Morgunblaðið - 30.06.2018, Side 39

Morgunblaðið - 30.06.2018, Side 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2018 Anna Margrét Björnsson amb@mbl.is Reykjavík Goth Night er íslenskur goth-klúbbur sem er haldinn á nokkurra mánaða fresti í höfuð- borginni og teflir fram frábærum tónlistarmönnum og plötusnúðum sem leika myrka tónlist: goth- tónlist, óttubylgju, dauðarokk og iðnaðartónlist. Goth-kvöldin hafa átt sér stað úti á Granda og á Gauknum og hafa verið mjög vinsæl hjá neðanjarðarliði Reykjavíkur. Brennandi hugsjón Skipuleggjendur Reykjavik Goth Night eru þau Theódóra Björk Guð- jónsdóttir, Bjarki Þór Guðmunds- son, Guðrún Sæborg Ólafsdóttir og Kenneth Balys sem er einnig þekkt- ur sem tónlistarmaðurinn Dada Pogrom en öll hafa þau staðið í þessu af brennandi hugsjón síðan árið 2011. „Fyrir utan að vera öll goth og hafa tilheyrt senunni um áratugaskeið höfum við samanlagt yfirgripsmikla þekkingu á banka- starfsemi, rafmagns- og tölvu- verkfræði, hárgreiðslu og félags- ráðgjöf,“ segir Theódóra sem iðulega þeytir skífum á goth- kvöldunum sem DJ Vetrarsorg. En fyrir hverja er Reykjavik Goth Night? „Reykjavík Goth Night eru einu skemmtistaðakvöld sinnar tegundar á Íslandi,“ útskýrir hún. „Þar getur fólk upplifað og veg- samað ólíkar víddir goth-menning- arinnar í tónlist, dansi og klæðnaði. Allir eru velkomnir á kvöldin og þá einna helst þau sem sjaldan hætta sér á skemmtistaði og upplifa sig jaðarsett í íslensku næturlífi eða fá ekki sköpunarþörf sinni fullnægt í gráma hversdagsleikans.“ Nakið hold er líka goth En eru goth-kvöldin svona alveg „full-on“ goth þar sem fólk mætir uppdressað í gothara-föt? „Stutta svarið er einfalega „já“ en við sem komum þarna saman erum alls konar í útliti, komum úr öllum áttum, alls konar umhverfi og erum af öllum kynjum. Margir leggja sig fram og klæðast eða klæðast minna ákveðnum fatnaði. Nakið hold er líka goth og á þessum kvöldum fáum við meira frelsi til þess að vera þau sem við erum og viljum vera en víða á djamminu í Reykjavík. Við höfum ekki „dress code“ og gerum engar kröfur til fólks að klæðast goth- fötum sem einhvers konar búningi. Goth er frelsi, goth er fegurð og goth er leyndardómur. Það kemur innan frá og býr í hjörtum þeirra sem þekkja töfra næturinnar.“ Elektrónískt iðnaðargoth Næsta goth-kvöld á sér stað á laugardagskvöldið á Gauknum frá kl. 21 og þá mun koma fram ástr- alska tónlistarkonan og fatahönn- uðurinn Amelia Arsenic, en hún spilar elektrónískt iðnaðargoth. Einnig kemur fram Rex Pistols frá Montréal sem spilar minimal cold- wave, en á öðrum goth-kvöldum hafa komið fram mögnuð bönd á borð við Hatari, The Gothsicles, Electronic Substance Abuse og dada pogrom. Áhugasamir gotharar og önnur börn næturinnar geta nálgast miða í forsölu á 1.500 krónur eða á 2.000 krónur við dyrnar á Gauknum en miðinn veitir jafnframt 20% afslátt í gotnesku versluninni Rokk & Róm- antík á Laugavegi. Goth er fegurð og frelsi  Goth-arar safnast saman á goth-kvöldi á Gauknum  Einu skemmtistaðakvöld sinnar tegundar á Íslandi Morgunblaðið/Valli Goth-arar Skipuleggjendur goth-kvöldsins sem fram fer á Gauknum í kvöld. ////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// ////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// ////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// Hin árlega tónlistarhátíð Englar og menn hefst í Strandarkirkju á morgun, sunnudag, með opnunar- tónleikum í kirkjunni en á þeim kemur fram fríður flokkur tónlist- armanna, þau Björg Þórhallsdóttir sópran, Elmar