Morgunblaðið - 20.06.2018, Page 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2018
✝ GuðmundurJón Bjarni
Finnsson fæddist
18. maí 1942 í
Reykjavík. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Suð-
urnesja 11. júní
2018.
Foreldrar hans
voru Finnur G.K.
Daníelsson, f. 25.
nóvember 1909 á
Vöðlum í Önundarfirði, d. 26. júlí
1999, og Guðmunda Sigurlaug
Pétursdóttir, f. 24. október 1914
á Lækjarbakka á Skagaströnd,
d. 2. febrúar 2001, og bjuggu þau
lengst af á Akureyri.
Bróðir Guðmundar er Valur
1990. Halla María er gift Sig-
urpáli Jóhannssyni, f. 19. ágúst
1974. Börn þeirra eru Svanur, f.
28. febrúar 2001, Sigurbjörg, f.
7. ágúst 2004, og Steinunn
Marta, f. 3. júlí 2006. Dóttir Matt-
híasar er Matthildur Lilja, f.
2017. Níels Adolf er í sambúð
með Alexöndru Bernharð Guð-
mundsdóttur, f. 21. nóvember
1992. 2) Niels Adolf, f. 6. júní
1965. Hann er giftur Hönnu Mar-
íu Harðardóttur, f. 9. janúar
1969, börn þeirra eru Skúli Þór,
f. 16. nóvember 1989, Unnur
Agnes, f. 9. september 1996, og
Benedikt Bjarni, f. 28. október
1998. Skúli Þór er í sambúð með
Guðrúnu Steindórsdóttur, f. 5.
júní 1993. 3) Marta Guðmunda, f.
29. apríl 1970, d. 6. nóvember
2007. Marta Guðmunda eign-
aðist Andreu Björt, f. 4. júlí
1995.
Útför Guðmundar fer fram í
Grindavíkurkirkju í dag, 20. júní
2018, kl. 14.
Georg, f. 3. júlí
1945. Kona hans er
Arna Dóra Svavars-
dóttir, f. 7. desem-
ber 1959, og dóttir
þeirra er Regína
Sóley, f. 7. mars
1987.
Eftirlifandi
eiginkona Guð-
mundar er Hallbera
Árný Ágústsdóttir,
f. 19. október 1938.
Börn þeirra eru: 1) Matthildur, f.
28. maí 1959. Hún er gift Svani
Inga Sigurðssyni, f. 15. nóv-
ember 1955. Börn þeirra eru
Halla María, f. 14. desember
1978, Matthías, f. 13. september
1983, og Níels Adolf, f. 28. júní
Þú varst eiginmaður, faðir,
bróðir, frændi, vinur, pípari og
afi. Afi minn og frændsystkina
minna. Nú ert þú orðinn engill og
dóttir þín, hún móðir mín, hefur
tekið á móti þér. Von mín var sú
að þið mynduð ekki hittast fyrr en
eftir þónokkur ár. Þú tókst mér
alltaf nákvæmlega eins og ég er.
Án fordóma og varst opinn fyrir
hlutum sem þín kynslóð er alls
ekki þekkt fyrir að vera. Ég var
búin að ákveða að biðja þig um að
ganga með mér upp að altari ef ég
myndi gifta mig einn daginn. Fólk
sem þekkir mig veit að ég er mjög
léleg í að hafa samband við það.
Þú varst eina manneskjan sem
leyfði mér aldrei að komast upp
með það að hafa ekki samband og
minntir mig á að senda á þig skila-
boð eða hringja. Þegar það var að
verða of langt síðan ég kom í
heimsókn minntir þú mig á að þú
þurftir tásuklippingu. Þú vildir
alltaf forvitnast um líf mitt og
hvernig mér gengi. Þetta gerðir
þú ekki einungis í garð minn og
veit ég að öðrum þótti einnig vænt
um þennan eiginleika þinn. Að
hugsa um aðra á undan sjálfum
þér lýsir þér vel. Ég spurði þig
fyrir nokkrum mánuðum hvað þú
værir mest til í að geta gert aftur
eftir að þú veiktist og svarið þitt
var að geta keyrt ömmu. Erfitt
var að horfa uppá að þér hrakaði
og sjá lífsloga þinn dofna. Ég er
leið að sjá þig fara og það mun
taka mig tíma að venjast því að þú
sért ekki hinum megin við línuna.
