Morgunblaðið - 20.06.2018, Side 8

Morgunblaðið - 20.06.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2018 Björn Bjarnason skrifar: „Aug-ljóst er að Ríkisútvarpið nýt- ir nú yfirburði sína á sjónvarps- markaðnum til að sópa til sín eins miklu fé og frekast er unnt með auglýsingum í tengslum við HM í knattspyrnu í Rússlandi.    Frásagnir for-ráðamanna annarra fjölmiðla af stöðu sinni gagnvart þessum miðli sem fær 4,1 milljarð í skatttekjur á ári sýna hve samkeppnisstaða þeirra er ömurleg þegar um slíkan stór- viðburð er að ræða og auglýs- ingaryksuga ríkismiðilsins er sett á fullt.    Hitt er svo annað mál að ekk-ert verður við þetta ráðið enda benda svör opinberra eftir- litsaðila til þess að þeir ætli, jú, að kynna sér málið en að nokkuð gerist með mótvægisaðgerðum gegn ofuraflinu er ólíklegt. Spurning er hvort allt það fé sem aflað er á þennan hátt rennur að- eins til þess að standa undir kostnaði við miðlun mynda og frétta af HM eða hvort einhverjir brauðmolar nýtist til að bæta dagskrána almennt. Hlustunin á rás 1 og rás 2 er að jafnaði dap- urleg. Þar virðist líka allt ganga af gömlum vana.    Þótt gert sé út á fyrirtæki viðöflun auglýsingatekna leggur ríkisútvarpið sig til dæmis ekkert fram um að flytja viðskiptafrétt- ir. Fréttastofa þess hefur kannski aldrei verið fjær því að flytja slíkar fréttir en nú. Áhugi hennar beinist fyrst og síðast að stöðu hins opinbera og sá vinnustaður sem þar er oftast til umræðu er Landspítalinn, má segja að fréttir af honum séu fastur liður eins og venjulega.“ Björn Bjarnason Stjórnlaus fíll í postulínsbúð STAKSTEINAR Veður víða um heim 19.6., kl. 18.00 Reykjavík 6 rigning Bolungarvík 7 léttskýjað Akureyri 9 léttskýjað Nuuk 5 léttskýjað Þórshöfn 9 skýjað Ósló 20 heiðskírt Kaupmannahöfn 19 heiðskírt Stokkhólmur 20 heiðskírt Helsinki 13 þrumuveður Lúxemborg 21 skýjað Brussel 20 skýjað Dublin 22 skýjað Glasgow 14 skýjað London 23 alskýjað París 21 skýjað Amsterdam 19 léttskýjað Hamborg 20 léttskýjað Berlín 23 skýjað Vín 28 heiðskírt Moskva 20 skúrir Algarve 25 léttskýjað Madríd 28 heiðskírt Barcelona 26 léttskýjað Mallorca 27 léttskýjað Róm 28 skýjað Aþena 28 léttskýjað Winnipeg 22 skýjað Montreal 19 léttskýjað New York 27 léttskýjað Chicago 24 þoka Orlando 29 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 20. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:55 24:05 ÍSAFJÖRÐUR 1:35 25:35 SIGLUFJÖRÐUR 1:18 25:18 DJÚPIVOGUR 2:10 23:49 „Í þessu tilviki er um að ræða málefni Vaðlaheiðarganga og íslenska ríkisins og það tengist okkur ekki.“ Þetta seg- ir Guðjón Helgason, upplýsinga- fulltrúi Isavia, spurður út í meinta skuld fyrirtækisins við Vaðlaheiðar- göng hf. Eins og Rúv greindi frá á mánudag hafa Vaðlaheiðargöng ehf. ekki fengið greiddar um 50 milljónir króna vegna flutninga á jarðefni úr göngunum í nýtt flughlað á Akureyrarflugvelli. Málið teygir sig aftur til upphafs framkvæmda við Vaðlaheiðargöng en í upphaflegri kostnaðaráætlun við gerð ganganna var gert ráð fyrir flutningi umframefnis til hins nýja flughlaðs. Þetta segir Valgeir Berg- mann, framkvæmdastjóri Vaðlaheið- arganga hf., en framkvæmdir við flug- hlaðið hafa gengið hægt þrátt fyrir að efni hafi fengist gefins frá Vaðlaheið- argöngum. „Við erum komnir með ókeypis efni sem kostar kannski fjög- urhundruð milljónir ef það þyrfti að borga fyrir það,“ segir Valgeir en vegna lítilla fjárveitinga til fram- kvæmda við hlaðið hafa Vaðlaheiðar- göng hf. ekki fengið greitt fyrir flutn- ing jarðefnisins. „Auðvitað erum við hræddir um að þetta verði aldrei borgað en um leið og það kemur fjár- veiting á samgönguáætlun munum við banka,“ segir Valgeir. teitur@mbl.is Málið á milli ríkisins og ganganna  Isavia tengist ekki máli Vaðlaheiðar- ganga  50 milljónir ógreiddar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Framkvæmdastjóri Valgeir Berg- mann og Vaðlaheiðargöng. Vísitala íbúða- verðs á höfuð- borgarsvæðinu hækkaði um 1,1% milli mánaða í maí, samkvæmt nýjum tölum Þjóðskrár Ís- lands. Verð fjöl- býlis hækkaði um 0,4% milli apríl og maí og sérbýli hækkaði um 2,8%. Svo mikil hækkun á sérbýli hefur ekki sést á milli mán- aða síðan í mars 2017 en þá hækkaði verð á sérbýli um 3,3% á milli mán- aða, segir í fréttatilkynningu frá Íbúðalánasjóði. Vísitala íbúðaverðs hefur nú hækkað um 4,6% undanfarna 12 mánuði. Áfram hægir á 12 mánaða hækkunartakti íbúðaverðs og hefur hann ekki mælst minni síðan í mars 2013. Raunverð íbúða, þ.e. vísitala íbúðaverðs í hlutfalli við vísitölu neysluverðs, hækkaði um 1,1% á milli mánaða. Í maí í fyrra nam 12 mánaða hækkun raunverðs 21,5% en er nú 2,5%. 703 kaupsamningum um íbúðir á höfuðborgarsvæðinu var þinglýst í maí. Á fyrstu fimm mán- uðum ársins var 2.920 kaupsamn- ingum þinglýst á svæðinu, yfir sama tímabil í fyrra voru þeir 2.904. Íbúðaverð hækkar  12 mánaða hækk- un íbúðaverðs 4,6%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.