Morgunblaðið - 30.06.2018, Side 30

Morgunblaðið - 30.06.2018, Side 30
Minningargreinar Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn- ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. 30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2018 ✝ Eyrún Rann-veig Þorláks- dóttir fæddist 20. desember 1934 á Laugarbökkum í Ölfusi. Hún lést á hjúkrunardeildinni á Fossheimum á Selfossi 23. júní 2018. Hún var dóttir hjónanna Ragn- heiðar Runólfs- dóttur, f. 23.12. 1900 í Hólmi í Landbroti, d. 20.2. 1984, og Þorláks Sveinssonar, f. 2.10. 1899 í Seglbúðum í Landbroti, d. 13.6. 1983. Systkini hennar: Auður, f. 12.11. 1928, d. 15.11. 1928, Sveinn, f. 28.10. 1929, d. 11.1. 1930, Rósa, f. 8.6. 1931, Runólfur Sveinn, f. 15.2. 1933, og Páll Auðar, f. 19.7. 1936. Eyrún Rannveig giftist 22.11. 1953 Lúðvík Haraldssyni (fæddur Lloyd Martin Kyvik) bónda, f. 13.10. 1931 í Brook- víksson, f. 6.11. 1960, kvæntur Laufeyju Jónsdóttur, f. 29.12. 1961. Börn þeirra eru: Eyrún Inga, f. 12.11. 1991; Ásta Lára, f. 13.4. 1994; Jón Lloyd, f. 21.4. 2007. Eyrún Rannveig ólst upp hjá foreldrum sínum á Sandhóli í Ölfusi ásamt systkinum sínum. Hún gekk í barnaskóla í Hveragerði. Hún starfaði við verslunar- og talsímastörf áður en hún gerðist húsmóðir og bóndi á Krossi í Ölfusi. Á Krossi stunduðu þau hjónin bú- skap alla sína starfsævi. Sam- hliða því vann hún ýmis störf, t.d. hjá Sláturfélagi Suðurlands á Selfossi, Grunnskólanum í Hveragerði og víðar. Hún tók virkan og víðtækan þátt í safn- aðarstarfi Kotstrandarkirkju, var þar kirkjuvörður auk þess að sitja í sóknarnefnd, um tíma sem ritari nefndarinnar. Að auki voru þau hjónin umsjón- armenn kirkjugarðs Kotstrand- arkirkju um árabil. Síðustu tvö æviár sín dvaldist Eyrún Rann- veig á hjúkrunardeildinni Foss- heimum á Selfossi. Útför Eyrúnar Rannveigar fer fram frá Kotstrandarkirkju í dag, 30. júní 2018, kl. 14. lyn, New York í Bandaríkjunum, d. 19.7. 2013. For- eldrar hans voru Arnulf Harald Ky- vik, f. 22.11. 1903, d. 25.6. 1968, og Magny Kyvik, f. 1.8. 1900, d. 13.1. 1960. Börn Eyrúnar Rannveigar og Lúðvíks eru: 1) Ragnheiður, f. 17.5. 1954, gift Þorsteini Jóhanni Vilmund- arsyni, f. 23.10. 1953. Börn þeirra eru: Vilmundur, f. 7.11. 1975, kvæntur Olgu Rom- balska, f. 11.7. 1984, sonur þeirra er Jóhann Wojtek, f. 1.1. 2007; Edda Lydia, f. 4.5. 1978; Auður Ósk, f. 31.10. 1984, gift Ottó Frey Birgissyni, f. 9.9. 1982, börn þeirra eru Ragnheiður María, f. 14.11. 2007, og Birgir Steinn, f. 23.7. 2010. 2) Magnús Arnulf Lúð- Eyrún Rannveig Þorláksdótt- ir, alltaf kölluð Edda, er látin. Með henni kveðjum við hjónin á Krossi en Lloyd eiginmaður hennar lést 19.7. 2013. Þau hjónin eignuðust tvö börn og þau fjögur voru einstaklega samheldin fjöl- skylda. Edda var frá Sandhól og fékk þar mjög ástríkt uppeldi. Hún giftist eiginmanni sínum 1953 og saman byggðu þau upp jörðina Kross. Edda unni sveitinni og kirkjunni sinni, Kotstrandar- kirkju. Hún var ötul í uppbygg- ingu kirkjugarðsins og kirkjunn- ar. Hún var um tíma í sóknar- nefnd kirkjunnar. Ræktarsemi einkenndi hana. Hún ræktaði landið sitt, búféð sitt og samfélag- ið sitt. Mikill styrkur og traust fylgdi nærveru hennar. Kross- heimilið var stórt en Edda var oft líka að aðstoða á Sandhól og í vinnu fyrir kirkjuna og kirkju- garðinn. Það var mjög gestkvæmt á Krossi enda óskaplega vel tekið á móti fólki. Kaffisopi með heima- bökuðu meðlæti var einstaklega nærandi og best var þó endur- nærandi spjallið