Morgunblaðið - 20.06.2018, Side 26

Morgunblaðið - 20.06.2018, Side 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2018 Gæðafiskur Kæliþurrkaður harðfiskur sem hámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. Einfaldlega hollt og gott snakk 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Hafliði Sigtryggur Magnússon, tölvunarfræðingur hjá Land-mælingum Íslands, á 60 ára afmæli í dag. Hann er verkefna-stjóri yfir ýmsum tölvuverkefnum hjá Landmælingum og sér um þróun og rekstur á kerfunum, en hann hóf störf þar fyrir þremur árum. Hjá Landmælingum starfa 25 manns. Stofnunin er til húsa á Akra- nesi, en Hafliði býr í Reykjavík. „Ég fer í strætó á milli á hverjum degi. Það er mjög fínt, ég sef bara í strætóinum á leiðinni.“ Hafliði er með króníska jeppadellu að eigin sögn, en hann var um tíma formaður Ferðaklúbbsins 4x4. „Ég er samt alveg á kafi í þessu ennþá og keyri núna á 44 tommu Patrol með amerískri Chevrolet-vél, og kemst það sem ég ætla mér. Svo hef ég mikinn áhuga á félags- störfum, útivist, veiði og tónlist. Ég fór núna á Listahátíð á tónleikana með Bill Murray og félögum og fílaði þá alveg í botn, en hafði verið skeptískur fyrir. Þetta eru gríðarlega miklir listamenn. Þarna koma saman nokkur listform og þeir tóku sig ekki of alvarlega og mér fannst þetta koma mjög vel út.“ Í tilefni afmælisins ætlar Hafliði að halda veislu á Jónsmessunni í sal Ferðaklúbbsins 4x4, en hann stefnir á að skreppa norður til Akureyrar í dag, á sjálfan afmælisdaginn. Eiginkona Hafliða er Svanhildur Agnarsdóttir, bókasafns- og upp- lýsingafræðingur í Kvennaskólanum í Reykjavík. Þau eiga þrjú börn, Halldór Rúnar, Hrafnhildi og Guðmund Örn og barnabarnið heitir Monique Snæfríður. Hún er hálffrönsk og er tæplega þriggja ára. Ljósmynd/Guðmundur Örn Á Arnarvatnsheiði Hafliði staddur í veiðiferð fyrir tveimur árum. Sefur alltaf á leiðinni í vinnuna Hafliði Sigtryggur Magnússon er sextugur E va Björk Harðardóttir fæddist í Efri-Vík við Kirkjubæjarklaustur 20.6. 1968 og ólst þar upp: „Fyrstu árin átt- um við heima í gamla bænum á efri hæð í dásamlegu húsi, með afa og ömmu á neðri hæðinni. Foreldrar mínir höfðu keypt efri hæðina af gömlu hjónunum meðan verið var að byggja okkar hús. Fyrsta minn- ingin mín er sú að ég dró koppinn minn niður stigann til afa og ömmu því þar var miklu hlýrra en uppi. Ég ólst upp við hefðbundin sveitastörf, kýr, kindur, hesta og dásamlega hunda sem fóru fyrir bíla á hverju ári. Amma skýrði af- föllin á hundum með þrjóskunni í pabba sem sló álagahólinn á hverju ári. Umhverfið var ævintýri: hólar og hæðir, álfaborg, vatn og víð- Eva Björk Harðardóttir, hótelstjóri og oddviti í Efri-Vík – 50 ára Myndarlegt fólk Hér eru Eva Björk og Þorsteinn með hluta barnahópsins og barnabörnum í jólaboði á síðasta ári. Innfædd athafnakona í sveitarstjórnarpólitík Langhlauparar Þorsteinn, Erna Salome og Eva Björk á leið í langhlaup. Reykjavík Elmar Elís Arnarsson fæddist 7. ágúst 2017 kl. 18.45. Hann vó 3.695 g og var 51 cm að lengd. Foreldrar hans eru Arnar Freyr Þrastarson og Hulda Sigrún Sigurðardóttir. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.