Morgunblaðið - 30.06.2018, Síða 31
mikið í kringum þig, stundirnar
með þér eru minn mesti lærdóm-
ur og munu fylgja mér út allt lífið.
Þú varst stolt af okkur barna-
börnunum og fylgdist af áhuga
með því sem ég tók mér fyrir
hendur og varst dugleg að hvetja
mig áfram. Elsku amma, þú hefur
átt mikinn þátt í lífi mínu, gefið
mér svo mikið og það þakka ég
þér.
Við höfði lútum í sorg og harmi
og hrygg við strjúkum burt tárin af
hvarmi.
Nú stórt er skarð í líf okkar sorfið
því fegursta blómið er frá okkur horfið.
Með ástúð og kærleik þú allt að þér
vafðir
og ætíð tíma fyrir okkur þú hafðir
þótt móðuna miklu þú farin sért yfir
þá alltaf í huga okkar myndin þín lifir.
Við kveðjum þig, amma, með söknuð í
hjarta,
en minning um faðmlag og brosið þitt
bjarta.
Allar liðnar stundir um þig okkur dreymi
og algóður Guð á himnum þig geymi.
(Sigfríður Sigurjónsdóttir)
Blessuð sé minning þín.
Þín
Edda Lydía.
Vertu sæl mín systir
ég sé þig síðar meir.
Þar sem þú nú gistir
enginn maður deyr.
Vertu sæl mín sterka
sofðu sætt og rótt.
Þú hamhleypa til verka
hvíldu þig í nótt.
Vertu sæl þú móðir
er margra græddir sár.
Suma skorti slóðir
og aðrir höfðu tár.
Vertu sæl mín kæra
ég veit að vegur minn
mun aftur okkur færa
koss á systrakinn.
Vertu sæl að sinni
sjáðu, nú sólin rís.
Ég finn þig á vegferð minni
við borðið í Paradís.
(GP)
Þín systir,
Rósa Þorláksdóttir.
Mig langar í fáum orðum að
minnast frænku minnar Eddu á
Krossi eins og hún var alltaf köll-
uð í minni fjölskyldu.
Þau Edda og Lúðvík voru
fyrsta kærustuparið sem var að
draga sig saman og ég fékk að
fylgjast með sem barn. Þau stóðu
út við hlið á Sandhól ung og ást-
fangin og spjölluðu í sumar-
blíðunni. Ég heimsótti þau oft á
Krossi sem fullorðin manneskja
og alltaf ríkti þessi sumarblíða á
milli þeirra, tekið var á móti gest-
um með opinum faðmi og hlýju.
Faðir minn fór oft austur eftir að
hann varð ekkill og gisti hjá þeim
heiðurshjónum. Þau voru einstök
hjónin á Krossi og á ég þeim svo
margt að þakka.
Ég og fjölskylda mín sendum
aðstandendum samúðarkveðjur.
Steinunn Pálsdóttir.
Systkinin frá Sandhól, Rósa
móðir mín, Svenni, Edda og Palli,
komu í heiminn í þessari röð á ár-
unum 1931-1936. Þau fæddust
með stuttu millibili sem hefur
vafalítið haft áhrif á hversu sam-
rýnd og samheldin þau hafa verið
í einu og öllu. Foreldrar þeirra,
Ragnheiður Runólfsdóttir og Þor-
lákur Sveinsson, byrjuðu búskap
sinn á Sandhól í Ölfusi. Áður
höfðu þau eignast tvö börn sem
dóu í frumbernsku.
Á stóru heimili þurftu allir að
leggja sitt af mörkum og því
lærðu systkinin ung að ganga til
allra verka innanhúss sem utan.
Vinnusemi foreldranna var þeim í
blóð borin og eitt af mörgu sem
systkinin eiga sammerkt er að
falla aldrei verk úr hendi.
Eyrún Rannveig, eða Edda
eins og hún var ætíð kölluð, settist
að á Krossi í Ölfusi, aðeins stein-
snar frá uppeldisheimili sínu
Sandhól. Þar byggði hún upp
myndarlegt bú og kærleiksheimili
fyrir fjölskyldu sína ásamt ástinni
sinni og samferðarmanni alla tíð,
Lúðvík Haraldssyni. Lúðvík
(fæddur Lloyd Martin Kyvik)
fæddist í Brooklyn í New York,
sonur norskra hjóna sem síðar
urðu ötulir þjónar Hvítasunnu-
hreyfingarinnar á Íslandi. Þau
Edda og Lúðvík tóku það besta
með sér úr báðum fjölskyldum
inn í sitt hjónaband; trú, von og
kærleik til handa öllum sem á vegi
þeirra urðu.
