Morgunblaðið - 20.06.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 20.06.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2018 Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Miklu meira en bara ódýrt! Lyklahús Sláttuorf 3.495 5.495 rrulás 1.995 1.995 7.995 4.995 3.995 3.995 Kerrulás Hjólastandur á bíl 1.995 Tjaldstæðatengi Tengi 12v í 230v Hraðsuðuketill 12v USB 12v tengi LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 GENUINE SINCE 1937 Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Með gildistöku reglugerðar um lyfjaávísanir og afgreiðslu lyfja frá 1. júlí nk. verður afgreiðsla lyfja sem innihalda amfeta- mín og metýlfení- dat takmörkuð við lyfjaskírteini Sjúkratrygginga Íslands (SÍ), skv. frétt á vef ADHD-samtak- anna. Markmiðið sé að sporna við mis- notkun lyfjanna. Engar breytingar verða þó gerðar á ávísunum eða af- greiðslu lyfja sem innihalda atomox- etin, t.d. lyfin Strattera og Atomeox- etine Sandoz. Ef fólk tekur lyf sem innihalda metýlfenídat, til dæmis Concerta, Rítalín eða annað samheitalyf, þarf að vera með gilt lyfjaskírteini frá Sjúkratryggingum Íslands. Þeir sem nota lyfin þurfa að hafa gilt skírteini frá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ), og þurfa að sækja þau oftar í apótek. Lyfin verða aðeins afgreidd til 30 daga í senn á minnst 25 daga fresti. Gæta þarf að því að börn sem lyfin eru keypt fyrir séu með gilt lyfja- skírteini. Tilvísun hjá ADHD-teymi Þeir sem taka ADHD-lyf sem inni- halda metýlfenídat, en eru ekki með formlega greiningu frá geðlækni eða ADHD-teymi Landspítalans (LSH), þurfa að hafa samband við geðlækni eða fá tilvísun heimilislæknis til ADHD-teymis LSH. Geðlæknir tek- ur ákvörðun um hvort sótt sé um lyfjaskírteini til Sjúkratrygginga Ís- lands, eftir formlega greiningu. Frá og með 1. júlí nk. verða metýlfení- datlyf ekki afgreidd nema með lyfja- skírteini frá SÍ og erlendar lyfjaávís- anir verða ekki lengur teknar gildar vegna umræddra lyfja. „Að hluta til eru þessar reglur til bóta en við höfum samt sem áður áhyggjur vegna mála sem reglugerð- in leysir ekki,“ segir Vilhjálmur Hjálmarsson, varaformaður ADHD- samtakanna, í samtali við Morgun- blaðið. Þar nefnir hann þá hópa fólks sem ekki eru með formlega grein- ingu frá geðlækni eða ADHD-teymi LSH, heldur hafa fengið greiningu hjá sjálfstætt starfandi sálfræðing- um og lyfin ávísuð af heimilislækni í framhaldinu. „Biðtíminn eftir formlegri grein- ingu hjá ADHD-teymi LSH er um 30 mánuðir og biðtími eftir viðtalstíma hjá geðlækni er á bilinu hálft til eitt ár, þannig að þessi hópur mun lenda í erfiðleikum. Þá er eftir að nefna sérstaklega fólk sem flyst til Íslands eftir dvöl erlendis og fanga,“ segir Vilhjálmur sem vonast til að eitthvað verði þá amk. gert til að stytta bið- tímann eftir formlegri greiningu. Margir munu ekki fá lyfin sín  Formleg greining á Íslandi skilyrði frá og með næstu mánaðamótum fyrir afgreiðslu ADHD-lyfja  Framvísa þarf Sjúkratryggingaskírteini  Ekki má afgreiða lyfin nema til eins mánaðar í senn Vilhjálmur Hjálmarsson. Ljósmynd/Frikki ADHD-lyf Ritalin Uno er eitt þeirra lyfja sem inniheldur metýlfenídat og mun því reglugerðin hafa áhrif á afgreiðslu þess um næstu mánaðamót. Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Sveitarfélagið Langanesbyggð bætt- ist í þann hóp sveitarfélaga sem taka þátt í verkefninu Heilsueflandi sam- félag þegar samningur þess efnis var undirritaður í félagsheimilinu Þórs- veri á Þórshöfn nýverið. Alma Möller landlæknir sagði þar frá verkefninu sem um 30 sveitar- félög taka nú þátt í en einnig kynnti Þorsteinn Ægir Egilsson, oddviti Langanesbyggðar, stefnu sveitarfé- lagsins og fyrirætlanir varðandi verk- efnið. Frumkvæði að þátttöku Langanes- byggðar í verkefninu átti velferð- arnefnd sveitarfélagsins og fékk til- laga nefndarinnar um aðild einróma samþykki og var gert ráð fyrir verk- efninu á fjárhagsáætlun þessa árs. Í vor var skipaður stýrihópur til að halda utan um verkefnið en markmið þess að vera heilsueflandi samfélag er að vinna að bættri heilsu allra. Sveitarfélög geta þar haft marg- vísleg áhrif á heilsu og lífsstíl íbúanna og má nefna að Langanesbyggð hefur hafið endurbætur á göngustígum á Þórshöfn og einnig ráðist í mikla end- urnýjun og lagfæringu á íþrótta- miðstöðinni. Frístundastyrkir til ung- menna, eldri borgara og öryrkja eru einnig liður í aðgerðum sveitarfé- lagsins sem geta stuðlað að aukinni hreyfingu íbúa og þar með bættri heilsu íbúa til lengri tíma litið. Sagði Þorsteinn fjölmörg önnur verkefni einnig vera á prjónunum hjá sveitarfélaginu og verða þau kynnt síðar. Heilsueflandi Langanesbyggð Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Langanesbyggð Alma Möller landlæknir og Elías Pétursson, sveitarstjóri. Guðlaugur Þór Þórðarson utanrík- isráðherra leiddi umræður um við- skiptamál á fundi með utanríkis- ráðherrum Norðurlandanna, Eystrasaltsríkja og Visegradríkj- anna svonefndu (Póllands, Ung- verjalands, Slóvakíu og Tékklands). Meðal dagskrárefna á fundinum var staða ríkjanna gagnvart Rúss- landi, öryggis- og varnarmál, sam- skipti við Bandaríkin og þróun mála í Evrópu. Í umræðum um samskipti við Bandaríkin sagði Guðlaugur Þór samskiptin vestur um haf mikilvægari en oft áður á tímum óvissu og áskorana í al- þjóðamálum. Þá minnti hann á mikilvægi frjálsra viðkipta og gildi fyrirsjáanlegra leikreglna í alþjóða- viðskiptum. Í umræðum um við- skiptatengsl ríkja undirstrikaði Guðlaugur Þór jafnframt mikilvægi Atlantshafstengslanna sem ættu sér langa sögu. Einnig spruttu upp umræður um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Sagði Guð- laugur Þór fundinn mikilvægan þar sem ólík sjónarmið hefðu komið fram. „Það er gagnlegt að eiga slík samtöl sem endurspegla þá gerjun og þróun sem á sér stað í Evrópu,“ sagði utanríkisráðherra. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið Ráðherra leiddi viðskiptaumræður  Ráðherrar funduðu í Stokkhólmi Umræður Samskipti við Bandaríkin voru meðal dagskrárefna á fundinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.