Morgunblaðið - 30.06.2018, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 30.06.2018, Qupperneq 1
Kína í fjórða sæti » Sala á hótelgistingu til Kín- verja jókst um 33,7% milli ára á landinu öllu í janúar til maí. » Fyrir vikið er Kína í fjórða sæti yfir keyptar hótelnætur. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri segir mikla óvissu um hversu hátt hlutfall flugfarþega kemur við á Íslandi á leið yfir hafið. Vegna þessarar óvissu sé erfitt að spá um vöxt ferðaþjónustunnar. „Isavia spáir því að 25-30 milljónir farþega muni fara um Keflavíkur- flugvöll árið 2030. Isavia þarf að svara því hversu hátt hlutfall þeirra farþega kemur inn í landið og hvernig þeir dreifast yfir árið.“ Skarphéðinn Berg bendir á að verja eigi á annað hundrað milljörð- um af opinberu fé í stækkun Kefla- víkurflugvallar á næstu árum. Óvissa um tekjur íslenskrar ferða- þjónustu af fluginu kalli á umræðu. Það sé ekki sjálfgefið að ferðamönn- um fjölgi eins og flugfarþegum. Þá þurfi að ræða þolmörk innviða. Þær upplýsingar fengust hjá Ice- landair að farþegum sem hafa við- dvöl á Íslandi á leið yfir hafið hefði fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár og nokkurn veginn í hlutfalli við fjölgun farþega. Hlutfallið sé jafnan 20-30% en áætlað að það verði 20-25% í ár. Meira sé um N-Ameríkumenn en evrópska farþega í þeim hópi. »10 Efast um fjölgun farþega  Ferðamálastjóri segir gífurlega fjárfestingu á Keflavíkurflugvelli kalla á svör  Ekki sé sjálfgefið að ferðamönnum á Íslandi muni fjölga í takt við flugfarþega L A U G A R D A G U R 3 0. J Ú N Í 2 0 1 8 Stofnað 1913  152. tölublað  106. árgangur  „ÞAU ERU SANNIR ÍS- LANDSVINIR“ VILJA PRÓFA NÝJA HLUTI JÓI PÉ OG KRÓLI 41MATCHAVARIANI 4 Flestir steindu gluggarnir eftir Gerði Helgadóttur í Skál- holtskirkju eru komnir í kirkjuna að nýju eftir viðgerð í Þýskalandi. Von er á tíu síðustu gluggunum í október. Iðn- aðarmenn vinna nú að því að gera við gluggana og setja upp hlífðargler svo hægt sé að vernda þá fyrir frekari skemmd- um. Gluggar Gerðar hafa lengi verið taldir meðal þjóð- argersema Íslendinga og hefur Skálholtskirkja staðið í ströngu við að fjármagna viðgerðirnar á þeim á síðustu árum, en þær hafa verið afar kostnaðarsamar. »18-19 Menningarverðmætum skilað í Skálholtskirkju Morgunblaðið/Árni Sæberg  Hin brasilíska Beatriz Soares Ladeira fékk A, hæstu einkunn, í samræmdu prófi í íslensku fyrr í vetur eftir að hafa búið aðeins í eitt og hálft ár á Íslandi. Beatriz segist hafa gaman af málfræði og notast við frumlegar lærdómsaðferðir. „Ég gerði lag fyr- ir óákveðin fornöfn og var til dæm- is að bursta tennur og syngja það um leið,“ segir hún. Beatriz er í viðtali í Sunnudags- blaði Morgunblaðsins um helgina ásamt Aline, móður sinni. Aline er læknir en hefur ekki getað starfað sem slíkur á Íslandi. Samdi lag um óákveðin fornöfn Beatriz Soares Ladeira. stofnana á norðausturhorni landsins, hann telji það skipta máli fyrir lax- inn. „Ég er svo lánsamur að geta gert þetta og það er framlag mitt til villtrar náttúru,“ segir Ratcliffe sem er auðugasti íbúi Bretlands. Hann kveðst vera mikill unnandi íslenskrar náttúru. „Ég er aðdáandi náttúrunnar hér sem er ósnortin af manninum og hefur ekki verið spillt,“ segir hann. »16 Breski auðmaðurinn Jim Ratcliffe, sem hefur keypt Grímsstaði á Fjöll- um og jarðir í Vopnafirði og í Þistil- firði, segir náttúruvernd vera eina markmið sitt með kaupunum. Rat- cliffe kemur að leigu tveggja lax- veiðiáa í Vopnafirði og opnaði Selá á fimmtudagskvöldið þar sem hann veiddi fyrstu laxa sumarsins ásamt sonum sínum tveimur. Hann segist líka vilja taka þátt í að vernda laxa- „Framlag mitt til villtrar náttúru“ Morgunblaðið/Einar Falur Veiðibyrjun Fyrsti lax sumarsins hefur tekið flugu Jims Ratcliffe í Selá. Hann naut aðstoðar Gísla Ásgeirssonar staðarhaldara við veiðarnar.  Jim Ratcliffe hóf veiðar í Selá Lítið hefur reynt á hefðbundiðmarkaðs- og sölustarf við að selja ferðir til sólarlanda undanfarnar vikur. Segja má að þær selji sig sjálfar. Þetta segja eigendur nokk- urra ferðaskrifstofa. Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Úrvals-Útsýnar, segir að fólk, sem ekki hafi ætlað sér að fara til út- landa í sumar sé nú að taka ákvörð- un um utanlandsferð með stuttum fyrirvara. „Það eru alltaf leiðir til þess að koma landanum í sól,“ segir Þórunn. »20 Ferðirnar selja sig nánast sjálfar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.