Morgunblaðið - 30.06.2018, Síða 6

Morgunblaðið - 30.06.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2018 Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Uppsagnir tólf ljósmæðra á Land- spítala vegna kjaradeilu Ljós- mæðrafélags Íslands og ríkisins taka gildi á morgun, 1. júlí, og hefur Landspítalinn sent frá sér aðgerða- áætlun til að takast á við starfs- mannaskortinn á fæðingardeildinni. Engin sátt náðist á fundi ljósmæðra og samninganefndar ríksins á fimmtudaginn og engin lausn er í sjónmáli. Fæðingarvakt Landspítalans mun áfram taka á móti konum í fæðingu en búast má við því að konur og ný- burar verði útskrifuð beint í heima- þjónustu af fæðingarvakt sé þess kostur. Í fréttatilkynningu spítalans segir að mögulega verði röskun á framköllunum fæðinga vegna starfs- mannaskortsins og þá mun með- göngu- og sængurlegudeild leggja fimm rúmum. „Þar verður því þrengra um fjölskyldur en undir venjulegum kringumstæðum. Hugs- anlega verður valkeisaraskurðum beint á Akranes og Akureyri. Einnig verður miðað við að útskrifa konur og nýbura eins fljótt og mögulegt er,“ segir í tilkynningunni. Barns- hafandi konum er bent á að leita fyrst á sína heilsugæslustöð nema ef um bráð veikindi eða byrjandi fæð- ingu er að ræða. Spítalinn bendir einnig barnshafandi konum á lækna- vaktina í síma 1770 eftir lokun heilsugæslustöðva. Konum sem nýlega hafa fætt barn er sömuleiðis bent á að leita fyrst á sína heilsugæslustöð, til heimaþjón- ustuljósmóður eða á Læknavakt, nema ef um bráð veikindi sé að ræða. Landspítalinn hefur undirbúið aukna samvinnu milli deilda spít- alans og biðlað til annarra heilbrigð- isstofnana um aðstoð. Hafa heilsu- gæslur höfuðborgarsvæðisins og heilbrigðisstofnanir um allt land samþykkt að veita aukna þjónustu, í samráði við starfsfólk fæðingarþjón- ustu Landspítalans. LSH undirbýr aðgerðir vegna uppsagna ljósmæðra  Raskar framköllunum fæðinga  Þurfa að leggja 5 rúmum Morgunblaðið/RAX Spítali LSH verður að taka 5 rúm úr notkun á meðgöngu- og sængurlegudeild. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Það eru of mörg mál sem rannsaka þarf sem falla á milli og þar á meðal er plastbarkamálið,“ segir Helga Vala Helgadóttir, formaður stjórn- skipunar- og eftirlitsnefndar Alþing- is. Nefndin samþykkti 30. maí sl. að eftirlit með stjórnsýslu dómstóla og plastbarkamálið yrðu tekin upp aft- ur en ekkert hefur verið fjallað um plastbarkamálið frá 2016, segir Lín- eik Anna Sævarsdóttir, varaformað- ur nefndarinnar. Elín Hirst alþingismaður hóf um- ræðu um málið fyrir rúmum tveimur árum með fyrirpurn til heilbrigðis- ráðherra um óháða rannsókn á plast- barkamálinu og velti því upp hvort hér á landi væru starfandi læknar sem hefðu engra hagsmuna að gæta. „Vegna stjórnarskipta 2016 og 2017 tapaðist tími og fjöldi mála hef- ur safnast upp hjá nefndinni. Það er full ástæða til þess að skoða plast- barkamálið og hvort og þá hvernig smæð þjóðfélagsins kemur hugsan- lega í veg fyrir að hægt sé að rann- saka mál eins og það og eftirlit með stjórnsýslu dómstóla, svo vel sé,“ segir Helga Vala. Brynjar Níelsson alþingismaður segir vinnu að hefjast á yfirferð skýrslu óháðu íslensku rannsóknar- nefndarinnar og fleiri gagna sem liggi fyrir. „Plastbarkamálið er risamál úti í hinum stóra vísindaheimi og það skiptir máli að Háskóli Íslands og Landspítalinn njóti trausts í vísinda- samfélaginu. Smæðin hér og tengsl milli manna eru okkur alltaf til traf- ala en við komumst ekki hjá því að rannsaka plastbarkamálið,“ segir Brynjar og bætir við að tilgangurinn sé ekki að klekkja á neinum heldur fá rétta mynd af því sem gerðist, draga af því lærdóm og gera úrbætur. Forstjóri Landspítalans lýsti því yfir í gær, í vikulegum föstudags- pistli, að Landspítalinn hygðist ráð- færa sig að nýju við Háskóla Íslands þegar skólinn hefði yfirfarið úrskurð rektors Karolinska. Í þeim úrskurði er tekið á þætti Tómasar Guðbjarts- sonar, prófessors við HÍ, sem einnig starfar á Landspítala. