Morgunblaðið - 30.06.2018, Page 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2018
Um svipað leyti og OpnaÍslandsmótið fór fram íValsheimilinu á Hlíðar-enda fylgdust Norð-
menn spenntir með „Norska skák-
mótinu“ sem haldið var í sjötta sinn
í Stafangri. Magnús Carlsen aftur í
eldlínunni og efstur lengi vel eftir
sigra á Caruana og Aronjan í byrj-
un móts en tapaði svo óvænt fyrir
Wesley So og á lokametrunum
skreið áskorandinn Caruana fram
úr og varð einn efstur.
Þetta er í annað sinn á þessu ári
sem Caruana vinnur mót þar sem
sem Magnús er meðal þátttakenda,
sem er ekki slæmt innlegg hjá
Bandaríkjamanninum fyrir tauga-
stríðið framundan. Magnús hefur
nú samt staðið vel fyrir sínu með
sigri í Wijk aan Zee í ársbyrjun og á
minningarmótinu um Gashimov í
Shamkir í Aserbaídsjan. Þess utan
hefur hann átt létt með að tefla við
Caruana og þess vegna finnst
frændum okkar horfur góðar fyrir
einvígið sem hefst í London í nóv-
ember nk. Engu að síður eru Norð-
menn dálítið að klóra sér í höfðinu
og spyrja hvernig megi standa á því
að þeirra maður hafi aðeins einu
sinni unnið „Norska mótið“ í sex til-
raunum. Hvað um það, lokanið-
urstaðan varð þessi:
1. Caruana 5 v (af 8) 2. – 4. Carl-
sen, Nakamura og Anand 4 ½ v. 5. –
6. So og Aronjan 4 v. 7. Mamedya-
rov 3 ½ v. 8. – 9. Vachier Lagrave
og Karjakin 3 v. Kínverjinn Liren
Ding varð að hætta keppni eftir
þrjár umferðir eftir að hafa lent í
hjólreiðaslysi.
Viswanathan Anand sem verður
fimmtugur á næsta ári, langelstur
keppenda, náði enn einu sinni góð-
um árangri. Það er alltaf áhugavert
að sjá hann fást við byrjanir sem
eru í deiglunni, sbr. eftirfarandi
skák:
Norska skákmótið 2018; 6. um-
ferð:
Sergei Karjakin – Viswanathan
Anand
Drottningarbragð
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3
Be7 5. Bf4 O-O 6. e3 c5 7. dxc5
Bxc5 8. Dc2 Rc6 9. a3 Da5 10. O-
O-O Re4!?
Að hrókera langt í þessu afbrigði
þótti dálítið djarft á sínum tíma en
10. leikur Anands er varasamur
eins og Kasparov sýndi fram á í
frægri skák við Vaganian á EM
landsliða í Debrecen árið 1992.
11. Rb5 a6 12. Rc7 e5 13. Hxd5
exf4!
Hér er komin fram endurbót An-
ands á taflmennsku Vaganians sem
lék 13. ... f5 sem er mun lakara.
14. Dxe4 Dxc7 15. Hxc5 fxe3 16.
Bd3 g6 17. fxe3
Eða 17. Dxe3 b6 18. Hg5 Ra5! og
möguleikar svarts eru ekki verri.
17. ... Be6 18. Dh4 Hae8 19. Be4
Db6 20. Dh6!?
Með hugmyndinni 20. ... Dxc5 21.
Rg5 Dxe3+ 22. Kb1 og svartur
verður að láta drottninguna til að
verða ekki mát.
20. ... f5 21. Rg5 Hf7!
Sterkur varnarleikur og mun
betri en 21. ... He7 sem er svarað
með 22. Rxe6 Hxe6 23. Bd5 og vinn-
ur.
22. Bd5 Bxd5 23. Hxd5 Dxe3 24.
Kb1 Hfe7 25. Hhd1 De2 26. h4?
Þetta hefur sennilega átt að vera
vinningstilraun en er afleitur leik-
ur. Best er 26. Hd6 og eftir 26 ...
Dxc4 getur hann þvingað fram jafn-
tefli með 27. Hxg6+ hxg6 28.
Dxg6+ Kh8 29. Dh6+ o.s.frv.
Meira er ekki að hafa.
26. ... Re5!
27. Rf3
Honum sást yfir að 27. Hd8 er
svarað með 27. ... Dxd1+! 28. Hxd1
Rg4 og drottningin fellur.
27. ... De4+ 28. Ka2
Eða 28. Ka1 Rg4 29. Dc1 Re3
sem vinnur skiptamun.
28. ... Dxc4+ 29. Ka1 Rg4 30.
Dc1 Dxc1 31. Hxc1 Kg7 32. h5 Rf6!
- Þar féll annað peð og fram-
haldið alveg vonlaust. Karjakin
gafst upp.
Magnúsi Carlsen
gengur illa á heimavelli
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Ljósmynd/Chesssbase
Norska skákmótið Viswanathan Anand, til hægri, leggur Karjakin að velli.
