Morgunblaðið - 20.06.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 20.06.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2018 Sterkir í stálinu Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar Svört- og ryðfrí rör og fittings Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur POM öxlar • PE plötur Lokar af ýmsum gerðum Opið virka daga kl. 8-17 Skútuvogi 4, Rvk Rauðhellu 2, Hafnarfirði Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is Láttu birtuna ekki trufla þig Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is PLÍ-SÓL GARDÍNUR Frábær lausn fyrir hallandi og óreglulega glugga Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 alnabaer.is Toyota Yaris Active Hybrid að verðmæti kr. 2.970.000 hvor bifreið Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra þakkar landsmönnum veittan stuðning og óskar vinningshöfum til hamingju. Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrifstofu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra að Háaleitisbraut 13, Reykjavík, sími 535 0900. Vinningaskrá er einnig birt á heimasíðu félagsins www.slf.is 5185 49495 5065 6535 20366 48317 58979 63 600 1051 2842 3036 3984 4637 5889 6957 8570 8840 9718 10151 11289 12953 13677 14258 14348 14729 15928 16230 17170 18044 18307 19180 19298 19615 19920 20857 21001 22976 24980 26356 26669 29069 29445 29856 30646 30682 31332 32292 32717 32935 32994 33278 34321 35968 36349 36600 38310 38328 38542 38928 38968 39123 39194 39587 39838 40624 41242 41849 41928 43175 43666 43955 45512 46709 47595 47982 48408 48449 49755 50872 50949 52617 52740 53042 53386 53580 53847 53978 54505 54842 55181 55362 57325 57553 57999 58499 58686 60650 60676 60797 61186 61795 62121 63575 63904 63907 63951 64198 66106 68540 70892 71692 72228 72435 72506 73809 74228 74874 75440 76148 78440 78546 78769 78951 79083 Ferðavinningur að upphæð kr. 600.000 hver vinningur Ferðavinningur að upphæð kr. 300.000 hver vinningur Sumarhappdrætti 2018 Dregið hefur verið í sumarhappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Vinningar komu á eftirtalin númer: Alexander Gunnar Kristjánsson Þorgrímur Kári Snævarr Ný rannsókn vísindamanna við Há- skóla Íslands og Karolinska Institu- tet í Stokkhólmi hefur leitt í ljós al- varlegar afleiðingar sem áfallastreituröskun getur haft fyrir fólk. Samkvæmt rannsóknarniður- stöðunum er fólk sem glímt hefur við áfallastreituröskun í aukinni hættu á að greinast með sjálfsónæmissjúk- dóma. Niðurstöður rannsóknarinnar birtust í tímariti bandaríska lækna- félagsins, Journal of the American Medical Association, í fyrradag. Þrjátíu ár rannsökuð Rannsóknin byggðist á sænskum heilsufarsgagnagrunnum sem spönnuðu þrjátíu ár en í gögnunum voru um 100.000 manns greindir með áfallastreituröskun og annars konar streitu tengda áföllum. Samanburð- ur við systkini umræddra og óskylt fólk af sama aldri og kyni leiddi í ljós að fólk með áfallastreitu var 30-40% líklegra til þess að greinast með sjálfsónæmissjúkdóma. Meðal sjúk- dómanna sem umrætt fólk var lík- legra til að greinast með má nefna sykursýki I, lúpus, MS, Addison- og Crohnssjúkdóm. Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands, og nýdoktorinn Huan Song fóru fyrir rannsókninni. Unnur segir þessa rannsókn vera fyrsta skiptið sem sýnt hafi verið fram á tengsl áfallastreitu við áhættu á sjálfs- ónæmissjúkdómum þótt áður hafi verið vitað að streita geti raskað ónæmiskerfinu. Niðurstöðurnar séu því mikilvægur áfangi. Kynning fer fram á rannsóknarniðurstöðunum í Tjarnarsal Íslenskrar erfðagrein- ingar á hádegi þann 22. júní. Tengsl áfallastreitu og sjálfsónæmissjúkdóma  Áfallastreittir í 30-40% meiri hættu á sjálfsónæmi Rannsókn Niðurstöður verða kynnt- ar hjá Íslenskri erfðagreiningu. Þorsteinn Friðrik Halldórsson Þorgrímur Kári Snævarr „Þolinmæðin er að þrotum komin.“ Þetta sagði Ásdís Gunnarsdóttir, fyrrverandi starfsmaður Lands- bankans, en nærri fimmtíu eftir- launaþegar Lífeyrissjóðs banka- manna mættu í Landsbankann í Austurstræti í gærmorgun til þess að skora á yfirvöld bankans. Ástæða áskorunarinnar er meint- ur forsendubrestur sem hefur leitt til þess að lífeyrir sjóðsfélaga var skertur um tæp 10% árið 2015 og kann að verða enn frekar skertur á næstunni. Skerðing hafi orðið á líf- eyrinum þrátt fyrir að sjóðurinn hafi í gegnum árin verið rekinn með ávöxtun umfram þau 3,5% sem áætl- að er að séu nauðsynleg til að halda greiðsluhæfni. Áskorunin felur í sér að aðildarfélög sjóðsins semji við stjórn lífeyrissjóðsins um að bæta forsendubrestinn. Skökk reikniformúla Ásdís segir að sjóðsfélögum hafi verið lofað að þeir myndu ekki hljóta fjárhagsskaða af því þegar ríkis- trygging var afnumin á sjóðnum fyr- ir tuttugu árum. Halli hafi hins veg- ar komið á sjóðinn vegna skakkrar reikniformúlu sem farið var eftir í gerð sjóðsins. Í reikningnum var miðað við 65 ára eftirlaunaaldur en ekki 60 ára aldur eins og algengara er nú meðal lífeyrisþeganna. Að sögn Ásdísar er óumdeilt að reikni- formúlan sé röng og segir hún það liggja í augum uppi að bankinn hefði átt að borga mismun inn í sjóðinn til að koma í veg fyrir hallann. Ásdís segir að lífeyrisþegarnir vilji heldur semja við bankann en halda út í tímafrek og kostnaðarsöm málaferli gegn honum. Kjartan Sig- urgeirsson, fyrrverandi starfsmaður Reiknistofu bankanna, tók í sama streng og sagði að áskorunin sýndi vilja hópsins til að forðast langvinn- an málarekstur. Hann sagði þó að kæmi til þess að málið færi fyrir dóm mundi hópurinn hvergi víkja heldur leiða málið til lykta. „Einlæg von okkar er sú að hjá þessu verði komist og sest verði að samningum og þeim lokið sem fyrst.“ Konur meirihluti sjóðsfélaga Ásdís segir kvenréttindadag Ís- lendinga hafa verið valinn fyrir af- hendingu áskorunarinnar þar sem 70% sjóðsfélaga séu konur sem hafi starfað mestalla starfsævi sína hjá bankanum. Hreiðar Bjarnason, framkvæmda- stjóri fjármála hjá Landsbankanum, sem tók við áskorunarbréfinu af Ás- dísi, segir að Landsbankinn líti ekki svo á að hann sé ábyrgur fyrir skuldbindingum sjóðsins. Þar af leiðandi geti lífeyrisþegarnir ekki gert lögvarða kröfu á hendur bank- anum. Skorað á yfirvöld Landsbankans  Eftirlaunaþegar Lífeyrissjóðs bankamanna krefjast leiðréttingar á forsendubresti og hóta ella dóms- máli  Röng reikniformúla notuð til að reikna út eftirlaunagreiðslur til fyrrverandi starfsfólks bankans Morgunblaði/Arnþór Birkisson Áskorun Eftirlaunaþegar Lífeyrissjóðs bankamanna í Landsbankanum í Austurstræti þann 19. júní við afhendingu áskorunar um leiðréttingu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.