Morgunblaðið - 30.06.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2018
SVIÐSLJÓS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þau eru sannir Íslandsvinir,“ sagði
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís-
lands, um Grigol Matchavariani heit-
inn og fjölskyldu hans, eiginkonuna
Irmu og dótturina Tamar, við athöfn
á Bessastöðum í gær. Þá afhenti Gigi
Gigiadze, sendiherra Georgíu á Ís-
landi með aðsetur í Kaupmannahöfn,
mæðgunum þarlenda heiðursorðu
fyrir framlag Grigols til samskipta
þjóðanna.
Saga Íslandsvinarins Grigol
Matchavariani er mörgum kunn.
Hún var rakin eftirminnilega í Morg-
unblaðinu í fyrravor þar sem rætt var
við mæðgurnar Irmu og Tamar auk
Guðna. Til upprifjunar var Guðni Th.
Jóhannesson við nám í Englandi árið
1991 og hitti þar skiptinema frá
Georgíu. Þeim
þótti að hans sögn
merkilegt að hitta
mann frá Íslandi
því í heimaland-
inu þekktu þau
mann sem elskaði
allt sem íslenskt
er. Guðni var beð-
inn að senda Gri-
gol línu sem hann
og gerði og lét
fylgja með kass-
ettu með íslenskum dægurlögum.
Síðar sendi Grigol honum bréf til Ís-
lands „sem var eins og skrifað úr
fornsögunum,“ eins og forsetinn hef-
ur orðað það. Grigol hafði enda kennt
sjálfum sér íslensku með hjálp bóka
af ýmsu tagi. Hann hafði hins vegar
aldrei komið hingað til lands né hitt
Íslending og vildi bæta úr því. Guðni
ráðlagði Grigol að skrifa bréf í Vel-
vakanda Morgunblaðsins og lýsa yfir
áhuga á því að starfa á Íslandi. Jafn-
framt ætti hann að rita forsætisráð-
herra landsins bréf. Sá var Davíð
Oddsson, núverandi ritstjóri Morg-
unblaðsins. Bréf Grigols á síðum
Morgunblaðsins haustið 1992 vakti
mikla eftirtekt og í kjölfarið bauð for-
sætisráðherra honum og eiginkonu
hans til landsins.
„Honum var boðið hingað til lands
og hér átti hann góð ár, eignaðist
góða vini og lagði svo sannarlega sitt
af mörkum til að minna okkur Íslend-
inga á hvaða menningararf við eig-
um: Þetta tungumál sem er okkur
svo dýrmætt og svo magnað og fal-
legt að það gat fengið óheppinn
bassaleikara í Tblisi til þess að
heillast með okkur. Þetta er falleg
saga sem við skulum hafa í heiðri og
muna,“ sagði Guðni við athöfnina í
gær.
„Hann væri stoltur af þessu“
Irma Matchavariani sagði að þær
mæðgur væru bæði ánægðar og
stoltar að taka á móti umræddri orðu
fyrir hönd Grigols. „Hann væri stolt-
ur af þessu. Grigol elskaði heimaland
sitt, Georgíu, en hann elskaði líka hitt
landið sitt – Ísland. Hann elskaði ís-
lenskar bókmenntir, sögu, fólkið og
síðast en ekki síst íslenska tungu.“
Gigi Gigiadze tók við stöðu sendi-
herra hér í fyrravor og var nú í sinni
fjórðu heimsókn hingað. Hann lofaði
gestrisni þjóðarinnar og sagði að Ís-
land og Georgía ættu margt sameig-
inlegt, til að mynda það að báðar
þjóðir fögnuðu hundrað ára afmæli
sjálfstæðis í ár. „Þessar litlu þjóðir
eiga margt sameiginlegt og ég kann
vel við mig hér. Það sem Grigol gerði
á sínum tíma er ótrúlegt, ég heyrði
þessa sögu frá forsetanum þegar ég
kom hér fyrst og ætlaði ekki að trúa
henni í fyrstu. Saga Grigols er ein-
stök. Fyrir sakir vináttu hans og
vinnu á sínum tíma getum við nú
haldið áfram að dýpka samband þjóð-
anna,“ sagði hann í samtali við Morg-
unblaðið.
Heiðruðu einstakan Íslandsvin
Ekkja Íslandsvinarins Grigols Matchavariani tók við heiðursorðu frá stjórnvöldum í Georgíu fyrir
framlag hans til samskipta þjóðanna „Falleg saga sem við skulum muna,“ segir forseti Íslands
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Á Bessastöðum Mæðgurnar Irma og Tamar Matchavariani eru hér á milli þeirra Davíðs Oddssonar og Guðna Th. Jóhannessonar. Með þeim eru fulltrúar
stjórnvalda í Georgíu sem afhentu þeim mæðgum heiðursorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Lengst til hægri er sendiherrann Gigi Gigiadze.