Alkunna er að er-
lendir ferðamenn á Ís-
landi vanmeta oft veð-
urfar hér. Jafnvel um
hásumarið lenda þeir
stundum í miklum erf-
iðleikum vegna van-
þekkingar á aðstæðum
hér á landi og eru þeirri
stundu fegnastir þá
velbúnar og þjálfaðar
björgunarsveitir koma
þeim til aðstoðar.
Ein af afleiðingum bankahrunsins
fyrir nær áratug var að erlendur fjár-
málamaður búsettur í Kanada komst
yfir meirihluta í Hitaveitu Suðurnesja
sem nú er nefnd HS Orka. Sennilega
voru það ein alvarlegustu afglöp
vinstristjórnar Jóhönnu Sigurðar-
dóttur að koma ekki í veg fyrir þetta
óhapp.
Þáverandi stjórnarandstæðingar
lögðu ofurkapp á að gera samninga við
Breta og Hollendinga um Icesave tor-
tryggilega þó svo að það mál leystist
mjög farsællega, bæði fljótt og vel,
enda stóðu útistandandi skuldir gamla
Landsbankans vel undir öllum skuld-
bindingum og kostnaði. Því var mjög
miður að stjórnarandstaðan brást á
sama tíma við að koma í veg fyrir að
þessi kanadíski forréttingamaður
kæmist yfir aðgang að íslenskum
orkulindum á hrakvirði. Þessi erlendi
aðili vill nú hámarka hagnað sinn af
þessu vellukkaða fjármálaævintýri
sínu og fyrir honum er náttúra lands-
ins einskis virði nema hægt sé að
virkja sem mest og það strax.
Það er einmitt þessi sami aðili sem
stendur á bak við allan þrýstinginn á
að virkja norður á Ströndum. Foss-
arnir upp af Ófeigsfirði á Ströndum
eru sagðir vera mjög fagrir og áhuga-
verðir fyrir ferðaþjónustuna. Hafa
Tómas Guðbjartsson læknir og marg-
ir fleiri bent á þessa einföldu stað-
reynd og lagt mikið á sig til að kynna
fyrir okkur landsmönnum hvaða verð-
mæti eru þarna í húfi og hve mikils-
vert er að koma í veg fyrir eyðilegg-
ingu á perlum náttúrunnar. Fossarnir
í Hvalsá eigi að vera eins og náttúran
hefur mótað þá og þannig orðið mikils-
vert aðdráttarafl, eigi að vera yndi og
ánægjuleg upplifun fyrir ferðamenn
framtíðarinnar.
Ef af virkjun í Ófeigsfirði verður
þarf að flytja rafmagnið þaðan og
þangað sem á að nota það um mörg
hundruð kílómetra leið um mjög erfitt
land. Vestfirðir eru landsþekktir fyrir
að vera eitt versta veðravíti landsins,
einkum á vetrum. Enn
er í minni margra Hala-
veðrið 1925 þá þrjú skip
fórust undan norðan-
verðum Vestfjörðum.
Þegar Mjólkárvirkjun
hafði verið byggð fyrir
um 60 árum gerðist það
aftur og aftur að raf-
magnsstaurar brotnuðu
vegna illviðra, einkum
við norðanverðan Arn-
arfjörð. En veður fyrir
opnu hafi eru enn verri
en í skjóli fjalla við inn-
anverða firði. Má reikna með að
annaðhvort verði loftlínur að vera
mjög öflugar og þar með rándýrar
eða að lagðir verði rafstrengir í jörð
til að auka rekstraröryggi en þeir
þykja enn nokkuð dýrir. Það er lík-
lega ekki hagkvæmt fyrir svo lítið
orkumagn en talað er um að virkjun
þessi gæti gefið af sér 55 MW sem í
samanburði er eins og fremur lítil
túrbína í virkjunum í eigu Lands-
virkjunar.
Ekki er ósennilegt að hinum
kanadíska forréttingamanni yfirsjáist
íslensk náttúra rétt eins og öllum
ferðamönnunum sem ana út í tóma
vitleysu án þess að gera sér minnstu
grein fyrir þeim vanda sem bíður
þeirra í veðravítum Íslands.
Miður er að ýmsir eins og ráðherra
ferðamála taki undir sjónarmið hins
kanadíska athafnamanns.
Meðan ekki hefur fundist nein að-
ferð til að halda aftur af illviðrinu á
Íslandi tel ég þessar hugmyndir um
að virkja á norðanverðum Vest-
fjörðum einhverja verstu heimsku
sem lengi hefur sést.
Kannski ráðherrann og kanadíski
athafnamaðurinn ættu að hafa
vetrardvöl norður á Ströndum og
kynna sér betur hversu veður geta
orðið válynd úti við ysta haf!