Gilbertsson tenór, Elísabet Waage hörpuleikari, Guðni Franzson klarínettuleikari og Hilmar Örn Agnarsson organisti og flytja sönglög eftir Sigvalda Kaldalóns, Emil Thoroddsen, Pétur Sigurðsson, Guðna Franzson, F. Schubert, T. Arne, L.V. Beethoven, Chopin, Donizetti og fleiri. Í tilkynningu segir að hátíðin verði lengri í ár en undanfarin ár og standi nú yfir frá 1. júlí til 12. ágúst. Sem fyrr verður söngur í öndvegi og fram koma margir fremstu söngvarar og hljóðfæra- leikarar landsins ásamt ungum og upprennandi söngvurum. Sunnudaginn 8. júlí verða tón- leikar í umsjá Bjarna Frímanns Bjarnasonar, tónlistarstjóra Ís- lensku óperunnar, sem kemur á þeim fram með fríðu föruneyti ungra og upprennandi tónlistar- manna. 15. júlí koma fram sópran- söngkonan Sólrún Bragadóttir og Ágúst Ólafsson barítón og með þeim leikur Jón Sigurðsson á orgel og píanó. Söngkonurnar Hanna Þóra Guðbrands- dóttir sópran og Hanna Dóra Sturludóttir mezzósópran koma fram 22. júlí og með þeim leikur Ástvaldur Traustason á orgel og harm- onikku, 29. júlí feðginin Valgeir Guðjónsson og Vigdís Vala Val- geirsdóttir og 5. ágúst söngvar- arnir Hildigunnur Einarsdóttir alt og Jón Svavar Jósefsson barítón með dagskrá tileinkaða Halldóri K. Laxness, svo nokkrir tónleikar séu nefndir en hátíðinni lýkur með Maríumessu og lokatónleikum 12. ágúst kl. 14 þar sem fram koma Björg Þórhallsdóttir sópran, Sig- rún Hjálmtýsdóttir sópran, Elísabet Waage hörpuleikari og Hilmar Örn Agnarsson organisti. Sr. Baldur Kristjánsson sóknarprestur annast guðsþjónustuna. Þema hátíðar- innar er englar og menn, land, nátt- úra, trú og saga þar sem þjóðlög, einsöngslög og dúettar ásamt inn- lendum og erlendum trúarljóðum hljóma. Björg Þórhallsdóttir sópr- ansöngkona er listrænn stjórnandi og framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Björg Þórhallsdóttir Englar, menn, land, náttúra, trú og saga Ástarlög Lilja Guðmundsdóttir sópran og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanó- leikari halda tónleikana Draumur um ást þriðjudaginn 10. júlí. Flamenkó Reynir Hauksson gítar- leikari heldur tónleika 3. júlí. Guitar Islancio Jón Rafnsson, Björn Thoroddsen og Gunnar Þórðarson. segir Hlíf. „Þá gætum við þess að hafa fjölbreytni í vali á flytjendum og efnisskrám. Það er þessi fjöl- breytta flóra sem er svo nauðsyn- leg fyrir hvern gróanda. Ásamt því að gefa ungum og óþekktum tækifæri í bland við áhugaverða og svo þá þekktari.“ Meðal þekktra nafna á dagskránni í sum- ar má nefna gítartríóið Guitar Isl- ancio og danska verðlaunagít- arleikarann Søren Bødker Madsen. Lifandi staðsetning Staðsetning hússins þykir henta vel fyrir tónleika, þar sem lifandi flutningurinn fær að njóta sín í námunda við öldurótið. Hlíf telur að tónleikahald standi á kross- götum því mjög auðvelt aðgengi er að alls konar tónlist á stafrænu formi. Hún segir þó ekkert koma í stað lifandi flutnings. „Hugsjón okkar er að gefa fólki tækifæri til að hlýða á lifandi tónlistarflutning í þessu fallega umhverfi. Nálægðin og upplifunin, það er alveg sér- stakt og ekkert kemur í stað þess.“ Aðstandendur safnsins hlakka til sumarsins og vona að það birti til með sumrinu. „Við treystum því að veðurguðirnirnir verði okkur hliðhollir og við fáum dásamlegt útsýni og sólarlag. Menning bætir mannlífið, við megum ekki gleyma því,“ segir Hlíf. Fyrstu tónleikarnir verða þriðjudaginn 3. júlí kl. 20.30, en þar mun gítarleikarinn Reynir Hauksson flytja suðræna tóna frá Andalúsíu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.