Morgunblaðið - 30.06.2018, Page 16

Morgunblaðið - 30.06.2018, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2018 STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Jim Ratcliffe hafði ekki tekið mörg köst ofan af klettinum við Selárfoss í Vopnafirði niður í fosshylinn á fimmtudagskvöldið var þegar fyrsti laxinn hremmdi fluguna þar sem hún skautaði fyrir framan brotið. Það strengdist á línunni og veiðimað- urinn, börn hans og viðstaddir leið- sögumenn glöddust. Laxinn fór reyndar af skömmu síðar en þá tók Ratcliffe nokkur köst til ofan af klett- inum og aftur var lax á. Eftir að hafa þreytt sterkan nýrenninginn um stund rétti Ratcliffe öðrum syni sín- um stöngina, sá fetaði sig nær hyln- um, þar sem Hilmar Jónsson leið- sögumaður var reiðubúinn með háfinn, og skömmu síðar stilltu börn Ratcliffes sér upp fyrir myndatöku á bakkanum með fyrsta lax sumarsins í Selá. Og ekki þann síðasta, því Foss- hylurinn var fullur af laxi – eflaust voru þar hátt í eitt hundrað fiskar sem stukku og sýndu sig í kvöldsól- inni – og góð ganga virtist vera í ána. Ratcliffe hafði lærbrotnað rúmum tveimur vikum áður og studdist við hækjur en lét það ekki hindra sig við veiðina. Hann reyndi næst við laxa á Sundlaugabreiðu meðan synir hans köstuðu á Fosshyl og veiðistaðinn Narra, neðarlega í Selá, og á tveimur tímum settu feðgarnir í 13 laxa og lönduðu fimm. Gísli Ásgeirsson stað- arhaldari segir óvenju mikið af laxi gengið í ána miðað við árstíma en vatnsstaðan en líka vænleg eftir hlý- indi og þurrviðrið undanfarið, rennsli árinnar eins og um hásumar. Opnunin sérstakur viðburður Jim Ratcliffe hefur verið í um- ræðunni síðan hann keypti stóran hluta Grímsstaða á Fjöllum. Hann hefur einnig tekið þátt í jarðakaupum í Þistilfirði og í Vopnafirði og leigir þar í firðinum veiðiréttinn í Vestur- dalsá og Selá að hluta. Á dögunum var greint frá því að hinn 65 ára gamli Ratcliffe væri orðinn efnaðasti maður Bretlands – grunnur auðsins liggur í efna- og gasiðnaði – og um svipað leyti sló Bretadrottning hann til ridd- ara. Þetta var í fyrsta skipti sem Rat- cliffe býðst að opna Selá við upphaf veiðitíðar og í samtali við blaðamann kveðst hann afar ánægður með það. „Ég hef aldrei opnað laxveiðiá fyrr og það er sérstök reynsla,“ segir og brosir. „Opnunin er ætíð sérstakur viðburður við ána og svo er kvöldið dýrlegt og hylurinn ekki síður, í þess- ari dýrlegu á!“ Ratcliffe hefur komið til veiða í Selá undanfarin ár, auk Vesturdalsár, og greinilega bundist svæðinu sterk- um böndum. Hann lætur lærbrotið ekki draga úr veiðilönguninni og kom því til veiða ásamt börnum sínum. Og hann kemur aftur á næstunni eftir að hafa veitt nú um helgina, strax snemma í júlí og síðan tvisvar í ágúst, segir hann. En var það laxveiðin sem dró hann til Íslands til að byrja með? „Ég þekkti herramann að nafni John Jacobs, sem var fyrirliði Ryder Cup-liðsins enska fyrir mörgum ár- um, og hann var vinur Orra Vigfús- sonar. Það var Jacobs sem kynnti mig fyrir Íslandi – og þetta er yndis- legt land. Ég kann vel að meta Ís- land,“ svarar hann. Vernda hrygningarsvæðin Er það ennþá laxinn sem dregur hann einkum til landsins? „Það er ýmislegt. Ég er aðdáandi náttúrunnar hér, sem er ósnortin af manninum og hefur ekki verið spillt. Það eru mikil forréttindi að geta verið á slíkum stað. Nú eru ekki eftir marg- ir staðir á jörðinni þar sem maðurinn hefur ekki haft áhrif. Hér hefur maður svo heila á til að veiða,“ segir Ratcliffe og bendir upp eftir Selá þar sem hún sést streyma fram dalinn að baki honum. „Í Skot- landi geta menn bara veitt á afmörk- uðum svæðum, hér fá veiðimenn heila á. Það er sérstakt.