Morgunblaðið - 20.06.2018, Page 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2018
)553 1620
Lauga-ás hefur
frá 1979 boðið
viðskiptavinum
sínum upp á úrval
af réttum þar sem
hráefni, þekking
og íslenskar
hefðir hafa verið
höfð að leiðarljósi.
Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík
laugaas@laugaas.is • laugaas.is
Við bjóðum m.a. upp á:
Súpur
Grænmetisrétti
Pastarétti
Fiskrétti
Kjötrétti
Hamborgara
Samlokur
Barnamatseðil
Eftirrétti
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Bleikur og grænn er yfirskrift fyrstu
einkasýningar Anítu Hirlekar fata-
hönnuðar, sem opnuð var í Lista-
safninu á Akureyri, Ketilhúsi, í síð-
asta mánuði. „Ég hef alltaf unnið
rosalega mikið með liti, en þegar ég
fór að skoða verkin mín í heild fyrir
sýninguna sá ég að bleikur og
grænn hafa alltaf – og al-
gjörlega ómeðvitað – verið al-
gengasta litasamsetningin
hjá mér, eða í 90% tilvika og í
alls konar blæbrigðum,“ segir
Aníta.
Raunar stíga ótal litir
dans við þá bleiku og
grænu á sýningunni.
Litagleðin ræður ríkj-
um, samsetningarnar
eru oft nýstárlegar og
þá ekki síður
handbróderíið á flík-
unum og mynstrin á
þeim nýjustu sem hún
prentar stafrænt á text-
ílinn. Stundum liggja
marglitir og misgrófir
þræðirnir á ská og skjön
eða þeir eru lausir í annan
endann. Að minnsta kosti
virðast þeir engum lög-
málum lúta. Sniðin á flík-
unum eru þó í látlausari
kantinum, enda trúlega til-
gangslaust að berjast við
mynstrin um athyglina.
„Sniðin hennar eru gjarnan
skúlptúrísk. Þau taka sitt
eigið form en fylgja ekki
endilega líkamanum,“ eins
og þeim er lýst í umfjöllun á
vef Listasafnsins á Akur-
eyri.
Ellefu útgáfur af
alklæðnaði
Á sýningunni gefur að
líta ellefu útgáfur af al-
klæðnaði, sem Aníta hefur
hannað síðastliðin fjögur
ár, eða allt frá því hún lauk meist-
aranámi í textílhönnun fyrir tísku-
fatnað frá lista- og hönnunarskól-
anum Central Saint Martins í
London árið 2014, en þaðan hafði
hún útskrifast tveimur árum áður
með BA-gráðu í fatahönnun með
áherslu á textílprent. „Sýningin er í
rauninni saga mín sem fatahönn-
uðar, þar sem farið er í gegnum þró-
unarferlið allt frá því ég hannaði
fyrstu flíkina á námsárunum í
London.“
Aníta Hirlekar haust- og
vetrarlínan 2018 er partur af
þeirri sögu, en Aníta er einn
fárra fatahönnuða hér
á landi sem koma
fram með nýja línu
tvisvar á ári, vor
og haust. Og það
hefur hún gert
frá árinu 2014.
Hún segir mis-
munandi
hversu margar
flíkur eru í hverri
línu, en sú nýjasta
sé þeirra stærst og
samanstandi af 25
flíkum.
„Ég hand-
saumaði og -bró-
deraði allar flík-
urnar sem eru á sýn-
ingunni, en yfirleitt er ég
með tvær konur til að sauma
fyrir mig fatnað sem fer í sölu
hér heima og erlendis. Þar
sem mitt sérsvið er text-
ílhönnun byrja ég alltaf á að
vinna með textílinn og
mynstrin. Ég bródera í neta-
efni, svokallað tjull, og því eru
sumar flíkurnar á pörtum hálf-
gagnsæjar, eða á þeim stöðum
sem ekki er bróderað í þær,“
útskýrir Aníta.
Innblásturinn sækir hún í
myndlistina, til dæmis verk
enska listamannsins Garys
Humes og ljósmyndarans
Horsts P. Horsts. Af íslensk-
um listamönnum nefnir hún Nínu
Tryggvadóttur, sem er í miklu uppá-
haldi hjá henni. Upp úr dúrnum
kemur að Aníta er hálfindversk,
enda segir hún hönnun sína líka und-
ir indverskum áhrifum, sérstaklega
hvað litadýrðina varðar. „Ég er alltaf
að sanka að mér alls konar hlutum
og efnisbútum sem geta orðið mér
uppspretta hugmynda. Í nýju línunni
minni vann ég í fyrsta skipti með al-
vörumótíf þegar ég notaði abstrakt-
form til að tákna blóm,“ segir hún.