Vonandi hefur þú fundið frið. Ég
get sagt með fullri vissu að ég hef
fengið þrjóskuna mína frá þér.
Afi, ég mun sakna þín. Elska þig.
– Mamma, mundu að klippa á
honum neglurnar og setja á hann
krem fyrir mig.
Andrea Björt.
Ekkert nema hlýja og þakklæti
kemur upp í huga okkar er við
hugsum til afa. Afi Gvendur var
alltaf forvitinn um hvað við vær-
um að bralla í lífinu og það var
sama hvað við tókum okkur fyrir
hendur, hann var alltaf áhuga-
samur um það. Hann var dugleg-
ur að spyrja og eru mörg samtöl
okkar minnisstæð. Við eigum
margar góðar minningar um
hann afa. Ég held að öll barna-
börnin hans afa muni vel eftir
brjóstvasanum hans á skyrtunni,
þar var maðurinn alltaf með pen-
inga og í fjölmörg skipti sem mað-
ur kom í heimsókn, kallaði hann
okkur til sín, fór með höndina í
brjóstvasann og dró fram pen-
ingaseðil og gaf manni, það þótti
alltaf toppurinn á tilverunni þeg-
ar maður fékk seðil frá afa. Það
var alltaf gott að knúsa afa og
þegar við vorum yngri var alltaf
markmið hjá okkur að ná utan um
afa. Við munum mjög vel eftir því
skipti sem við náðum að krækja
höndunum í fyrsta skipti saman
utan um bumbuna hans. Afi var
töffari, enda sterkasti maður sem
við þekktum, en honum var alveg
sama hvernig hann var um hárið
og man maður vel eftir ömmu
með greiðuna á eftir honum. Afi
var skemmtilegur og þótti víst ör-
lítið þver, eins og með heyrnar-
tækin – við höfum ekki tölu á hlát-
ursköstum vegna misskilnings í
samtali þegar hann misheyrði
eitthvað og var handviss um að
hann heyrði rétt. Okkur þótti
hann alltaf fyndinn, skemmtileg-
ur og gott að vera í kringum hann.
Við söknum hans mjög en við mun
minnast hans með hlýju og enda-
lausu þakklæti.
Unnur Agnes Níelsdóttir og
Benedikt Bjarni Níelsson.
Þegar minnast skal pabba þá
rekur hugann heim til æskuheim-
ilis hans á Norðurgötu 45, heimili
ömmu og afa, þeirra Mundu og
Finns. en þar dvaldist ég mörg
sumrin í æsku. Heimili þeirra var
einstakt og þau þekkt fyrir mikla
gestrisni og alla tíð var gest-
kvæmt á því heimili. Frændgarð-
urinn var stór og vinirnir margir
og það fór aldrei svo að ekki bar
gesti að garði þegar við vorum í
heimsókn hjá ömmu og afa. Þeir
sem þekktu til ömmu og afa sáu
að í pabba var blanda af þeim báð-
um. Samferðamanni afa Finns
varð að orði í eftirmælum að afi
þætti ekkert ólíkur þeirri tignar-
legu en hrikalegu fegurð sem ein-
kennir Vestfirði og skaplyndi
hans mætti einnig líkja við veð-
urlagið sem ríkir á þeim slóðum,
sem getur verið undurblítt en
einnig fjarska hart. Pabbi eins og
afi gat líka verið afar fylginn sér
og þótti þver á köflum og harður
við sjálfan sig en alltaf vildi hann
öllum vel. Amma Munda var sér-
lega hjartahlý kona og öllum leið
vel í hennar návist. Pabbi fékk
þennan eiginleika frá móður
sinni. Hann spurði fólk ávallt af
einlægum áhuga hvað það væri að
fást við hverju sinni, kunni að
hlusta af athygli og hvetja áfram,
oft á kíminn og góðlátlegan hátt.