Vanhugsuð virkjun
Eftir Guðjón
Jensson
Guðjón Jensson
»Meðan ekki hefur
fundist nein aðferð
til að halda aftur af ill-
viðrinu á Íslandi tel ég
þessar hugmyndir um
að virkja á norðanverð-
um Vestfjörðum ein-
hverja verstu heimsku
sem lengi hefur sést.
Höfundur er leiðsögumaður og eldri
borgari í Mosfellsbæ.
arnartangi43@gmail.com
Halló Íslend-
ingar!
Ég skrifa ykk-
ur þetta bréf frá
Rússlandi. Eftir
veru ykkar hér
líður mér eins og
við höfum eignast
í ykkur nána vini.
Ég dáist að
menningu ykkar og hef haft áhuga á
sögu víkinga og ásatrú í langan tíma.
Mig langar til að þakka ykkur fyr-
ir hlýtt viðmót og skemmtilega
framkomu á HM 2018 í Rússlandi.
Frammistaða ykkar í leiknum móti
Argentínu vakti mikla hrifningu og
aðdáun. Þá var ekki síður stórkost-
legt að heyra íslenska stuðningshóp-
inn syngja rússneska þjóðsöngva.
Mér fannst það frábært, það snerti
mig mjög og hvatti mig til að læra ís-
lensku.
Heimsækið okkur oftar og berið
með ykkur söng, gleði og fótbolta.
Þið gerið það svo vel.
Við vonumst til að sjá ykkur fljót-
lega í Sevastopol.
Með bestu kveðju,
Ivan Kozhakov, rússneskur
nemi í tölvunarfræðum.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Kalinka Íslenskir stuðningsmenn landliðsins syngja á rússnesku.
Skjáskot/Youtube
Kveðja til allra Íslendinga
Venjulegt fæði okkar
gerir líkamann súran.
Þurrkar og herðir
vöðva og sinar. Lík-
aminn missir spennu
sína og verður stífur og
stirður, hreyfingarnar
verða veiklulegar og
úrgangsefnin hlaðast
upp. Stóru vöðvar
mjaðma og sitjanda
geta orðið harðir eins
og spýta. Þessu má bjarga á einfald-
an hátt með þolinmæði og langbaði.
Við á Íslandi höfum vatn sem er ekki
langt frá regnvatni með lítið af sölt-
um og var það eftirsótt fyrir gufu-
vélar fyrrum. Söltin í vatni fellu út og
einangruðu rörin sem yfirfærðu
varmaorkuna við að gera gufu til að
knýja skipsvélarnar. Ég kom að því
að við notuðum sjó á gufukatlana
vegna vatnsleysis í Fiskimjölsverk-
smiðjunni í Vestmannaeyjum sem
getur verið lífshættulegt og þeir
sprungið. Var mikil vinna með jóna-
skiptum og öðrum efn-
um og svo að blása út-
fellingunum úr
kötlunum. En þetta
hreina vatn okkar má
líka nýta heilsusamlega
til að koma útfellingum,
eiturefnum og úrgangs-
efnum út úr skrokknum
okkar. Þetta er unnt og
auðvelt að gera á
hverju heimili en hreint
vatnið sogar til sín eit-
urefni úr vefjunum ef
líkaminn er látinn
liggja í blóðvolgu vatninu (36-37 °C ) í
baðkari. Passa verður að halda þessu
hitastigi allan tímann. Það tekur þrjá
tíma að ná til innri líffæra og 6-9 tíma
að ná til lifrar og nýrna. Gallsteinar
verða svo mjúkir að þeir ganga oftast
niður. Sama á sér stað með útfelling-
ar í ristlinum en hann sé þó alltaf
tæmdur fyrir baðið. Sé epsomsalt
(1-2 kg) sett út í baðið eftir 5-6 tíma
má ná úr sér liðagigt á um klukku-
stund í viðbót. Það sem á sér stað er
svokölluð osmósa (sveim) en hún
byggir á því að sé gegndræp himna
(hér húðin) milli tveggja saltlausna
streyma efnin úr sterkari lausninni
yfir í þá veikari. Volgt vatnið mýkir
og leysir upp útfellingarnar í líkam-
anum en það tekur bara sinn tíma og
er langbað líklega minna notað vegna
þessa því fólk er svo stressað með
tíma. Það mætti lesa heila bók í hvert
sinn til að drepa tímann. Eftir að
hafa gert þetta einu sinni er auðveld-
ara að hreinsa út næst. Þetta er því
hollusta sem um munar og gæti hent-
að öldruðum vel.
(Byggt á upplýsingum í bók
Werner Zimmermann, Heilendes
baden, München 1948.)
Hið náttúrulega
og heilsusama langbað
Eftir Pálma
Stefánsson » Þetta er ódýrasta
detox-aðferðin og
byggir á saltlitlu ís-
lensku vatni og má gera
á flestum heimilum sem
hafa baðkar og hita-
mæli.
Pálmi Stefánsson
Höfundur er efnaverkfræðingur