við Eddu. Hún gaf sér tíma til að hlusta á fólk og spjalla þrátt fyrir annirnar. Til Eddu leituðu margir um stuðning og styrka nærveru. Vinir litu inn, ættingjar héðan og frá útlöndum, börnin hennar, barnabörnin, langömmubörnin og aukabörn. Edda var með mörg börn í sveit og mörg hafa haldið tryggð við hana alla ævi. Ég þakka Eddu fyrir sam- fylgdina þessi 36 ár, stuðninginn, hjálpina með börnin mín og allar góðu samverustundirnar á Krossi. Ég kveð Eddu og Lloyd, mína kæru tengdaforeldra, og Kross- heimilið með söknuði. Til þeirra var svo gott að leita. Hvíl í friði. Laufey Jónsdóttir. Elsku amma mín. Ég mun allt- af sakna þín. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Þú varst frá- bær amma og þú gerðir allt vel. Þú varst góð fyrirmynd fyrir mig og alla fjölskylduna mína. Jón Lloyd Magnússon. Góðvild og hlýja einkenndu þig. Þú gafst þér alltaf tíma til að hlusta á mig. Ég sakna mun þinna blíðu orða. Ég sakna þess góða sem þú gafst mér að borða. Núna ertu horfin mér frá. Englar ávallt vaki þér hjá. Hvíldu í friði, amma mín. Ég á eftir að sakna þín. Ásta Lára Magnúsdóttir. Elsku amma í sveitinni. Ég sakna þín. Ég sakna þess að geta faðmað þig og fengið kraft frá þér. Ég sakna þess að koma í heimsókn og gleyma öllu nema líðandi stund. Ég sakna þess að fá hjálp frá þér, hvort sem það er um matargerð eða heimsins vanda- mál. Amma mín var einstök kona. Amma var yndisleg, góð og frá- bær vinur. Amma var alltaf tilbú- in til að taka á móti fólki. Hún stóð klár með pönnukökur í eldhúsinu, kaffi eða mjólkurglas og mikla visku. Í gegnum tíðina þekkti amma alveg svakalega mikið af fólki. Heima á Krossi voru gestir og gangandi alltaf velkomnir. Mér leið alltaf mjög vel í sveit- inni. Ég man eftir því að vera svo spennt að fara í fjósið með ömmu og afa að ég hljóp út á náttkjól og stígvélum til þess að standa klár við verkin. Amma og afi stöfuðu frá sér kærleika og umhyggju til allra sem þau hittu fyrir. Hjá þeim urðu til ógleymanlegar minningar sem fylgja mér um ókomna tíð. Þau byggðu mig upp og gerðu mig andlega sterkari. Fyrir það er ég þeim ævinlega þakklát. Gæska, góðmennska og velvild eru örfá hugtök sem lýstu ömmu minni. Hún var fyrirmynd mín í mannlegum samskiptum og umburðarlyndi. Það er fararnesti sem ég hef með mér alla ævi. Elsku amma, ég veit að afi tók á móti þér. Ég vona að þið hafið það gott saman hvar sem þið eruð. Hvíl í friði. Þín Eyrún Inga. Elsku amma. Þakklæti er mér efst í huga þegar ég hugsa til þín, þakklæti fyrir að hafa átt þig sem ömmu, en yndislegri ömmu hefði ég ekki getað fengið. Þú varst með hjarta úr gulli, alltaf tilbúin til að aðstoða og gefa af þér. Þú dæmdir aldrei fólk og tókst alltaf öllum með opnum örmum. Þú varst einstök fyrirmynd sem ég lít mikið upp til, hjartahlý, jákvæð, brosmild og gerðir allt svo vel. Minningarnar eru margar, hver annarri dýrmætari, og varð- veiti ég þær vel í hjarta mínu og deili með langömmubörnunum Ragnheiði Maríu og Birgi Steini, sem þótti einnig svo vænt um þig. Það er sárt að kveðja elsku amma, nú ertu komin aftur í faðm elsku afa sem var þinn sálufélagi í gegn- um lífið. Þakka þér fyrir allt elsku amma, ég elska þig, þín verður sárt saknað. Við kveðjum þig kæra amma með kinnar votar af tárum á ást þinni enginn vafi til okkar, við gæfu þá bárum. Horfin er hönd þín sem leiddi á hamingju- og gleðifundum, ástúð er sorgunum eyddi athvarf á reynslustundum. Margt er í minninga heimi mun þar ljósið þitt