Morgunblaðið - 30.06.2018, Page 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2018
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Heiðnar grafir í nýju ljósi
– sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð
Iben West og Else Ploug Isaksen – Augnhljóð í Myndasal
Nanna Bisp Büchert – Annarskonar fjölskyldumyndir á Vegg
Prýðileg reiðtygi í Bogasal
Leitin að klaustrunum í Horni
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið alla daga 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið alla daga 10-17
ÝMISSA KVIKINDA LÍKI - ÍSLENSK GRAFÍK – 11.5. - 23.9.2018
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign – 7.4.2017 - 31.12.2019
BÓKFELL Eftir Steinu í Vasulka-stofu 22.5 - 31.12 2018
SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga frá kl. 10-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TVEIR SAMHERJAR – ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON
21.10.2017 - 7.10.2018
Opið alla daga frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR
KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
15.5. - 15.9.2018
Opið alla daga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ingibjörg Elsa Turchi er meðiðnustu hljóðfæraleikurumlandsins og maður er nánast
farinn að sjá nafn hennar oftar en
nafn Magnúsar Trygvasonar Elias-
sen (svona nánast getum við sagt!).
Ingibjörg fer yfir mörk og mæri og
spilar popp og örgustu tilrauna-
tónlist, kemur fram á böllum með
Stuðmönnum og Babies, liðsinnir
neðanjarðartónlistarmönnum eins
og Special K og plokkar gígjuna
með Soffíu Björgu og Teiti. Svo
fátt eitt sé nefnt.
Tónlist ferðast á stundum
undarlega í dag, sumu er klínt í
andlitið á manni en fyrir öðru þarf
að hafa. Streymi og netútgáfa veld-
ur því að við höfum aldrei verið
ríkari að útgefnu efni, aldrei hefur
verið auðveldara að nálgast það en
um leið er útgáfa sú stundum eins
og beljandi stórfljót þar sem góð
og gegn verk sökkva óforvarandis
til botns. Þannig tók Ingibjörg upp
tónlist árið 2016 með góðri
hjálp frá Sigurlaugu Gísla-
dóttur (Mr. Silla) og gaf út
sem eitt 17 mínútna verk,
„Wood/Work“, og var því
hlaðið upp á Soundcloud-
síðuna. Þar lúrði það um
sinn, í tiltölulega miklu
skjóli frá eyrum okkar tónlistar-
áhugamanna. Það var svo ekki fyrr
en snemma vors á þessu ári sem
verkið fékk almennilega, eða eigum
við að segja almennilegri, útgáfu.
Íslenska útgáfan Smit Records
(Héðinn Finnsson) hlóð verkinu
upp á Bandcamp-setur sitt en hin
ágæta Bandcamp-síða hýsir
fjöldann allan af grasrótarútgáfum
frá veröld víðri. Auk upprunalega
verksins (sem er nú stytt, en engar
áhyggjur, Soundcloud-hlekkurinn
er enn virkur) eru nú þrjú lög auk-
Bassafljótið höfuga
Morgunblaðið/
Iðin Ingibjörg Elsa Turchi bassaleikari er bæði mikilhæf og mikilvirk.
reitis sem tekin voru upp af Ingi-
björgu einni á síðasta ári. Efn-
islega eru verkin svo til á tveimur
sjötommum sem gefnar voru út í
fimmtán eintökum. Það
form stýrði því að „Wood/
Work“-verkinu var skipt
upp í fjóra, ríflega þriggja
mínútna parta.
Tónlistin sjálf er al-
gerlega æðisleg. Hún kall-
ar í fyrsta lagi fram þau
verk sem Skúli Sverrisson hefur
verið að semja, mínimalískur
bassaleikur sem myndar taktviss
stef og lykkjur. Hljóðið er unnið og
nótum og skölum vafið haganlega
saman. Tónlistin minnir um leið á
sólótónlist þá sem meðlimir bresku
síðpönksveitarinnar Wire gáfu út
eftir að þá sveit þraut örendi í
fyrsta sinn („Wood/Work 2: Strip-
down“). Einkanlega þá plötur Colin
Newman og minnir umslag „Wood/
Work“ t.d. á þessar plötur. En nú
veit ég ekkert hvort þetta var ætl-
að eður ei! Ákveðinn munur er á
nýrri verkunum og þeim eldri, en
ekki mikill. Aðeins meira flökt á
stílnum mætti segja, „Meliae“ lýtur
nokkurn veginn sömu lögmálum og
„Wood/Work“ en „Siroi“ er t.d.