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skurðlæknir Tómas Guðbjartsson er prófessor við Háskóla Íslands og starfar á Landspítalanum. Spítalinn hyggst ráðfæra sig að nýju við Háskóla Íslands vegna úrskurðar rektors Karolinska um vísindaskrif Tómasar í The Lancet. Smæð þjóðfélagsins og tengsl til trafala  Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd skoðar plastbarkamálið Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra hefur sett saman starfshóp til þess að móta orkustefnu fyrir Ísland til langs tíma. Þetta kom fram í máli ráðherrans þegar hann gangsetti Búfellsvirkjun II sl. fimmtudag. „Orkumál voru okkur hugleikin þeg- ar við settum saman stefnuyfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar. Þrátt fyrir góðar fyrirætlanir og margra ára vinnu hefur okkur ekki tekist nógu vel að leiða mál í jörð með ramma- áætlun. Við töldum þess vegna að til að skapa sátt um orkumálin þyrfti víðtækari nálgun,“ sagði ráðherr- ann. Starfshópnum er ætlað að fjalla um orkumál með tilliti til byggða-, atvinnu- og loftslagsmála – auk þess sem horft skal til afhendingarör- yggis, tekjustreymis og sjálfbærrar nýtingar. Hópurinn hefur þegar haf- ið störf og er ætlað að skila tillögu til Alþingis í ársbyrjun 2020. Grundvöllur þjóðarsáttar um orkumál „Ég bind miklar vonir við að þessi vinna geti hnýtt saman ólík sjónar- mið sem geti þannig orðið grundvöll- ur eins konar þjóðarsáttar um orku- mál,“ sagði Bjarni Benediktsson í ávarpi sínu. Þar gerði hann að um- talsefni að á fundum sínum með er- lendum ráðamönnum og fjölmiðla- fólki tiltæki hann oft augljósa kosti íslenskra afurða með tengingu við raforkumál. Íslenskt ál ætti að njóta forskots vegna uppruna síns og framleiðsluaðferða. „Við eigum að leggja meiri áherslu á það í samtölum okkar á al- þjóðavettvangi að lyfta slíkri fram- leiðslu, sem er afsprengi endurnýj- anlegrar orku, og höfða til vaxandi umhverfisvitundar um allan heim,“ sagði fjármálaráðherra. Orkan skapi ís- lensku áli forgang  Ráðherra skipar starfshóp sem á að móta framtíðarstefnu í orkumálum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ráðherra Bjarni segist binda vonir við starfshóp um orkustefnu. Í lok árs 2014 hófst fyrsta rann- sókn á plastbarkamálinu í Sví- þjóð. Frá árinu 2016 hefur And- ers Hamsten, rektor Karólínsku stofnunarinnar, sagt af sér, sem og ritari Nóbelsverðlauna- nefndarinnar. Paolo Macchiarini skurðlækn- ir, sem stýrði plastbarkaaðgerð- inni, var rekinn frá Karólínska sjúkrahúsinu. Stjórn Karólínsku stofnunar- innar var leyst frá störfum vegna vanrækslu við ráðningu Macchiarini og fyrir að leyfa honum aðgerðir á sjúklingum. Harriet Hallberg, rektor Karól- ínska háskólans í Stokkhólmi, var rekin úr Nóbelsnefndinni. Þessi tóku pokann sinn UPPSAGNIR Í SVÍÞJÓÐ Ljósadýrð á Rín sp ör eh f. Sumar 247. - 14. september Fararstjóri: Kristín Jóhannsdóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Verð: 177.700 kr. á mann í tvíbýli. ÖRFÁ SÆTI LAUS Mjög mikið innifalið! „Ljómar heimur, loga fagur“ verður sjálfsagt hægt að segja í þessari glæsilegu ferð um Rínar- og Móseldalinn. Við heimsækjum m.a. Koblenz, þar sem árnar Mósel og Rín mætast við hið svonefnda Deutsches Eck, höldum til Tríer og bæjarins Königswinter. Hápunktur ferðarinnar verður svo án efa Rhein in Flammen eða ljósadýrð á Rín. Bragi Guðbrandsson var á fundi að- ildarríkja Barnasáttmála Samein- uðu þjóðanna (SÞ) í New York í gær kjörinn í nefnd SÞ um réttindi barnsins til næstu fjögurra ára. Á vef Stjórnarráðsins segir að Bragi hafi fengið 155 atkvæði af 195, en átján frambjóðendur sóttust eftir níu sætum í nefndinni. Bragi, ásamt fulltrúa Samóa, fékk næstflest atkvæði allra, en fulltrúi Marokkó hlaut 160 atkvæði. Nefndin er skipuð átján sjálfstæðum, óháðum sérfræðingum, sem kosnir eru til fjögurra ára í senn. Aðildarríkin kjósa níu sérfræð- inga í júní annað hvert ár, en fyrr á þessu ári sam- þykkti ríkis- stjórnin tillögu fé- lags- og jafnréttismálaráðherra um framboð Braga í nefndina. Bragi Guðbrandsson hlaut góða kosningu í nefnd SÞ um réttindi barnsins Bragi Guðbrandsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.