“ Og við erum sam- taka í aðdáun okkar á sjóninni sem hafði blasað við í fosshylnum, þar sem mikill fjöldi laxa hafði safnast saman, í öllum holum og rennum. „Ég hef aldrei séð annað eins, það hljóta að vera hundrað laxar í hylnum,“ segir hann. Jarðakaup Jims Ratcliffes á Norð- urlandi og á norðausturhorninu hafa verið umtöluð og þegar hann er innt- ur eftir því hvort hann kaupi jarðir hér til að vernda landið og náttúruna segir hann það vera eina markmiðið með kaupunum. „Og að vernda laxa- stofnana,“ bætir hann við. „Við getum ekki gert allt til að tryggja viðkomu laxins en við getum þó að minnsta kosti verndað hrygn- ingarsvæðin. Ég get ekki gert mikið í því sem kemur fyrir laxinn í hafinu en ég tel að það að vernda laxveiðiárnar á norðausturhorni Íslands skipti máli fyrir laxinn, ef okkur tekst að gera það. Þetta er það sem ég hef áhuga á að gera hér; að hjálpa til við að vernda laxinn.“ Þegar Ratcliffe er spurður hvort hann líti á það sem skyldu sína að styðja við laxastofnana svarar hann játandi. „Ég er svo lánsamur að ég get gert þetta og það er framlag mitt til villtrar náttúru í heiminum,“ svar- ar hann. Vonum framar í Hofsá Veiði hófst í nágrannaánni Hofsá í Vopnafirði degi fyrr, á miðvikudag, og var veitt á fjórar stangir í opn- unarhollinu. Hofsárdalur skartar sínu fegursta í blíðunni þessa daga og þegar blaðamaður hitti félagana Ara Þórðarson og Ívar Kristjánsson við Arnarhólshyl á seinni vaktinni á mið- vikudag var Ari að þreyta sterkan lax. Sá lét hafa talsvert fyrir sér en að lokum höfðu þeir hendur á 72 cm þykkri hrygnu, sem synti aftur út í strauminn eftir myndatöku. Fyrsti dagurinn í Hofsá gaf átta laxa og fimmtudagurinn fimm. Blaða- maður hitti Ara þá aftur og hann var ánægður með ganginn. „Opnunin hef- ur gengið vonum framar, áin er greinilega komin fram á sumar og er í fallegu vatni,“ segir hann. „Veiðin byrjar mjög vel – þetta er til fyrir- myndar.“ Og eftir nokkuð krappa niðursveiflu í veiðinni í Hofsá síðustu ár telur Ari nú góða ástæðu fyrir bjartsýni um göngur í ána. „Í opnun síðustu ár hefur hún líka verið í flóði og aðstæður erfiðar, nú er ekkert slíkt, þetta er bara frábært.“ Og fisk- arnir voru að veiðast á öllum sjö svæðum Hofsár, laxar frá 69 upp í 94 cm langir. 104 cm hængur í Dölunum Veiði hefur hafist í hverri laxveiði- ánni á fætur annarri að undanförnu. Fyrsta hollið í Húseyjarkvísl í Skaga- firði fékk 16 laxa á þremur dögum og segir Valgarður Ragnarsson, leigu- taki árinnar, það góða byrjun og lofa góðu fyrir sumarið. Næsta holl hóf síðan veiðar með því að landa 97 cm hæng. Þórir Örn Ólafsson veiddi sann- kallað tröll í veiðistaðnum Helga- bakka í Laxá í Dölum, 104 cm hæng sem var 53 cm að ummáli og tók hann þýska snældu. 26 laxar höfðu veiðst í Dölunum á miðvikudagskvöldið. Þann dag hófst veiði á efsta svæði Stóru-Laxár og var átta stórlöxum landað á fyrstu vöktum, auk margra sem veiðimenn misstu. Flestir veidd- ust á Hólmasvæðinu. Veiðitölur vikunnar á vef Lands- sambands veiðifélaga sýna að mest hefur veiðst í Þverá-Kjarrá, 452 lax- ar. Þá koma Urriðafoss í Þjórsá með 391 lax og Norðurá með 350 en veiðin hófst snemma á þessum svæðum. Fyrir norðan hafa 177 veiðst í Mið- fjarðará, 175 í Blöndu, 48 í Vatns- dalsá og 41 í Víðidalsá. Elliðaárnar byrja með svipaða veiði og síðustu tvö sumur; 117 laxa fyrstu vikuna. Sá fyrsti á Jim Ratcliffe þreytir fyrsta lax sumarsins í Selá ofan af kletti við Selárfoss. Börn hans og leiðsögumenn við ána fylgjast með. Óvenjumikið af laxi var gengið í Selá fyrir opnun. Togast á Ari Þórðarson hefur sett í lax við Arnarhólshyl í opnun Hofsár og Ívar Kristjánsson félagi hans fylgist með. Þrettán var landað fyrstu tvo dagana í Hofsá, á fjórar stangir. „Aðdáandi náttúrunnar hér“  Jim Ratcliffe, eigandi Grímsstaða og leigutaki laxveiðiáa í Vopnafirði, segir náttúruvernd mark- miðið með jarðarkaupum sínum hér á landi  Hóf veiðar í Selá ásamt börnum sínum og gekk vel Morgunblaðið/Einar Falur Veiðin hafin Börn Jims Ratcliffes, George, Sam og Julia, með fyrsta lax sum- arsins í Selá, 80 cm hrygnu sem Ratcliffe setti í og þreytti en George stýrði í háfinn. Ratcliffe og Gísli Ásgeirsson staðarhaldari eru uppi á klettinum. Með sjálfbærni að leiðarljósi Finnsk innanhússhönnun 02.03–02.09.2018 www.norraenahusid.is Innblásið af Aalto Vogir sem sýna verð á vörum eftir þyngd Löggiltar fyrir Ísland og tilbúnar til notkunar ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum VERSLUNAR- VOGIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.