Pabbi og mamma kynntust í
Grindavík og þegar hann var bú-
inn að fá augastað á mömmu þá
fannst honum hann þurfa að safna
í sig kjarki til að komast í færi við
hana og einhverju sinni nýtti
hann sér sendiboða til að koma
áleiðis skilaboðum um einlægan
áhuga sinn á að hitta hana,
mamma er jú ákveðin kona og var
um að gera að vanda sig. Hún sá
nú örugglega fljótt hvaða góðu
eiginleika hann hafði til að bera.
Þegar Gústi afi hafði hitt þennan
unga mann og komist að því af
hvaða fólki hann var kominn þá lá
samþykki strax fyrir. En Gústi afi
og amma Munda voru bæði ættuð
frá Skagaströnd og þekktu því
hvort til annars. Mamma og pabbi
opinberuðu trúlofun sína 24. októ-
ber 1964 og giftu sig tveimur ár-
um síðar. Pabbi gekk Matthildi
eldri systur minni í föðurstað en
mamma hafði misst fyrri mann
sinn nokkrum árum áður, Níels
Adolf. Matthildi var strax tekið
opnum örmum af ömmu og afa í
Norðurgötunni sem og fjölskyldu
hans. Pabba var jafnframt tekið
fagnandi og strax tekinn inn í
stóran systkinahóp Níelsar heit-
ins, þeirra systkina sem kennd
eru við Tungu á Tálknafirði og
kunnum við þeim innilegustu
þakkir fyrir það. Pabbi og
mamma eignast mig 1965 og
finnst mér það vera til marks um
göfuglyndi pabba að ég var
skírður Níels Adolf. Marta Guð-
munda yngri systir mín fæddist
1970 og bar nafn langömmu og
ömmu.
Marta lést langt fyrir aldur
fram aðeins 37 ára gömul. Marta
var pabba sem og öllum mikill
harmdauði. Það að missa dóttur,
móður, systur, mágkonu og
frænku var fjölskyldunni mikið
áfall. Það var höggvið djúpt skarð
í hjörtu allra. Marta var einstak-
lega lagin við að eiga við föður
sinn og lengi sú eina sem eitthvað
náði að hagga hans ákvörðunum.
Marta var afskaplega lík pabba á
margan hátt, hafði til að bera
hlýju og umhyggju og útbreiddur
armur hennar náði langt út fyrir
venjulegt faðmlag.
Nærvera pabba var einstök.
Hjálpsemi hans var mikil og alltaf
virtist hann hafa tíma fyrir alla.
Örlæti og greiðvikni var honum í
blóð borin og hann var alltaf boð-
inn og búinn að aðstoða sitt fólk
við hvað sem var.
Frændgarðurinn var pabba
hugleikinn og honum var mikið í
mun að upplýsa og tengja skyld-
menni sín saman. Þó að lífs-
strengurinn væri farinn að
trosna, þá var hann alltaf tilbúinn
að ræða ættfræði og ósjaldan
tókst honum að rekja ættir fólks
saman, hvort sem það var í legg
móður sinnar eða föður. Pabbi
átti farsælan starfsferil sem stýri-
maður og skipstjóri á yngri árum
og síðar sem pípulagningameist-
ari og var með eigin rekstur í
þeirri grein. Hann var sterkur og
hraustur maður sem kallaði ekki
allt ömmu sína, þekktur fyrir að
vinna utandyra með fráhneppta
skyrtu og berhentur í íslenskum
vetrarveðrum. Dugnaður og ósér-
hlífni einkenndi hann alla tíð.
Þjóðmál og stjórnmál vorum
pabba hugleikin og stundum var
tekist skemmtilega á um pólitísk-
ar skoðanir á heimili foreldra
minna þegar gesti bar að garði.
Honum var mjög umhugað um
réttlátt samfélag þar sem jafn-
rétti var meginstefið. Pólitísk
vinahygli, hvort sem það var í eig-
in þágu eða annarra, var eitur í
hans beinum.
Síðastliðin þrjú ár glímdi pabbi
við erfið veikindi og kunni þessi
sterki maður sjúkdómslegunni
illa. Við erum þakklát fyrir alla þá
aðstoð og umönnun sem hann
naut hjá heilbrigðisstarfsfólki
þennan tíma og þann mikla stuðn-
ing sem vinir og ættingjar hafa
veitt honum og fjölskyldunni.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og vinir minnast mikils öðlings,
hans einstöku kímni og léttu lund-
ar og munu geyma með sér minn-
ingar um traustan og greiðvikinn
vin sem bar með sér hjartahlýju,
umhyggju og góðvilja.
