Morgunblaðið - 20.06.2018, Page 27

Morgunblaðið - 20.06.2018, Page 27
áttur sem ýttu undir ímyndunar- aflið.“ Eva gekk í Kirkjubæjarskóla á Síðu, lauk stúdentsprófi frá MK og eignaðist þá tvíbura og útskrifaðist úr KHÍ vorið 1992. Eva kenndi við Digranesskóla í Kópavogi og þreif á kvöldin hjá Securitas til að láta enda ná saman meðan fyrri maðurinn hennar var að ljúka námi. Þau fluttu á Hvammstanga og þar kenndi hún í þrjú ár og eignaðist þar þriðja son- inn. Þá fluttu þau í Mosfellsbæ þar sem hún kenndi í tvö ár við gagn- fræðaskólann. Þau hjónin skildu í kjölfarið og Eva flutti með syni sína þrjá á Kirkjubæjarklaustur og gerðist kennari við gamla skólann sinn. Eva nældi í seinni mann sinn úr Hafnarfirðinum þar sem hann var kennari. Þau giftu sig 2003, byggðu sér hús og hótel í Efri-Vík, með foreldrum hennar, kenndu og skiptu sér af pólitík: „Þegar Þor- steinn, seinni maður minn, kom austur var honum sagt að þegja fyrstu sjö árin þar sem hann væri aðfluttur. Hann óhlýðnaðist, bauð sig fram í sveitarstjórn og vann fyrir sveitarfélagið í þrjú kjör- tímabil. Þá hrókeruðum við hjónin. Ég hafði verið bakland hans í 12 ár og nú var minn tími kominn. Við buðum fram D-lista í Skaftár- hreppi í fyrsta sinn frá stofnun sveitarfélagsins og þetta er annað kjörtímabilið sem ég starfa sem oddviti Skaftárhrepps.“ Eva var formaður vesturskaft- fellskra kvenna, situr í ýmsum nefndum og stjórnum, er varafor- maður ferðamálaráðs, á sæti í mið- stjórn Sjálfstæðisflokksins og sinn- ir fyrirtækinu eftir bestu getu. Hún skráði sig í diplómanám í HÍ og stefnir á að ljúka því um ára- mótin: „Ég vil leysa fumlaust þau mál sem hér bíða úrlausna því hér býr dugnaðarfólk með bjarta fram- tíðarsýn. Þar sem samhugur, sam- kennd og áræði ríkja, þar næst árangur.“ Þegar Eva er ekki í ferðabrans- anum eða sveitarfélagspólitíkinni les hún vísindaskáldsögur, ferðast sjálf, er í faðmi fjölskyldunnar eða leikur sér við ömmustrákana sina. Fjölskylda Eiginmaður Evu er Þorsteinn M. Kristinsson, f. 10.10. 1968, kennari og nú lögregluvarðstjóri á Kirkju- bæjarklaustri. Foreldrar hans eru hjónin Erna Lára Tómasdóttir, f. 28.8. 1932, og Kristinn Þórir Jó- hannsson, f. 30.10. 1933. Fyrri maður Evu er Kolbeinn Þór Bragason, f. 25.11. 1966, for- stöðumaður hjá Arion banka. Börnin eru: 1) Hörður Már Kol- beinsson, f. 18.4. 1988, læknir í Grand Rapids í Bandaríkjunum, en kona hans er Anna Birna Fossberg Óskarsdóttir, foreldra- og uppeldisráðgjafi, og sonur þeirra Elmar Breki, f. 2015; 2) Sindri Már Kolbeinsson 18.4. 1988, fjármála- stjóri, er að flytja til Íslands en kona hans er Bryndís Jónsdóttir kennari og sonur þeirra Valur, f. 2015; 3) María Björg Þorsteins- dóttir, f. 20.3. 1996 (stjúpdóttir Evu), móttökustarfsmaður á Kirkjubæjarklaustri, en sambýlis- maður hennar er Eyjólfur Einar Birgisson viðgerðarmaður og er sonur þeirra Erik Hrafn, f. 2016; 4) Hallur Kristinn Þorsteinsson, f. 3.7. 1997 (stjúpsonur Evu), nemi, en unnusta hans er Áróra Líf Kjer- úlf; 5) Björgvin Þór Kolbeinsson, f. 3.10. 1998, nemi, og 6) Erna Sal- ome Þorsteinsdóttir, f. 7.11. 2002, nemi. Alsystur Evu: Lilja Hrund, f. 12.7.1972, hótelstjóri, búfræðingur og nuddari á Klaustri, og Karítas Heiðbrá, f. 4.6. 