Morgunblaðið - 20.06.2018, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 20.06.2018, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2018 Mest seldu ofnar á Norðurlöndum áreiðanlegur hitagjafi 10 ára ábyrgð Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Kínverjar hafa sakað Donald Trump, bandaríkjaforseta, um „fjár- kúgun“ vegna aðgerða hans gegn Kína í tollamálum, en hann sagðist á mánudag hafa farið þess á leit við tollyfirvöld í Bandaríkjunum að tíu prósenta innflutningstollur yrði lagður á innfluttan varning frá Kína að verðmæti 200 milljarðar Banda- ríkjadala. Einnig lýsti Trump því yfir að ef Kínverjar hækkuðu tolla sína yrðu tollar lagðir á varning að verðmæti 450 milljarða bandaríkjadala, meg- inhluta innflutnings Kínverja til Bandaríkjanna. „Bandaríkin í forgangi“ Í síðustu viku lögðu Bandaríkin 25 prósenta innflutningstoll á varning frá Kína, að andvirði 50 milljarða bandaríkjadala. Telja má ljóst að ríkin tvö séu á barmi tollastríðs, en Kínverjar hóta hefndaraðgerðum vegna aðgerða Trumps. „Þessi mikli þrýstingur og fjár- kúgun er í bága við traust samkomu- lag ríkjanna sem náðist með löngum og ströngum tvíhliða viðræðum í tollamálum. Aðgerðir Bandaríkja- forseta koma illa við alþjóðasam- félagið,“ sagði Zhong Shan, við- skiptaráðherra Kína, í gær. „Ef Bandaríkin taka órökréttar ákvarð- anir um aukna tolla þá neyðumst við til þess að bregðast við og grípa til aðgerða af sama toga,“ sagði hann. Síðustu mánuði hafa viðræður staðið yfir milli ríkjanna tveggja og hafa Kínverjar gefið vilyrði fyrir því að eiga frekari viðskipti við Banda- ríkin, fyrir um 70 milljarða dala, í því skyni að minnka mikinn jákvæðan viðskiptahalla þeirra gagnvart Bandaríkjamönnum. Trump hafði ætlast til meira af Kínverjunum, við- skipta fyrir um 200 milljarða dala. Aðgerðirnar eru hluti verndar- tollastefnu Trump, „Bandaríkin í forgangi“, en hann hyggst með henni endurreisa efnahag Bandaríkjanna. Trump hefur farið mikinn í upp- hafi forsetatíðar sinnar hvað tolla- mál varðar og eru samskipti hans við leiðtoga helstu ríkja Evrópu og Kan- ada einnig í uppnámi vegna nýrra innflutningstolla. Tollastríð er yfirvofandi  Bandaríkin og Kína á barmi tollastríðs  Trump vill sérstaka tolla á meginhluta innflutnings frá Kína  Kínverjar líta á innflutningstolla forsetans sem fjárkúgun AFP Forseti Trump hefur farið mikinn í tollamálum í forsetatíð sinni. Nú gagn- rýna Kínverjar hann fyrir stefnu sína gagnvart kínverskum varningi. Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, fundaði í gær með Xi Jinping, forseta Kína, í Peking í gær. Á fundinum greindi Kim Xi frá niðurstöðu viðræðna sinna við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, á fundi þeirra í Singapúr 12. júní sl. um kjarnorkuafvopnun Kóreuskagans og frið milli ríkjanna. Hvatti Xi Kim til að fylgja þeim línum sem lagðar hefðu verið á fundinum um af- vopnun. Kim þakkaði forsetanum kínverska fyr- ir diplómatíska hjálp í tengslum við fundinn. Leiðtoginn hefur nú heimsótt Kína þrisvar frá því í mars og fékk heiðursmóttöku við komuna til landsins. Eru ríkin talin hafa styrkt sam- bandið sín á milli eftir að upp úr sauð nýlega vegna kjarnorkutilrauna Norður-Kóreumanna. AFP Kim Jong Un hélt á fund forseta Kína í Peking Ræddu um leiðtogafundinn í Singapúr Emmanuel Macron Frakklands- forseti og Angela Merkel Þýska- landskanslari funduðu í gær í Mese- berg-höllinni í norðausturhluta Þýskalands ásamt ráðherrum sín- um. Var tilgangur fundarins einkum sá að samræma tillögur ríkjanna tveggja fyrir leiðtogafund Evrópu- sambandsins, sem haldinn verður í lok mánaðarins. Innflytjendamál og málefni evr- unnar voru efst á baugi og sagði Macron að ríkin tvö væru sammála um að ríki Evrópusambandsins ættu að geta sent hælisleitendur aftur til annarra ríkja sambandsins, ef þeir hefðu verið skráðir þar fyrst. Af- staða Macrons er talin geta létt póli- tískum þrýstingi af Merkel, sem hef- ur þurft að glíma við óánægju heima fyrir með stefnu sína í málefnum hælisleitenda. Þá sammæltust Macron og Mer- kel um að taka upp sameiginleg fjár- lög fyrir evruna, og yrði stefnt að því fyrir árið 2021. Hins vegar var ekki skýrt nánar hversu há þau fjárlög ættu að vera og til hvaða út- gjaldaþátta þau ættu að ná. Macron styður við Merkel  Stefnt að sameig- inlegum fjárlögum AFP Fundur Vel fór á með Merkel og Macron venju samkvæmt. Þrír eru látnir eftir skotárás við netkaffihús á Drottningargötu í sænsku borg- inni Malmö á mánudag. Þrír til viðbótar eru særðir, þar af einn alvarlega. Mennirnir eru á aldrinum 18 til 29 ára. Lögregla útilokar að um hryðjuverk hafi verið að ræða og segir að allir sem tengjast málinu hafi áður komist í kast við lögin og tengist skipulagðri brotastarfsemi. Enginn hefur verið handtekinn vegna árásarinnar, en sænska lög- reglan fer með rannsókn málsins. Þrír látnir eftir skotárás í Malmö Leit Lögregla leitar árásarmannanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.