Heimili þeirra að Krossi varð
því ekki aðeins uppeldisheimili
barna þeirra og niðja heldur eins
konar félagsmiðstöð allra þeirra
sem áttu leið um og skipti húsráð-
endur þá engu hvar hver og einn
var staddur í lífsins ólgusjó – allir
fengu höfðinglegar móttökur,
gjörning og gistingu ef svo bar
undir.
Edda og Lúðvík voru ætíð
kappsöm um að leggja sitt af
mörkum fyrir sitt nærsamfélag í
því skyni að gera gott betra.
Dæmi um slík verkefni er ómælt
framlag þeirra í tengslum við
starfsemi Kotstrandarkirkju,
þann eina stað í sveitinni sem ná-
grannar fylkja jafnan liði í gleði
eða sorg. Á þeim vettvangi nutu
þau sín og þar sinnti Edda störf-
um meðhjálpara um árabil.
Edda var einstaklega frænd-
rækin og um margt eins konar
höfðingi síns liðs. Hún var ætíð
dugleg að aðstoða Pál bróður sinn
við heimilishald og bústörf en Páll
tók við búskap á Sandhól eftir for-
eldra þeirra. Edda var stálminn-
ug á afmælisdaga okkar allra og
það brást aldrei að ég fengi símtal
á afmælisdaginn minn og eftir-
minnileg eru öll afmæliskortin
sem dóttir mín Rósa Guðbjörg
hefur fengið í gegnum tíðina frá
Eddu frænku í Krossi.
Samband systkinanna frá
Sandhól hefur alltaf verið gott en
þó er mér ofarlega í huga sam-
band Rósu móður minnar og
Eddu systur hennar. Þær voru
ætíð í stöðugu sambandi, Edda
frá Krossi og mamma úr Vestur-
bænum í Reykjavík. Mörg símtöl
á viku, stundum mörg á dag.
Skiptust á fréttum um verkefnin í
sveitinni, fjölskylduna eða bara
dægurmál líðandi stundar.
Guð blessi þig, Edda frænka.
Umhyggja þín, hlýja og kærleik-
ur gerði okkur sem þig þekktum
öll að betri manneskjum. Nú er
það okkar að bera þann kyndil
áfram til næstu kynslóða.
Ragnheiður Þóra
Kolbeins og fjölskylda.
Sumt fólk hefur áhrif á sam-
ferðafólk sitt og umhverfi með
hógværð til orðs og æðis, sem og
umhyggju fyrir öllu lífi, hvers eðl-
is sem það er. Trúrækið fólk sem
lifir frekar fábrotnu lífi og skilar
dagsverki sínu svo eftir er tekið.
Ein slík gæðakona er til moldar
borin í dag, Eyrún Rannveig Þor-
láksdóttir, húsfreyja á Krossi í
Ölfusi, eða Edda á Krossi eins og
sveitungar nefndu hana.
Kotstrandarkirkja er á fögrum
stað í Ölfusi, skammt frá Krossi.
Ölfusingar eru stoltir af þessari
fögru kirkju. Svo var einnig um
Eddu á Krossi. Hún sat árum
saman í sóknarnefnd kirkjunnar,
þar sem hún kom ávallt fram af
skyldurækni og alúð. Hún var
kirkjuvörður Kotstrandarkirkju
til fjölda ára og naut virðingar og
trúnaðar í því starfi. Maður henn-
ar, Lúðvík Haraldsson, sem látinn
er fyrir nokkrum árum, var
hringjari kirkjunnar um árabil.
Saman höfðu þau hjónin árum
saman umsjón með kirkjugarði
Kotstrandarkirkju. Var sérstak-
lega til þess tekið, hversu vel og
umhyggjusamlega þau sinntu því
starfi.
Edda á Krossi var ráðvönd
kona sem bar virðingu fyrir öllu
lífi, mönnum og málleysingjum.
Að slíku fólki laðast allt sem lifir.
Það var gott að koma að Krossi.
Gestrisni var mikil, saklaust grín
og gaman, þegar það við átti. Vin-
argreiði sjálfsagður og ávallt til
staðar.
Við hjónin á Gljúfri þökkum nú
að leiðarlokum Eddu á Krossi góð
kynni og vináttu.
Blessuð sé minning Eddu á
Krossi.
Jón Hólm
Stefánsson.