1976, kennari á Klaustri. Hálfsystkini Evu eru Þórir Bjartmar Harðarson, f. 23.11. 1963, sjómaður í Bolung- arvík, og Jóna Ástudóttir, f. 18.8. 1994, nemi í Reykjavík. Foreldrar Evu eru hjónin Hörð- ur Davíðsson, f. 22.11. 1947, og Sal- ome Ragnarsdóttir, f. 23.7. 1945, frumkvöðlar í Efri-Vík við Kirkju- bæjarklaustur. Eva Björk Harðardóttir Ólafía Ólafsdóttir húsfr. í Rvík Pétur Jóhannesson leigubílstj. í Rvík Karítas Pétursdóttir húsfr. á Fossum Davíð Stefánsson b. á Fossum í Landbroti Hörður Davíðsson athafnam. í Efri-Vík Margrét Davíðsdóttir húsfr. í Arnardranga Stefán Þorláksson b. í Arnardranga í Skaftárhr. Kristjánsína Bjarnadóttir húsfr. og verkak. í Rvík Gísli Árnason sjóm. og verkam. í Rvík Guðrún Lilja Gísladóttir húsfr. á Höfðabrekku og í Rvík Ásgeir Ragnar Þorsteinsson skipstj., b. og rithöf. á Höfðabrekku í Mýrdal Rebekka Bjarnadóttir húsfr. og saumak. á Ísafirði og í Rvík Þorsteinn Mikael Ásgeirsson bátaform. og verkam. á Ísafirði og í Rvík Úr frændgarði Evu Bjarkar Harðardóttur Guðrún Salóme Ragnarsdóttir athafnakona í Efri-Vík ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2018 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is Ekki bara jeppar 2013 - 2017 ota, Hyundai, Nissan, , og fleiri gerðir bíla ER BÍLLINN ÞINN ÖRUGGUR Í UMFERÐINNI? Varahlutir í... 85 ára Elín Óskarsdóttir Þórunn Kristín Bjarnadóttir 80 ára Bárður Ragnarsson Hálfdán K. Hermannsson 75 ára Barði Þórhallsson Birna Bjarnadóttir Bragi Björgmundsson Halldór Friðgeirsson Lúðvík Bjarnason Ólafur Helgi Jóhannsson Rúnar Guðmundsson Sævar Gestsson 70 ára Ása Margrét Ásgeirsdóttir Björn Sævar Árnason Hafdís S. Sigurgeirsdóttir Hanna Stefánsdóttir Marinó Pétur Hafstein Michael Anthony Claxton Reynald Smári Gunnarsson Sigurður Helgi Jóhannsson Vigdís Þorsteinsdóttir 60 ára Birgir Thomsen Karlsson Davíð Björnsson Erla K. Kjartansdóttir Katrín Dagmar Ingvadóttir Sigríður Erna Valgeirsdóttir Sigrún G. Jónsdóttir Sigurður Unnar Þorleifsson Sólveig Þóra Jónsdóttir Stefanía J. Stefánsson Tio Ketphet Wladyslaw Leon Bogun 50 ára Aðalsteinn Jónsson Alda Stefánsdóttir Beyene Gailassie Bríet Friðbjörnsdóttir Guðmundur Aðalsteinsson Guðrún Jónsdóttir Jan Sloma Karl Trausti Barkarson Lilja Guðnadóttir Sveinn H. Jóhannesson Sævar Freyr Þorvarðsson Þorbjörg Eðvarðsdóttir 40 ára Agnar Már Agnarsson Ágúst Hilmarsson Ásdís Einarsdóttir Friðbjörn Rósinkar Ægisson Friðjón Snorri Guðjónsson Helgi Freyr Sveinsson Iðunn Arnarsdóttir Jose Luis Galbis Diaz Jón Kristinn Svavarsson Krystian Baranowski Maurice Zschirp Maxime Poncet Sigríður Lára Einarsdóttir Snorri Hólm Sigurðsson Tomasz Kmak Tomasz Piotr Treder 30 ára Alen Recsó Atli Valur Arason Ágúst Ívar Birgisson Brynjar Harðarson Dagur Björnsson Ewa Marta Kurczewska Gerður Ósk Grétarsdóttir Guðmundur Ás Magnússon Gunnar Örn Heiðdal Halldór Grétarsson Hrefna Rán Hannesdóttir Janus Gilbert Stephensson Jóhann Agnar Einarsson Ragnhildur Aradóttir Reynir Karl Sverrisson Sandra Júlía Bernburg Stefanía Kristjánsdóttir Þröstur Ólason Til hamingju með daginn 30 ára Védís ólst upp í Hornafirði, býr í Hafnar- firði, og var að ljúka BSc- prófi í tölvunarfræði