hvassara, víraðra og meira af knýj-
andi áhrifshljóðum sem nuddast
utan í hljóðrásunum. Allt í allt,
virkilega áhlýðilegt verk og ég hvet
lesendur til að nálgast þessa tón-
list. Ætti þeim ekki að verða skota-
skuld úr því, eins og ég hef verið
að lýsa.
»Hún kallar í fyrstalagi fram þau verk
sem Skúli Sverrisson
hefur verið að semja,
mínimalískur bassa-
leikur sem myndar takt-
viss stef og lykkjur.
Wood/Work er sóló-
plata eftir hinn mik-
ilhæfa bassaleikara
Ingibjörgu Elsu Turchi.
sveitinni í Malmö en hefur nú snú-
ið sér að öðru.
Færa Ísland nær umheiminum
Að sögn Hlífar var ákveðið að
blása til sumartónleika á fyrsta
opnunarári safnsins. „Það var
bara ekkert um að vera í Reykja-
vík á sumrin á þeim tíma. Við
sáum þarna möguleika á að kynna
safnið og miðla bæði myndlist og
tónlist á sama tíma,“ segir hún.
Í gegnum tíðina hafa þau systk-
in nýtt tengsl sín innan tónlist-
arheimsins til að fá kunningja og
kollega að utan til að koma að
spila á tónleikunum. „Það hefur
verið okkar markmið að færa
landið nær umheiminum og öfugt.
Við viljum sjá til þess að tónlistar-
unenndur heyri ekki aðeins í þeim
frægustu heldur kynnist einnig
öðrum minna þekktum.“
Mikil aðsókn frá tónlistarfólki
Að sögn Hlífar hefur áhugi tón-
listarmanna á að halda tónleika í
safninu alla tíð verið mikill. „Við
höfum opið umsóknarferli og fáum
iðulega um og yfir 40 umsóknir,“
„Menning
bætir
mannlífið“
Sumartónleikaröð í safni Sigurjóns
Ólafssonar haldin þrítugasta árið í röð
Gítarleikur áberandi að þessu sinni
Morgunblaðið/Valli
Á Laugarnesi Hlíf við heimili móður sinnar og safnið sem helgað er verkum föður hennar, Sigurjóns Ólafssonar.
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
stendur fyrir röð sumartónleika í
sumar líkt og fyrri ár. Safnið
fagnar 30 ára starfsafmæli í ár og
eru sumartónleikarnir jafnaldra
safninu. Má segja að þema tón-
leikanna í ár sé gítarleikur, þótt
það hafi raðast þannig fyrir ein-
skæra tilviljun, að sögn Hlífar Sig-
urjónsdóttur, dóttur Sigurjóns og
eins aðstandenda tónleikanna.
Hún segir salinn henta afar vel
fyrir gítarleik.
Tónelsk fjölskylda
Rík tónlistarhefð er í húsinu á
Laugarnestanganum sem hýsir í
dag safn myndhöggvarans Sig-
urjóns Ólafssonar. Húsið var áður
heimili Sigurjóns auk þess sem
það hýsti vinnustofu hans að hluta
til. Börnin hans fjögur ólust þar
upp og spiluðu öll á hljóðfæri, að
sögn Hlífar: „Þetta var mikið tón-
listarheimili og var tónlistin órjúf-
anlegur partur af þessu húsi,“
segir hún.
Sigurjón dó árið 1982 og stofn-
aði ekkja hans, Birgitta Spur, safn
utan um verk hans í húsinu nokkr-
um árum síðar. Öll börn Sigurjóns
og Birgittu stunduðu tónlistarnám
og þrjú þeirra lögðu tónlistina fyr-
ir sig. Hlíf er fiðluleikari og Freyr
bróðir hennar flautuleikari á
Spáni. Ólafur, elsti bróðir þeirra,
var sellóleikari í sinfóníuhljóm-