofið rótt enda hverfa bitin á nokkrum dögum.
Rykmý en ekki moskítóflugur