frá HR. Maki: Arnar Magnús Ell- ertsson, f. 1985, rafvirki. Sonur: Úlfur Freyr, f. 2015. Foreldrar: Harpa Bald- ursdóttir, f. 1965, og Eyj- ólfur Kristjónsson, f. 1964, en þau eru bæði bændur í Bjarnanesi í Hornafirði. Védís Erna Eyjólfsdóttir 30 ára Herdís býr á Sel- fossi, lauk prófi í hjúkr- unarfræði frá HA og er í fæðingarorlofi. Maki: Þórhallur Aron Másson, f. 1990, nemi í vélvirkjun. Dætur: Lydía Matthildur, f. 2012, og Glódís Vala, f. 2018. Foreldrar: Valgerður Þóra Elfarsdóttir, f. 1965, listakona, og Ásmundur Ágúst Sigurgíslason, f. 1967, fangavörður. Herdís Sif Ásmundsdóttir 30 ára Hanna ólst upp í Hafnarfirði, býr þar, lauk prófi í viðskipta- og mark- aðsfræði frá HA og er flugfreyja hjá Icelandair. Maki: Jóhann Sveinn Sig- urleifsson, f. 1983, við- skiptalögfræðingur. Börn: Tómas Örn, f. 2012, og Þórdís Lilja, f. 2015. Foreldrar: Helgi Gunnar Kristinsson, f. 1960, og Birna Sigþórsdóttir, f. 1960. Þau búa í Hafnar- firði. Hanna Þóra Helgadóttir  Gró Einarsdóttir hefur varið dokt- orsritgerð sína í félagssálfræði við Háskólann í Gautaborg. Ritgerðin ber heitið: Hef ég nóg? – um það að leggja mat á eigin bjargir. Leiðbein- endur voru dósent Lars-Olof Joh- ansson og doktor André Hansla. Ritgerðin fjallar um mat einstak- linga á þeim björgum sem þeir ráða yfir. Í henni er gengið út frá því að til að meta hvort maður eigi nóg af til dæmis peningum, tíma eða vinum sé stuðst við einhver viðmið. Skoðað var hvernig fólk mat bjargir sínar í samanburði við aðra, við þrár sínar og þarfir, og við sjálft sig í fortíðinni eða framtíðinni. Meðal annars var byggt á svörum úr þversniði af ís- lensku þjóðinni. Niðurstöðurnar sýndu að sterkast samband var á milli líðanar fólks og huglægs mats á björgum ef miðað var við fortíðina. Þessar niðurstöður eru á skjön við fyrri rannsóknir sem sýna að sam- anburður við aðra hafi sterkust áhrif. Út frá gögn- unum er erfitt að fullyrða um ástæðu þessa. Líklegt er þó að þetta sé til marks um það áfall sem þjóðin varð fyrir eftir fjármálakreppuna. Bæði kenn- ingar og fyrri rannsóknir hafa sýnt það að þeir sem verða fyrir áfalli fest- ast oft í fortíðinni. Ef rétt reynist benda niðurstöð- urnar til þess að Íslendingar séu jafn- vel enn að jafna sig eftir fjármála- kreppuna, þrátt fyrir að efnahagur þjóðarinnar hafi batnað til mikilla muna. Krónutölur skipta því ekki öllu heldur hvernig við upplifum þær og í hvaða samhengi þær eru metnar. Gró Einarsdóttir Gró Einarsdóttir er uppalin í Reykjavík en hóf háskólanám í Svíþjóð 2008. Hún lauk BS-prófi í sálfræði við Háskólann í Gautaborg 2011, meistaranámi í félags- sálfræði 2013 og hóf doktorsnám við sama skóla 2014. Samhliða doktorsnáminu hefur Gró birt greinar í umhverfissálfræði, verið vísindalegur ráðgjafi fyrir sýn- ingu um sjálfbæra neyslu við Heimsminjasafn Svíþjóðar, haldið fjölda fyrirlestra jafnt utan sem innan háskólans og verið formaður doktorsnema við skólann. Gró hefur síðsumars störf sem sérfræðingur í félagsvísum á Hagstofu Íslands. For- eldrar Gróar eru Einar Karl Haraldsson og Steinunn Jóhannesdóttir. Sambýlis- maður Gróar er Kári Gautason. Doktor Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.