Níels Adolf og fjölskylda.
Guðmundur Jón
Bjarni Finnsson
Þá er vinkona mín Jóhanna bú-
in að kveðja.
Mikið sakna ég hennar. Vin-
átta okkar var mikil og einlæg.
Við vorum margt búin að
bralla saman. Allir þeir leikþætt-
ir sem við vorum búin að semja
og flytja. Þá var oft mikið hlegið
og ákaflega gaman. Alltaf var
hún hress og kát hvort sem var
við móttökustjórn við veislur eða
ógleymanleg í tréskurði.
Jóhanna
Jóhannsdóttir
✝ Jóhanna Jó-hannsdóttir
fæddist á Sauð-
árkróki 27. janúar
1925. Hún lést á
Sjúkrahúsi Ak-
ureyrar 6. júní
2018.
Útför Jóhönnu
fór fram frá Akur-
eyrarkirkju í gær,
19. júní 2018.
Ég hef mikið að
þakka þessari ynd-
islegu konu sem
alltaf kom með líf og
kátínu.
Þá vil ég nefna
ferðalög okkar með
kórnum Í Fínu
formi.
Allt var þetta
gaman og við
skemmtum okkur
alveg ljómandi vel.
Ég þakka Jóhönnu alla okkar
samleið og minnist margra ynd-
islegra stunda.
Þetta sagði ég við hana þegar
hún varð 90 ára.
Jóhanna er jafnan hress
jákvæð mjög og skemmtileg.
Laus er hún við hið leiða stress
hið lífsins kúnsta ekki treg.
Ég votta ættingjum hennar
dýpstu samúð með bestu kveðju.
Jón Hólmgeirsson.
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Lokað
Vegna útfarar LÁRUSAR ÖGMUNDSSONAR fimmtu-
daginn 21. júní verða skrifstofur Ríkisendurskoðunar
lokaðar þann dag.
Ríkisendurskoðandi
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
LÁRUS ÖGMUNDSSON
lögfræðingur,
Kjalarlandi 3, Reykjavík,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 5. júní.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 21. júní klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans
er beint á Heimahlynningu LSH eða Ljósið.
Hildigunnur Sigurðardóttir
Lilja Karítas Lárusdóttir Ólafur Már Sigurðsson
Dóra María Lárusdóttir
Sigurður Egill Lárusson Birta Elíasdóttir
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
MATTHILDUR ÁSA
GUÐBRANDSDÓTTIR
húsfreyja á Smáhömrum,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
á Hólmavík laugardaginn 16. júní.
Guðbrandur Björnsson
Karl Þór Björnsson Helga Rut Halldórsdóttir
Þórdís, Kolbrún Ýr og Inga Matthildur Karlsdætur
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
UNNUR BALDVINSDÓTTIR
meinatæknir,
lést í faðmi fjölskyldunnar mánudaginn
11. júní. Útförin fer fram frá Selfosskirkju
föstudaginn 22. júní kukkan 11.30.
Sigríður Birna Guðjónsdóttir Björn Þórarinsson
Guðborg Auður Guðjónsd. Hermann Kristjánsson
Unnur Birna Björnsdóttir
Dagný Halla Björnsdóttir
Auður Brá Hermannsdóttir
Annalísa Hermannsdóttir
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
SIGURBJÖRN Ó. KRISTINSSON,
Stigahlíð 44, Reykjavík,
lést á Landspítalanum, Fossvogi,
sunnudaginn 17. júní.
Hann verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju mánudaginn 25. júní
klukkan 13.
Fanney Erna Magnúsdóttir
Magnhildur Sigurbjörnsd. Þór Hauksson
Sigurbjörn Þór Þórsson Edda Garðarsdóttir
Magnús Örn Þórsson Andrea Vestmann
Guðmundur Már Þórsson
Una Dögg Sigurbjörnsdóttir