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2018
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Þökkum innilega alla samúð og
hluttekningu við andlát og útför
SIGURÐAR ÞORSTEINSSONAR
fyrrverandi bónda á Skúfsstöðum,
síðar skógarbónda Melum,
Hjaltadal.
Hólmfríður G. Sigurðardóttir Gunnar Þór Garðarsson
Reynir Þór Sigurðsson
Una Þórey Sigurðardóttir Rafn Elíasson
Njáll Haukur Sigurðsson Arnfríður Agnarsdóttir
Inga Sigurðardóttir Stefán Ægir Lárusson
Halla Sigrún Sigurðardóttir Birkir Marteinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
LÁRUS J. HELGASON
geðlæknir,
Miðleiti 7, Reykjavík,
lést á Vífilsstöðum laugardaginn 23. júní.
Jarðarförin fer fram í Bústaðakirkju fimmtudaginn 5. júlí kl. 13.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Geðvernd
(Geðverndarfélag Íslands).
Ragnhildur Jónsdóttir
Marta Lárusdóttir Ólafur Þór Ævarsson
Helgi Lárusson Hólmfríður Haraldsdóttir
Guðrún Lárusdóttir Vignir Sigurðsson
Rafnar Lárusson Þorbjörg M. Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts elskulegrar
eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
INGIBJARGAR JÓNU JÓNSDÓTTUR,
sérkennara á Akranesi,
Nýhöfn 4, Garðabæ.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 11b, 11g og líknardeildar
Landspítalans fyrir frábæra umönnun og hlýhug í veikindum
hennar.
Ingjaldur Bogason
Ingibjörg St. Ingjaldsdóttir Guðmundur R. Guðmundsson
Sólborg Þóra Ingjaldsdóttir Einar Geir Hreinsson
Guðríður Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
ÁSLAUG HARTMANNSDÓTTIR,
sérkennari,
til heimilis í Lindasmára 24,
lést á heimili sínu laugardaginn 23. júní.
Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 5. júlí
klukkan 13.
Hartmann Ingvarsson
Kristín Ósk Ingvarsdóttir Emil Hjörvar Petersen
Ronja Áskatla Petersen
Þrándur Alvar Petersen
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞÓRHALLA DAVÍÐSDÓTTIR,
Fannborg 8,
Kópavogi,
lést laugardaginn 16. júní.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Davíð Aðalsteinn Sverrisson
Sigríður María Sverrisdóttir Þorvarður Hjalti Magnússon
Sverrir Þórarinn Sverrisson María Pálmadóttir
Torfi Ólafur Sverrisson Inga Björg Sverrisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÚN FLÓVENZ ÓLAFSDÓTTIR,
Kópavogsbraut 88,
fædd 17.8. 1927 í Viðey,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
miðvikudaginn 27. júní.
Ólafur G. Flóvenz Sigurrós Jónasdóttir
Brynhildur G. Flóvenz Daníel Friðriksson
Margret G. Flóvenz Tryggvi Stefánsson
Gunnar G. Flóvenz Bera Pálsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegi maðurinn minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
BJARNI JÓHANNES GUÐMUNDSSON
Jói,
varð bráðkvaddur föstudaginn 22. júní.
Kveðjustund fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 3. júlí klukkan 15. Útför verður frá
Raufarhafnarkirkju fimmtudaginn 12. júlí klukkan 14.
Sigrún Kjartansdóttir
Helga Bjarnadóttir Stefán Ásgeir Ström
Guðrún Ýr Bjarnadóttir Páll Jónsson
Karen Henný Bjarnadóttir Sindri Magnússon
barnabörn og langafabarn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GRÉTAR ÓLAFSSON,
tæknifræðingur,
Víðilundi, Akureyri,
var jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 25. júní í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum
ættingjum og vinum auðsýndan hlýhug og samúð. Sérstakar
þakkir færum við starfsfólki á Dvalarheimilinu Lögmannshlíð
fyrir hlýja og góða umönnun.
Helga Jónsdóttir
Jón Sævar Grétarsson
Ólafur Grétarsson Jenný Guðmundsdóttir
afa- og langafabörn
Ástkær maður minn, faðir minn, afi okkar,
bróðir og vinur,
FRIÐRIK G. FRIÐRIKSSON
Frissi fararstjóri,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi
þriðjudaginn 26. júní. Útför hans fer fram frá
Neskirkju fimmtudaginn 5. júlí kl. 13. Blóm
og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á að leyfa endurhæfingarmiðstöðinni á Reykjalundi
að njóta þess.
Lísa Kristinsdóttir
Þorsteinn Baldur Friðriksson
Anna Lára Friðriksdóttir
og fjölskyldur þeirra