Grigol
Matchavariani
„Þetta er mjög eftirminnileg saga og aðdragandi henn-
ar var óvenjulegur. Maðurinn var líka allur svo óvenju-
legur, risavaxinn að stærð, fjallmyndarlegur, aðlaðandi
og skemmtilegur,“ segir Davíð Oddsson, ritstjóri Morg-
unblaðsins, sem á þessum tíma var forsætisráðherra
og bauð Grigol Matchavariani til landsins. Grigol og
Irma kona hans komu til Íslands í desember 1992. Þáðu
þau kvöldverðarboð forsætisráðherra.
Davíð rifjar upp að ferð Grigols og eiginkonunnar
hingað til lands hafi ekki gengið þrautalaust. „Þegar
hann kom loksins hittumst við á Hótel Holti. Hann kall-
aði mig alltaf „yðar göfgi“, upp úr bókunum. Ég sagði
að landar mínir væru nú ekki að hafa fyrir því að kalla
mig það en það væri gaman að því meðan það stæði.
Við höfðum beðið sendiherrann að taka á móti þeim í
Moskvu en ekki áttað okkur á því hvað væri erfitt að
komast þangað. Þau komu í lest og þar höfðu ræningjar
reynt að ræna þau. Hann sagði svo við mig á Hótel
Holti: „Það skal ég segja yður, yðar göfgi, að þar fóru
þeir í geitahús að leita ullar.“ Þetta var maður sem
hafði aldrei komið til Íslands! Ótrúlegur maður. En síð-
an hef ég ekki verið kallaður „yðar göfgi“,“ sagði Davíð.
„Þar fóru þeir í geitahús að leita ullar“
DAVÍÐ ODDSSON BAUÐ GRIGOL HINGAÐ TIL LANDS OG TIL KVÖLDVERÐAR Á HÓTEL HOLTI
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Eftirminnileg stund Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráð-
herra Íslands, með Georgíumanninum Grigol Matchavariani og
Irmu konu hans í kvöldverðarboði á Hótel Holti árið 1992.
DimmalimmReykjavik.is
Útsalan
er hafin
40-60%
afsláttur
DIMMALIMM
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, í
samvinnu við tollyfirvöld, hefur
undanfarnar vikur haft til rann-
sóknar umfangsmikið vímuefnamál
sem varðar innflutning á tæpum
þremur kílóum af kókaíni. Fimm
voru handtekin í síðasta mánuði í
þágu rannsóknarinnar og úrskurðuð
í gæsluvarðhald, einn er enn í haldi
lögreglu og tveir sæta farbanni.
Rannsókn málsins, í samvinnu við
Europol, löggæsluyfirvöld í Þýska-
landi og Bandaríkjunum, hraðflutn-
ingafyrirtækið DHL og önnur
lögregluembætti, sé nú á lokastigi.
Sex sitja í gæsluvarðhaldi
Sex sæta nú gæsluvarðhaldi
vegna rannsóknar lögreglunnar á
Suðurnesjum á jafnmörgum málum
er varða innflutn-
ing á vímuefnum,
skv. tilkynningu
frá embættinu. Í
tveimur aðskild-
um málum sé um
að ræða tvo pilta
um tvítugt og að í
þriðja málinu hafi
verið gerð tilraun
til að smygla her-
óíni til landsins.
Hvor piltanna hafði rúmlega kíló af
kókaíni í fórum sínum við komuna
hingað til lands. Þá reyndist einn
karlmaður til viðbótar sem var að
koma frá Köln vera með 105 pakkn-
ingar innvortis og innihéldu þær alls
rúmt kíló af kókaíni. Sá fjórði var
með tæpan lítra af amfetamínbasa í
flösku undan viskíi í farangrinum.
Aðrir sem sæti rannsókn vegna
málanna hafi verið með mun minna
magn. Allir voru þeir stöðvaðir af
tollgæslunni í Leifsstöð.
„Við merkjum hérna hjá okkur
aukningu í neyslu á kókaíni og lyf-
seðilsskyldum, róandi, morfínskyld-
um lyfjum undanfarin tvö ár,“ segir
Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir
á Vogi, í samtali við Morgunblaðið,
sem spurði hvort draga megi ein-
hverjar ályktanir af þessum frétt-
um.
Hún segir áfengi enn langmest
misnotaða vímuefnið, en vill vara
fólk sérstaklega við fikti með mor-
fínskyld róandi lyf þar sem þau geti,
við ranga notkun, valdið öndunar-
stoppi og dauða. ernayr@mbl.is
Þrjú kíló af kókaíni
Valgerður
Rúnarsdóttir.
Yfirlæknir á Vogi merkir aukningu í neyslu á lyfseðils-
skyldum, morfínskyldum lyfjum og kókaíni undanfarin tvö ár