skína, englar hjá guði þig geymi við geymum svo minningu þína. (Höf. ók.) Blessuð sé minning þín. Þín Auður Ósk. Elsku yndislega amma mín, sárt er til þess að hugsa að þú sért farin frá okkur en huggun í harmi að nú eruð þið afi sameinuð á ný. Þú varst amma í orðsins fyllstu merkingu og mín helsta fyrir- mynd, alltaf tilbúin með opinn faðminn að hugga og hughreysta og alltaf til nóg af þolinmæði og hlýju í faðmi þínum. Mínar bestu minningar á ég hjá ykkur afa í sveitinni og er gott að geta yljað sér við þær. Það var gott að vera í kringum þig, þú hafðir svo góða nærveru, varst svo jákvæð, úr- ræðagóð og tilbúin að rétta öllum hjálparhönd. Þú taldir það ekki eftir þér að gera hlutina og vannst jafnt í útiverkum og inniverkum, bjóst til veislur úr engu og prjón- aðir eins og prjónavél. Dugnaður, seigla og orka eru orð sem poppa upp í hugann er ég hugsa til þín og er ég ákaflega þakklát fyrir að hafa verið svona Eyrún Rannveig Þorláksdóttir Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag? Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is. Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti. Katla Þorsteinsdóttir, lögfræðingur Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Kristín IngólfsdóttirSverrir Einarsson Margrét Á. Guðjónsd. Hannes Ó. Sampsted Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG JÓHANNESDÓTTIR, Skipastíg 6, Grindavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 23. júní. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju þriðjudaginn 3. júlí klukkan 14. Sveinn Þ. Sigurjónsson Sjöfn Sveinsdóttir Sólmundur Sigurðsson Ásta Sveinsdóttir Þorsteinn Helgason Jóhannes G. Sveinsson Rakel Erlingsdóttir Þór Sveinsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, ÁRNI BJÖRN ÓMARSSON, Hverfisgötu 22, Hafnarfirði, sem lést á hjartadeild Landspítalans þriðjudaginn 19. júní, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju mánudaginn 2. júlí klukkan 13. Borghildur Þórisdóttir Þórir Árnason Þórunn Árnadóttir Oddný Árnadóttir Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN H. ÞÓRÐARSON, Ytra-Krossanesi, lést fimmtudaginn 21. júní. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 2. júlí klukkan 13.30. Guðmundur Kristjánsson Manevan Yothakong Laufey Kristjánsdóttir Jósep Hallsson Ingvar Kristjánsson Sigurlaug Stefánsdóttir Arnar Kristjánsson Katrín Eiðsdóttir Brynjar Kristjánsson Freydís Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVERRIR BJÖRGVIN VALDEMARSSON, fyrrverandi verslunarstjóri ÁTVR, lést í faðmi ástvina mánudaginn 25. júní. Jarðsungið verður frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 6. júlí klukkan 13. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Sólvangs, 4. hæð, fyrir einstaka umönnun og hlýju. Brynhildur Sverrisdóttir Atli Guðmundsson Júlíus Atlason Lilja Björk Einarsdóttir Jórunn Atladóttir Albert Steinn Guðjónsson Sóley Birna, Björgvin Atli, Bjarki Marinó, Gabríela og Dagur Snær Bróðir okkar, mágur og frændi, BRAGI HJÖRTUR ÓLAFSSON, Furugerði 1, Reykjavík, lést föstudaginn 15. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Systkini og fjölskyldur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURVEIG GARÐARSDÓTTIR MÝRDAL, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum þriðjudaginn 27. júní. Sigurjón Mýrdal María Sophusdóttir Garðar Mýrdal Ingibjörg Ósk Kjartansdóttir Jón Agnar Mýrdal Vivian Hansen barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.