Morgunblaðið - 30.06.2018, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 30.06.2018, Qupperneq 34
Drottningin tók hring í hestvagni Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir er fertug í dag. Hún er verk-efnastjóri hjá Íslandsstofu og hefur fengist við ýmis störf íáranna rás, vann til að mynda á Morgunblaðinu á sínum tíma. Lærði viðskiptafræði í Háskólanum í Reykjavík áður en hún fluttist til Lundúna og sótti sér meistaragráðu í almannatengslum frá University of Westminster. Þá bjó hún á Ítalíu um hríð. Ljóst er að Gunnhildur hefur meiri trú á veðurguðunum en margur landinn um þessar mundir. Hún fagnar stórafmælinu í góð- um hópi í garðinum heima í dag. „Mismikið hefur farið fyrir afmæl- ishaldi hjá mér undanfarin ár enda ber afmælið upp í kringum eina stærstu ferðahelgi sumarsins. Þó er alltaf eitthvað gert úr deginum, hvort sem það felst í góðum mat, bíltúr á Þingvöll eða öðru. Þegar stórafmælið ber síðan upp á laugardag eins og núna er ekki annað hægt en að gera sér meiri dagamun en ella. Ég hef ekki gefið upp vonina um að sólin láti sjá sig. Það má alltaf vona.“ Fögnuðurinn hófst þó að nokkru fyrr í júní þegar afmælisbarnið og vinkonur hennar héldu til Englands. „Auk þess að sækja London heim var líka dvalið í góðu yfirlæti í ensku sveitinni. Hópurinn fór meðal annars á konunglegu veðreiðarnar í Ascot.“ Í viðlíka sam- kvæmi er félagsskapurinn að vonum ágætur. „Það var ekki ónýtt að vita af drottningunni sjálfri á svæðinu, m.a. að sjá hana taka sinn hefðbundna hring í hestvagni … hún er alveg merkileg bless- unin.“ Gunnhildur er gift Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóra Sam- taka iðnaðarins. Þau búa í Garðastrætinu. Milli fjalls og fjöru Hjónin við Como-vatn á Ítalíu síðasta sumar. Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir er fertug 34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2018 Á sdís Skúladóttir fæddist á Eskifirði 30.6. 1943 og ólst þar upp til 1956 er fjölskyldan flutti til Reykjavíkur. Hún var í Gaggó Vest við Hringbraut, lauk stúdentsprófi frá MR 1964, kenn- araprófi frá KÍ 1965, prófi frá Leik- listarskóla Reykjavíkur 1968, BA- prófi í félagsfræði frá HÍ 1977, dip- lómunámi í opinberri stjórnsýslu MPA frá HÍ 2008, var í söngnámi hjá Göggu Lund og Guðmundu Elías- dóttur og sótti námskeið hjá Endur- menntunarstofnun HÍ og víðar. Ásdís var barnapía frá 10 ára aldri, vann í frystihúsinu á Eskifirði, tók þátt í síldarævintýrinu þar, vann í saltfiski hjá BÚR, vann á City hóteli, Hótel Bifröst og Hótel Borg. Ásdís var kennari við Melaskóla 1965-72 og 1980-82, við Leiklistar- skóla LR 1978-79, við Kvennaskólann 1983-85 og kennir enn félags- og tóm- stundafræði við HÍ frá 2003. Hún var leikari og leikstjóri hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1968-97, leikstýrði m.a. Ronju ræningjadóttur eftir Astrid Lindgren, Ljóninu eftir Björn Th. Björnsson og lék m.a í Spanskflug- unni og Saumastofunni sem voru með vinsælustu sýningum Iðnó. Hún var leiðbeinandi í höfundasmiðju LR 1995-96, leikstýrði í Færeyjum, hjá Havnar Sjónleikarfélagi 1982 og 1995 og Sjónleikarfélagi Klakksvikur 1983, hjá Wasa Teatern í Finnlandi, hefur leikstýrt fjölda sögulegra verka af ýmsum tilefnum, leikstýrt sýningum áhugaleikfélaga, hjá Leik- félagi Kópavogs, Leikfélagi Keflavík- ur, Leikfélagi Selfoss og Leikfélagi Sauðárkróks og við framhaldsskóla, s.s. Kvennaskólann og FB, og haldið námskeið í leiklist og leiklistarsögu. Ásdís stundaði dagskrárgerð og leikstjórn hjá RÚV með hléum frá 1968, stofnaði og leikstýrði ÁS- leikhúsinu 1987, stofnaði listamiðju- leikhópinn Smáhópinn hjá LR, stofn- aði Nafnlausa leikhópinn, var félags- ráðgjafi hjá Kópavogsbæ, vann þar með unglingum en einkum við félags- starf aldraðra, var settur félagsmála- stjóri Kópavogs um hríð, 1982, og var lausráðinn starfsmaður Hana-nú í Kópavogi 1978-2004. Hún var for- stöðumaður Félagsmiðstöðvarinnar Hæðargarði í Reykjavík 2004-2013. „Nú stýri ég lífssöguhópi í Hæðar- Ásdís Skúladóttir, leikari, leikstjóri og fyrrv. forstöðum. – 75 ára Fjölskyldan Ásdís með sínu fólki í San Jose í Kostaríku sl. vor. Frá vinstri: Skúli, Daníel, Ásdís, Adam og Móeiður. Sinnti vel leiklistinni og eldri borgurum Leikstjóri og höfundur Ásdís með Astrid Lindgren, en Ásdís leikstýrði Ronju ræningjadóttur eftir Astrid. Kópavogur Alba Lea Bergþórsdóttir fæddist 2. ágúst 2017 kl. 0.12. Hún vó 3.270 g og var 49 cm löng. Foreldrar henn- ar eru Brynja Marín Sverrisdóttir og Bergþór Ingi Magn- ússon. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is FÆREYJAR 2 fullorðnir með fólksbíl. verð á mann frá ISK14.700 DANMÖRK 2 fullorðnir með fólksbíl. verð á mann frá ISK27.400 Vikulegar siglingar allt árið til Færeyja og Danmerkur. Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími: 570-8600 Smyril Line Seyðisfjörður 4702808 | info@smyril-line.is | www.smyrilline.is Taktu bílinn með til Færeyja eða Danmerkur Bæklingurinn okkar fyrir 2018 er kominn út. Í honum finnur þú fullt af tilboðum og verðdæmum. Hægt er að nálgast hann á www.smyrilline.is Bókaðu núna og tryggðu þér pláss

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.