Og meira af innblæstrinum. Eitt
leiddi af öðru, kyrrstaða og tíska
haldast enda ekki í hendur.
Handbróderíið sem Aníta hóf að
þróa í skólanum í London og hefur
síðan verið einna mest einkennandi í
hönnun hennar varð henni er fram
liðu stundir innblástur og fyrirmynd
að stafrænt prentuðum mynstrum á
silki og önnur efni sem eru í tölu-
verðum mæli í haust- og vetrarlín-
unni 2018.
Boltinn fór að rúlla
Aníta hefur nokkrum sinnum sýnt
á tískuvikum í London og París,
bæði þegar hún var í námi og síðar.
Hún hefur einnig tekið þátt í mörg-
um samsýningum hér og erlendis og
hlotið ýmis verðlaun og viðurkenn-
ingar. Til dæmis var hún ein af fjór-
um ungum fatahönnuðum sem
breska fyrirtækið Fashion Scout
valdi sem framúrskarandi alþjóðlega
fatahönnuði í lok árs 2015. „Markmið
Fashion Scout er að styðja við bakið
á ungum fatahönnuðum og hjálpa
þeim að koma sér á framfæri. Stuðn-
ingurinn fólst meðal annars í að
bjóða þeim að sýna á tískuvikum í
London og París árið eftir.“
Aníta lét tækifærið að vonum ekki
úr greipum sér ganga og upp úr því
byrjaði boltinn að rúlla. „Eftir út-
skriftina hafði ég fengið nokkur at-
vinnutilboð, unnið hjá nokkrum
hönnuðum í London og um skeið hjá
Bulgari-tískuhúsinu á Ítalíu, en um
þetta leyti fóru margir að hvetja mig
til að hanna sjálf fatnað undir eigin
merki. Eftirspurnin var nóg til þess
að ég ákvað að slá til og hefja sjálf-
stæðan atvinnurekstur,“ segir Aníta,
sem hætti að velta fyrir sér að búa og
starfa í útlöndum þegar dóttir henn-
ar fæddist í ársbyrjun 2016.
Ýmsar leiðir færar
Fjölskyldan býr í Reykjavík þar
sem Aníta er með vinnustofu og rek-
ur verslunina A.M. Concept Space í
Garðastræti ásamt Magneu Ein-
arsdóttur fatahönnuði. Annað slagið
bregður hún sér á æskuslóðirnar á
Akureyri til þess að vinna textílinn
og mynstrið í vinnustofu móður sinn-
ar í Gallerí Hvítspóa.
Spurð hvort þátttaka í tískuvikum
stórborga heims sé liðin tíð svarar
hún játandi, enda sé hrikalegur
kostnaður og vinna sem fylgi því að
fara utan og sýna tvisvar á ári. „Það
eru aðrar leiðir til að sýna sig en að
taka þátt í tískuvikum. Ég er með
ágætis tengslanet í London og vinn
að því að skapa ný. Maður þarf svo-
lítið að finna út úr því sjálfur hvernig
hægt er að vera fatahönnuður á Ís-
landi en vinna samt fyrir erlendan
markað.“
Aníta virðist hafa fundið leið því
hún er búin að selja haust- og vetr-
arlínuna sína til verslunar einnar í
miðborg Lundúna og hyggst fylgja
henni úr hlaði í nóvember.
Sýningin Bleikur og grænn stend-
ur til 16. september.
Blæbrigði textíls og tísku
Fatahönnuðurinn Aníta Hirlekar með einkasýningu í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi
Ellefu útgáfur af alklæðnaði Þróunarferlið frá MA útskriftarverkefninu árið 2014
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Akureyri/Reykjavík Aníta vinnur textíl og mynstur á Akureyri þar sem hún hefur aðstöðu. Hún er líka með vinnu-
stofu í Reykjavík og selur hönnun sína í versluninni A.M. Concept Space, sem hún rekur ásamt öðrum fatahönnuði.
Stafræn prentun Silkikjóll með
stafrænt prentuðu mynstri.
Sýnishorn Á sýningunni Bleikur og grænn eru ljósmyndir sem Aníta hefur
látið taka til þess að nota í kynningarefni fyrir tískulínurnar sínar.
Útsaumur Hand-
útsaumaður kjóll
á sýningunni.